Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRlL 1975 Þrjú stjórnarfrumvörp um menningarmál: 40 tónlistarskólar starfandi í landinu VILHJÁLMUR Hjálmars- son menntamálaráðherra mælti { efri deild Alþingis ( gær fyrir þremur stjórnarfrumvörp- um um menningarmál: frum- varpi til laga um tónlistarskóla, frumvarpi tii laga um hús- stjórnarkennaraskóla og frum- varpi til laga um heimilisfræóa- skóla. Hér á eftir verður birt framsaga ráðherrans með frum- varpi um tónlistarskóla — en efnisatriði ræðna hans um hús- stjórnarkennaraskóla og heimilisfræðaskóla verða rakin síðar hér á þingsíðunni. — A dag- skrá neðri deildar voru þrjú önn- ur stjórnarfrumvörp um menn ingarmál: um Þjóðleikhús, Leik- listarskóla Islands og Almenn- ingsbókasöfn, en þau komu ekki til umræðu og verður getið hér á sfðunni sfðar. Framsaga menntamálaráð- herra: A öllu landinu starfa nú nálægt 40 tónlistarskólar. Starfsemi tón- listarskólanna þykir hvarvetna hafa orðið til hins mesta menn- ingarauka. Skólar þessir eru einkaskólar víðast studdir af öflugu áhugamannaliði. Þeir njóta og nokkurs fjárhagsstuðn- ings frá ríki og sveitarfélögum. Það er á almanna vitorði, að eins og nú er háttað hrekkur stuðningur þess opinbera ekki til þess að tryggja skólunum örugg- an starísgrundvöll. Ekki hefur verið unnt að fastráða kennara skólanna og veita þeim lífeyris- sjóðsréttindi. Sveitarfélögin hafa sumsstaðar orðið að leggja á sig meiri útgjöld en talið er liklegt að þau geti risið undir til frambúðar Vegaáætlun Halldór E. Sigurðsson sam- gonguráðherra gerði i fyrradag grein fyrir vegaáætlun 1974 — 1977. Áætlað fjármagn til vega- gerðar á yfirstandandi ári er þrír og hálfur tnilljarður (3500 in.kr.). Þar af mun rikið leggja frain aí tekjuin sínuin 2630 m.kr. en 900 m.kr. verður aflað ineð lántökuin. — í tekjuáætlun er gert ráð fyrir þvi að innflutningsgjald af bensini nemi 1762 m.kr., þunga- skattur af bifreiðuin 420 m.kr. og gúinmigjald 96 m.kr. Varanlegt adalvega- kerfi á 12—16 árum Saingönguráðherra sagði það kosta um 20 milljarða króna að koma aðalvegakerfi landsins, þ.e. hringveginuin og öðruin aðal- æðuin saingangna á landi, i gott horf. Sagði ráðherra að gera þyrfti langtímaáætlun um þessar frainkvæmdir og röðun þeirra, og mætti sú áætlun ekki ná lengra fram i tímann en 3 til 4 vegaáætl- unartímabil, þ.e. 12—16 ár. Er þá miðað við varanlegt slitlag á alla þá vegi, sein meiriháttar umferð er um, én uppbyggða malarvegi þar sem uinferðarþunginn er minni. Tilraunavegurinn stenzt ekki kostnadaráætlun I máli ráðherra kom fram að vegarkafli sá á Vesturlandsvegi, milli ÁrtúnsárogTíðaskarðs, sem úthlutaður var verktakanum Sverri Runólfssyni, myndi fara og skólagjöld nemenda eru nú orðin það há, að menn óttast að þau kunni að leiða til þess að tónlistarmenntunin verði einskonar' forréttindi þess fólks sem rýmst hefur fjárráð. Frumvarpinu er ætlað að ráða hér nokkra bót á. 1 annarri grein frv. segir svo: „Tónlistarskólar sem fullnægja framangreindum skilyrðum skulu fá styrk frá ríkis- sjóði og frá viðkomandi sveitar- félagi, er nemi launagreiðslum til kennara skólanna. Mér þykir rétt að rifja upp með örfáum orðum forsögu þessa máls. Hinn 27. maí 1960 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu frá Magnúsi Jónssyni og fl. um að skora á ríkisstjórnina að láta undirbúa löggjöf um tónlistar- fræðslu. M.a. væru sett ákvæði um aðild rikisins i þessari fræðslu. Þáverandi menntamálaráð- herra, Gylfi Þ. Gíslason, tók síðan málið upp í október 1962 og lét i framhaldi af þingsályktuninni undirbúa lagafrumvarp um stuðning við tónlistarskólana. Þetta frumvarp var lagt fyrir Al- þingi 1962 og var afgreitt sem lög 20. apríl 1963. Löggjöf þessi var þá tvimæla- laust þýðingarmikið spor i rétta átl. Hefur reynslan sýnt, að hún hefur orðið til mikillar eflingar