Morgunblaðið - 09.09.1975, Page 40
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SÉPTEMBER 1975
KA OG ÍBÍ UPP
VÍKINGUR NIÐUR
ÞAÐ var hórkubarátta milli ÍBÍ, KA og Vikinga frá Ólafsvik um tvö lausu
sætin i 2. deild á næsta sumri en keppnin fór fram á Melavellinum um
helgina. Fyrsti leikurinn var á milli ÍBÍ, sem hlaut 3. sætið I 3. deild og
Vikinga frá Ólafsvík, sem höfnuðu i neðsta sæti i 2. deild.
Fyrri hálfleikur var markalaus. en í síðari hálfleik skoraði markaskorari þeirra
ísfirðinga Jón Oddsson tvö mörk án þess að Vikingum tækist að svara fyrir sig
Á laugardag léku svo KA sem varð í 2 sæti I 3 deíld við ísfirðinga og var þar
um hörkubaráttu að ræða Albert Guðmundsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir
ÍBÍ, en KA jafnaði og bættu þeir siðan öðru við Jón Oddsson jafnaði fyrir ÍBI en á
lokaminútunni skoraði svo Jóhann Jakobsson sigurmarkið fyrir KA með góðu
skoti.
Á sunnudag fór svo fram síðasti leikurinn milli KA og Víkinga frá Ólafsvík. Er
skemmst frá þvi að segja að leikurinn var mjög spennandi og mikil barátta Lengi
leit út fyrir að öll liðin ætluðu að skilja )öfn með 2 stig hvert og hefði þá þurft að
efna til enn nýrrar keppni.
Sigbjörn Gunnarsson skoraði fyrsta markið fyrir KA, en Ásgeir Eliasson
jafnaði fyrir Víking Rétt fyrir lok hálfleiksins bætti Birgir Þorsteinsson öðru marki
við fyrir Viking. í byrjun siðari halfleiks skoraði svo Hilmar Gunnarsson 3. mark
Vikinga og var nú útlitið annað en gott fyrir KA Þeir gáfust ekki upp og tókst
Ármanni Sverrissyni að lagfæra stöðuna i 2—3 og skömmu fyrir lok leiksins
jafnaði Sigbjörn Gunnarsson metin með fremur ódýru marki, Þetta dugði KA og
það verða því KA og IBÍ sem taka sæti i 2 deild að ári, að viðbættum Þórsurum,
en Vikingar frá Ólafsvik falla I 3 deild eftir eins árs veru í 2 deild
Islandsmeistarar Breiðabliks f 4. flokki, ásamt þjálfara sínum og formanni Knattspyrnudeildar Breiða-
bliks.
Jgpl
Tm
Enn skrautfjöður í
hatt Breiðabliks
BLIKARNIR úr Kópavogi vörðu
meistaratitil sinn í 4. flokki frá
þvf f fyrra með þvf að sigra KA
frá Akureyri f úrslitaleik á Mela-
veilinum á föstudagskvöldið.
Þetta var annar úrslitaleikur lið-
anna, þvf að áður höfðu þau gert
jafntefli 2—2.
Leikurinn á föstudagskvöldið
var skemmtilegur á að horfa og
sýndu leikmenn beggja liða góð
tilþrif. Það fór ekki á milli mála
að Blikarnir voru sterkari aðilinn,
en liðin eru annars mjög ólík.
Blikarnir eru minni að vexti, en
búa yfir góðri knatttækni.
Strákarnir hjá KA voru yfirleitt
stærri og Iíkamlega sterkari, en
nokkuð skorti á knatttækni hjá
þeim.
Það var Benedikt Guð-
mundsson sem skoraði fyrsta
mark Blikanna á 20. mfn. eftir
mikil varnarmistök hjá vörn KA.
Á 5 mín. síðari hálfleiks bætti
fyrirliði Blikanna, Þorsteinn
Hilmarsson, öðru marki við með
hörkuskoti, en litlu síðar minnk-
aði Anton Haraldsson muninn í
2—1, er hann skoraði fyrir KA
eftir að markvörður Blikanna
hafði misst frá sér knöttinn.
Benedikt Guðmundsson skoraði
svo 3. mark Blikanna, en síðasta
orðið hafði Halldór Sigurbjörns-
son (Donni) er hann skoraði gott
mark undir lokin. Lauk leiknum
því með sigri Blikanna 4—1 og
voru þeir vel að honum komnir.
Að leik Ioknum afhenti Helgi
Daníelsson formaður Móta-
nefndar KSl sigurlaunin og
hylltu áhorfendur sigurvegarana
með ferföldu húrrahrópi.
ÞRÍR BIKARAR Á ÞREMUR ÁRUM
Þróttur skaut IBV ref fyrir rass
°g tryggði sér 1. deildar sætið
Þróttarar komu flestum á óvart
á laugardaginn með því að sigra
Vestmanneyinga f úrslitaleik um
lausa sætið í 1. deildinni f knatt-
spyrnu, en leikur Iiðanna fór
fram á Melavellinum. Þar með
verður það Þróttur sem leikur í 1.
deiid að ári, eftfr 10 ára setu í 2.
deild, en Vestmanneyingar verða
að sætta sig við að leika f 2. deild
— eftir 9 ára samfellda veru f 1.
deild. Sjálfsagt eru spor Vest-
manneyinga niður í 2. deild þung,
en ætla má, að liðið verði þar ekki
nema í eitt ár. Liðið hefur á að
skipa mörgum ágætum leikmönn-
um, og hefur það öðru hverju í
sumar náð að sýna ágæta spretti
og m.a. lagði það af velli tvö efstu
liðin í 1. deild, Fram og Akranes.
