Morgunblaðið - 09.09.1975, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975
17
ERFIÐIÐ VÍKUR
FYRIR ÁNÆGJUNNI
— ÞaS er gaman að vera formaður landsliðsnefndar á svona degi, sagSi
Jens SumarliSason að loknum leiknum við Belga á Laugardaginn.
— Allt erfiðið sem maður hefur lagt á sig verður þá svo lltið, og vlkur
fyrir ánægjunni.
Hópur belglskra blaðamanna safnaðist strax utan um Ásgeir Sigurvins-
son og leysti hann greiðlega úr öllum þeirra spurningum. Er Belgarnir
höfðu haft sig á brott tyllti blaðamaður Morgunblaðsins sér við hlið hans
og bað Ásgeir að segja álit sitt á leiknum.
— Ég hafði mjög gaman af þessum leik, leikkerfið okkar tókst mjög vel
og hefðum við leikið svona I Frakklandi hefðum við sennilega náð
jafntefli, þvi að Frakkland og Belgia eiga álika liðum á að skipa, sagði
Ásgeir. — Ég hafði mjög gaman af þvi að striða félögum mínum í belgisku
knattspyrnunni í þessum leik og að sjálfsögðu er maður hamingjusamur
þegar islenzka landsliðinu gengur vel, ekki sizt i kvöld, þar sem ég var i
fyrsta skipti fyririiði landsliðsins, sagði Ásgeir.
Árni Stefánsson hafði nóg að gera að leiknum loknum, allir vildu fá að
taka I höndina á honum og óska honum til hamingju með árangurinn. Er
hann kom út úr búningsklefanum btðu islenzkir áhorfendur og fögnuðu
honum með lúðrablæstri og tolleruðu hann svo að lokum. í millitíðinni
hafði blaðamanni Morgunblaðsins tekizt að króa Árna af, og sagðist Árni
vera mjög ánægður með frammistöðu sina I leikjunum báðum. — Ég get
þó ekki neitað þvi, að markið i leiknum i kvöld var hálfgert klaufamark,
sagði Árni. — Ég sá ekki Belgann og var þvi of rólegur, kallaði meira að
segja að ég hefði knöttinn, en það heyrði vist enginn i mér fyrir látunum.
Svo skauzt markaskorarinn allt i einu fram og skallaði yfir mig.
Gisli Torfason er leikmaður, sem hlýtur að vera hverju liði dýrmætur
Hann virðist geta leikið allar stöður á vellinum og á laugardaginn lék hann
sem tengiliður með landsliðinu, en þá stöðu hefur hann ekki leikið i tvö
ár. Fyrr í sumar hefur Gfsli leikið sem bak- og miðvörður. — Mér er
tslenzku atvinnumennirnir í Beigíu stilla sér upp í varnarvegg, en
koma þó um leið á framfæri mótmælum við dómara leiksins.
nokkuð sama hvar ég spila, nema hvað ég er ekki spenntur fyrir þvi að
standa i markinu, sagði Gisli. Mér finnst að íslenzka liðið hafi fyrst og
fremst sýnt andlegan styrk sinn I þessum leik, ég vissi fyrir að við getum
leikið knattspyrnu, en það hefur kostað átök hjá hverjum og einum, og
hópnum i heild, að ná „móralnum" upp eftir tapið i Frakklandi.
— Við gáfum þeim eftir svæði upp að teignum og á köntunum, en
tókum svo á móti þeim, sagði Guðgeir Leifsson eftir leikinn. Þetta var
fyrirfram ákveðin leikaðferð og tókst hún mjög vel. Belgísku blaðamenn-
irnir voru að tala um að við hefðum átt okkar bezta dag, en Belgarnir sinn
versta. Þessu er ég ekki samþykkur. Við brutum leikkerfi þeirra niður með
okkar, þannig að leikurinn var tæknilegur sigur fyrir okkur.
