Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRlL 1975 Danmörk stokkuð upp SlÐAN þingkosningarnar í Danmörku í desember 1973 höfðu hausavíxl á öllum hefðum seinni tíma í dönskum stjórnmálum, hefur Mogens Glistrup lög- maður og Framfaraflokkur hans spilað stórt hlut- verk á stjórnmálasviðinu. Hinir dramatísku atburðir síðustu vikna í sam- bandi við stjórnarmyndunartilraunir Hartlings fyrrv. forsætisráðherra og nú allra síðast hugsan- lega fangelsun leiðtoga Framfaraflokksins hafa á ný beint kastljósi aó þessum sérstæða stjórnmála- manni. Þegar Glistrup stofnaði Framfaraflokkinn á glaðri stund á útiveit- ingastað f Tívolí, spáðu flestir stjórnmálamenn þvf, að toftið myndi fljótt fara úr þeirri hreyfingu, sem leiðtoganum tókst að koma á fót. En Glistrup lætur engan bilbug á sér finna og ekki er að sjá að hann sé minna á lofti nú en f upphafi, þrátt fyrir eindregna andstöðu ailra stjórnmálaafla f Danmörku. Ef þingkosningar færu fram i Danmörku um næstu helgi, myndi fjórði hver kjósandi velja flokk Glislrups lögmanns, Fram- faraflokkinn. Flokkur þessa um- deilda leiðtoga myndi að öllum líkindum fá nær því 50 þíngsæti i þjóðþingi Dana. Þetta sýna nýjar skoðanakannanir, sem fram fara meó reglulegu bili i Danmörku og hafa oft sýnt ótrúlegt næmi á þrýstinginn í hinu pólitiska and- rumi kjósendanna. Mörgun þykja þetta uggvænieg tíóindi og næsta ótrúleg, tæpum mánuói eítir að Anker Jörgensen loks náði aö myndi minnihluta- stjórn sina. Líf þeirrar stjórnar hangir raunar á bláþræði, sem svokallaðir borgarafiokkar geta klippt á, þegar þeim þóknast. Það er þó ótrúiegt að slíkt gerist á næstu mánuðum, þvi þráðurinn milli stjórnmálamannanna í Kristjánsborgarhöll og hins al- menna kjósanda og starfandi stótta var orðinn svo mjór og visinn, m.a. vegna leiða almenn- ings á siendurteknum þingkosn- ingum, aö margir voru teknir að óttast algert upplausnarástand í landinu. Urslit janúarkosninganna i Danmörku voru stórkostlegt áfall fyrir alla stærstu „gömlu" flokk- ana, þ.e. jafnaðarmenn, venstre, radikale og íhaldsmenn. Þótt ílokkur Hartlings fyrrv. forsætis- ráðherra ynni stóran sigur og jafnaðarmenn nokkurn, var hlut- ur Framfaraflokksins samt mestur og óvæntastur. I 14 mánuði höfðu allir flokkarnir í þinginu lagst gegn öllum tilliigum flokksins og fæst blöð og önnur málgögn i Dan- mörku ganga beinlínis erinda Glístrups. En meö undraverðum hætti náói Glistrup og lið hans til iýðsins: höfðaði og vitnaði, skammaði, skrumaði og sagði brandara og benti siðan á sig og sagðí: Eg er ykkar maóur. Margir hafa undrast mjög veg þessa gáfaða lýðskrumara, sem hælist yfir því að hafa hagnýtt sér gluíurnar í skattalöggjöfinni þannig, að hann hefur ekki greitt opinber gjöld mörg undanfarin ár, þrátt íyrir milljónaauð og mikla einkaneyslu. En hvað veldur, spyrja margir Danir og þannig er viðar spurt. Stjórnmálaleiöi almennings Urslit siðustu þingkosninga í Danmörku gefa það til kynna, að hinir æfðu stjórnmálamenn, sem lengi hafa karpað og þæft góðlát- lega i þjóðþinginu um hin marg- víslegu viðfangsefni löggjafa- valdsins, eru langfiestir án raun- verulegra tengsla við lífið utan múra hallarinnar. Glistrup, fylgi flokks hans og lýðhylli persón- unnar, er alls ekki pólitiskt vandamál nema að óverulegu leyti. Heldur er