Morgunblaðið - 09.09.1975, Qupperneq 37
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975
21
»
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975
„SIGUR” ÍSLENZKA LIÐSINS
ISLENZKA landsliðið náði
hvorki að sigra í Belgíu né Frakk-
landi, en samt á það sinn „Sigur“.
Er það Ásgeir Sigurvinsson, en
þessi tvftugi atvinnumaður með
Standard Liege gengur undir
nafninu „Sigur“ f Belgíu. Mikið
var skrifað um Ásgeir í frönsku
og belgisku blöðin fyrir og eftir
leikina og fékk hann jafnan
mikið hrós og víða lofaður sem
bezti knattspyrnumaður vallar-
ins, ásamt Árna Stefánssyni
markverði landsliðsins, en þessir
tveir leikmenn eru yngstir fasta-
manna landsliðsins.
Ásgeir leysti Jóhannes Eðvalds-
son af hólmi sem fyrirliði í Ieikn-
um gegn Belgum og stóð hann sig
með prýði í því hlutverki sem
öðrum. Minnist undirritaður þess
ekki að yngri knattspyrnumaður
hafi verið skipaður fyrirliði
landsliðsins.
í skrifum eins blaðsins f Nantes
eftir Ieikinn þar á miðvikudaginn
var Ásgeir nefndur f sömu
andránni og ýmsir hclztu snill-
ingar knattspyrnuheimsins. Orð-
rétt segir f skrifum blaðsins um
Ásgeir á þessa Ieið: „Með númer
10 á bakinu hafa margir mestu
snillingar knattspyrnunnar
leikið. Við höfum séð Pele,
Overath, Netzer, Van Himst,
Riveira og fleiri. 1 gærkvöldi sá-
um við Sigurvinsson.“
Hinn snjalli markvörður
Belgfumanna, Christian Piot, sem
leikið hefur 33 landsleiki fyrir
Belga og m.a. verið valinn f
heimslið í knattspyrnu, var fyrir-
liði belgfska landsliðsins á
laugardaginn. Piot leikur með
Standard Liege og það voru því
tveir leikmenn frá þvf félagi sem
voru fyrirliðar liðanna, Piot fyrir
Belga og Ásgeir fyrir island.
Stuðningsmenn Standard voru
fjölmargir á áhorfendapöllunum
og fögnuðu þeir fyrirliðunum
sfnum ákaft. Enda er það sjálf-
sagt mjög sjaldgæft að leikmenn
sama félags séu fyrirliðar lands-
liðs tveggja ólíkra þjóða, sem auk
þess mætast á heimavelli liðsins.
Formaður Knattspyrnusam-
bands Islands, Ellert Schram, lét
þau orð falla að loknum leiknum
á laugardaginn, að Ásgeir þyrfti
tvö ár til að verða einn af þeim
stærstu í evrópskri knattspyrnu.
— Hann vantar enn nokkra
reynslu, sagði Ellert, en hún
kemur. Ásgeir hefur allt til að
bera til að verða snillingur f
fþróttinni, hann er vel byggður og
einstaklega vel gerður að öllu
leyti. Það er sjaldgæft að sjá
svona tilburði hjá svo ungum
knattspyrnumanni, sagði núver-
andi formaður KSl.
Forveri Ellerts f starfi, Albert
Guðmundsson, lét þau orð falla
eftir leikinn í Belgfu, að Ásgeir
væri þegar orðinn mjög góður og
hann hefði ásamt Árna Stefáns-
syni verið einn bezti maður
vallarins. Það væri gaman fyrir
Island að geta teflt fram eins
glæsilegum og snjöllum knatt-
spyrnumanni.
GRÉTAR Magnússon frá Kefla-
vfk var einn þeirra leikmanna,
sem valinn var til farar fslenzka
landsliðsins til Frakklands,
Belgíu og Rússlands. Enn sem
komið er hefur Grétar aðeins
vcrið sem „túristi“ f þessari ferð.
Hann hefur ekki verið meðal
varamannanna f leikjunum og
setið alklæddur á varamanna-
bekknum. Kemur þetta nokkuð á
óvart, ekki aðeins vegna þess að
Grétar hefur staðið sig ágætlega
vel upp á síðkastið og baráttu-
maður í góðri æfingu, eins og
Grétar hefur sýnt sig vera undan-
farið, er hverju Iiðið dýrmætur.