— Viðtöpuðum leiknum i kvöld, en svo sannarlega getur þetta íslenzka
landslið unnið hvenær sem er, sagði Tony Knapp eftir leikinn. Jóhannes
Eðvaldsson var ekki með okkur að þessu sinni, en það munaði ekki svo
mikið um hann þvi að Gisli Torfason sem tók stöðu hans, stóð sig mun
betur en Jóhannes gerði i Frakklandi. Um leikinn i Rússlandi sagði Knapp
að það yrði erfiðasti leikur ferðarinnar, þreyta og fjarvera atvinnumann-
anna hlyti að koma niður á islenzka liðinu. Ef strákunum tækist vel upp
og færu eftir þvi sem þeim hefði verið sagt ætti árangurinn að geta orðið
þokkalegur.
— Ég óska landsliðspiltunum, Knattspyrnusambandi jslands og allri
islenzku þjóðinni til hamingju með árangurinn i leiknum hér i kvöld, sagði
Albert Guðmundsson fyrrverandi formaður KSÍ eftir leikinn, en Albert var
boðið að fylgjast með landsleikjunum i Frakklandi og Belgiu af knatt-
spyrnusamböndum þessara landa. Hann gat þó ekki séð fyrri leikinn
vegna anna, en fylgdist með leiknum i Belgiu og var að vonum ánægður.
— Það er gaman fyrir íslenzku þjóðina að eiga eins glæsilega fulltrúa og
íslenzka kanttspyrnulandsliðið er, og ég er mjög ánægður, sagði Albert að
lokum.
Ellert Schram arftaki Alberts i starfi sem formaður KSÍ vildi jafna
úrslitunum i Liege við úrslitin í Magdeburg fyrir ári síðan er fsland gerði
jafntefli við A-Þjóðverja. — Það var sama baráttan i strákunum og
leikskipulagið við hæfi liðsins og Belgarnir hrósa íslenzka liðinu mikið
fyrir stórstigar framfarir, sagði Ellert, og bætti því við að þó hann vissi að
leikurinn i Rússlandi yrði erfiðasti leikurinn i ferðinni, þá hefði hann
tröllatrú á strákunum.
Texti og myndirfrá leiknum í Belgiu: Ágúst I. Jónsson.
Hafnfirðingar hamast við að tyrfa grasvöllinn sinn, sem þeir ætla að leika á næsta sumar.
Grasið komið á FH-völlinn
ÞEIR létu ekki ausandi rigningu
og kulda á sig fá FH-ingarnir sem
við hittum á sunnudaginn á
hinum nýja knattspvrnuvelli
félagsins við Kaplakrika. Unnið
var af fullum krafti við að koma
grasþökum á völl félagsins, og var
það ætlunin að ljúka því verki í
gærkvöldi. Stutt var að fara með
þökurnar, þar sem þær voru
fengnar á Setbergi næsta bæ við
völlinn. Sögðu FH-ingarnir sem
við hittum þarna við vinnu sína,
að Baldur Jónsson vallarstjóri
Reykjavfkurvallanna hefði sagt
þeim, að þökur þessar væru ein-
staklega góðar, og hefði hann því
til staðfestingar þegar orðið sér
úti um slíkar þökur á Laugardals-
völlinn.
Hinn nýi grasvöllur í Kapla-
krika kemur til með að gjör-
breyta aðstöðunni fyrir knatt-
spyrnumenn FH, og mikið má
vera ef þetta verður ekki einn
fegursti kanttspyrnuvöllur lands-
ins þegar fram f sækir. A.m.k. cr
hin náttúrulcga umgjörð
vallarins einstaklega skemmtileg.
Ástæða er til þess að óska FH-
ingum til hamingju með nýja
völlinn, jafnvel þótt enn sé
nokkuð f land að hann verði not-
hæfur til knattspyrnuleikja.
^élagið hefur sýnt mikinn
‘dugnað og framsýni f að koma
þessum velli upp, og mun ómælt
það sjálfboðaliðsstarf sem unnið
hefur verið við gerð vailarins,
bæði beint og óbcint.
Kraftaverk
FYRIR landsleik Islands
og Belgfu á laugardaginn
hafði þjálfari belgíska
landsliðsins látið hafa það
eftir sér, að Belgarnir yrðu
að sigra með miklum mun
til að vera öruggir með að
komast í úrslit Evrópu-
keppninnar í knattspyrnu.
