Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRlL 1975
Skólablað MR 50 ára
Skólabladið, stm gcfió er úi
af nrnirndum Mrnntaskólans í
Keykjavík, er komið út, en
blaðið rr hálfrar aldar gamalt á
þrssu ári.
Afmælisblaðið er mjöf' glæsi
legt, vel úr garði grrt með
vönduðu og fjölbreyttu efni.
Valið hrfur verið úr þvi efni,
sem að dómi ritnrfndarinnar
hrfur borið af öðru í þau 50 ár,
srm blaðið hefur komið út, en
einnig er ýmislegt nýtt efni í
hlaðinu. Þar má m.a. nefna
greinar eftir tvo fyrrverandi
ritstjóra skólablaðsins, þá Geir
Hallgrímsson og Brnrdikt
Gröndal, viðtöl við Arna
Björnsson og Jónas Kristjáns-
son o.fl.
Blaðið er 28 síður i stóru
broti. Ritnefnd skipa Gunnar
Kristinsson, Gunnar Kvaran,
Haraldur Johanessen, Jón
Bragi Gunnlaugsson, Sigurður
Sigurðarson og Trausti Einars-
son. Ritstjóri er Inga Lára
Baldvinsdóttir, en ábyrgðar-
maður er Héðinn Jónsson.
Upplag blaðsins er takmark-
að, en um 100 eintök verða til
söiu í Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar og kostar hvert
þeirra 150 krónur.
Gömul og ný stafa-
gerð í nýrri bók
HJA Minningarsjóði Elínar
Brirm hefir komið út stafabók
með gömlum stafagerðum, nokkr-
um útsaumsuppdráttum og
Aðalfundur
VSÍ í dag
AÐALFUNDUR Vinnuveitenda-
sambands Islands verður haldinn
i Reykjavik 10. og 11. april og
hefst hann kl. 13.30 i dag i
husakynnum sambandsins. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
munu vinnuhópar starfa í hinum
ýmsu málaflokkum, m.a. 1 sam-
bandi við verðlagsmál, vinnulög-
gjöf og gerð kjarasamninga,
launakerfi og fræðslu- og menn-
ingarmál.
Að lokinni yfirlitsræðu for-
manns Vínnuveitendasambands
Islands í upphafi fundar á morg-
un flytur Geir Hallgrimsson for-
sætisráðherra ræðu.
Vilja rækilega athugun
Á AÐALFUNDI Veiðifélags Kjós-
arhrepps 29. marz 1975 var eftir-
farandi tillaga samþykkt sam-
hljóða.
„Aðaifundur Veíðifélags Kjós-
arhrepps óskar þess, að Alþingi,
það sem nú situr, samþykki ekki
byggingu járnblendiverksmiðju
við Hvalfjörð, fyrr en fram hefur
farið rækileg athugun á áhrifum
hennar á lífríki umhverfisins."
saumasýnishornum. Frá sömu út-
gáfu er til bók mrð höfðaletri og
rúnaletri. Bækur þessar fást í
hannyrðabúðum og nokkrum
bókabúðum. '
Nýja bókin nefnist Stafageró
frá gamla og nýja tímanum og er
útgefin á þjóðhátíðarárinu 1974.
Mynztrin í henni eru eftir Ragn-
hildi Briem Olafsdóttur. Hin er
með höfða- og rúnaletri, einnig
teiknuð af Ragnhildi Briem Ölafs-
dóttur. En höfðaletur hefur í
margar aldir verió einn liður i
skrautlist Islendinga, skurðlist.
Nota má staíina í bókinni jafnt til
isaums og skurðlistar.
Minningarsjóður Elínar Bríem
er í umsjá Ingibjargar Eyfells,
Skólavörðustíg 4B, síma 14212.
Vorferðir
Ferðafélagsins
Akveðið hefur verið, að Ferðá-
félag íslands efni til nokkurra
fræðslu- og kynnisferða um
Reykjavík og nágrenni nú I vor.
Er ætlunin að kynna í ferðum
þessum m.a. jarðfræði, fuglalíf,
jurtagróður og fjörulíf á höfuð-
borgarsvæðinu, svo eitthvað sé
nefnt. Fengnir verða kunnir
fræðimenn til að Ieiðbeina og
fræða.
