Morgunblaðið - 09.09.1975, Blaðsíða 38
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUK 9. SEPTEMBER 1975
Eru getraunir að
syngja sitt síðasta?
Mikill uppgjafartónn í orðsendingu stjórnarinnar til umboðsaðila
BUAST má við þvl, að starfsemi fsienzkra getrauna standi nú á
tímamótum. t fyrra var gffurlega mikill samdráttur á sölu
getraunaseðla, og f orðsendingu sem stjórn Getrauna sendi til
héraðssambanda og umboðsmanna fsfenzkra getrauna, er sölu-
starfsemi hófst nú eftir sumarhlé, segir m.a. að ætla megi að
getraunastarfsemin verði rekin með tapi á næsta ári. Segir einnig f
orðsendingunni að þótt eignaraðilar ætlist ekki tii mikils arðs af
Getraunum, verði taprekstur á fyrirtækinu þó eðlilega til að kippa
fótum undan rekstri f þvf formi, sem verið hefur, þ.e. að hagnaður
félaganna byggist á frjálsu vinnuframlagi félagsmanna og komi til
skila vikulega. Komið hafi fram tillögur um annað rekstrarform,
þar sem félögin verði leyst undan vinnuframlagi sjálfboðaliða, en
væntanlegur hagnaður renni óskiptur til eignaraðila. Segir, að
stjórn Getraun telji rétt að reynt verði á það á næsta ári hvað
aðildarfélögin vilji gera f þessum efnum.
Eins og flestum mun kunnugt
var stofnað til knattspyrnu-
getraunastarfs hérlendis snemma
á sjötta áratugnum, en sú tilraun
fór fljótlega út um þúfur, og
munu þar hafa komið til margar
ástæður. Lá mál þetta sfðan í lág-
inni í alllangan tíma, en þó kom
þar að ákveðið var að hefja
starfið að nýju. Gekk það fyrir sig
með töluverðu brauki og bramli
og eftir að séð varð að getrauna-
starfsemin myndi ganga vel og
skila verulegum hagnaði til
fþróttahreyfingarinnar var sem
allir vildu Lilju kveðið hafa.
Skiptir raunar ekki máli hver átti
heiðurinn.af því að getraunastarf-
seminn var komið á að nýju,
heldur miklu fremur hitt, að svo
virtist sem íþróttahreyfingin væri
þarna búin að fá álitlegan tekju-
stofn, sem hefði góða vaxtarmögu-
leika. Lögðu margir sjálfboða-
liðar fram gífurlega mikið og
óeigingjarnt starf við sölu
getraunaseðla, og svo var komið
um tima, að slíkum seðlum var
nær allstaðar haldið að mönnum,
og jafnvel þeir sem engan áhuga
höfðu á íþróttum fylltust miklum
móð, biðu úrslita í ensku knatt-
spyrnunni með óþreyju og báru
saman við seðla sfna. Kom þvi
getraunastarfið einnig íþrótta-
hreyfingunni til góða á þann hátt
að almennur áhugi á íþróttastarf-
inu fór vaxandi, og fleiri fengust
til starfa innan félaganna, á
beinan eða óbeinan hátt.
Þáttur íslenzkra fjölmiðla í
vexti og viðgangi getraunastarfs-
ins var örugglega ekki heldur
lftill. Allir fjöjluðu þeir meira og
minna um þetta starf og ensku
knattspyrnuna og viðskiptavinum
Getrauna voru veittar þær leið-
beiningar og upplýsingar sem í
valdi fjölmiðlanna stöð að veita.
Þá var einnig þáttur Sjónvarps-
ins, „Enska knattspyrnan" gífur-
lega vinsælt efni um tíma, og má
mikið vera ef annað sjónvarps-
efni hefur verið notað meira.
En Adam var ekki lengi i Para-
dís. Allt frá þvf að Getraunir hófu
starf sitt að nýju var röðin seld á
kr. 25,00 og að nokkrum árum
liðnum höfðu þær krónur, sam-
kvæmt eðli íslenzku krónunnar,
minnkað mjög að verðgildi. Það
var því i fyrrasumar að stjórn
Getrauna tók þá ákvörðun að
hækka verð getraunaseðla, og án
þess að nokkur könnun færi fram
um viðbrögð viðskiptavinanna
var verðið hækkað um helming,
eða í kr. 50,00. Var eftirleiðis ekki
hægt að eiga minni viðskipti við
fyrirtækið en sem nam kr. 100,oo
og fyrir þá upphæð fengu við-
skiptavinirnir 2 raðir.