tónlistarstarfsemi um land allt. Meginstefna laganna var að tón- listarskólarnir yrðu áfram einka- skólar er nytu stuðnings frá rikis- sjóði og hlutaðeigandi sveitar- félagi. Sú nefnd sem fyrrverandi menntamálaráðherra, Magnús verulega fram úr kostnaðaráætl- un verktakans. Heildarkostnaður þessa vegarkafla, 1,2 kin, hefði verið 8,4 m.kr. Verkrnu hefði ekki verið lokið á sl. hausti en kostn- aður hefði þá verið koinin upp í 12,8 m.kr. og kosta myndi 5—7 m.kr. að ljúka verkinu á þessu ári. Heilsugæzlustöð á Skagaströnd Pálmi Jónsson (S) mælti nýverið fyrir frumvarpi til laga uin breytingu á heilbrigðisþjón- ustu, sein hann flytur ásamt Páli Péturssyni (F), Eyjólfi Konráð Jónssyni (S) og Ölafi Jóhannes- syni (F). Gerir fruinvarpið ráð fyrir því að auk heilsugæzlu- stöðvar (H2) á Blönduósi starfi önnur(Hl) á Skagaströnd. Sveitarstjórnarlög og Norðurlands kjördæmi Þá hafa Pálmi Jónsson, Páll Pétursson, Lárus Jónsson, Bragi Sigurjónsson og Eyjólfur Konráð Jónsson flutt breytingartillögu við frumvarp um breytingu á sveitarstjórnarlöguin, sem nú liggur fyrir Alþingi. Breytingar- tillagan er éfnislega á þá lund, að óski ineirihluti sveitarstjórna í Norðurlandskjördæini vestra eða eystra eftir því að stofna sérstök landshlutasaintök (það er nú er eitt fyrir bæði kjördæinin) sé það heiinilt og beri ráðherra að staðfesta reglugerð fyrir slik samtök, þrátt fyrir önnur ákvæði í lagafrumvarpinu. Torfi Oiafsson, skipaði í apríl 1973 til að endurskoða núgildandi lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, var þannig skipuð: Kristinn Hallsson fulltrúi, i menntamálaráðuneytinu, formað- ur, Ölafur Vignir Albertsson, skólastjóri tónlistarskólans i Mos fellssveit, og Bjarni Einarsson, bæjarstjóri Akureyrar, tilnefnd- ur af Sambandi íslenskra sveitar- félaga. Enn er þess að geta að á siðasta þingi flutti Helgi Seljan þings- ályktunartillögu um að skora á rikisstjórnina að undirbúa löggjöf um að fella tónlistarkennslu inn í skyldunámið. Sveitarfélagið skal sjá um launagreiðslur, en rikisstyrkur er nemi 50% launakostnaðar verði greiddur sveitarfélaginu enda séu laun greidd samkvæmt gildandi kjarasamningum á hverjum tíma.“ Með þessum hætti verða kenn- arar viðtónlistarskólanaráðnir af sveitarfélögum og ætti því að vera auðvelt að veita þeim sömu rétt- indi og öðrum kennurum þ.e.a.s. Fæðingarorlof: RAGNHILDUR Helgadóttir (S) flytur, ásamt þingmönnunum Jóni Skaftasyni (F), Guðmundi H. Garðarssyni (S), Sigurlaugu Bjarnadóttur (S), Pétri Sigurðs- syni (S), Ingvari Gíslasyni (F) og Lárusi Jónssyni (S), svohljóðandi frumvarp til laga um fæðingaror- lof og atvinnuleysisbætur. 1. gr. Aftan við 5. mgr. d-liðar 15. gr. laganna komi nýr málsl., svo hljóðandi: Þó skulu þær konur, sem forfallast frá vinnu vegna barnsburðar, njóta atvinnuleysis- bóta í 90 daga samtals. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Greinargeró. Allir viðurkenna nú á dögum, að þriggja mánaða fæðingarorlof hið minnsta sé nauðsynlegt til að tryggja heilsu nýfædds barns og móður þess. Verða þetta að teljast sjálfsögð réttindi þeirra í vel- ferðarþjóðfélagi. Þeim konum, sem starfa hjá hinu opinbera, hafa með laga- heimild verið tryggð þessi rétt- indi í tvo áratugi, sbr. lög nr. 38/1954 og reglugerð nr. 87/1954. Þær konur, sem annars staðar eru launþegar, hafa því miður ekki enn fengið þessi rétt- indi tryggð. Um það er engin spurning, að úr þessu misrétti verður að bæta. Um hitt hafa menn spurt, hver eigi að kosta fæðingarorlof þess- ara kvenna, þegar t.d. margur smáatvinnurekandinn hefur ekki bolmagn til þess. Það er skoðun flutningsmanna þessa frumvarps, að atvinnu- leysistryggingasjóður gæti með RlÞinGI Vilhjálmur Hjálmarsson mennta- málaráðherra. aógang að lifeyrissjóðum og S.F.R.V. 1 6. grein frumvarpsins er ákvæði um það að styrkur skuli veittur til