Mistök!
Það sýndi Grétar í Magdeburg í
fyrra. Hafi landsliðsnefnd ekki
ætlað sér að nota Grétar f þessum
leikjum þá hefði hún að minnsta
kosti getað séð sóma sinn f því að
láta Grétar ekki sitja f borgara-
legum klæðum báða lcikina.
Auk Grétars var Karl Þórðar-
son ekki f 16 manna hópnum í
Belgfuleiknum. Varamenn í
leiknum voru Þorsteinn Ólafsson,
Jón Gunnlaugsson, Jón Alfreðs-
son, Arni Sveinsson og Hörður
Hilmarsson.
Liðið sem lék var því
skipað eftirtöldum leik-
mönrtum: Árna Stefáns-
syni, Ólafi Sigurvinssyni,
Birni Lárussyni, Jóni
Péturssyni, Marteini
Geirssyni, Matthíasi
Hallgrímssyni, Gísla
Torfasyni, Ásgeiri Sigur-
vinssyni, Guðgeir Leifs-
syni, Teiti Þórðarsyni og
Elmari Geirssyni.
Árni Stefánsson slær knöttinn frá fslenzka markinu eftir hornspyrnu Belganna, Björn Lárusson stendur
á marklfnunni.
Erlend félög sýna áhuga og
leikmennirnir eru tilbúnir
ÁRANGUR landsliðsins hefur
vakið mikla athygli á meginlandi
Evrópu og ýmis atvinnumannalið-
anna munu vera á höttunum eftir
fslenzkum landsliðsmönnum.
Ætti ekki að verða erfitt fyrir þau
að krækja f landsliðsmenn okkar
flesta ef þau á annað borð bjóða
þeim mannsæmandi samninga,
þvf flestir Icikmanna liðsins hafa
mikinn áhuga á að komast f
atvinnumennsku.
Marteinn Geirsson er undir
smjásjánni hjá þýzka liðinu
Kiekers Offenbach og fylgdust
menn með honum f báðum
leikjunum. Eftir frammistöðu
Marteins í Belgíuleiknum ætti
þess ekki að verða langt að bfða
að atvinnutilboðið kæmi, því
Marteinn átti stólpaleik eins og
flestir fslenzku leikmannanna.
Enn hefur honum þó ekki verið
gert formlegt tilboð.
Árni Stefánsson markvörður úr
Fram hefur staðið sig mjög vel f
landsleikjunum í keppnisferð-
inni til þessa og eftir leikinn í
Belgíu munu þrjú lið hafa sýnt
áhuga á að ræða við Árna um
samning. Árni sagði að hann
hefði að sjálfsögðu áhuga á að
reyna fyrir sér f atvinnumennsk-
unni. Hann myndi þó ekki flana
að neinu, heldur athuga sinn
gang og sjá til í rólegheitunum.
Jón Pétursson hefur mikinn
áhuga á að komast f atvinnu-
mennsku og mun vera að svipast
um eftir liði sem vantar traustan
varnarmann. Teitur Þórðarson
hefur lýst því yfir að hann hafi
hug á atvinnumennskunnni og
fleiri Ieikmenn eru volgir í
þessum málum. Það ætti að
skýrast á næstunni hvort fleiri
fslenzkir landsliðsmenn fara utan
til knattspyrnustarfa f haust.
Fyrirliðar liðanna heilsast fyrir leikinn, Piot til vinstri, Asgeir til hægri, á milli þeirra er danski
dómarinn Lund. Ásgeir og Piot leika báðir með Standard Liege.
Hvað væri hægt að gera úr
íslenzku áhugamönnunum?
ÞAÐ var fyrir einu ári að Island
ruglaði helztu spekúlanta knatt-
spyrnuheimsins heldur betur f
rfminu, er knattspyrnumennirnir
okkar leyfðu sér að ná jafntefli
við A-Þjóðverja í Magdeburg.
Síðan hefur margt gerzt, mikið
vatn runnið til sjávar og mikill
sviti storknað á skrokkum
fslenzku landsliðsmannanna. ís-
lenzka Ifnan hefur nokkuð
stöðugt verið á uppleið á lfnuriti
knattspyrnunnar.