En þótt það sé vitanlega rétt, að
krónan hafi fallið i verðgildi um
hartnær þá upphæð sem verð-
hækkun Getrauna varð, gleymdist
að taka það með í reikninginn að
á þessu sviði giltu ef til vill örlítið
önnur lögmál en á öðrum sviðum f
okkar óðaverðbólguþjóðfélagi.
Sennilega hefur það ekki hvarfl-
að að forráðamönnum Getrauna
er þeir tóku ákvörðun um hækk-
un getraunaseðlanna, að aukin
sala undir það síðasta fyrir hækk-
un, kynni að stafa af þvf að seðl-
arnir voru ódýrari en áður. Má
einnig vera að þeim hafi ekki
verið kunnugt um það, að hvar-
vetna erlendis er lögð mikil
áherzla á að hafa getraunaseðla
sem ódýrasta, og byggja upp á
magnsölu, eða sölu getrauna-
kerfa, sem hvarvetna njóta
mikilla vinsælda.
Strax og á reyndi eftir hækkun-
ina '*.om í ljós, að verulegur sam-
dráuur varð á sölu getraunaseðla.
Upphæðin sem kom inn var að
vísu svipuð og áður, en það þýddi
auðvitað að salan var um helm-
ingi minni. Það var nánast ótrú-
legt hversu áhugi margra á get-
raunastarfinu hvarf með
hækkuninni, og hvað viðskipta-
vinum fyrirtækisins fækkaði á
skammri stundu. Flestir þeir sem
„tippuðu" vikulega á kerfum létu
af því, enda kostar nú t.d. 32
leikja kerfi hvorki meira né
minna en kr. 1600,-. — auðvitað
ekki há upphæð, en þó nógu há til
þess að menn hika við að leika sér
með hana.
Greinilega hefur dofnnað mjög
mikið yfir sölustarfseminni, og nú
er svo komið víða að menn verða
að leita eftir því að fá keypta
getraunaseðla, hafi þeir áhuga á
að taka þátt í getraununum.
Verður þetta að teljast að nokkru
eðlilegt. Sala getraunaseðlanna
hefur frá öndverðu hvflt mikið til
á sömu mönnum og eru þeir þvi
eðlilega teknir að þreytast á starf-
inu, og þegar áhugi minnkar hjá
almenningi á kaupunum gefast
menn nokkuð auðveldlega upp á
sölustarfinu. Þó er þetta mjög
mismunandi eftir félögum og
héraðssamböndum. Þannig
sköruðu t.d. tvö félög í Reykjavík
fram úr f sölustarfseminni starfs-
árið 1974—1975. Voru það Ár-
mann og KR, en Ármenningar
seldu allra félaga mest, þannig að
sölulaun þeirra námu 1.246.575,00
kr. KR sem lengi vel var f forystu-
sveit á þessu sviði fékk í sinn hlut
1.205.025,00. Mun daufara var
yfir sölunni hjá öðrum félögum
og vekur t.d. athygli að í jafnmikl-
um knattspyrnuáhugabæ og á
Akranesi skuli ekki fást meira í
sölulaun en rúmlega 54 þúsund
krónur, eða mun minna heldur en
gerðist t.d. á Kópaskeri. Sannast
hér enn hið fornkveðoa, að veldur
hver á heldur.
En það á einnig líka við um
stjórn Getrauna. Frá hennar
hendi hefur ekki verið mikið gert
til þess að reyna að efla sölustarf-
ið og auka áhugann getraunum.
Virðist svo sem forráðamenn
fyrirtækisins láti sér það nægja
að sitja við sín skrifborð og ef til
vill skrifa eitt dreifibréf eða orð-
sendingu til umboðsaðila á ári.
Það gefur auga leið, að á miklu
veltur að stjórn fyrirtækis þessa
sé mjög vel vakandi við störf sín,
og reyni allt sem unnt er til þess
að glæða áhugann á starfinu. Til
þess eru fjölmargar leiðir. Einnig
væri vert fyrir stjórn Getrauna að
endurskoða afstöðu sína til sölu-
verðs getraunaseðlanna, þótt
lækkað verð breyti ef til vill ekki
öllu úr þvf sem komið er.