hljóðfærakaupa eftir þvi sem fé er veitt til á fjárlögum. Menntamálaráðuneytió skiptir styrknum með hliðsjón af þörf skólanna og má hann ekki vera nema W af andvirði hljóðfæra. I 7. grein er ákvæði um að heim- ilt sé að veita styrki til tónlistar- kennslu á þeim stöðum sem ekki hafa hin almennu skilyrði um tón- listarskóla. Annars gerir frumvarpió ráð fyrir fremur fáorðri rammalög- gjöf sem menntamálaráðuneytið geti siðan útfært nánar í reglu- geró. Aætlaður kostnaðarauki af sam- þykkt þessa frumvarps fyrir rikis sjóð var um s.l. áramót um 11 m. kr. Menntamálaráðuneytið og nefnd sú er undirbjó þetta frv. Ragnhildur Helgadóttir alþingis- maður. eru á einu máli um það að stefna beri að sem nánustum tengslum við skólakerfi landsins. Frumvarp þetta má því skoða seiri bráóa- birgðabreytingar frá gildandi lög- um um fjárhagsstuðning við tón- listarskóla og sem einskonar áfanga að því markmiði að fella tónlistarnámið að hinu almenna fræðslukerfi. Má því segja, að þetta frumvarp miði fyrst og fremst að því að tryggja grund- völl tónlistarfræðslunnar i land- inu í svipuðu formi og hún er nú og koma í veg fyrir, að tónlistar- kennsla verði forréttindi fyrir hina efnameiri i þjóðfélaginu. En eins og áður sagði þá er nú svo málum komið, að tónlistarskól- arnir hafa mjög ótraustan grund- völl fjárhagslega séð til þess að byggja á sína starfsemi. Ég lit svo á að brýna nauðsyn beri til að afgreiða þetta frum- varp á því þingi sem nú situr. Að lögfestum þeim ákvæðum sem þetta frumvarp inniheldur, fengju tónlistarskólarnir aftur fast land undir fótum og von um aukna fyrirgreiðslu að afgreidd- um fjárlögum fyrir komandi ár. Ég vil leyfa mér að beina þeim tilmælum, til þeirrar háttvirtu þingnefndar, sem fær málið til meðferðar að hún geri sitt til að flýta því, að þetta frumvarp fái nauðsynlega þinglega skoðun svo það gæti orðið afgreitt fyrir lok þessa þings. Eg vil svo leyfa mér, herra for- seti, að leggja til að frumvarpinu verði visað til háttvirtrar mennta- málanefndar að lokinni fyrstu umræðu eðlilegum hætti haft þetta verk- efni með höndum. Leggjum við með frumvarpi þessu til að það verið bundió lögum. í lögum um atvinnuleysistrygg- ingar segir i 18. gr., að atvinnu- leysisbætur miðist við dagvinnu- laun skv. 2. taxta Dagsbrúnar og skuli vera 70—80% af áður greiddum iaunum. Það, sem á kann að vanta, að konan haldi fullum áður greiddum launum í fæðingarorlofi, þyrfti að nást með öðrum hætti. Mætti hugsa sér, að lífeyrissjóðir stéttarfélaganna stæðu undir þeim greiðslum. Það er von flutningsmanna, að þetta frumvarp um fæðingarorlof verði lögfest á þessu þingi, því að ekki er vansalaust, að lengur dragist að leiðrétta þetta ranglæti. Fyrirspurnir á Alþingi: Starfslið, umsvif og eign- ir erlendra ríkja hér Ingvar Gfslason (F) hefur borið fram á Alþingi fyrir- spurnir til utanríkisráðherra, sem tvímælalaust munu vekja athygli landsmanna allra. Spurningarnar varða fjölda starfsmanna, umsvif og eignir erlendra rikja á Islandi og eru svohljóðandi: 1. Hve mörg eru ríkin, sem Islendingar hafa stjórnmála- samband við? 2. Hvaða erlend sendiráð starfa í Reykjavík? 3. Hve fjölmennt er allt starfslið hvers sendiráðs um sig, og hver eru stöðuheiti starfsmanna þeirra? 4. Hverjar eru skráðar eignir erlendra sendiráða og sendi- ráðsfólks hér á landi: a) fasteignir, b) bifreiðar? 5. Hversu mikið fjölskyldulið fylgir erlendum sendiráðs- starfsmönnum hér? 6. Hvaða ríkisstjórnir erlend- Ingvar Gíslason alþingismaður. ar eða aðrir erlendir aðiiar starfrækja hér á landi fasta upplýsingastarfsemi og frétta- miðlun, og hve margt fólk vinn- ur að slikum störfum á vegum hvers um sig? Þingsíða Mbl. mun birta svör utanríkisráðherra strax og þau liggja fyrir. Þingfréttir í stuttu máli Misrétti leiðrétt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.