Morgunblaðið - 25.03.1975, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1975
Það var heldur betur rafmagn-
að loftið f Vogaskólanum á sunnu-
dagskvöldið þegar IS og IMA
mættust f Islandsmótinu f blaki.
Hið geysisterka IS lið sem hefur
ekki tapað leik á keppnistfmabil-
inu stóðst þá miklu pressu sem á
þvf hvfldi og sigraði IMA f spenn-
andi leik 3:1.
Með þessum sigri má segja á Is
sé komið með aðra höndina ef
ekki báðar á bikarinn því liðið
þarf aðeins að vinna eina hrinu af
Þrótti í síðasta leik mótsins sem
verður í kvöld.
— Þróttarar, sem töldu sig held-
ur betur hlut eiga að máli, voru
mættir á staðinn og hvöttu IMA
óspart og við þessa hvatningu var
sem IMA liðið efldist til muna og
byrjaði leikinn af ffdonskrafti og
fyrstu mfnútur leiksins voru mjög
skemmtilegar og spennandi. En
stúdentar héldu ró sinni og eftir
að IMA hafði komizt f 4:2 tóku
þeir á honum stóra sínum og Frið-
rik Guðmundsson sendi næstu sex
uppgjafir yfir netið og með
slæman fleyg gekk IMA ekki sem
bezt að byggja upp sókn og upp-
Halldðr Jdnsson, fyrirliðl IS slær knottinn yfir netií. en IMA-Ieikmennirnir eru tilbúnir I hávörninni.
Stúdentar tóku UMFN
eftir mikinn barning
Með sigri yfir lS hefði UMFN
tekizt að tryggja sér 3. sætið f 1.
deildinni, og þar með ná því tak-
marki sem þeir settu sér f upp-
hafi keppnistímabilsins. Stúdent-
ar náðu hinsvegar að sigra f leikn-
um með 89 stigum gegn 83, og er
þvf enn um sinn ailt í óvissu með
það hvaða lið hreppir 3. sætið.
Þessi leikur sem skipti raunar
engu máli hvað viðkemur stöðu á
botni eða toppi 1. deildar var
síðasti leikur UMFN f mótinu, og
mega þeir vel við sinn hlut una.
Liðið hefur aldrei áður náð við-
Iíka árangri f 1. deild. Njarðvfk-
ingar eru nú komnir upp með
topplið, lið sem er öllum hættu-
legt, og á eftir að gera stóra hluti
á komandi árum.
IS-liðið hefur hinsvegar valdið
áhangeridum sínum miklum von-
brigðum í vetur, verið ákaflega
mistækt, en á að geta mun meira
en staða þeirra í deildinni segir til
um i dag.
I leiknum gegn UMFN var þó
IS-liðið sterkari aðilinn, Þeir
höfðu 13 stig yfir í hálfleik 43:30,
og raunar má segja að sigurinn
hafi aldrei verið i hættu. Steinn
Sveinsson var nú stigahæstur
með 20 stig, Albert Guðmundsson
13, Jón Indriðason 12. — Gunnar
Þorvarðarson skoraði mest fyrir
UMFN, 24 stig, Einar Guðmunds-
son og Stefán Bjarkason 16 hvor,
Stefán með öll sín stig á síðari
hálfleik, og fékk svo rauða spjald-
ið í lok leiksins. Þar með á hann
yfir höfði sér keppnisbann í upp-
hafi næsta keppnistfmabils.
gk.-.
ÍBÍ í 2. deild ?
NÆR óruggt má telja, að ísafjörður
sé kqminn upp I 2. deild i körfubolt-
anum. Úrslitakeppnin I 3. deild var
háð um helgina, og sigraði fsafjörður
þá bæði Eiðaskóla og UBK í úrslitun-
um. Fyrirvari var þó hafður á varð-
andi þessa keppni, þar sem dómstóll
K.K.Í. hefur enn ekki afgreitt kæru-
mál ÍBK gegn UBK. Hinsvegar virðist
nokkuð Ijóst að ÍBK vinni ekki þá
kæru, m.a. vegna þess að fyrirliði
þeirra undirritaði leikskýrslu og sam-
þykkti þar með úrslitin.
ísafjörður var með bezta liðið i úrslit-
unum, og sigrar þeirra í báðum leikjun-
um voru öruggir þótt ekki væru þeir
stórir. Á laugardag sigruðu þeir Eiða-
skóla með 67 stigum gegn 57, eftir
jafna baráttu lengst af. Óli Ingimarsson
var þá áberandi beztur ísfirðinganna,
og Hermann Níelsson Eiðamanna með-
an hans naut við. — Siðan sigraði
(safj. UMBK daginn eftir með 62 stig-
um gegn 56, og aftur var um jafnan
leik að ræða lengst af, en undir lokin
lék UBK með aðeins 4 leikmenn, og þá
tryggði isafj. sér sigurinn endanlega.