Það væri verulega miður, ef
starfsemi fslenzkra getrauna
lognaðist útaf f kyrrþey, eins og
gerðist hér er fyrri tilraunin til
getraunastarfsemi var gert. Af
þeirri reynslu sem fengizt hefur
að þessu sinni má ætla, að get-
raunastarfið geti fært fþrótta-
hreyfingunni verulegar tekjur ef
vel er staðið að málum, og fyrir
þær hefur hún sannarlega mikla
þörf. Það getur varla talizt karl-
mannlegt hjá stjórn Getrauna að
það eina sem frá henni heyrist
skuli vera „orðsending“ þar sem
uppgjafatónn er allsráðandi, á
sama tíma og hún gerir furðulega
lftið til þess að efla getraunastarf-
ið, en það hlýtur þó að vera eitt af
meginverkefnum stjórnarinnar.
— stjl.
HSH sigraði
í Vesturlandsmóti
VESTURLANDSMÓTIÐ f frjáls-
um fþróttum fór fram að Varma-
landi dagana 23. og 24. ágúst s.l.
Til mótsins komu keppendur frá
Héraðssambandi Snæfells- og
Hnappadalssýslu, Ungmennasam-
bandi Borgarfjarðar, Akranesi og
Héraðasambandi Vestur-
Isfirðinga. Var stigakeppni móts-
ins mjög jöfn og skemmtileg en
henni lauk með sigri Snæfellinga
sem hlútu alls 191 stig, 94,5 stig í
kvennaflokki og 96,5 stig 1 karla-
flokki. Borgfirðingar urðu f öðru
sæti með 181,5 stig, HVl í þriðja
Marta Guðnadóttir, HSH
sæti með 122 stig og lA í fjórða
sæti með 28,5 stig.
Ágætur árangur náðist í nokkr-
um greinum í mótinu, svo sem í
kringlukasti og spjótkasti kvenna,
þar sem þær Ingibjörg Guð-
mundsdóttir og María Guðnadótt-
ir, báðar úr HSH, sigruðu, í
spretthlaupum karla, þar sem
landsmótssigurvegarinn í 100
metra hlaupi, Hilmar Pálsson,
vann nokkuð örugga sigra, í kúlu-
varpi og kringlukasti, en sigur-
vegari í báðum þeim greinum
varð Snæfellingurinn Sigurþór
Ingibjörg Guðmundsdóttir. HSH
Hjörleifsson. Helztu úrslit í mót-
inu urðu annars sem hér segir:
KONUR:
100 motra hlaup:
Björk InKÍniundardótdr, UMSB 13,2
Ingibjörg Óskarsdóttir, lA 13,3
Vilborg Jónsdóttir, IISII 13,5
Ingibjörg Gudmundsdóttir, IISII 13,6
200 METRA HLAUP:
Björk Ingimundardóttir, UMSB 27,5
Kristbjörg Skúladóttir, IISII 28,6
Ingibjörg Óskarsdóttir, ÍA 28,6
Viliwrg Jónsdóttir, HSH 28,7
800 METRA HLAUP:
Petrína Sigurðardóttir, HSH 2:38,1
Bryndfs Guðmundsdóttir, HSH 2:43,2
Petrína Sigurðardóttir, HSH 2:38,1
Bryndfs Guómundsdóttir, HSH 2:43,2
Jón Diðriksson, UMSB
Agnes Guðmundsdóttir, UMSB 2:44,2
Salome Guómundsdóttir, HVl 2:49,8
1500 METRA HLAUP:
Agnes Guómundsdóttir, UMSB 5:46,2
Kristjana Hrafnkelsdóttir, HSH 5:48,4
Petrfna Siguröardóttir, HSH 5:50,8
Bryndís Guömundsdóttir, HSII 5:52,2
4x100 METRA BOÐHLAUP:
Sveit UMSB 56,5
B-svelt HSH 59,6
Sveit lA 60,6
A-sveit HSH 62,4
IlASTÖKK:
Marfa Guónadóttir, HSH 1,45
Kristjana Hrafnkelsdóttir, HSH 1,40
