Morgunblaðið - 10.04.1975, Blaðsíða 32
|H0r0Nti^ib
RUGIVSMGRR íg, ^22480 HUGLV5II1GAR ^-»22480
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1975
Fíkniefnasmygl:
Faldi y2 kíló af
hassi í bókum
LÖGREULAN f Keflavfk handtók
ungan mann í pósthúsi staóarins
s.l. þriójudagsmorgun, er hann
var aó sækja pakka sem innihélt
500 grömm af hassi. Pakkinn kom
frá Vestur-Þý/kalandi og var
hassió faliö f tveimur hókum.
Söluverömæti hassins er taliö
vera 350—400 þúsund krónur.
Maöur sá sem sótti pakkann
re.vndist þegar til kom ekki vera
eigandi hans, heldur tilheyrði
pakkinn 22 ára gömlum varnar-
liósmanni. Hefur hann vióur-
kennt aó hafa ætiaó aó selja hass-
iö.
Valtýr Sigurðsson, fulltrúi
bæjarfógetans í Keflavík, tjáöi
Mbl. í gær, að lögreglan heföi
fengið grun um að umræddur
pakki innihéldi fíkniefni. Var
Framhald á bls. 18
Reykvískir togarar
sinna ekkitilkynn
ingarskyldunni
HASSIÐ — Þannig var gengið frá hassinu f bókunum. Liósm MbL Emella
Storkurinn er
enn óbugaður
Storkurinn er ekki allur,
a.m.k. var hann það ekki á
þriðjudaginn, þá virtist hann
vera óbugaður og láta ekki á
sjá þrátt fyrir norðan áhlaupið
og var hann þá kominn i þó
nokkra fjarlægð frá þeim stað
þar er hann sást fyrst, — var
hann skammt frá ánni Klif-
andi, sem rennur um sandinn
rétt fyrir austan Pétursey.
Þetta sagði Einar H. Einars-
son, bóndi á Skammadalshóli, í
símtali við Mbl. í gær. Þó að
storkurinn hafi verið hress á
þriðjudaginn er engan veginn
vist að hann sleppi lifandi
gegnum þetta norðan áhlaup.
— Það fer held ég fyrst og
fremst eftir því hvernig hon-
um gengur að finna æti við svo
erfiðar aðstæður. Takist hon-
um að finna nægilegt æti til að
halda blóðhitanum eðlilegum,
er hugsanlegt að hann þoli
snjókomuna, sagði Einar bóndi
að lokum.
STÓRU Reykjavfkurtogararnir
hafa ekki fengizt til þess aó til-
kynna sig sem aörir til Tilkynn-
ingarskyldu fslen/kra fiskiskipa.
ínótt
S4MKOMULAG varft um mi6n«tti
milli Verzlunarmannafélags
Reyk javíkur op kjararáös
verzlunarinnar f deilu a6-
ilanna um kaup og kjör. Sam
komulagiö var undlrritaö me6
venjulepum fyrirvörum um sam
þykki félapsfunda op var þvf
boöuöu verkfalli verzlunar-
manna hjá umbjó6endum kjara-
ráösins aflýst. Samkomulapi6
er samhljóöa þvf sarakomulagi
sem pert var aöfaramótt skfr
dags milli ASf og vinnuveit-
enda.
þótt reynt hafi veriö ftrekaó aö fá
þá til þess — aö því er vaktmaóur
tilky nningarskyldunnar tjáði
Mbl. í gær. Allir aörir togarar,
stórir sem litlir, hafa sinnt þess-
ari skyldu og tilkynna sig reglu-
lega.
Morgunblaðið spurði Ásgeir
Magnússon, framkvæmdastjóra
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, að
þessu í gær — hverjar væru
ástæður fyrir því að reykvískir
togarar, sem stærri eru en 500
rúmlestir, tilkynntu sig ekki sem
aðrir. Ásgeir sagði að það hefði
ekki tíðkast að togarar Reykvík-
inga, sem allir væru með loft-
skeytamenn, tilkynntu sig. Hins
vegar sagði hann að talin væri
nauðsyn að tilkynningarskyldu,
þar sem engir ioftskeytamenn
væru um borð. Þá kvað hann og
tregðu meðal skipstjórnarmanna
að þurfa að gefa upp veiðistað,
þegar þeir væru I góðri veiði.