Ferðir þessar verða farnar eftir
hádegi á laugardögum og verður
farið frá BSl.
Fyrsta ferðin verður farin n.k.
laugardag og mun Þorleifur
Einarsson, jarðfræðingur, stjórna
ferðinni og kynna jarðfræði
Reykjavíkur og nágrennis.
(Fréttatilk.).
Háskalegt at-
vinnuleysi yfir-
vofandi í Rang-
árvallasýslu?
A SAMEIGINLEGUM fundi, er
verkamanna- og iðnaðarmanna-
deildir Verkalýðsfélagsins
Rangæings héldu að Hellu, mið
vikudaginn 26. mars s.l., var sam-
þykkt einróma, að skora á þing-
menn Suðurlandskjördæmis og
nýskipaða hafnarnefnd v/-
Suðurlandshafnar að þeir beiti
sér fyrir því, að könnuð verði
sérstaklega aðstaða til hafnar-
gerðar í Þykkvabæ.
Benti fundurinn i þvi sambandi
á, að þróun i atvinnumálum
Rangæinga hin siðari ár hefur
verið sú að langmestur hluti
verkafólks í héraðinu stundar nú
atvinnu við tímabundnar virkj-
unarframkvæmdir á hálendinu.
Fundurinn taldi, að eina raun-
hæfa framtiðarlausnin á atvinnu-
málum Rangæinga sé fólgin í
byggingu hafnar í Þykkvabæ og
þeim möguleikum er slík fram-
kvæmd muni skapa. Fundurinn
taldi, að verði ekki um slika eða
jaíngilda raunhæfa aðgerð að
ræða i atvinnumálum héraðsins,
skapist í Rangárvallasýslu háska-
legt ástand með fyrirsjánalegu at-
vinnuleysi er virkjunarfram-
kvæmdum við Sigöldu lýkur.
Jafnframt benti fundurinn á, að
hugsanleg virkjun Hrauneyjar-
foss leysti i engu vanda þann er
hér um ræðir, þótt sú framkvæmd
muni aó sjálfsögóu fresta vandan-
um, sem aó lokinni þeirri virkjun
yrði mun alvarlegri, verði ekki
samhliða gerðar framtíðaráætlan-
ir um uppbyggingu trausts at-
vinnulífs í Rangárvallasýslu.
VERNDUM LÍf - VERNDUM VOTLENDI
Veggspjald Landverndar 1975.
Verndum líf —
vemdum votlendi
LANDVERND hrfur undanfarin
ár gefið út veggspjöld til að
minna á ýmsa þætti umhverfis-
verndar. 1 ár er veggspjaldið
helgað votlrndinu, enda gefa
samtökin einnig út bók um vot-
lendi. Á vrggspjaldinu er ákaf-
lega falleg litmynd eftir Hjálmar
R. Bárðarson, rr sýnir flórgoða á
hreiðri úti I vatni og undir standa
rinkunnarorðin: Verndum líf —
verndum votlendi.
Þessum veggspjöldum er dreift
um stofnanir, skóla, hótel, verzl-
unarstaði og víðar, þar sem fólk
sér áminningu landverndar og
hvatnmgu um góða umgengni viö
Iand og líf. A fyrri veggspjöldun-
um 6 hefur verið fjallað um gróð-
ur undir einkunnarorðunum
Verjum gróður, — verndum land,
um rusl og hreinlæti undir orðun-
um Hreint land — fagurt land,
um fegurð fjallanna og á sl. ári
um búsetu í landinu í 1100 ár,
þegar eytt hefur verið helmingn-
um af gróðri landsins, og voru
einkunnarorðin Greiðum skuld
vora, — græðum landið. Og nú er
semsagt veggspjaldið 1975 helgað
votlendinu og lífi því, sem þar
þarf að þyrma.
