Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRlL 1975 31 Elzta sundmetið féll á KR-mótinu og einnig 100 metra skriðsundsmetið ELZTA fslenzka sundmetinu var rutt úr vegi f fyrrakvöld, á sund móti KR, sem fór fram í Sundhöll Reykjavíkur, er hin unga og efni- lega sundkona úr Ægi, Þórunn Alfreðsdóttir, synti 200 metra fjórsund á 2:37,1 min. Eldra met- ið átti Hrafnhildur Guðmunds- dóttir, sem um árabil var ókrýnd sunddrottning Islands, og var það 2:38,3 mfn., sett árið 1968, — munaði sáralitlu að önnur sund- kona næði einnig betri tíma en gamla metið f keppninni í fyrra- kvöld, þar sem Vilborg Sverris- dóttir, SH, sem varð önnur í sund- inu á eftir Þórunni, synti á 2:38,6 mín. Vilborg bætti hins vegar met Lísu Ronson Pétursdóttur í 100 metra skriðsundinu um 1/10 úr sek. með því að synda á 1:03,2 mfn. Greinilegt er að sundiþróttin er nú á verulegri uppleið aftur, eftir lægð er varð í henni er flest bezta sundfólk landsins hætti keppni samtímis, þar sem nú er að koma fram margt ungt sundfólk sem tekur íþrótt sína alvarlega og á eftir að ná góðum árangri, ef svo heldur sem horfir. Meðal þessa unga fölks er Sonja Hreiðarsdóttir, UMFN, sem setti tvö telpnamet á KR-mótinu í 200 metra fjórsundi og 50 metra flug- sundi, og Adolf Emilsson, KR, sem setti sveinamet í 400 metra skriðsundi. A KR-mótinu var keppt um fjóra bikara og höfnuðu tveir þeirra hjá Axel Alfreðssyni — bikar fyrir sigur í 400 metra skriðsundi, og Sindrabikarinn fyrir sigur f 200 metra fjórsundi. Flugfreyjubikarínn hlaut Vilborg Sverrisdóttir fyrir 100 metra skriðsundið og afreksbikar SSl, sem veittur er fyrir bezta afrek mótsins hlaut Guðmundur Ólafs- son, Hafnfirðingur fyrir 200 metra bringusund sitt. Helztu úrslit KR-mótsins urðu annars þessi: 400 metra skriðsund karla: Axel Alfreidsson, Æ 4:29.1 Brynjólfur Björnsson, A 4:36,7 Arni Kyþórsson, A 4:37,2 100 metra skriðsund kvenna: VilborK Sverrisdótlir, SII 1:03,2 Þórunn Alfreósdóttir, Æ 1:04,0 BáraÖlafsdóttir, A 1:08,0 200 metra bringusund karla: (•uómundur Ólafsson, SH 2:33,0 <>uómundur Húnarsson, Æ 2:43,9 Hreinn J akobsson, A 2:48,4 100 metra baksund kvenna: Yilborg Sverrisdóttir, SH 1:21,0 Ingibjörg Skúladóttir, KR 1:23,4 Ingibjörg Ólafsdóttir, SH 1:26,4 50 metra flugsund telpna: Sonja Hreióarsdóttir, UMFN 37,3 Regfna Ólafsdóttir, KR 39.4 Hrefna Magnúsdóttir. Self. 40,4 100 metra baksund karla: Bjarni Björnsson, Æ 1:11,6 (iunnar Kristjánsson, A 1:13,0 Hermann Alfreðsson, Æ 1:13,4 200 metra fjórsund kvenna: Þórunn Alfreðsdóttir, Æ 2:37,1 Vilborg Sverrisdóttir, SH 2:38,6 BáraÓlafsdóttir, A 2:46,8 50 metra skriðsund sveina: Þröstur Ingvarsson, Self 32,5 Svanur Ingvarsson, Self. 33,1 Adolf Kmilsson, KR 34,1 200 metra f jórsund karla: Axel Alfreósson, Æ 2:24,4 (iuómundur (ifslason. A 2:24,6 (iuómundur ólafsson, SH 2:26,6 100 metra bringusund kvenna: Elínborg (iunnarsdóttir, Self. 1:24,9 Sjöfn II. Backmann, KR 1:27,5 Aóalheióur Oddsdóttir, A 1:31,3 4x100 metra f jórsund karla: Sveit Armanns 4:29,5 Sveit Ægis 4:30,4 Sveit SH 4:45,5 4x100 metra bringusund kvenna: Sveit Ægis 6:07,7 Sveit KR 6:24,7 Sveit Armanns 6:24,8 FH vann Hauka FH vann Hauka I bikarkeppni HSl I gærkvöldi 23:20. Staðan í hálfleik var 13:10. Leikið var I Hafnarfirði. FH mætir Fram í úrslitum bikarkeppninnar. Leeds vann Barcelona 2:1 Þórunn Alfreðsdóttir, hin bráðefnilega sundkona úr Ægi náði elzta fslenzka sundmetinu á KR-mótinu, synti 200 metra fjórsund á 2:37,1 mfn. ÚRSLIT leikja f undanúrslitum Evrópumótanna i knattspyrnu f gærkvöldi urðu þessi: Evrópukeppni meistaraliða: St. Etlenne — Bayern Múnchen 0:0 Leeds—Barcelona 2:1 (1:0) Evrópukeppni bikarmeistara: Ferencvaros — Red Star Belgrad 2:1 (1:0) Dinamo Kiev — PSV Eindhoven 3:0 (2:0) UEFA-bikarkeppnin: Twente Enschade — Juventus 3:1 (1:0) FC Köln — Borussia Mönchcngladbach (frestaó). 