Á laugardagskvöldið bættist
enn ein skrautfjöðurin í hattinn,
er landsliðið tapaði aðeins með
einu marki fyrir Belgum og það á
þeirra heimavelli. Áhuga-
mennirnir frá eylandinu í norðri
höfðu enn einu sinni komið á
óvart, því að þótt leikurinn tap-
aðist þá voru þeir sennilega ekki
margir, sem í raunveruleikanum
bjuggust við sigri.
Eitt kunnasta knattspyrnutíma-
rit Evrópu gerði þá úttekt á stöðu
knattspyrnunnar í álfunni fyrir
nokkru að Belgía, A-Þýzkaland og
Sovétríkin ættu sterkustu liðum
Evrópu á að skipa. Gegn þessum
þjóðum þremur hefur Island
leikið á velgengnistimanum und-
anfarið. Árangurinn hefur verið
jafntefli og sigur gegn A-
Þjóðverjum, en hins vegar töp
gegn Belgum og Sovétmönnum en
markamunurinn er þó ekki
mikill, þvi leikirnir hafa tapast
1:0 eða 2:0.
Hvar stæði tsland á knatt-
spyrnusviðinu ef íslenzkir knatt-
spyrnumenn hefðu sambærilega
aðstöðu og þessar þjóðir? Hvað
gætu landsliðspiltarnir gert ef
þeim væri boðið upp á frábæra
knattspyrnuvelli, nudd- og
lækningastofur, milljónir króná
og fjöldann allan af aðstoðarfóíki
og knattspyrnan væri þeirra lifi-
brauð? Það er erfitt að svara
þessari spurningu, því það er ein-
hvern veginn svo fjarlægt að
þetta muni nokkurn tíma getað
gerzt hér á hólmanum. Eina
svarið sem hægt er að gefa og vita
að rétt er svarað er að við myndum
standa okkur enn betur. Ef til vill
væru Islendingar þá í röð allra
fremstu knattspyrnuþjóða, — víst
er að ekki vantar okkur efni-
viðinn, þó að íslenzka þjóðin sé
fámennári en knattspyrnu-
iðkcndur f flestum öðrum löndum
Evrópu.
Ætli fólk geri sér grein fyrir
því hve árangur landsliðsins í
knattspyrnu undanfarið er glæsi-
legur? Ætli fólk geri sér grein
fyrir því að sú knattspyrna
islenzku félagsliðanna, sem flest-
ir blaðamenn (undirritaður ekki
undanskilinn) hafa rakkað niður
er grundvöllur að árangri lands-
liðsins? Ætli fólk geri sér grein
fyrir því hversu mikið hver ein-
stakur leikmaður landsliðsins
hefur þurft að leggja á sig, færa
stórar fórnir til að þessi árangur
næðist?
En það eru ekki bara leik-
mennirnir sem lagt hafa sitt að
mörkum. Ekki má gleyma vinnu
þjálfarans, landsliðsnefndar,
stjórnar KSl og allra þeirra
mörgu sem stutt hafa við bakið á
íþróttinni. Vissulegá hefur
frammistaða landsliðsins undan-
farið ekki bara verið velgengni,
ýmislegt héfur farið úrskeiðis,
sem betur hefði mátt fara og
verið gágnrýnt. Leikurinn i
Frakklandi á miðvikudaginn var
enginn glansleikur hjá lands-
liðinu, neistann, sem kveikt hefur
bálið, vantaði og uppstillingu Iiðs-
ins var að ýmsu leyti ábótavant.
En það hefði þó einhvern tfma
þótt gott að tapa „aðeins" með
þriggja marka mun fyrir Frökk-
um. Hver veit nema íslenzka liðið
fái skell i leiknum gegn Rússum
annað kvöld? Það væri í sjálfu sér
ekki óeðlílegt, andstæðingurinn
er sterkur og leikur á heimavelli,
liðsmenn Islands eru þreyttir
orðnir eftir strangt ferðalag og í
liðið vantar þá þrjá leikmenn sem
hafa knattspyrnu sem atvinnu.
Vonandi stendur landinn þó
fyrir sínu í Rússaleiknum og
stækkar enn þann punkt sem Is-
land er orðinn á landakorti knatt-
spyrnunnar. Það sem vel hefur
verið gert ber að þakka og von-
andi verður framhald á sifellt
betri árangri landsliósins okkar,
sem ekki gengur lengur til erfiðra
leikja með tap í huga.