Hlaupið og sparkað þeg-
ar KR vann Armann
SVO slök sem knattspyrnan hafði
verið í tveimur fyrstu leikjum
Reykjavíkurmótsins tók steininn
úr í fyrrakvöld er Armann og KR
mættust á Melavellinum. Sú
íþrótt sem þar var boðið upp á átti
ekkert skylt við knattspyrnu
nema nafnið. Knötturinn gekk
mótherjanna á milli allan leik-
inn, og allt var tilviljunum háð.
Hvernig á líka að vera hægt að
leika knattspyrnu við aðrar eins
aðstæður og voru á Melavellinum
í fyrrakvöld? Brunakuldinn var
slíkur, að leikmenn verða að telj-
ast heppnir að sleppa óskaddaðir
frá leiknum, en í slíkum kulda
margfaldast líkur fyrir því að
menn verði fyrir meiðsium.
Miklatúnshlaup
S.l. haust efndi frjálsíþrótta-
deild Ármanns til keppni í hlaup-
um á Miklatúni fyrir börn og
unglinga. I vetur hefur keppni
þessi legið nióri, en nú er ætlunin
að byrja aftur af fullum krafti.
.í'er fyrsta hlaupið á þessu ári
Jfram n.k. laugardag á Miklatúni,
jog hefst kl. 14.00. Eru allir, sem
jáhuga hafa á þátttöku hvattir til
að vera með, því ætlunin er að
hlaupið verði tvisvar í apríl og
tvisvar i mai, og munu þeir, sem
hlutskarpastir verða í hverjum
flokki fá verðlaun að loknu sið-
asta hlaupinu.
Það hlýtur að vera stór spurn-
ing hvort Reykjavíkurmótið, eins
og það er nú, nær tilgangi sínum,
en það er fyrst og fremst undir-
búningur Reykjavíkurliðanna
fyrir Islandsmótið. A.m.k. er
hægt að íullyrða að svo sé ekki, ef
leikið er við aðrar eins aðstæður
og verið hafa nú i fyrstu leikjum
mótsins.
KR-ingar voru öllu skárri aðil-
inn i leiknum í fyrrakvöld, ef
unnt er að taia um slikt og sigr-
uóu i leiknum með einu marki
gegn engu. Var það Jóhann Torfa-
son, sem skoraði. Staðan að lok-
inni fyrstu umferð Reykjavíkur-
mótsins er þvi þessi:
Valur 1 1 0 0 4—0 2
Fram 1 1 0 0 1—0 2
KR 1 1 0 0 1—0 2
Ármann 1 0 0 1 0—1 0
Víkingur 1 0 0 1 0—1 0
Þróttur 1 0 0 1 0—4 0
Bessastaðahlaup
Bessastaðahlaup Ungmennafé-
lagsins Stjörnunnar í Garða-
hreppi fer fram n.k. sunnudag. Er
þarna um að ræða víðavangs-
hlaup sem er opið til þátttöku, og
verður keppt bæði i karla- og
kvennaflokki. Keppt er um glæsi-
leg verðlaun sem Veitingahúsið
Askur og Verzlunin Sportval hafa
gefið til keppninnar. Hlaupið
hefst kl. 15.00 við afleggjarann
heim að Bessastöðum.
Borðtennismót gagnfræðaskólanna
ÁRLEGT borðtennismót gagn-
fræðaskólanna í Reykjavík var
haldið 22. marz s.l. I flestum
gagnfræðaskólum borgarinnar
fer fram borðtenniskennsla á veg-
um Æskulýðsráðs Keykjavíkur og
voru þátttakendur I vetur á nám-
skeiðum þessum 718. Mót þetta
var lokaþáttur þeirrar starfsemi.
15 sveitir mættu til leiks frá 14
skólum og hefur þátttaka aldrei
verið jafnmikil. Keppt var i
tveimur aldursflokkum: A-flokki
13—14 ára, um bikar sem Austur-
bakki h.f. gaf, og í B-flokki 15—16
ára um bikar Æskulýðsráðs. í A-
flokki sigraði sveit Hlíðaskóla, en
sveit Fellaskóla varð önnur. I B-
flokki fór sveit Hagaskóla, með
sigur af hólmi, en í öðru sæti varð
sveit Armúlaskóla Mótsstjóri var
Aðalsteinn Eiríksson, en umsjón-
armaður Jón Pálsson.