50 þúsund áhorfendur sáu Leeds vinna spænsku meistarana Barcelona. Mörk Leeds gerðu Bremner og Clarke, en Asensi gerði mark Spánverjanna. Leeds átti mun meira í leiknum og sig- urinn hefði getað orðið slærri. Evrópumeistarar Bayern Múnchen eiga mikla möguleika á að komast í úrslit eftir jafnteflið í gærkvöldi. Áhorfendur aó leik þeirra og St. Etienne voru 40 þúsund. Dinamo Kiev kom á óvart. 100 þúsund áhorfendur sáu Kolotov, Onishchenko og Blokin tryggja sigurinn. 60 þúsund áhorfendur sáu Ferencvaros vinna 2:1 með mörkum Branikovits og Magyer, en mark Red Star gerði Savic. Seinni leikir liðanna fara fram eftir mánuð. Fulham og West Ham í úrsKt Arnar Guðlaugsson skorar eitt marka sinna f leiknum við Leikni f fyrrakvöld. Guðgeir og Halldór koma ekki við vörnum. ÚRSLIT leikja í ensku knatt- spyrnunni f gærkvöldi: Bikarkeppnin: Fulham—Birmingham 1:0 West Ham—Ipswich 2:1 1. deild: Derby — Wolverhamton 1:0 Luton—Everton 2:1 Leicester — Middlesbrough 1:0 Leiknir sýndi klærnar í 20 mín- útur, en Fram tók síðan völdin LEIKNIR, sem fór eins og eld- flaug f gegnum þriðju deildar keppnina f handknattleik f vetur, og lagði sfðan að velli tvö annarr- ar deildar lið f bikarkeppni HSt, megnaði ekki að veita Fram veru- lega keppni, er liðin mættust f undanúrslitaleik bikarkeppninn- ar í Laugardalshöllinni f fyrra- kvöld. 29—20 urðu úrslit leiksins, eftir að Fram var búið að ná sex marka forystu f hálfleik 13—7. Fyrirfram áttu víst fáir von á því að Leiknismenn gætu staóizt Fram snúning og það kom því nokkuð á óvart að fyrstu 20 mín- útur leiksins voru mjög jafnar, og staðan eftir þær 7—7. En það sem eftir lifði hálfleiksins var allur vindur úr Leiknisliðinu og Fram- arar skoruðu sex mörk í röð og gerðu þar með út um leikinn. Seinni hálfleikurinn var svo lengst af mjög jafn hvað marka- skorun viðkom; Leiknir halaði heldur inn, og var staðan þannig 22—18 fyrir Fram, þegar 6 mínút- ur voru til leiksloka. Þá datt botn- inn aftur gjörsamlega úr leik Leiknismanna. Á þessum sex mín- útum voru skoruð 9 mörk og gerði Fram 7 þeirra. Þetta var annars heldur lélegur leikur, þegar á heildina er litið. Leikmenn Leiknis virkuðu þung- ir og nokkuð svifaseinir, sérstak- lega I vörninni, þar sem mynduð- ust oft hrikalegar glompur. Þá voru ófá mörkin sem Leiknis- menn fengu á sig eftir hraðaupp- hlaup Framara, en fyrir þeim voru þeir ákaflega sofandi. — Við höfum ekki þurft að hafa áhyggj- ur af hraðaupphlaupum í 3. deild- inni i vetur, sagói Hermann Gunnarsson, þjálfari Leiknisliðs- ins, eftir leikinn, — og kom þaó okkur nú í koll, þar sem Framarar skoruðu mörk sem gerðu út um leikinn á þann hátt. Sóknarleikur Leiknisliðsins var miklu virkari, og kvað þar mest að þeim Hermanpi og Hafliða Pét- urssyni. Hermann skoraði nokkur mörk með stórfallegum skotum, en nýting hans var hins vegar ekki góð, og Hafliði var mjög ógn- andi og laginn að nota sér þær smugur sem buðust. 