Morgunblaðið - 10.04.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRlL 1975
19
Ályktanir um kjaramál
BLAÐINU hafa borizt ályktanir
nokkurra stéttarfélaga um kjara-
mál.
í ályktun Trésmiðafélags
Reykjavíkur segir m.a. að síðan
kjarasamningar hafi verið gerðir
i febrúar 1974 hafi kaupmáttur
launa rýrnað um 40—50% og
heitir félagsfundur á meðlimi
Trésmiðafélagsins og alla verka-
lýðshreyfinguna að vinna ötul-
lega að undirbúningi þeirrar
kjarabaráttu, sem framundan sé
og „hervæðast til átaka gegn
þeirri fjandsamlegu kjara-
skerðingarpólitík, sem atvinnu-
rekendur og ríkisvald beita gegn
verkalýðshreyfingunni", eins og
það er orðað i ályktuninni.
Múrarafélag Reykjavíkur sam-
þykkti á aðalfundi sínum 25. marz
ályktun þar sem segir, að fyrir-
boðar atvinnuleysis hér á landi
leyni sér ekki, og bendir á í því
sambandi, að úthlutun byggingar-
lóða í Reykjavík á árinu 1973 hafi
numið 667 lóðum, en á árinu 1974
hafi hins vegar verið úthlutað 370
lóðum. Skorar fundurinn á ríkis-
stjórnina að gera ráðstafanir til
að tryggja Húsnæðismálastofnun
ríkisins nægjanlegt fjármagn svo
hægt verði að fullgera ibúðir, sem
nú eru i byggingu. Þá skorar
fundurinn á rikisstjórnina og
borgar- og sveitarstjórnir að
draga ekki úr framkvæmdum,
sem fyrirhugaðar hafa verið á
þeirra vegum og atvinnuaukandi
eru.
Trúnaðarmannaráósfundur
Starfsmannafélags rikisstofnana
ályktaði á fundi sínum 15. marz
s.l. að höfuðskylda stjórnvalda á
hverjum tima sé að gera í tíma
nauðsynlegar ráðstafanir i efna-
hags- og gjaldeyrismálum, áður
en allt sé komið í óefni. Telur
fundurinn jafnframt sjálfsagða
kröfu allra vinnandi stétta að
fram fari úttekt á raunverulegri
stöðu allra atvinnugreina i land-
Staðarbakka, 7. apríl.
SlÐASTLIÐINN sunnudag
bauð Búnaðarsamband Vestur-
Húnavatnssýslu stjórnarnefndar-
mönnum búnaðarfélaga á svæð-
inu og konum þeirra ásamt
nokkrum gestum til kaffidrykkju
Inuk við Sigöldu
LEIKFLOKKURINN, sem sýnir
Inuk, heimsótti starfsfólkið við
Sigöldu í s.l. viku og hélt þar tvær
sýningar föstudaginn 4. april,
aðra fyrir dagvaktina en hina
fyrir næturvaktina.
Þótti starfsmönnunum þetta
góð heimsókn og hafa beðið
blaðið að koma á framfæri sér-
stöku þakklæti til leikaranna.
Alls munu um 500 manns hafa séð
sýningarnar.
Júgóslavnesku starfsmennirnir
virtust skemmta sér vel engu
síður en islenzkir starfsbræður
þeirra og stigu nokkrir þeirra
m.a. 600 gamlan júgóslavneskan
dans að sýningu lokinni.
í félagsheimilinu á Hvamms-
tanga. Tilefni þessa hófs, var að
fram fór afhending verðlauna til
tveggja bænda í sýslunni fyrir
ágætan árangur f starfi, bæði á
svæði búf járræktunar, jarð-
ræktar og umgengni heima við.
Slík viðurkenning hefur ekki
verið veitt hér fyrri. Voru þetta
vandaðir áletraðir bikarar.
Bikarana hlutu Einar Jónsson
bóndi á Tannstaðabakka og kona
hans Guðrún Jósefsdóttir fyrir
snyrtimennsku og miklar afurðir
i sauðfjárrækt og Bjarni Sigurðs-
son á Vigdisarstöðum fyrir miklar
mjólkurafurðir og ágætan árang-
ur i túnrækt. Formaður sam-
bandsins, Sigurður Líndal á
Lækjamóti, stjórnaði hófinu, en
Aðalbjörn Benediktsson afhenti
verólaun. Margar ræður voru
haldnar og kom fram að menn
vona ánægðir með þessa ný-
breytni og verðlaunahafar þökk-
uðu góða gripi. Fór samkoma
þessi mjög vel fram.