UBK náði síðan í annað sætið með því
að sigra Eiðaskóla, 86:80, og lék því-
UBK við neðsta liðið I 2. deild, UMFG,
i gærkvöldi um laust sæti í 2. deild.
Óli Ingimarsson var áberandi bezti
leikmaður þessarar úrslitakeppni,
boltameðferð hans og hreyfingar allar
eru mjög góðar, og hittnin á köflum
mjög góð. Hann skoraði alls 50 stig i
leikjunum, og var stighæstur.
gk-
ATH. Crslit leiks IR og Armanns eru færd
inn samkvæmt leikskýrslu.
lR 13 12
KR 13 10
A 13 8
UMFN 13 8
IS 13
Valur 13
Snæf. 13
HSK 14
Stighæstir:
Kolbeinn Pálsson KR
Jón Sigurðsson A
Stefán Bjarkason I MFN
Þórir Magnússon Val
Kristinn Jörundsson lR
Gunnar Þorvarðarson UMFN
Kristján Ágústsson Snæf.
Agnar Friðriksson iR
Bezta vftaskotanýting (40 skot eða fleiri).
Til að eiga rétt á verðlaunum skal taka
minnst 40 skot, svo enn geta einhverjir bæzt í
þann hóp sem keppir um verðlaunin.
Kolbeinn Pálsson KR 81:59 = 72,8%
Símon Ölafsson A 72:52 = 72,2%
Gunnar Þorvarðarson UMFN 70:49 = 70,0%
Þórir Magnússon Val 41:28 = 68,3%
Jón Jörundsson IR 52:35 = 67,1%
Jón Sigurðsson A 51:34 = 66,6%
Steinn Sveinsson IS 52:34 = 65,5%
Kristinn Jörundsson |R 86:56 = 65,1 %
Ingi Stefánsson IS 74:48 = 64,9%
Stefán Bjarkason UMFN 44:27 = 61,4%
Björn Christenssen A 46:28 = 60,9%
Fleiri ná ekki 60% gk-
1 1107:1007 24
3 1188:1080 20
5 1105:1023 16
6 1125:1100 16
6 1009:1005 14
8 1087:1070 10
11 862:1033 4
996:1161 2
299
286
265
264
252
244
242
240
— Snillingurinn f Ármannslið-
inu, JÖN SIGURÐSSON, sá um
það öðrum fremur að HSK féll f 2.
deild. Sigur f leiknum gegn
Ármanni var sfðasta hálmstrá
HSK, en stórleikur Jóns kom f
veg fyrir HSK næði þeim sigri.
Þar með er 5 ára dvöl HSK í 1.
deild lokið, en ef að Ifkum lætur
verður viðdvöl þeirra í 2. deild
ekki Iöng. Þeir eiga leikmenn f 2.
fl. sem ekki hafa spilað með m.fl.
liðinu í vetur í 1. deiid, en hefðu
styrkt liðið.
Þrátt fyrir fjarveru Antons
Bjarnasonar gekk HSK vel i
leiknum framan af, og liðið hafði
yfir í hálfleik 42:39.
Ármann náð sfðan forustunni í
siðari hálfleik en ekki þó afger-
landi forustu fyrr en undir lokin.
Þá skoraði Ármann 12 stig í röð,
staðan breyttist úr 79:70 í 91:70,
og þar með voru örlög HSK ráðin.
Lokatölur urðu 96:79, og þessi úr-
slit fleyttu Ármanni upp í 3. sæti í
deildinni.
— Jón Sigurðsson sýndi enn og
sannaðí hversu mikill afburða
leikmaður hann er. Hann lék
aðeins fyrri hluta fyrri hálfleiks-
ins og skoraði þá 20 stig. 1 siðari
hálfleik bætti hann við 23 stigum,
og kom því út með alls 43 stig. Er
ekki að efa að stigametið í 1. deild
hefði verið í hættu ef hann hefði
leikið með allan tímann. — HSK-
liðið var jafnt, Birkir Þorkelsson
þó einna beztur, og Hilmar
Viktorsson fann sig loks með lið-
inu, en e.t.v. of seint.
Stigahæstir: Armann: Jón 43,
Jón Björgvinsson 19.
HSK: Þröstur Guðmundsson 21,
Hilmar Viktorsson 14. sg-gk.
LIOM
Bikarkeppni KKI
Ármann—KRb 77:67
EKKI varð hann jafn glæsilegur sigur Ármanns yfir b liði KR i
undanúrslitum Bikarkeppninnar eins og margir höfðu reiknað með.
77:67 urðu lokatölurnar i leiknum, en skömmu fyrir leikslok munaði
aðeins 6 stigum á liðunum. Ármannsliðið átti að visu afleitan leik á
köflum, og þarf að sýna „hinar hliðarnar" ef það ætlar að sigra a lið
KR i úrslitaleiknum 3. aprii.