-Aij
„KÁHR VORU KARLAR”
Hátt í hundrað íslenzkir áhorf-
endur fylgdust með leik Islands
og Belgíu á laugardaginn og þessi
hópur gerði svo sannarlega sitt til
að árangur liðsins mætti verða
sem beztur. Allan tímann heyrð-
ust hvatningarhróp mögnuð með
hátala og íslenzkir slagarar voru
sungnir af krafti. „Fyrr var oft i
koti kátt“ og „Kátir voru karlar"
hljómaði skemmtilega á glæsileg-
um leikvanginum og á endanum
gáfust belgískir áhorfendur upp á
að hvetja sína menn og áhorfend-
ur þó alls um 12000. Belgískur
útvarpsmaður varð fyrir því óláni
að lenda meðal stuðningsmanna
íslenzka liðsins og átti hann i
mestu erfiðleikunt með að koma
lýsingu sinni til skila. Endirinn
varð sá að hann gafst upp, tók sitt
hafurtask og fann sér annan og
betri stað til að stunda starf sitt.
íslenzku leikmennirnir voru
mjög þakklátir fyrir þennan
stuðning, sem þeir fengu og sögðu
Tap - en samt sigur
ÞAÐ kom ekki á óvart, að íslenzka
liðið skyldi tapa leiknum gegn Belg-
um á laugardaginn, við því mátti
búast og menn voru ánægðir með
frammistöðu íslenzka liðsins. Úr-
slitin tirðu 1:0 Belgunum í vil og
markið sem þeir skoruðu var hálf-
gert klaufamark. Þrátt fyrir tapið
var leikurinn í heild sinni sigur
fyrir íslenzka knattspyrnu. Leik-
menn liðsins útfærðu leikaðferð þá
sem þeim var uppálögð, frábærlega
vel og leikurinn var „tæknilegur“
sigur tslendinganna. Þá var það
ekki minni sigur, sem íslenzku leik-
mennirnir unnu er þeir rifu sig upp
eftir slæman dag í Nantes,
þjöppuðu sér saman og sýndu sitt
bezta þrátt fyrir vonbrigðin með
Frakkaleikinn.
Belgarnir voru mun meira með knöttinn f
leiknum og sóttu af krafti. Var þeim gefið
eftir svæði á köntunum og upp undir vfta-
teig, en þar tók íslenzki klettaveggurinn við.
Skyndisóknir átti íslenzka liðið svo allmargar
og mjög hættulegar og átti landinn ekki síður
hættuleg tækifæri en Belgarnir. Þeir áttu
hins vegar góð langskot, sem annaðhvort
strönduóu á varnarmönnum íslenzka liðsins
eða þá í öruggum höndum hins snjalla
íslenzka markvarðar.
Belgísku leikmennirnir réðu yfir meiri
tækni en íslenzka liðið og var það nokkuð
sem ekki kom á óvart. íslendingarnir voru
hins vegar mun sterkari I loftinu og gáfu
aldrei eftir. Það var fyrst og fremst vinnslan
og baráttan sem gaf íslenzka liðinu hin þægi-
legu úrslit, en það er þó langt i frá að
íslenzka liðið hafi leikið einhverja stórkarla-
lega kíiattspyrnu. Reynt var að spila allan
tímann, en ekki bara að sparka.
Fyrstu mínútur leiksins sótti belgíska liðið
mjög grimmt og ætluðu leikmenn þess greini-
lega að gera út um leikinn á fyrstu mínútun-
um. Er um stundarfjórðungur var liðinn
vaknaði íslenzka liðið af drunganum og sótti
mjög f sig veðrið. Héldu þeir sinu striki síðan
út allan leikinn og létu Belgana ekki plata sig
frá fyrirframákveðnu leikskipulagi.
Strax á 2. mínútu leiksins átti Teugels skot
í slá og síðan var skotið naumlega framhjá
íslenzka markinu. 10 mínútum seinna átti
Devrindt glæsilegt skot frá vítateig, en knött-
urinn sleikti slána að ofanverðu.