Ef þeim tækist að sigra
með miklum mun gætu
þeir farið sem ferðamenn
til Parísar og tapað leikn-
um þar, þeir voru öruggir
með sigur í riðlinum og
leikurinn við A-Þjóðverja
mætti þess vegna sömuleið-
is tapast.
Goethals sagði að Belg-
arnir hefðu leikið eins og
þeim hefði verið uppálagt
fyrstu 15 mínútur leiksins
og þá hefði liðið verðskuld-
að að skora mark eða mörk.
— Þegar það tókst ekki,
sagði Goethals, urðu mínir
menn óánægðir og botninn
datt nokkuð úr leik liðsins.
Hraðinn minnkaði og Is-
lendingarnir fengu tíma til
að stilla sér upp í vörnina
áður en við náðum að ógna.
— Á íslandi hefur gerzt
kraftaverk á knattspyrnu-
sviðinu undanfarið og það
getur enginn lengur bókað
sér sigur fyrirfram gegn
liðinu ykkar, sagði Goet-
hals. — Ég hefði sætt mig
við 2:0 eftir gangi leiksins
að dæma, en 1:0 var of lítið
og þessi úrslit geta skapað
vandræði fyrir okkur.
Erlendur
kastaði
59.88 metra
ERLENDGR Valdi-
marsson, SR, keppti sem
gestur í kringlukasts-
keppni Reykjavíkur-
meistaramótsins í tug-
þraut á Laugardals-
vellinum á sunnudaginn.
Átti Erlendur tvö gild köst
í keppninni, bæði vel yfir
Olympfulágmarkið. Hið
fyrra mældist 58,86 metrar
og hið seinna 59,88 metrar,
sem er bezta afrek Erlends
f kringlukasti í ár.
Bremner skemmti sér
en vildi ekki borga
EFTIR leik Danmerkur og
Skotlands í Evrópubikarkeppn-
inni í knattspyrnu sem fram fór
í Kaupmannahöfn s.I. miðviku-
dag fóru skozku landsliðs-
mennirnir út að skemmta sér.
slíkt væri auðvitað ekki í frá-
sögur færandi hefði ekki komið
til vandræða og lögreglan orðið
að fjarlægja nokkra landsliðs-
mennina af skemmtistað, meðal
annarra fyrirliða liðsins, Billy
Bremner. Er nú mikill hávaði í
kringum mál þetta i Bretlandi
og i gærkvöldi hélt skozka
knattspyrnusambandið fund
um málið.
Billy Bremner fór við fjórða
mann á skemmtistaðinn Bona-
parte í Kaupmannahöfn, en sá
staður er mörgum íslendingum
kunnur, enda I eigu íslandings:
Þorsteins Viggóssonar. Þar
skemmtu Skotarnir sér í góðu
yfirlæti um hrið, en þegar kom
að því að gera upp reikninginn,
kom hinn sanni Skoti upp í
Bremner og félögum hans og
þeir neituðu að borga.
I viðtali við blaðið Sunday
Peopíe segir Þorsteinn Viggós-
son m.a. — Eg þekki Billy
Bremner og fannst heiður af
því að fá hann og félaga hans i
heimsókn til mín. Sjálfur var
ég ekki viðstaddur þegar
vandamálin kornu upp, en ég
hef spurt starfsfólk mitt hvað
hafi gerzt og það segir að
Skotarnir hafi verið með
uppsteyt og þvi hafi orðið að
kalla á lögregluna, sem síðan
fjarlægði þá úr húsinu.
Rankin Grimshaw formaður
skozka knattspyrnusambands-
ins sagði í viðtali við sama blað,
að ef það reyndist á rökum reist
að framkoma Billy Bremner og'
félaga hans hefði verið eins og
af væri látið gæti það þýlt úti-
lokun þeirra frá skozka lands-
liðinu i framtiðinni.
Leikmennirnir sem fóru með
Bremner á Bonaparte voru þeir
Willie Young og Arthur
Graham frá Aberdeen, Joe
Harper (Hibs) og Pat
McClusky (Celtic). Segir
Young í viðtali við Sunday
People, að þarna hafi verið um
að ræða misskilning út af reikn-
ingnum, og vill skella skuldinni
á veitingamanninn og hans
fólk.