Morgunblaðið - 10.04.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1975
Þeir voru líka til sem kunnu að meta snjóinn á götum höfuðborgarinnar I gær. Ljósm. öi. K. Mas.
Ves tfi rðingafjórðungur: — Hass
Framhald af bls. 32
Skuttogarinn Guðbjörg
með 545 lestir í marz
GÆFTIR í Vestfirðingafjórðungi
voru góðar í marz, þegar frá eru
taldir nokkrir dagar í fyrstu viku
mánaðarins. Var afli sæmilega
góður í öll veiðarfæri. Bátarnir
frá syðri Vestf jörðunum voru
flestir á netum og fengu yfirleitt
ágætan afla, en bátar frá Iíjúpi og
nyrðri fjörðunum voru flestir á
línu. Var afli þeirra að miklu
leyti steinbítur. Togbátarnir
héldu sig á Vestfjarðamiðum
fram yfir miðjan mánuðinn, en
eftir það voru þeir mest á Eld-
eyjarbanka, og var uppistaðan í
aflanum þaðan ufsi.
1 marz stunduðu 36 (42) bátar
bolf'iskveiðar frá Vestfjöróum,
Gromyko boðið
til Islands
í SAMHLJÖÐA fréttatilkynning-
um, sem gefnar voru út í Moskvu
og Reykjavík í gær um för Einars
Agústssonar til Sovétríkjanna er
frá því skýrt að utanríkisráðherra
hafi boðið starfsbróður sínum
A.A. Gromyko til íslands. 1 til-
kynningunni segir að boðinu hafi
verið tekið með ánægju, en að
síðar verði ákveðið, hvenær sú
heimsókn fari fram. Nánar verð-
ur skýrt frá fréttatilkynningunni
í Mbl. á morgun.
Guðmundur Ibsen
formaður Oldunnar
ADALFUNDUR Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Öldunnar
var haldinn í febrúar sl. og var
þai' kjörin ný stjórn félagsins til
næstu tveggja ára.
Formaður var kjörinn
Guðmundur Ibsen, en aðrir í
stjórn eru Björn O. Þorfinnsson,
Haraldur Agústsson, Þorvaldur
Arnason, Ingólfur Þórðarson,
Benedikt Agústsson og Filip
Höskuldsson.
Þórður Sveinbjörnsson heíur
verið ráðinn starfsmaður félags-
ins og hóf hann störf 1. marz sl.
Þyrlan enn
á Klaustri
ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar
TF-GNÁ hefur verið á Kirkju-
bæjarklaustri á þriðju viku
vegna bilunar. Tvö af þremur
skrúfublöðum þyrlunnar eyði-
lögðust í mikilli vindhviðu sem
lék um staðinn. Voru ný blöð
strax pöntuð frá Bandaríkjun-
um en þau eru ókomin. Er því
ekkert hægt að hreyfa þyrl-
una.
reru 15 (26) með línu, 13 (9) með
net og 8 (7) með botnvörpu.
Heildaraflinn í mánuðinum var
7.144 lestir, og er heildaraflinn
frá áramótum þá orðinn 17.955
lestir. 1 fyrra var aflinn í marz
7.729 lestir og heildaraflinn í
marzlok 15.525 lestir. Afli linu-
bátanna var 2.008 lestir í 287 róðr-
um eða 7,0 lestir að meðaltali i
róðri, en var í fyrra 3.505 lestir í
501 róðri, sem er einnig 7,0 iestir
að meðaltali i róðri.
1 frétt frá skrifstofu Fiskifélags
íslands á Isafirði segir að afla-
hæsti línubáturinn í marz hafi
verið Orri frá Isafirði með 157,5
lestir i 19 róðrum, en í fyrra var
Kristján Guðmundsson frá Suður-
eyri aflahæstur linubáta í marz
með 220,9 lestir i 24 róðrum. Afla-
hæstur netabáta í marz var
Garðar frá Patreksfirði með 304,1
lest í 15 róðrum, en hann var
einnig aflahæstur í fyrra með
389.2 lestir í 22 róðrum. Af tog-
bátunum var Guóbjörg frá Isa-
firði aflahæst með 545,0 lestir i 4
róðrum, en i fyrra var Bessi frá
Súðavík aflahæstur í marz með
484.3 lestir í 4 róðrum.