það fyrst og fremst sálfræðilegt samíélags- vandamál. Stjórnmálamennirnir — bundnir af hefð — taka Glistrup íyrir stjórnmálamann. Enda segist hann vera það. En það lægi auðvitað miklu beinna við að reyna að ráða bót á því meini í samféiaginu, sem hlýtur að vera fyrir hendi, þegar slík fjöldahreyfíng getur orðið til, aflað fylgis og komist til umtals- verðra áhrifa í þjóðfélaginu. í stað þess aó stimpla Glistrup fas- ista í bak og fyrir og allt hugsan- legt ljótt og vont, myndu stjórn- málamennirnir gera sjálfum sér og samfélaginu miklu meira gagn með þvi að reyna að lækna sjúkl- inginn, þ.e. þjóófélagið og þá myndi meinið, þ.e. Glistrup og hreyfing hans, hjaðna að mestu. En aðgerðin er líka vandasöm. Avanahugsun atvinnustjórn- málamannanna hefur hneppt marga þeirra í fjötra doðans og gert þá fanga i pappiramoði hinnar opinberu stjórnsýslu. Og þessir merku samtiðarmenn hafa ekki enn gert sér alveg Ijóst og viðurkennt opinberlega, að fylgi Glistrups og útbreiðsla erindis hans og stuðningur hálfrar til einnar milljónar kjósenda, bygg- ist fyrst og fremst á óánægju meó rikjandi ástand, sem vissulega hefur verið skapað af löggjafar- og framkvæmdavaldinu. liinir konunglegu jaf naöarmenn. Undir forystu Staunings for- sætisráðherra á fjórða áratug aldarinnar varð flokkur danskra jafnaðarmanna hinn stóri um- bötaflokkur Danmerkur. Flokkurinn kraíðist umbóta sem fólk þarfnaðist og skildi og barð- ist íyrir þeim með þeim styrk sem góður málstaður veitir. Og þessi happasæli atbeini entist flokkn- um fram eftir sjötta áratugnum. Með H. C. Hansen forsætisráð- herra má segja að taldir séu dagar hins rúmgóða konunglega jafnaðarmannaflokks, sem átti fylgi svo margra og óskyldra segull, sem dró til sín fylgi bæði frá borgaraíiokkum og vinstri- flokkum. H. C. Hansen var hinn síðasti danskra forsætisráóherra sem hinum almenna borgara þótti hann þekkja i sjálían sig. Þessi glaðlyndi alvörumaður, sem orti tækifærisvísur eins og Jón á Akri og lét krystalsvasana standa á sófaboróinu. Að honum látnum varð Viggo Kampmann forsætisráðherra og síðan hefur leið flokksins smám saman legió æ meir til vinstri, þar til nú, að svokölluð hægriöfl i ílokknum eru nokkuð að ná sér á strik með Per Hækkerup fremstan í flokki. Margir jafnaðarmenn, sem hvorki telja sig standa til hægri né vinstri í flokknum hafa lýst yfir þeirri skoðun að Hækkerup myndi hafa orðió happasælli leiðtogi en Anker Jörgensen. Meirihluti danskra kjósenda er nærri miðja vegu milli ystu aflanna til hægri og vinstri. Þjóöfélagiö stokkaö upp Það var æði margt i Danmörku á sjöunda áratugnum, sem tor- vtldaói almenningi að fylgjast með því sem var aö gerast i sam- félaginu. Skólarnir drógu smám saman úr beinni kennslu i hinum viðteknu greinum, en æ meiri áhersla var lögð á að gera einstaklingnum betur grein fyrir stöðu sinni í þjóðfélaginu; skóiarnir urðu í rikara mæli eins konar eldistöðvar fyrir skoðanir kennaranna sjálfra á þjóðfélags- og stjórnmálum, en minna var gert úr beínni þekkingarmiðlun. Margs konar samtök, þ.