Benedikt.
inu og þá jafnframt stöðu laun-
þegans. Þá varar fundurinn við
því, að stjórnvöld „noti tima-
bundinn efnahagsvanda þjóðar-
innar til stórfelldrar tekjutil-
færslu milli hagsmunahópa og
hvetur alla launþega i landinu til
að sýna samstöðu i sókn og vörn
um málefni sín.
Byggingasamvinnufélag símamanna.
Til Sölu
er 2ja herbergja íbúð á 1. hæð, ásamt herbergi
í risi, í fjölbýlishúsi v/Birkimel. Félagsmenn
sem neyta vilja forkaupsréttar, hafi samband
við stjórn félagsins fyrir 1 8. apríl n.k.
Stjórnin.
Bændur heiðraðir fyrir
ræktun og snyrtimennsku
SlÍppStÖdÍn auglýsir
M/B MUMMI GK—120
M/B MUMMI GK-120 150 rúmlesta smíðaður og afhentur frá
Slippstöðinni h.f. á Akureyri í júlí 1974 er til sölu. Skipið er útbúið til
línu, neta- og togveiða og búið öllum nýjustu tækjum. Aðalvél er
Caterpillar 765 ha og spilkerfi er háþrýst frá Norska fyrirtækinu
Hydema. Skipið getur afhenzt strax eða eftir samkomulagi. Nánari
upplýsingar gefur:
Slippstöðin h.f., Akureyri, sími 2-13-00.
Árshátíð
sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
verður haldin föstudaginn 1 1. apríl Hótel Sögu, Súlnasal.
Dagskrá m.a.:
Stutt ávarp: Geir Hallgrimsson form. Sjálfstæðisflokksins.
Einsöngur: Guðrún Á. Símonar syngur við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar.
Sigfús Halldórsson og Kristinn Bergþórsson syngja og
leika lög eftir Sigfús Halldórsson.
•fa Islenzki ballettflokkurinn sýnir listdans.
ir Birgir ísl. Gunnarsson, borgarstjóri flytur hátiðarræðu
kvöldsins.
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl.
02:00.
Veizlustjóri: SVAVAR GESTS
Borðhald hefst kl. 1 9:00.
Aðgöngumiðasala og borðapantanir er i Galtafelli Laufásvegi
46, símar 1 81 92 og 1 7 1 00.
Hver aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði og verður
dregið um þrjá vinninga á árshátiðinni.
Vinsamlegast gangið timanlega frá miðakaupum.
Karl Jóhann
Ottosson.
Friðrik
Sophuss.
Heimdallur Heimdallur
Baráttumál
ungs fólks
Heimdallur S.U.S. i Reykjavik gengst
fyrir ráðstefnu um baráttumál ungs
fólks, laugardaginn 12. apríl n.k. kl.
10.00 að Hótel Loftleiðum Kristalsal.
Teknir verða fyrir eftirtaldir mála-
flokkar.
Efnahagsmál og niðurskurður rikis-
valdsins.
Frummælandi: Karl Jóhann Ottósson.
Framkvæmd siálfstæðisstefnunnar.
Frummaelandi: Friðrik Sophusson.
Skóla og menntamál.
Frummælandi: Tryggvi Gunnarsson.
Kjördæmamálið.
Frummælandi: Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son.
Ráðstefna þessi er liður i stefnumótun
Heimdallar fyrir landsfund i vor.
Stjórnin.
Akureyri — nærsveitir
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri gangast fyrir spilakvöldum í
april. Það fyrsta verður n.k. fimmtudag 10. april og hefst kl.
20.30 í Sjálfstæðishúsinu. Önnur umferð verður fimmtudag-
inn 17. april og þriðja og siðasta umferð 24. apríl. Góð kvöld-
og heildarverðlaun. Að spilavistinni lokinni verður stiginn
dans til kl. 1.00 e.m. Sjálfstæðisfólk er hvatt til að fjölmenna
og taka með sér gesti.
Nefndin.
Aðalfundur
kjördæmisráðs Sjálfstæðisfélaganna á Vesturlandi verður
haldinn i Dalabúð, Búðardal sunnudaginn 1 3. apríl kl. 1 5.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra ræðir stjórnmálavið-
horfið og orkumálin.
Önnur mál.
Stjórnin.
Félag Sjálfstæðismanna í
Laugarneshverfi efnir til:
Umræðufundar
um helstu viðfangsefni á vett-
vangi borgarmála og landsmála
verður haldinn fimmtudaginn 10. april að
Langholtsvegi 1 24 og hefst kl. 20:30.
Málshefjendur:
Birgir (sl. Gunnarsson, borgarstjóri og
Guðmundur H. Garðarsson, alþingis-
maður.
Ennfremur verða kosnir fulltrúar á lands-
fund Sjálfstæðisflokksins 3.—6. mai n.k.
Stjórnin.