Atómstöðin frum-
sýnd á Akur-
eyri í kvöld
Akuroyri, 9. apríl —
LEIKFELAG Menntaskólans á
Akureyri frumsýjiir sjónleikinn
Atómstöðina eftir Halldór Lax-
ness I samkomuhúsi bæjarins í
kvöld, fimmtudagskvöld, klukkan
20.30. Leikstjóri er Kristfn Ólafs-
dóttir, en með helztu hlutverk
fara María Arnadóttir, Tryggvi G.
Hansen, Guðmundur Rúnar Heið-
arsson og Jóhann V. Ölason.
Tveggja ára hlé hefur orðið í
starfsemi Leikfélags MA eða sið-
an það sýndi Minkana eftir Erling
E.Halldórsson. Nú tekur það til
starfa með endurnýjuðum kröft-
um og hyggst sýna Atómstöðina á
hverju kvöldi til sunnudags-
kvölds. Einnig er ætlunin að sýna
sjónleikinn á Húsavík og Siglu-
firði. Formaður LMA er Gísli
Ingvarsson.
— Sv.P.
1YNDAMÓT HFi
AOALSTRÆTI 6 — RCVKJAVlK Æ
T>RENTMYNDAGERO SlMI 171S2^F
KaUOLÝ SING ATEIKNISTOFA
SIMI 2SS10
fylgst með því þegar pakkinn var
sóttur. Reyndist eigandi hans
vera 22 ára gamall varnarliðsmað-
ur. Hann var tekinn til yfir-
heyrslu og játaði að vera eigandi
pakkans. Kvaðst hann hafa sent
600 dollara utan til Þýzkalands til
kaupa á hassinu. Ætlaði hann að
selja það á Keflavfkurflugvelli.
Lögreglan hefur einnig í fórum
sínum nafn sendandans f Þýzka-
landi.
Eins og að framan greinir var
hassið falið í tveimur bókum. Var
búið að skera úr bókunum svo
koma mætti fíkniefninu þar fyrir.
Bækurnar tilheyra bókasafni í
Þýzkalandi og bera tiltilinn „The
Mexiean-American People" og ,,A
History og Political Theory", 3.
útgáfa.
— Frestað
Framhald af bls. 32
mannaeyjum var sérstakur sátta-
semjari skipaður til þess að fjalla
um deiluna. Ljóst er að Torfi
Hjartarson, sáttasemjari getur
vart farið til Eyja, þar sem hann á
annríkt við önnur deilumál i
Reykjavík.
—Fjaðrafok
Framhald af bls. 1
Frederick Weynands hershöfð-
ingja, yfirmanns herráðsins, um
stöðuna í Víetnam, og hermdu
góðar heimildir að hann teldi
Saigonstjórn þurfa 500 milljónir
dollara í heraðstoð, sem er 200
milljónum meira en forsetinn
lagði sjálfur til fyrir nokkrum
vikum. Ford mun skýra sameigin-
legum fundi þingdeilda frá til-
lögum sínum um Víetnammálið á
morgun, fimmtudag.
— Mótmæla
Framhald af bls. 1
28 hermenn og þrjá borgara fyrir
meinta aðild að hinni misheppn-
uðu byltingartilraun i Portúgal
fyrir mánuði síðan. Á blaða-
mannafundi lögfræðingasam-
bandsins í dag skýrði lagaprófess-
or einn við háskólann frá því að
meirihluti háskólastúdenta hefði
verið handtekinn eftir að komm-
únistar úr hópi kunningja þeirra
höfðu bent á þá. „Við verðum að
undirstrika betur en nokkru sinni
fyrr aó það sem nú er að gerast
hefur aldrei áður gerst í sögu
okkar," sagði prófessorinn.
— EBE-aðild
Framhald af bls. 1
slik andmæli á þingi. Var því yfir-
vofandi meiriháttar upplausn í
flokknum ef Heffer talaði, því þar
með bentu líkur til að Wilson
myndi svipta hann ráðherraemb-
ætti. Er Heffer gekk í þingsalinn
settist hann ekki i ráðherrastól,
heldur aftarlega í salnum.
Vitað var að um það bil
helmingur þingmanna Verka-
mannaflokksins var andvigur
meðmælum rikisstjórnarinnar til
þjóðarinnar um að kjósa aðild, þ.
á m. margir aðstoðarráðherrar og
sjö ráðherrar af 23 ráðherra ríkis-
stjórn.