Ármann byrjaði með miklum látum i leiknum, komst i 12:0 og hafði
yfir i hálfleik 44:27. En með þrautseigju tókst KR-ingum að saxa á I
síðari hálfleik, þótt ekki tækist þeim að vinna upp forskot
Ármenninga. Jón Sigurðsson skoraði mest fyrir Ármann, 1 9 stig, Jón
Bjorgvinsson 16, „Gamli" landsliðsmaðurinn i KR liðinu, Hjörtur
Hansson, var langstighæstpr þar, skoraði 23 stig.
KRa—ÍS 80:78
Þegar leik KR og fs i undanúrslitum Bikarkeppni K.K.f. var að Ijúka,
og allt benti til þess að framlengja þyrfti, rennti Kristinn Stefánsson
miðherji KR sér undir körfu fS, og skoraði úrslitakörfu leiksins með
„undraskoti" aftur fyrir sig. Þar með sigraði KR i leiknum með 80
stigum gegn 78. og tryggði sér rétt til að leika úrslitaleikinn gegn
Ármanni.
Þessi leikur var á köflum vel leikinn, en spennan sem fylgir leikjum
eins og þessum reyndist þó sumum ofviða. ÍS komst i upphafi i 16:6,
en KR jafnaði 16:16 og komst siðan yfir og hafði yfir í hálfleik 41:35.
— f siðari hálfleik var allt í járnum allan timann. og það var ekki fyrr
en á síðustu sek. leiksins sem Kristinn tók til sinna ráða og „bjargaði
deginum".
Gisli Gislason vakti enn mikla athygli i liði KR fyrir leik sinn. en
þessi nýliði i liðinu sýnir framfarir i hverjum leik. Hann barðist vel i
vörninni og gætti Inga Stefánssonar svo vel að Ingi náði sér aldrei á
strik, og i sókninni var Gisli einnig drjúgur. Þá var Kolbeinn Pálsson
góður. svo og Bjarni Jóhannsson sem sótti sig mikið er á leið leikinn
— Bjarni Gunnar var KR-ingum erfiður i þessum leik sem var hans
langbezti á keppnistímabilinu, og það sannaðist nú að þegar „byrinn
er Bjarna hagstæður" stendst fátt fyrir honum. Þá kom Þorleifur
Björnsson inn i liðið á ný og vakti athygli fyrir góða hittni. Kolbeinn
var stighæstur KR-inga með 28 stig, Bjarni skoraði mest fyrir ÍS, 26
st'9 gk.—
STAÐAN
HSK í 2. deild eftir
tap fyrir Ármanni
ÍS með aðra höndina á bik-
arnum eftir sigur yfir IMA
spilið var allt of langt frá netinu.
Þar af leiðandi var sóknin hjá
ÍMA ekki nógu sterk fyrir hina
geysisterku hávörn hjá IS. Einnig
var mjög illa sett undir hjá IMA
og var það út allan leikinn og
gengu IS menn á lagið og laum
uðu óspart á miðjuna og aftur
í hornin. Þetta forskot dugði IS
sem sigraði hrinuna 15:8. En það
var sami krafturinn í IMA þótt á
móti blési og komu þeir tvíefldir
til leiks í næstu hrinu og tóku
góða forystu 6:0. En þetta kom
stúdentunum greinilega á óvart,
en þeir tóku nú að átta sig á hvað
var að gerast og minnkuðu mun-
inn 8:5 og brátt höfðu þeir jafnað
11:11. Spennan var gífurleg og
IS komst 12:11 en með mikilli
baráttu sigraði IMA verðskuldað
15:12. Það voru Ölafur Thorodd-
sen og Sigfús Hraldsson sem áttu
beztan leik IMA í þessari hrinu
en uppspilið fyrir þá var langt frá
því að vera gott. Indriði Arnórs-
son og Helgi Harðarson unnu
mjög vel saman og skellti Indriði
oft frábærlega, einnig áttu Frið-
rik og Halldór Jónsson góðan leik.
I þriðju og fjórðu hrinu var allt
púður úr iMA og eftirleikurinn
var IS auðveldur. Stórsigrar í báð-
um hrinum: 15:4 og 15:6. Sem fyr
var fleygur hjá ÍMA afspyrnu
lélegur og þar af leiðandi léleg
sókn. Samt voru skellarar IMA
ragir er þeir fengu gott uppspil og
laumuðu þeir á vitlausa staði hjá
IS. IS sannaði það og sýndi að
þeir eru með mjög gott og sterkt
lið, og er nokkuð öruggt að þeir
vinna Islandsmeistaratitilinn í ár
og eru þeir vel að sigri komnir.