Morgunblaðið - 09.09.1975, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975 XQ
Evrópubikarkeppni félagsliða
íslenzku liðin hafa
sjaldan haft árangur
sem erfiði í leikjunum
FRAMAN af voru það Spánverjar sem völdin tiöfSu I bikarkeppninni og kom
þar nafn Real Madrid oftast viS sögu. Hin seinni ár hefur allur gangur verið á
úrslitum, en vestur-þýzk lið hafa þó jafnan verið framarlega I flokki. Lið
Bayern Múnchen hefur unnið Evrópubikarkeppni félagsliða tvö ár I röð og var
mynd þessi tekin eftir úrslitaleik liðsins við Leeds United sem fram fór i
Paris. Leikmenn Bayern hampa hinum myndarlega verðlaunagrip sem keppt
er um. Leikur þessara liða varð sögufrægur fyrst og fremst vegna gifurlegra
óláta sem urðu á áhorfendapöllunum og áttu aðdáendur Leeds United þar
stærstan hlut að máli.
SEM kunnugt er taka nú þrjú
íslenzk lið þátt í Evrópubikar-
keppninni í knattspyrnu: Akra-
nes, Valur og Keflavík. Leikur
Akranes í keppni meistara og
dróst á móti liði frá Kýpur, Valur
leikur í bikarmeistarakeppninni
og fékk Celtic frá Skotlandi sem
mótherja og Keflavík sem leikur í
UEFA-bikarkeppninni fékk einn-
ig skozkan mótherja: Dundee
United.
Evrópubikarkeppnin í knatt-
spyrnu var komin vel á legg þegar
KR-ingar riðu á vaðið og til-
kynntu þátttöku í Evrópubikar-
keppni meistaraliða árið
1964—1965. Þótti teflt f mikla tvf-
sýnu með þessari þátttöku, en
KR-ingar voru heppnir og fengu
Englandsmeistarana Liverpool
sem mótherja. Og aðsókn að leik
liðanna á Laugardalsvellinum var
með miklum ágætum. Þar með
var séð að verulegur fjárhagsleg-
ur ávinningur gæti verið að þátt-
töku f Evrópukeppni, ef viðkom-
andi lið var heppið með mótherja
og allt frá þessum tíma hafa fs-
lenzk lið jafnan verið meðal þátt-
takenda i meistarakeppninni.
KR-ingar urðu einnig fyrstir til
þess að leika f bikarkeppni bikar-
hafa. Þeirri keppni var komið á
fót 1960—1961, en það var ekki
fyrr en árið 1965—1966 sem Is-
lendingar komu þar við sögu.
Fengu KR-ingar norska liðið Ros-
enborg sem mótherja og vonuðust
þá margir eftir því að Islendingar
kæmust áfram í keppninni. Svo
varð þó ekki.
Keppni sú er nú nefnist UEFA-
keppni var með allólíku sniði
fyrstu árin. Þá nefndist keppni
þessi borgarkeppni Evrópu og til
að byrja með tóku þátt f þeim
hrein úrvalslið frá nokkrum borg-
um í álfunni. Keppnin tók síðan
smátt og smátt á sig aðra mynd, og
varð liðakeppni, og árið
1971—1972 tók UEFA-
Evrópusamband knattspyrnu-
manna við framkvæmd hennar.
Fyrsta íslenzka liðið sem tók þátt
í þessari keppni var Valur er lék
við belgfska liðið Anderlecht á
keppnisárinu 1969—1970.
Eki er hægt að segja að þátttaka
íslenzkra liða í Evrópubikar-
keppninni hafi verið dans á rós-
um. Samtals hafa íslenzk lið leikið
f þeim 56 leiki, en aðeins einn
þessára leikja hefur unnizt. Átta
sinnum hafa fslenzk lið gert jafn-
tefli við keppinauta sina og
hvorki fleiri né færri en 47 leikir
hafa tapazt. Tapaðir leikir segja
þó ekki alla söguna, heldur og
markahlutfallið sem er heldur ó-
glæsilegt fyrir íslenzku liðin. Þau
hafa skorað samtals 30 mörk í
leikjunum 56 en fengið á sig 245
mörk, sem telja verður heldur ó-
hrjálega tölu f þessu sambandi.
Fjárhagslegur ávinningur lið-
anna af þátttöku í keppninni hef-
ur og verið mjög mismunandi.
Einn þessara Evrópubikarleikja
laðaði til áín fleiri áhorfendur
hérlendis en dæmi eru um fyrr og
síðar. Var það er Valur mætti
portúgalska liðinu Eenfica, en þá
voru áhorfendur á Laugardals-
vellinum um 18.000. Er mönnum
enn þann dag í dag hulin ráðgáta
hvernig svo margir komust þar
fyrir, og ekki sízt ef tekið er tillit
til þess að þá var ekki búið að
stækka stúku vallarins. Þegar syo
gengur koma drjúgir peningar í
kassann, en í fleiri tilfellum hafa
íslenzku liðin talizt góð ef þau
hafa sjoppið á sléttu út úr ævin-
týrum sfnum.