Eftir þessa orrahríð vöknuðu íslenzku leik-
mennirnir af dvalanum og eitt tveggja beztu
tækifæra leiksins átti Teitur Þórðarson á 16.
mínutu og er raunar óskiljanlegt hvernig
hann fór að því að misnota það tækifæri.
Elmar hafði sótt upp hægri kantinn. Teitur
var með knöttinn á markteig, en hitti knött-
inn svo herfilega illa að i stað þess að fara í
átt að markinu, skrúfaðist hann frá þvLLitlu
síðar átti Gísli Torfason nett skot sem fór rétt
yfir mark Belganna
Næsta virkilega tækifærið — fyrir utan
langskot Belganna, sem Árni sá um, kom á
42. mínútu leiksins og gaf það eina mark
leiksins. Sótt var upp kantinn hægra megin
og þeir Elmar og Ólafur misstu Devrindt
fram hjá sér .Gaf hann vel fyrir markið og
Lambert skallaði knöttinn laglega yfir Árna
Stefánsson sem ekki hafði séð til Belgans og
kallað að hann hefði knöttinn.
íslenzka liðið stóð sig sæmilega í fyrri
hálfleiknum og þau göt, sem Belgunum hafði
tekizt að notfæra sér til að skapa hættu, var
að mestu fyllt upp í í seinni hálfleiknum.
Landinn lék þá mjög vel, — eiginlega betur
en maður hélt að liðið gæti sýnt, engin
áhætta var tekin, knötturinn sendur milli
manna og farið rólega, því engin ástæða var
til að sprengja sig á hlaupum. Litlu munaði
þó að illa færi á fyrstu minútum hálfleiksins,
er Björn Lárusson missti kantmanninn fram
hjá sér. Gefið var fyrir markið og Marteinn
missti knöttinn sömuleiðis yfir sig. Ólafi Sig-
urvinssyni mistókst að klippa knöttinn aftur
fyrir sig og það var aðeins snilli Árna
Stefánssonar að þakka að skot Lamberts fór
ekki innfyrir marklinuna. Fleiri tækifæri af
stuttu færi áttu Belgarnir ekki í hálfleiknum,
en hins vegar góð skot sem Arni varði meist-
aralega.
Litlu munaði að Elmar Geirsson skoraði á
19. minútu hálfleiksins, er hann og Matthías
höfðu prjónað sig í gegn hægra megin og
þegar allir bjuggust við sepdingu frá Elmari
fyrir markið skaut hann að markinu. Piot
hafði þó heppnina með sér og knötturinn fór
í fætur hans, en þessi snjalli markvörður var
kominn úr jafnvægi.
ISLENZKI LANDSLIÐSHÓPURINN á hinum glæsilega leikvangi Standard Liege, en þar fór leikurinn fram á laugardaginn.
Arni og Ásgeir beztir af öllum, en
liðsheildin að baki árangrinum
ÁRANGUR íslenzka landsliðsins i leiknum gegn
Belgum var fyrst og síðast að þakka góðri
frammistöðu liðsheildarinnar. Allir lögðu leik
mennirnir sitt af mörkum og flestir náðu að sýna
sitt bezta. Tveir leikmenn skáru sig þó nokkuð úr
og voru með albeztu leikmönnum vallarins, þeir
Árni Stefánsson og Ásgeir Sigurvinsson. Jón
Pétursson og Marteinn Geirsson, Gisli Torfason
og Matthías Hallgrimsson, og siðast en ekki sizt
Elmar Geirsson sýndu i þessum leik að á góðum
degi gefa þeir atvinnumönnunum ekkert eftir.
Landsliðsnefndin hafði átt við ýmis vandamál
að striða fyrir leikinn, veikindi og meiðsli höfðu
hrjáð marga leikmennina, en með hjálp nuddara
og lækna tókst að hressa upp á mannskapinn að
allir voru þeir leikhæfir. Þær breytingar voru
gerðar á liðsuppstillingunni að Gisli Torfason lék
sem afturliggjandi tengiliður, Jón og Marteinn
léku sem miðverðir og Björn Lárusson kom inn
sem bakvörður. Elmar kom inn i liðið og Matthías
var færður aftur i stöðu tengiliðar.