Hann kvað mjög gott samband
ávallt vera á milli BÚR-
togaranna, þegar þeir væru á sjó
og vissu þeir ávallt um stöðu hver
annars hverju sinni.
Vestmannaeyjar:
Verkföllum frestað
nema við útskipun
VERKALYÐSFELAG Vest-
mannaeyja frestaöi f gær boóaóri
vinnustöóvun, sem koma átti til
framkvæmda á miónætti síðast-
liónu, í óákveðinn tíma. Er deil-
unni um leið vísaó til sáttasemj-
ara rfkisins. Verkföllum aó því er
tekur til útskipunar á frystum
sjávarafuróum er þó ekki frestaó
í Vestmannaeyjum og er því öll
slík vinna stöóvuð. Þessi ákvöró-
un var í gærkveldi tekin af stjórn
og trúnaóarmannaráði Verkalýös-
félags Vestmannaeyja.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk i gær mun verkalýðs-
félagið ekki hafa frestað verkföll-
Samningarnir um olíuverðið:
Gætu hugsanlega sparað
íslendingum 150 milljónir
ÞEGAR olfusamningur milli Is-
lands og Sovétríkjanna fyrir árió
1975 var gerður í októbermánuói,
var sett inn þaó ákvæói í samning-
inn, aó yrói hreyting á markaóin-
um á þessu ári, áskildu Islending-
ar sér rétt til þess að ræóa um
verð olíuvaranna aftur á tfmabil-
inu marz apríl. A þessum grund-
velli voru vióræóur um ofiuverð í
Moskvu, sem leiddu til samkomu-
lagsins, sem frá var skýrt í
Morgunblaóinu f gær.
Þórhallur Asgeirsson ráóu-
neytisstjóri, sem var formaður
nefndarinnar, sem samdi við
Rússa, kom heim í gærkveldi.
Hann sagði að óskað hefði verió
eftir viðræðunum af íslendinga
háifu, þar sem við hefðum talið að
markaðurinn hefði breytzt og að
Rotterdam-verðskráningar væru
lægri en Curacao-verðskráningar
á oliu. Var máiið lagt fyrir Rússa
og óskað eftir lagfæringu. Þór-
hallur sagði að Rússar hefði tekið
þessar málaleitan með skilningi
og niðurstaðan varð samkomulag-
ið. „Við teljum að samkomulagió
sé okkur til bóta, en við undir-
strikum samt að þetta er mióað
við núverandi verðskráningar. Er
þetta háð breytingum og sveifl-
um, “ sagði Þórhallur.
Rotterdam-skráningin er tals-
vert lægri en Curaeao-skráningin,
sérstaklega á gasolíu, en hins veg-
ar munar minna um bensín og
fuelolíu. Ef þetta er reiknað mið-
að við núverandi Verðskráningar i
Curacao og Rotterdam, þá getur
þetta samkomulag þýtt sparnað
fyrir Islendinga, sem nemur 150
til 160 milljónum króna á þeim
9-mánaða grundvelli, sem eftir er
af samningi þessa árs.
Ekki má búast við að olíuvörur
lækki hérlendis á næstunni í
fyrsta lagi vegna þess að í landinu
er talsvert af birgðum og farmar
eru á leiðinni, sem keyptir eru
samkvæmt gamla verðinu. Þá er
þess einnig að gæta að sparnaður-
-inn er ef til vill ekki stór, þegar
tillit er til þess tekið að íslending-
ar kaupa oliuvörur af Rússum
fyrir allt að 6 milljarða króna. En
gjaldeyrissparnaðurinn er þó
mikils virði og ekki veitir af.
Hversu langan tíma tekur að
minnka neikvæða innstæðu olíu-
sjóðs fer svo mikið eftir verðlagn-
ingu hér innanlands á olíuvörum
og bensíni.