Björk Ingimundardóttir, UMSB 1,35
Anna Bjarnadóttir, HVl 1,35
LANGSTÖKK:
Björk Ingimundardóttir, UMSB 5,16
Ingibjörg Guómundsdóttir, HSH 5,01
Ingibjörg Guómundsdóttir, UMSB 4,58
Friórika Guómundsdóttir, lA 4,55
KtlLUVARP:
Björk Ingimundardóttir, UMSB 9,84
Hjördfs Haróardóttir, HVl 8,92
Marfa Guðnadóttir, HSH 8,35
Þóra Gunnarsdóttir, HSH 7,94
KRINGLUKAST:
Ingibjörg Guómundsdóttir, HSH 33,70
Þóra Guómundsdóttir, IISII 27,53
Anna Bjarnadóttir, HVl 27,02
Hjördís Haróardóttir, HVl 24,87
SPJÓTKAST:
Marfa Guönadóttir. HSH 32,92
Þórunn Jónsdóttir, IIVl 24,50
Anna Bjarnadóttir, HVl 24,48
Hrafnhildur Karlsdóttir, HSH 23,62
KARLAR:
100 METRA HLAUP:
Hilmar Pálsson, HVl 11,6
Friójón Bjarnason, UMSB 11,7
Ari Skúiason, HSH 12,1
Liljar Þorbjörnsson, IIVl 12,1
200 METRA HLAUP:
Hilmar Pálsson, HVl 24,4
Friójón Bjarnason, UMSB 24,8
Kristján Bjarnason, UMSB 25,1
Ari Skúlason, HSH 25,2
Guömundur Björgmundsson, IIVl 25,2
400 METRA HLAUP:
Jón DiÓriksson, UMSB 53,9
Guömundur Björgmundsson, HVl 56,0
Hjörtur Rúnarsson, UMSB 57,0
Ari Skúlason, HSH 58,1
800 METRA HLAUP:
Jón Dióriksson, UMSB 2:12,0
Guómundur Björgmundsson, HVI 2:15,2
Rúnar Hjartar, UMSB 2:15,7
Sighvatur Guðmundsson, HVl 2:15,8
1500 METRA HLAUP:
Jón Dióriksson, UMSB 4:19,8
Guómundur Björgmundsson, HVl 4:31,7
Rúnar Iljartar, UMSB 4:38,1
Guómundur Magnússon, HVl 4:38,8
3000 METRA HLAUP:
Jón Diðriksson, UMSB 10:11,5
Rúnar Hjartar, UMSB 10:15,3
Ágúst Þorsteinsson, UMSB 10:17,3
GuÓmundur Magnússon, HVÍ 10:19,8
4x100 METRA BOÐHLAUP:
A-sveit UMSB 48,0
SveltHVl 48,9
A-sveit HSH 49,4
B-sveit HSH 51,2
1000 METRA BOÐHLAUP:
A-sveit UMSB 2:14,9
A-sveit IIVl 2:16,2
B-sveit IISII 2:25,5
B-sveit HVl 2:26.1
HÁSTÖKK:
Hjörtur Einarsson, UMSB 1,80
Jóhann Hjörleífsson, HSH 1,70
Torfi Kristjánsson, HSH 1,65
Ingólfur Narfason, HSH 1,60
LANGSTÖKK:
Friöjón Bjarnason, UM.sB 6,25
Hilmar Pálsson, HVl 6,20
Jóhann Hjörleifsson, HSH 6,12
Guómundur Björgmundsson, IIVl 5,85
ÞRÍSTÖKK:
Rfkharóur Hjörleifsson, HSH 12,46
Hilmar Pálsson, HVl 12,39
Jóhann Hjörleifsson, HSH . 12,37
Friójón Bjarnason, UMSB 12,23
STANGARSTÖKK:
Torfi Kristjánsson, HSH 2,75
Danfel Njálsson, HSH 2,75
Friórik Eysteínsson 2,65
Þorvaldur Pálmason, UMSB 2,65
KÚLUVARP:
Sigurþór Hjörleifsson. HSH 13,44
Rfkharóur Hjörleifsson, IISH 12,53
ólafur Þóróarson, lA 11,67
Valdimar Gunnarsson, II Vl 11,65
SPJÓTKAST:
Hjörtur Einarsson, UMSB 47,98
Sigmundur Hermundsson, UMSB 47,20
Emil Hjartarson, HVl 46,80
Pétur Sverrisson, UMSB 43,13
KRINGLUKAST:
Sigurþór Hjörleifsson, HSH 41,36
Jóhann Hjörleifsson, HSH 34,11
Ólaur Þóröarson, lA 33,71
Matthfas Ásgeirsson, UMSB 33,44