Með þessum breytingum tók landsliðsnefndin
mikla áhættu, en ekki verður annað sagt en
tilraunin hafi tekizt vei. Jón og Marteinn unnu
saman eins og þeir gera bezt með Fram. Gisli
Torfason skilaði sinni stöðu með stakri prýði og
hefur tæplega leikið betur i annan tíma með
landsliði Var Gisli þó meiddur en lét engan
bilbug á sér finna. Matthias stóð sig vel i sinni
nýju stöðu, vann vel og skilaði knettinum vel frá
sér. Elmar var ódrepandi i leiknum og þó hann
hafi misst nokkuð af sínum mikla hraða, bætti
hann það upp með þvi að vera sifellt á ferðinni og
truflaði Belgana grimmt við uppbyggingu sóknar-
lotanna.
Það verður að segjast eins og er að frammi-
staða Árna Stefánssonar í leikjunum báðum kom
undirrituðum talsvert á óvart. Það var jú vitað að
Árni gæti varið vel, það hefur hann margsýnt i
leikjum sinum, en að hann gæti varið svona vel,
nei þvi átti maður ekki von á. Hann hentist á
milli stanganna og mörg skotanna sem hann
varði meistaralega hefðu verið sögð óverjandi ef
þau hefðu farið inn.
Ásgeir Sigurvinsson er orðinn stórkostlegur
leikmaður og það er glæsibragur yfir öllu sem
hann gerir. Guðgeir Leifsson stóð sig vel i Frakk-
landi, en i Belgiu var ekki sami kraftur i honum.
Var hann með hálsbólgu og hita er leikurinn fór
fram og hefur það eflaust komið niður á honum.
Guðgeir lék þennan leik alls ekki illa, en hann
getur bara svo miklu meira. Blaðamenn frá
Charlesroi fylgdust með leiknum, en hjá sam-
nefndu félagi leikur Guðgeir sem atvinnumaður.
Voru þessir blaðamenn sérlega ánægðir með
frammistöðu Guðgeirs og hrósuðu honum á hvert
reipi er þeir ræddu við blaðamann Morgunblaðs-
ins að leiknum loknum.
Bakverðirnir Björn og Ólafur komust allvel frá
leiknum. Björn greinilega æstur í upphafi leiksins
og fór of oft á mikilli ferð á móti Belgunum, sem
áttu þá ekki I erfiðleikum með að snúa sig fram
hjá honum. í seinni hálfleiknum róaðist Björn og
sótti sig með hverri minútunni sem leið. Ólafur
lék þennan leik mun betur en leikinn i Frakklandi
og þeir sem þá gagnrýndu réttilega val Ólafs í
landsliðið urðu að viðurkenna að þessu sinni að i
landsliðinu á Ólafur heima.
Jón og Marteinn þekkja hvor annan mjög vel,
enda hafa þeir leikið saman I mörg ár. Vissu þeir
ævinlega hvað hinn ætlaði sér i þessum leik og
það er ekki hvað sizt samvinnu þeirra að þakka
hve vörninni tókst vel upp. Þeir fengu lika góða
aðstoð frá öðrum leikmönnum og þá sérstaklega
Gisla Torfasyni, sem virðist geta leikið hvaða
stöðu sem er á vellinum.
Teitur Þórðarson hefur verið nokkuð frá sinu
bezta i leikjunum i ferðinni. Hefur hann lika átt
við ofurefli að etja, þar sem islenzka liðið hefur
meira hugsað um vörn en sókn og Teitur oft verið
aleinn gegn fjórum varnarmönnum andstæðings-
ins. Árni Sveinsson kom inn á sem varamaður i
leiknum gegn Belgum fyrir Teit og var hann
greinilega mjög taugaóstyrkur I fyrstu. Átti hann
tvær sendingar út i bláinn til að byrja með. en
sótti sig siðan.
eftir leikinn að hann hefði verii
þeim ómetanlegur. — Það litl
sem heyrðist í áhorfendum var
Islendingunum, sagði Jón Péturs
son eftir Ieikinn, það var bar;
eins og maður væri á heimavelli.
Áhorfendur þeir sem hér un
ræðir komu víðs vegar að. Fr
Bclgíu og Þýzkalandi, Luxembur:
og frá íslandi. Luxemburgarfólk
ið var flest starfsfólk flugfélaj.
anna þar, en þeir sem að heimai
komu, höfðu tekið þátt í ill
skipulagðri hópferð héðan á leil
ina í Frakklandi og Belgíu.
—áij.