En Ihaldsflokkurinn hefur
haldið uppi baráttu fyrir aðild-
inni með stuðningi Frjálslynda
flokksins. Edward Heath, fyrrum
leiðtogi íhaldsflokksins sem gekk
frá aðildinni árið 1972 sem for-
sætisráðherra, hélt sina fyrstu
ræðu i dag eftir að hafa tapað
leiðtogaembættinu til Margareth
Thatcher. Hann deildi hart á þá
sem óttuðust að Bretar glötuðu
þjóðareinkennum sinum með
aðild að EBE, en gagnrýndi um
leið aðferðir Verkamannaflokks-
ins við endurskoðun aðildarskil-
málanna. Þingmenn Ihaldsflokks-
ins fögnuðu ræðu Heaths ákaft.
— Skattalög-
gjofin
Framhald af bls. 2
þetta 15,4 milljarða eða tæplega
það.
I þessu sambandi sagði Halldór
Sigfússon, skattstjóri:
Ekki er úr vegi að víkja að
rannsókn skattstofunnar á fram-
tölum og skattahækkunum i
þessu sambandi. Ekki eru til
talnalegar upplýsingar um þessi
efni varðandi svonefnda fyrri
yfirferð framtala, þ.e. breytingar
á framtölum áður en skattskrá
kemur út. Hins vegar liggja fyrir
tölur um skattahækkanir á seinni
umferð endurskoðunar og við sér-
stakar rannsóknir hinna ýmsu
deilda skattstofunnar. Hækkanir
þessar (brúttó) tilkynntar til inn-
heijntu og gjaldenda síðustu 5 árs-
fjórðunga námu samtals 464
milljónum króna. Frá fyrstu tið
hefur skattstofan stundað bók-
haldsrannsóknir, þó að ekki hafi
verið stofnuð þar sérstök rann-
sóknadeild fyrr en 1. janúar 1956.
Eftir stofnun embættis skattrann-
sóknastjóra hefur þessi deild
skattstofunnar starfað í tengslum
og samráði við það embætti.
Starfsmenn i deildinni eru nú 9
að tölu.
— Kaupfélags-
stjórnin
F’ramhald af bls. 2
kenni stjórnin fullkomlega þessi
rök sem kaupfélagsstjórinn færi
fram fyrir gerðum sinum, lýsi sig
samþykka þeim og feli honum
áfram sem hingað til daglega um-
sjón eignanna.
„ÖLÖGLEGAR ATHAFNIR“
Varðandi síóara atriðið getur
kaupfélagsstjórnin gifturíks
starfa kaupfélagsstjórans sl. níu
ár og minnir á að meiri nauðsyn
sé nú en nokkru sinni fyrr að
félaginu sé stjórnað af festu og
framsýni þegar að steðji ófyrirsjá-
anlegir erfiðleikar I efnahagsmál-
um sem engar líkur sé til að það
fari varhluta af. Síðari segir:
Stjórnin hlýtur því að líta það
mjög alvarlegum augum og harm-
ar, að nokkur hluti starfsfólks
félagsins skuli hafa leiðst út í þá
óhæfu að grípa til ólöglegra
athafna í mótmælaskyni við
stjórnunaraðgerðir kaupfélags-
stjóra, sökum þess að það er hon-
um ekki fyllilega sammála um
réttmæti þeirra. Væntir stjórnin
þess, að umræddur starfsmanna-
hópur endurskoði afstöðu sína til
þessa máls og hefji nú þegar aftur
störf sin hjá félaginu og vinni því
það gagn sem í þess valdi
stendur, hér eftir sem hingað til.
FJÁRSÖFNUN TIL
HANDA VERKFALLSMÖNNUM
I gærkvöldi barst svo Morgun-
blaðinu áskorun frá nokkrum
forustumönnum verkalýðsfélag-
anna, sem hljóðar svo:
„Síðustu daga hefur staðið yfir
vinnustöðvun á verkstæðum
Kaupfélags Árnesinga á Selfossi.
Verkfallsmenn vilja með vinnu-
stöðvun þessari mótmæla órétt-
mætum brottrekstri manns, sem
helgað hefur fyrirtæki samvinnu-
hreyfingarinnar starfskrafta sína
í hálfan fjórða áratug og verið
trúnaðarmaður stéttarfélags síns
í aldárfjórðung, og krefjast þess
að uppsögn hans verði ógilt.