Þórhallur Ásgeirsson sagði að
helztu sjónarmið islendinga gagn-
vart Rússum hefðu verið þau, að
þar sem islendingar hefðu keypt
allar oliur af þeim i 22 ár, ættu
þeir rétt á að fá hagkvæmustu
kjör sem þeir veita öðrum varan-
legum kaupendum á Vesturlönd-
um. 1 nýja samkomulaginu er
miðað við verðskráningu i
Curacao og Rotterdam — í stað
þess sem áóur var, er aðeins var
miðað við verðskráningu i
Curacao. Kjör Islendinga hjá
Rússum fara því eftir þvi hvernig
hlutfall verður á milli þessara
tveggja olíuskráninga.
um i sambandi við útskipunina til
þess að hafa möguieika á að
þrýsta á um samningaviðræður og
tryggja með því að máiið dragist
ekki á langinn.
Selfoss, eitt af skipum Eim-
skipafélagsins lestaði í gær i Vest-
mannaeyjum um 30 þúsund kassa
af frystum fiski. Er því talsvert
rými i frystigeymslum fyrir fryst-
ar fiskafurðir, en hins vegar mun
ekki vera eins mikið geymslurými
að því er varðar fiskmjöl og lýsi.
Þar er nánast allt fullt af slíkri
vöru. Ekki var ljóst i gærkveldi,
hvernig sáttasemjaramálum í
deilunni yrði háttað í Vestmanna-
eyjum, en fyrir nokkrum árum, er
sáttasemjara var þörf i Vest-
Framhald á bls. 18
50 árekstrar í gær
FRA klukkan 6 í gærmorgun til
klukkan 22 í gærkvöldi uróu 49
árekstrar í umferöinni í Reykja-
vfk. Sagöi Arnþór Ingólfsson
varöstjóri í samtali vió Mbl. í gær,
að þetta væri mesti árekstrafjöldi
á einum degi í sögu lögreglunnar.
1 mjög mörgum tilfellum höfðu
bílar á sumardekkjum lent í
árekstrum.Hafa eigendur bílanna
verið heldur fljótir aö draga barð-
ana fram og bilarnir þvi ekki eins
vel búnir undir hið skyndilega
vetrarveður og æskilegt var.
Mjög annasamt var hjá lögregl-
unni vegna hins mikla fjölda
árekstra. Til að sýna annirnar
skulu hér tekin tvö dæmi úr dag-
bók lögreglunnar, fyrst um morg-
uninn, en þá voru t.d. tilkynntir
árekstrar klukkan 8,04, 8.08, 8.10
og 8.12. Síðar um daginn leit bók-
in t.d. svona út. Tilkynning um
árekstur klukkan 16,35, 16.44,
16.50, 16,50, 16.52,17,11 og 17,34.
Tjón var mismundandi mikið í
árekstrunum en heildartjónið yf-
ir daginn skiptir eflaust milljón-
um króna. Engin meiriháttar slys
urðu í þessum árekstrum. Sam-
kvæmt lögum á dekkjabúnaði bif-
reiða á þessum árstíma að vera
þannig að duga eigi i hálku eins
og þeirri í gær. Ef rekja má
árekstur til lélegs dekkjabúnaðar
má búast við því að viðkomandi
bifreiðarstjóri standi höllum fæti
gagnvart tryggingarfélögunum.
Egilsstaðir:
5 ára telpa drukknar
— Féll niður um vök
E«ilsstö<>um — 9. apríl.
ÞAÐ sviplega slys varö hér f dag,
að Iftil telpa úr þorpinu féll niöur
um vök á fsilagðri Eyvindará og
mun hún hafa drukknað.
Það var um hádegisbilið í gær
að litla telpan, sem var fimm ára,
var að leik ásamt fleiri börnum
við Eyvindará, en áin rennur hér
rétt norðaustan við þorpið. Börn-
in urðu þess vör að litla telpan
féll niður um vök á ánni og gerðu
þegar aðvart en þegar menn
komu á vettvang fundu þeir
hvergi telpuna, þar eð hún hafði
þá borizt inn undir ísinn. Um
kvöldmatarleytið var lík litlu telp-
unnar enn ófundið en ísinn hafði
verið brotinn nokkru neðar í ánni
og net strengt þar yfir í von um að
lík hennar bærist í það.
Ekki er unnt að skýra frá nafni
litlu telpunnar að svo stöddu
vegna aðstandenda.