ám. atvinnuveitendur og samtök laun- þega, sældust eftir æ meira af því valdi, sem verið hafði hjá ríkis- stjórn og þjóðþingi. Alls konar hagsmunahópar bundust sterkum samtökum og knúðu á dyr vald- hafanna og fengu oft góða úr- iausn fyrir sig. Vald stjórnmálamannanna færðist í sífellt rikara mæli til embættismanna, sem aftur sóttu sína þekkingú til sérfræðinga á mjög eða tiltölulega afmörkuðu sviði. Vélræn gagnavinnsla og tölvur stjórnuðu ákvarðanatöku í ótrúlega rikum mæli og margvis- legar framtiðarspár, misjafnar að gerð og gæðum, torvelduðu stjórnmálamönnunum heildarsýn um ástandið i þjóðfélaginu, þótt einstakir þættir lægju hinsvegar oft ótrúlega ljóst fyrir. Opinber stjórnsýsla marg- faldaðist og starfsmenn ríkís og sveitarfélaga voru 300 þúsundum fleiri 1970 en þeir höfðu verið 1960. Framkvæmdir hins opin- bera uróu, vegna ofskipulagn- ingar, oft fáránlega dýrar og óþarflega íburðarmiklar. Jafnframt öllu þessu var byggt upp tryggingakerfi, sem tók fram öllu i þessum heimi. Bætur voru hækkaðar stórlega og meðfram bættri heilbrigðisþjónustu hækk- aði meðalaldurinn og þarmeð bótaþegum og örorkubótaþegum fjölgaði gífurlega, einkum meðal yngra fólks. Og i kjölfar alls þessa hækkuðu opinber gjöld og skattar hraðbyri og var mjög algengt að þeir sem höfðu ívið meira en meðaltekjur, greiddu sem svarar 60—70% í beina og óbeina skatta til ríkis og sveitarfélaga. Það voru fáir, sem hættu sér út á þann hála is að gagnrýna þetta „velferðarþjóðfélag". Fáir lögðu í að verða taldir „úrtölumenn og afturhaldsseggir". Heildarsýn um raunverulegt ástand þjóðfélagsins var erfið. Það gafst aðeins nokkur mynd af takmörkuðum svióum samfélags- ins. Þess vegna fór aldrei fram nægilega raunsæ umræða um ástandið í þjóðfélaginu. Sú um- ræða fer fyrst fram nú, eftir að Glistrup lögmaður hefur hleypt öllu i bál og brand með árásum sinum á hin rikjandi öfl þjóð- félagsins og hefðunna starfsemi hinna ýmsu þátta þess. Glistrup og skattarnir Þannig var ástandið, þegar Mogens Glistrup kom fyrst fram á sjónarsviðið i skemmtiþætti i danska myndvarpinu árið 1971. Hann var þá lektor í skattarétti við Kaupmannahafnarháskóla og átti stærstu lögfræðiskrifstofu Danmerkur og hafði 70 starfs- menn, þar af 20 lögmenn. Glistrup skýrði frá glufunum í skattalöggjöfinni og hvernig menn gætu — með löglegum hætti að hans áliti — sloppið við skatt. Hann lýsti því, hvernig hann sjálfur, sem þó var marg- faldur milljónamæringur í dönsk- um krónum, komst hjá því að greiða opinber gjöld — með lög- mætum hætti að hann taldi. Fólki var mjög skemmt af ummælum Glistrups, sem voru sett fram á kjarnmikilli born- hólmsku. En í stað þess að vinda bráðan bug að því að setja undir lekann á skattalöggjöfinni, sem nú hefur verið gert að nokkru, og leyfa fólki að skemmta sér í friði, urðu stjórnmálamennirnir með Poul Möller fjármálaráðherra í broddi fylkingar, öskureiðir. Þeir hófu fljótlega aðgerðir gegn lögmann- inum. Eftir Braga Kristjónsson Greinarhöfundur, Bragi Krist- jónsson, er við nám f Kaup- mannahöfn. Hann er einn af fréttariturum Morgunblaðsins í Danmörku. aðilja i þjóðfélaginu og var sá Skrifla um Mogens Glistrup og Framfaraflokkinn í Danmörku Stjórnmálamenn og embættis- menn höfðu varið gifurlegri vinnu og heilabrotum í gerð og framkvæmd skattalaganna og svo kom þessi frakki lögmaður og sagði: Það er alls engin ástæða til að borga skatt. Komið til min og fáið nánari leiðbeiningar. „Ég sagði ekki annað en það sem 2000 lögmenn og endur- skoðendur í landinu vissu fyrir," sagði