'Leiknisliðið á tvímælalaust möguleika á því að spjara sig í 2. deildar keppninni næsta vetur. En til þess að vera framarlega þar, þurfa leikmennirnir greini- lega að æfa betur en verið hefur og ná upp betra úthaldi, en greini- legt var að það var ekki í sem beztu lagi hjá flestum leikmönn- um liðsins. Framliðið virkaði heldur áhugalifió i þessum leik og tók ekki meira á en nauðsyn krafði. Meðan Leiknir hélt i við þá létu leikmenn Fram það fara í taug- arnar á sér og voru þá oft óþarf- lega grófir i varnaraðgerðum sin- um. Mörk Fram: Pálmi Pálmason 7, Arnar Guðlaugsson 4, Sigurberg- ur Sigsteinsson 3, Hannes Leifs- son 3, Árni Sverrisson 3, Kjartan Gíslason 3, Ragnar Hilmarsson 2, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Sig- urður Harðarson 1. Mörk Leiknis: Hermann Gunn- arsson 8, Guðgeir Leifsson 4, Haf- liði Pétursson 4, örn Guðmunds- son 1, Jón Ólafsson 1, Halldór Sigurðsson 1. — stjl. 2. deild: Aston Villa — Cardiff 2:0 West Ham vann Ipswich í hörð- um leik og mætir Fulham i úrslit- um bikarkeppninnar. Alan Taylor gerði bæði mörk liðsins, en mark Ipswich var sjálfsmark Billy Jennings. Sex leikmenn voru bók- aðir. Mark Fulham var skorað í framlengingu, og var John Mitzhell þar að verki. Bobby Moore mun því leiða 2. deildar lið Fulham í úrslitum á Vembley gegn sinum gömlu félögum í West Ham. Birmingham þótti betra lið- ið. I 1. deild tók Derby forystuna með sigri sínum í gærkvöldi. Mark liðsins gerði Francis Lee. Tap Everton gegn botnlióinu Luton þýðir að liðið á nú lítla möguleika í sigri I deildinni. Leicester er sloppió úr fallhættu. Jafnir leikir BIKARKEPPNI 2. flokks i hand- knattleik hófst f Laugardalshöll inni I fyrrakvöld og fóru þá fram tveir leikir og þurfti framleng- ingu í þeim báðum til þess að fá úrslit. Fyrst léku KR og IR og eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn 13:13. 1 framlenging- unni skoruðu svo tR-ingar tvö mörk gegn einu og unnu því leik- inn 15:14. Síðan léku Valur og Fram. Höfðu Framarar lengst af yfir i mörkum og komust í 12:8, þegar skammt var til leiksloka. Vals- menn áttu hins vegar góðan enda- sprett og náðu að jafna 12:12, I framlengingunni höfðu Framarar svo betur, 3:2, og unnu þvi leikinn 15:14. Eddy Merckx Belgíski hjólreiðakappinn Eddy Merckx lætur ekki deigan siga. Hann sigraði með yfirburðum i hinni árlegu Flandern hjólreiða keppni. í keppni þessari er farin 225 kilómetra vegalengd og þegar keppnin var rúmlega hálfn- uð stakk Merckx keppinauta sina af. í öðru sæti varð landi hans Franz Verbeeck, en sá er sagður mjög efnilegur hjólreiðamaður og liklegur arftaki Merckx sem hefur lýst þvi yfir að hann muni senn fara að hætta kennni Svend Pri Danski badmintonleikmaður inn Svend Pri, sem vann hina opinberu heimsmeistarakeppni ,.AII England" á dögunum, hefur síðan fengið fjölmörg tilboð frá auglýsingafyrirtækjum að koma fram i auglýsingakvikmyndum og öðrum auglýsingum. Pri segist hugleiða tilboðin, en vist sé að þau opni sér marga moguleika. Hingað til hafi það alltaf verið sér aðaláhyggjuefnið að sjá fyrir sér og sinum og stunda jafnframt þær timafreku æfingar sem iþrótt hans krefst. Agúst Ásgeirsson Ágúst Ásgeirsson hlaupari úr ÍR varð fyrir meiðslum á æfingu nýlega. Slitnuðu sinar og taugar i vinstra hné hans og hefur hann verið algjörlega frá æfingum sið- an. Hann hefur hins vegar verið i meðhöndlun hjá mjög færum sjúkraþjálfurum. sem beita hin- um svonefndu Siapulse-tækjum við lækninguna, en tæki þessi hafa rutt sér mjög til rúms sið- ustu tvö árin og eru talin valda byltingu við meðferð tognunar og vöðvaslits. Ætlunin var að þeir Ágúst og Sigfús kæmu heim og tækju þátt i viðavangshlaupi ÍR á sumardag- inn fyrsta, en með öllu er óvist að Ágúst verði búinn að jafna sig svo af meiðslunum að hann verði fær til keppni, en Agúst hefur sigrað i ÍR-hlaupinu nú þrjú ár i röð. Sigfús mun hins vegar örugglega koma, en hann hefur æft mjög vel að undanförnu og er i betra formi en nokkru sinni fyrr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.