Morgunblaðið - 09.09.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975
Framleiðni aukin í skipasmíðum
5
Stjórnarmenn I Stálvfk hf., forstjóri og ýmsir aðrir starfsmenn standa á skipshlutum sem smiðaðir
hafa verið skv. nýju framleiðslukerfi fyrirtækisins.
Nýtt skipulag smíðanna 1 Stálvík
I SÍÐUSTU viku var lagður
kjölur að nýjum skuttogara hjá
skipasmlðastöðinni Stálvfk hf. I
Garðahreppi, þriðja skuttogar-
anum sem fyrirtækið smfðar.
Þetta skip sem smíðað er fyrir
Hlaðsvík hf. í Súgandafirði, er
fyrsta skipið sem smiðað er
samkvæmt nýju kerfi og með
breyttum starfsháttum, sem nú
er verið að innleiða í íslenzkum
skipasmíðaiðnaði, en hafa lengi
tíðkazt með öðrum þjóðum.
Verið er einnig að innleiða
þetta smíðakerfi hjá Slippstöð-
inni hf. á Akureyri og Þorgeir
og Ellert hf. á Akranesi.
Aðalatriðin í nýja kerfinu
eru eftirfarandi:
1. Skipinu er skipt niður í
ákveðna byggingarhluta.
2. Hver hluti er teiknaður út
af fyrir sig, eins og hann snýr,
að smiðnum, meðan á smiðinni
stendur.
3. A hverri teikningu er
vinnulýsing, suðumálsetning og
suðuröð.
4. Hverjum hluta fylgir net-
mynd yfir samsetningarröð
hlutans.
5. Nákvæmur efnislisti fylgir
hverjum hluta.
6. Vissir hlutar eru byggðir á
nálaplani (sveigfeldir).
7. Einhliða rafsuðu með
keramikskífu-undirlagi er
verið að æfa.
8. Útbúin er ákveðin net-
mynd yfir samsetningu
hlutanna í braut.
Frá árinu 1970 hefur verið
unnið að ýmsum umbótum og
hagræðingu í skipasmíðaiðnaði
hérlendis með samstarfi Iðn-
þróunarstofnunar fslands og
Félags dráttarbrauta og skipa-
smiðja. I sumar undirritaði
Sveinn Björnsson forstjóri f.h.
Iðnþróunarstofnunarinnar
samning við Svejsecenuaien f
Kaupmannahöfn um tækni-
aðstoð við íslenzkan skipa-
smíðaiðnað og hefur það fyrir-
tæki verið ráðgefandi um
kerfisbreytinguna. Skipaskoð-
un ríkisins og Rannsóknastofn-
un iðnaðarins hafa einnig átt
aðild að þessu samstarfi.
Kostnaður vegna þessarar
kerfisbreytingar hefur skipzt
milli þriggja aðila. Iðnaðar-
ráðuneytið og Norræni iðn-
þróunarsjóðurinn hafa greitt %
kostnaðar en skipasmfðastöðv-
arnar sjálfar hafa greitt einn
þriðja.
Á blaðamannafundi sem for-
svarsmenn Stálvfkur efndu til i
síðustu viku kom fram að þeir
eru mjög ánægðir með hið nýja
framleiðslukerfi og telja það til
mikilla bóta. Sömu viðhorf
komu fram hjá öðrum starfs-
mönnum stöðvarinnar. Jón
Sveinsson forstjóri fyrirtækis-
ins sagði m.a. að kerfið byði
upp á nýja möguleika og meiri
nýtni og yrði fyrirtækinu
vonandi lyftistöng í framtíð-
inni. Hann sagði að góður
stuðningur yfirvalda hefði
ráðið úrslitum um fram-
kvæmd þessa máls og kvaðst
hann vona að ekki drægi úr
skilningi yfirvalda á þessu
sviði, enda væri um langtíma-
spárnað og aukna framleiðni að
ræða. Sigurður Sveinbjörnsson,
formaður stjórnar Stálvíkur,
sagðist telja að með þessu nýja
framleiðslukerfi væri stigið eitt
stærsta framfarasporið I sögu
fyrirtækisins. í sama streng
tóku þeir Bolli Magnússon yfir-
tæknifræðingur fyrirtækisins
og Magnús Jósepsson sem er
trúnaðarmaður starfsmanna á
staðnum. Eftir framleiðslu-
breytinguna komast fleiri
menn að til að vinna við þau
skip sem eru f smfðum og hægt
verður að vinna við fleiri en
eitt skip f einu. Einnig er aukið
öryggi fólgið í breytingunni þar
sem vinna á stillönsum minnk-
Framhald á bls. 28
Séð ofan á kjölinn á nýjum skuttogara Súgfirðinga, sem verið er að
smíða f Stálvfk hf. Geysisterkur krani sem sést t.v. á myndinni
lyftir skipshlutunum á dráttarbrautina þar sem þeir eru soðnir
saman.
SÚPUKJÖT PR.KG
Leyfilegt verð kr. 356
Tilboðsverð kr.
Vals appelsínusafi, 2 Itr. 1
Leyfilegt verð kr. 676
Tilboðsverð kr. 196
ORA
fiski-
bollur,
1/1 dós
Leyfilegt
verð kr. 187
Tilboðs-
verð kr.
Grænar
baunir,
V2 dós
Leyfilegt
verð kr. 128
Tilboðs-
verð kr.
^Orr,
Mjöll
Q-11 þvotta-
efni, 3 kg.
Leyfilegt
verð kr. 620
Tilboðs-
verð kr.
Vióskiptakortaverö fyrir alla!
Ih@@|keup
llSK
SKEIFUNN115