Glistrup síðar. Framfaraflokkurinn Árið eftir stofnaði Glistrup Framfaraflokkinn. Stofnunin fór fram á glaðri stund á útiveitinga- stað í Tívolí. Það var frá upphafi mikill áhugi hjá almenningi á þessum sérkennilega milljóna- mæringi, sem ekki borgaði neina skatta og sagði að aðrir ættu auðvitað ekki að gera það heldur. En jafnframt þessum hálfgerðu gamanmálum, sem þó náðu strax tökum á fólki, tókst Glistrup að samtvinna á fágætan hátt fjar- stæðukennda fyndni og baráttu gegn skattakerfinu og áhuga og stuðning vaxandi fjölda fólks. Og hverjir gengu til liðs við þennan skemmtilega lögmann, sem nú gerðist stjórnmálamaður og sagði opinberri stjórnsýslu og skattakerfiRu stríð á hendur? I fyrstu var því haldið fram, eftir þingkosningarnar i desem- ber 1973, að fylgi Glistrups hefði nær eingöngu komið frá ihalds- flokknum, sem mjög tapaði fylgi svo og nærliggjandi öflum, svo sem radikale. En hlutiausar kannanir hafa siðan leitt allt annað í ljós: Af kjósendum Fram- faraflokksins höfðu um 40% áður kosið jafnaðarmenn eða flokka vinstra megin við þá og 60% mið- og hægriflokka. Mótmæli almenmngs. Sú hálfa milljón kjósenda, sem greiddi Glistrup og flokki hans atkvæði 1973 og nær jafn margir aftur 1975, var ekki eingöngu að votta stefnuskrá þess flokks traust sitt: Fólk fékk hinsvegar langþráð og kærkomið tækifæri til að láta í Ijós vantraust á ríkj- andi ástandi á mörgum sviðum samfélagsins. Orðheppni og leiftrandi gáfur Glistrups hafa líka laðað til hans fólk í hálfgerðri blindni. Margir hreinlega trúa á hann. Talsverðr- ar sefjunar hefur gætt í kringum Glistrup og flokk hans. Hann hefur talið æði mörgum trú um að úrræði hans á stjórnmálasviðinu séu hin einu réttu og honum hefur líka oft tekist að erta og ergja hina æfðu stjórnmálamenn í viðurvist alþjóðar. Þekking hans á skipan þjóð- félagsins virðist einstök og úr- vinnsluhæfileiki hans í kappræðu er sérstakur. Með bros á vör gerir hann litið úr stjórnmálamönn- unum og embættismönnum og færir oft haldgóð rök fyrir máli sinu, a.m.k. svo að stór hluti almenuings er honum sammála. Fjöldi manna, sem áður kaus aðra flokka hefur lýst þannig afstöðu sinni: Ég er jafnaðar- maður/eða sósíalisti, en okkur vantar Stauning/ Aksel Larsen. Allir stjórnmálamenn ljúga, en ég held að Glistrup ljúgi minnst. Þess vegna fylgi ég honum. — En það eru líka fleiri atriði, sem gert hafa Glistrup vinsælan í opinberum miðlum, hljópvarpi og myndvarpi. Hinir æfðu stjórn- málamenn hafa smám saman þróað með sér ákveðið framkomu- form, látbragð, sérstök svipbrigði og raddbeitingu; allt er það frem- ur dapurlegt að heyra og sjá. Svör þeirra við spurningum frétta- manna eru oft mjög loðin og tvi- sýn. Fólki finnst það ekki fá svör við því sem um er spurt — og það telur sig eiga rétt á. Sérstaklega hefur mönnum hætt til þessa eftir að þeir eru orðnir ráðherrar: að sveipa um sig dularhjúp, sem almenningi gest ekki að og veldur tortryggni. Einnig að þessu leyti er fram- koma Glistrups öll önnur: hann svarar öllu, og heimtar lika ákveó- in svör af viðmælendum sinum. Margir eru þeirrar skoðunar, að hér hafi lögmaðurinn unnið þarft verk að rjúfa að nokkru þann múr, sem hinir æfðu stjórnmála- menn hafa byggt um starf sitt og svið. Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.