Sem fyrr segir er afrekaskrá
íslenzku liðanna heldur óglæsileg
í Evrópubikarkeppninni. Eitt lið-
anna, Valur, hefur þó staðið sig
öðrum miklu betur og af 12 leikj-
um sínum í keppninni hefur liðið
aðeins tapað rúmlega helmingn-
um, eða 7 talsins. Fimm sinnum
hafa Valsmenn gert jafntefli í
leikjum sínum, og það þótt and-
stæðingar þeirra hafi oftast ekki
verið af verri endanum. Og Valur
er eina fslenzka liðið sem komizt
hefur í aðra umferð keppninnar
hingað til. Það var árið
1967—1968, er Valsmenn mættu
Jeunesse Esch frá Luxemburg i
fyrstu umferð. Jafntefli varð í
báðum leikjum þessara liða, en
Valur komst áfram með fleiri
skoruð mörk á útivelli. En i næstu
umferð var svo draumur Vals-
Heimild um úrslit
leikja: Rothmans Foot-
ball Yearbook 1975—
1976 eftir Leslie Vernon
og Jack Rollin. (Queen
Anne Press London)
manna úti, enda var þá keppi-
nauturinn erfiðari og leika varð
báða leikina á heimavelli þeirra.
Fram er eina íslenzka liðið sem
unnið hefur leik í Evrópubikar-
keppni. Það var 1971—1972, er
mótherjar Fram voru Hibernians
frá Möltu. Léku Framarar báða
leiki sína erlendis. Töpuðu þeim
fyrri, 0—3, en unnu hinn seinni
2—0.
Valsmenn og Keflvfkingar hafa
leikið flesta leiki í Evrópubikar-
keppninni, 12 talsins, en það þýð-
ir að þessi lið hafa verið 6 sinnum
meðal þátttökuliða. KR-ingar eru
svo næstir á blaði, en þeir hafa
leikið 10 Evrópubikarleiki, en hjá
þeim hafa verið hreinar línur —
tap í öllum leikjunum, og þeir
eiga reyndar mettapið í keppn-
inni af íslenzkum liðum er þeir
töpuðu 0—12 fyrir hollenzka lið-
inu Feyenoord. Þá töpuðu KR-
ingar einnig með tveggja stafa
tölu er þeir kepptu á sínum tíma
við skozka liðið Aberdeen, en
samtals fengu KR-ingar á sig 55
mörk í leikjunum 10 eða 5,5 mörk
að meðaltali í leik.
íslenzk þátttaka
Meistaralið • • •
1964—1965
Liverpool (Engl.) —KR (11-1 ) 6-1; 5-0
1965—1966:
Keflavfk — Ferencvaros (Ungvl.) ( 2-13) 1-4; 1-9
1966—1967:
KR — Nantes (Frakkl.) ( 4-8 ) 2-3; 2-5
1967—1968:
Valur — Jeunesse Esch (Lux) ( 4-4 ) i-i; 3-3
Valur — Vasas (Ungvl.) ( 1-11) 0-6; 1-5
1968—1969:
Valur — Benfica (Portúgal) ( 1-8 ) 0-0; 1-8
1969—1970
Feynoord (Holl.) — KR (16-0 ) 12-0; 4-0
1970—1971:
Everton (Engl.) — Kcflavík ( 9-2 ) 6-2; 3-0
1971—1972:
Akranes — Sliema Wand. (Möltu) ( 0-4 ) 0-4; 0-0
1972—1973:
Real Madrid (Spáni) — Keflavfk ( 4-0 ) 3-0; 1-0
1973—1974:
Fram — Basle (Sviss) ( 2-11) 0-5; 2-6
1974—1975:
Keflavík — Hajduk Split (Júg.) ( 1-9 ) 0-2; 1-7
Bikarhafar • • •
1965—1966: KR — Rosenborg (Noregi) ( 2-6 ) 1-3; 1-3
1966—1967:
Valur — Standard Liege (Belg > ( 2-9 ) i-i; 1-8
1967—1968: Aberdeen (Skotl.) — KR (14-1 ) 10-0; 4-1
1968—1969:
Oiympiakos (Grikkl.)) — Fram ( 4-0 ) 2-0; 2-0
1969—1970:
Vestmannaeyjar — Levski Sofia (Búlg.) ( 0-8 ) 0-4; 0-4
1970—1971:
Akureyri —Ziirich (Sviss) ( 1-14) 1-7; 0-7
1971—1972: Hiberians (Möltu) — Fram ( 2-3 ) 3-0; 0-2
1972—1973:
Víkingur — Legia (1*611.) ( 0-11) 0-2; 0-9
1973—1974:
lBV — Borussia (V-Þýzkal.) ( 1-16) 0-7; 1-9
1974—1975:
Fram—Real Madrid ( 0-8 ) 0-2; 0-6
UEFA-bikarinn . > • •
1969—1970:
Valur — Anderlecht (Belgfu) ( 0-8 ) 0-6; 0-2
1970—1071:
Sparta (IIoIl.) —Akranes (15-0 ) 6-0; 9-0
1971—1972:
Keflavfk —Tottenham (Engl.) ( 1-15) 1-6; 0-9
1972—1973:
Viking (Noregi) — IBV ( 1-0 ) 1-0; 0-0
1973—1974:
Hibernian (Skotl.) — IBK ( 3-1 ) 2-0; 1-1
1974—1975:
Valur — Portadown (N-Irl.) ( 1-2 ) 0-0; 1-2
Áranffur liða . • •
L Ht I MÖRK STIG
Valur 13 0 5 7 9—42 5
Fram 8 1 0 7 4—26 2
Keflavfk 12 0 1 11 7—53 1
Vestmannaeyjar 6 0 1 5 1—25 1
Akranes 4 0 1 3 0—19 1
Vfkingur 2 0 0 2 0—11 0
Akureyri 2 0 0 2 1—14 0
KR 10 0 0 10 8—55 0
SAMTALS 56 1 8 47 30—245 10
Meistaralið. . •
EFTIRTALIN lið hafa leikið til úrslita f Evrópubikarkeppni
meistaraliða frá upphafi:
1955—1956: Real Madrid — Stade de Rhcims 4—3
1956—1957: Real Madrid — Fiorentina 2—0
1957—1958: Real Madrid — Milan 3—2
1958—1959: Real Madrid — Stade de Rheims 2—0
1959—1960: Real Madrid —Eintracht Frankfurt 7—3
1960—1961: Benfica — Barcelona 3—2
1961—1962: Benfica — Real Madrid 5—3
1962—1963: AC Milan — Benfica 2—1
1963—1964: Inter Milan — Real Madrid 3—1
1964—1965: Inter Milan — Benfica 1—0
1965—1966: Real Madrid — Partizan Belgrad 2—1
1966—1967: Celtic — Inter Milan 2—1
1967—1968: Manchester United — Bcnfica 4—1
1968—1969: AC-Milan — Ajax 4—1
1969—1970: Feyenoord — Celtic 2—1
1970—1971: Ajax — Panathinaikos 2—0
1971—1972: Ajax — Inter Milan 2—0
1972—1973: Ajax — Juventus 1—0
1973—1974: Bayern Miinchen — Atletico Madrid 4—0
1974—1975: Bayern Múnchen — Leeds United 2—0
Bikarhafar. . •
EFTIRTALIN lið hafa leikið til útslita f Evrópubikarkeppni
bikarhafa frá upphafi:
1960—1961: Fiorentina—Glasgow Rangers 2- —1 og 2—0
1961—1962: Atletico Madrid — Fiorentina 3 —0 og 1 — 1
1962—1963: Tottenham — Atletico Madrid g|
1963—1964: MTK Budapest — Sporting Lissabon 3 —3 og 0—1
1964—1965: W’est Ham — Múnchen 1860 2—0
1965—1966: Borussia Dortmund — Liverpool 2—1
1966—1967: Bayern Múnchen — Glasgow Rangers 1—0
1967—1968: AC Milan—Hamburg SV 2—0
1968—1969: Slovan Bratislava — Barcclona 3—2
1969—1970: Manchester City — Gornik Zabrze 2—1
1970—1971: Chelsea — Real Madrid 2—1
1971—1972: Glasgow Rangers — Dynamo Moskvu 3—2
1972—1973: AC Milan — Leedes United 1—0
1973—1974: FC Magdeburg — ACMilan 2—0
1974—1975: Dynamo Kiev — Ferencvaros 3—0
UEFA-bikarinn • • •
Eftirtaiin lið hafa leikið til úrslita f borgakeppninni og
UEFA-keppninni frá upphafi:
1955—1958: London — Barcelona 2-2 og 0-6
1958—1960: Birmingham — Barcelona 0-0- og 1-4
1960—1961: Birmingham — A.S. Róm 2-2 og 0-2
1961—1962: Valencia — Barcelona 6-2 og 1-1
1962—1963: Dynamo Zagreb — Valencia 1-2 og 0-2
1963—1964: Real Zaragoza — Valencia 2-1
1964—1965: Juventus—Ferencvaros 0-1
1965—1966: Barcelona — Zaragoza 0-1 og 4-2
1966—1967: Dynamo Zagreb — Leeds Utd. 2-0 dg 0-0
1967—1968: Leeds Utd. — Ferencvaros 1-0 og 0-0
1968—1969: Newcastle — Ujpest Dozsa 3-0 og 3-2
1969—1970: Anderleeht—Arsenal 3-1 og 0-3
1970—1971: Juventus—Leeds Utd. 2-2 og 1-1
1971—1972: Wolves — Tottenham 1-2 og 1-1
1972—1973: Liverpool —Borussia Möneh. 3-0 og 0-2
1973—1974: Tottenham — Feyenoord 2-2 og 0-2
1974—1975: Borussia Mönch. — Twente 0-0 og 5-1