Enn hefur ekkert gerst sem
bendir til þess að forráðamenn
kaupfélagsins láti af ein-
strengingslegri afstöðu sinni.
Þeir valda þvi samvinnuhreyfing-
unni miklum álitshnekki með
þeirri árás á réttindi verkafólks
sem felst i brottvikningu þessa
aldraða starfsmanns.
Við undirritaðir skorum á
verkalýðsfélög, samvinnumenn
og allan almenning að veita verk-
fallsmönnum á Selfossi fjárhags
legan og siðferðilegan stuóning.
Við treystum alþýðu til skjótra
viðbragða.
Styðjum verkfallsmenn á Sel-
fossi fjárhagslega og siðferði-
lega."
Undir þessa áskorun rita
Björgvin Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands Suðurlands,
Eðvarð Sigurðsson, formaður
Dagsbrúnar og forseti Verka-
mannasambands Islands, Guðjón
Jónsson, formaður Félags járn-
iðnaðarmanna, Jón Snorri Þor-
leifsson, formaður Trésmiða-
félags Reykjavíkur, og Magnús
Geirsson, formaður Rafiðnaðar-
sambands Islands. Fram kemur
aó framlögum verður veitt mót-
taka á skrifstofu Dagsbrúnar,
skrifstofu Félags járniðnaðar-
manna, skrifstofu Trésmiðafélags
Reykjavik skrifstofu verkalýðs-
félagsins Bjarma Stokkseyri og
skrifstofu verkalýðsfélaganna á
Selfossi.
— Verzlunar-
bankinn
Framhald af bls. 3
afgreidd alls 40 ný lán að upp-
hæð 77.1 millj. kr„ en heildar-
upphæð útistandandi lána nam
í árslok 230.5 millj. kr.
Hagur bankans
Eigið fé bankans var í árslok
133.9 millj. kr. og hafði aukizt á
árinu um 39.1 millj. kr. Inn-
borgað hlutafé bankans var í
árslok 42.7 millj. kr. og hafði
hækkað á árinu um 12.7 millj.
kr. Til varasjóðs var ráðstafað
24. millj. kr. og er hann í árslok
86 millj. kr. Óráðstafaður
tekjuafgangur var 5.2 millj. kr.
en til afskrifta var varið 4.4
millj. kr.
Staðan gagnvart Seðla-
banka
1 árslok námu innstæður
bankans í Seólabankanum
423.7 millj. kr. og höfðu hækk-
að á árinu um 72.2 millj. kr.
Lán bankans hjá Seðlabankan-
um námu 75 millj. kr. og höfðu
á árinu lækkað um 5.8 millj. kr.
I heild batnaði staðan gagnvart
Seðlabankanum um 78 millj.
kr. á árinu.
(Jtibú
Nýlega hefir bankinn fengið
heimild viðskiptaráðherra og
Seðlabanka til að opna útibú i
Breiðholti I, og hefir bankinn
ákveðið að það verði til húsa að
Arnarbakka 2. Mun það hefja
starfrækslu innan tíðar og bæta
þar með úr brýnni þörf, þar
sem bankaútibú hefir eigi verið
fyrir hendi i Breióholti.
Arðgreiðsla
Fundurinn samþykkti ein-
róma tillögu bankaráðs um að
hluthöfum skyldi greiddur
12% arður af hlutafé sínu.
Kosning bankaráðs
og endurskoðenda
Að þessu sinni áttu að ganga
úr bankaráði þeir Leifur Is-
leifsson kaupmaður og Guð-
mundur H. Garðarsson við-
skiptafræðingur, og voru þeir
báðir endurkjörnir til 2ja ára.
Varamenn þeirra voru kjörnir
Sigurður Matthíasson kaup-
maður og Hannes Þ. Sigurðsson
deildarstjóri. Endurskoðendur
voru kjörnir Hilmar Fenger
framkvæmdastjóri og Krist-
mann Magnússon fram-
kvæmdastjóri.
Bankaráðið er nú þannig
skipað: Þorvaldur Guðmunds-
son forstjóri, formaður, Pétur
Ó. Nikulásson stórkaupmaður,
varaformaður, Guðmundur H.
Garðarsson viðskiptafræðing-
ur, ritari, Leifur Isleifsson
kaupmaður og Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson stórkaupmaður.
Fundinn sóttu um 200
hluthafar.
(Fréttatilkynning
frá Seðlabanka)