Það hefur hins vegar algjörlega
dottið niður á milli, og eins og nú
er komið virðist ekki til minnsfi
baráttuviljí f liðinu. Meira að
segja að hinum árfðandi leik á
laugardaginn gekk liðið með
hangandi hendi.
Aðra sögu er að segja um
Þróttara, sem tefldu í leiknum á
laugardaginn fram hálfgerðu B-
liði, a.m.k. ef miðað er við liðskip-
an í flestum leikjum liðsins í
sumar. Fimm leikmenn komnir til
útlanda í sumarfrí. Geysileg bar-
átta var í Ieikmönnum. Þeir fóru í
hverja einustu sendingu, voru
ákveðnir og óhræddir við návígi
við Vestmanneyinga. 'Afleiðing
þessa var svo sú að Þróttarar voru
meira með knöttinn í leiknum,
áttu hættulegri færi, og skoruðu
þau tvö mörk sem þurfti til þess
að tryggja sér sigur.
Það var 17 ára piltur í Þróttar-
liðinu, Halldór Arason, sem var
hetja þess í leiknum og skoraði
bæði mörkin. Hið fyrra kom á 23.
mfnútu fyrri hálfleiks en hið
síðara á 2. mfnútu seinni hálf-
leiks. Bæði komu mörkin eftir
varnarmistök hjá Eyjamönnum,
en samt sem áður var vel að
mörkunum staðið hjá Halldóri.
Þegar hann skoraði fyrra markið
hafði Ársæll Sveinsson markvörð-
ur IBV átt misheppnað útspark og
lenti knötturinn hjá Halldóri sem
sendi hann boðleið til baka í blá-
markhornið niðri. Þegar Þróttar-
ar skoruðu seinna mark sitt, sóttu
þeir upp hægri kantinn og tókst
einfaldlega að hlaupa af sér vörn
Eyjamanna og skora framhjá Ár-
sæli, sem ekki hafði tíma til að
loka markinu.
Það var aðeins í upphafi leiks-
ins sem Eyjamenn sýndu eitthvað
af sér þá léku þeir skynsamlega
og ógnuðu Þróttarmarkinu veru-
lega á þann hátt að vörnin var
dregin út, en síðan gefnar send-
ingar til Arnar Óskarssonar sem
átti að stinga sér í gegn og skora.
Sá galli var einungis á gjöf Njarð-
ar að Örn var of fljótur á sér og
var dæmdur rangstæður. I a.m.k.
einu tileflli var slíkur dómur þó
hæpinn, þar sem örn fékk þá
knöttinn innfyrir af Þröttara, og
var kominn á auðan sjó, þegar
dómarinn stöðvaði leikinn. Þessi
byrjunarsprettur var líka það
eina hjá Vestmanneyingum í
leiknum, og það var tiltölulega
mjög sjaldan sem þeir komust i
skotfæri við Þróttarmarkið í
leiknum. Helzt var það örn
Óskarsson sem eitthvað reyndi að
ógna. Tómas Pálsson gerði stöku
sinnum laglega hluti, en fleiri
sem áttu að leika í framlínu Eyja-
liðsins voru ekki umtalsverðir.
Undirritaður hefur reyndar
ekki séð Þróttarliðið nema f þrem-
ur leikjum í sumar, en af þeim
var þetta langbezti leikur þeirra,
og óhætt að fullyrða að eins og
liðið lék á laugardaginn gefur það
ekki mörgum 1. deildar liðum
neitt eftir. Það er f það minnsta
hægt að komast langt ef úthaldið
og baráttuviljinn er í lagi. Um
framtíð Þróttar í 1. deildinni er
hins vegar erfitt að spá. En víst er
að liðið er skipað mörgum mjög
efnilegum piltum, og þess vegna
ætti það ekki að þurfa að kvíða
neinu.
Sölvi Óskarsson þjálfari Þróttar
er maðurinn á bak við velgengni
Þróttar í sumar, og er greinilegt
að hann hefur náð veigamiklum
atriðum vel upp hjá liðinu.
Beztu leikmenn Þróttar f leikn-
um á Iaugardaginn voru þeir Jón
Þorbjörnsson markvörður,
Gunnar Ingvarsson, Halidór Ara-
son og Þorvaldur Þorvaldsson, en
tveir þeir síðastnefndu eru mikil
efni, og eiga örugglega eftir að
láta að sér kveða í framtíðinni.
I Eyjaliðinu átti Einar Frið-
þjófsson einna beztan leik —
mest fyrir það að hann gafst
aldrei upp og sýndi af sér baráttu-
vilja. Friðfinnur Finnbogason átti
einnig bærilegan leik, og sem fyrr
segir var örn Óskarson sá eini
sem eitthvað sýndi af sér f fram-
línu Eyjaliðsins.
Dómari í leiknum var Rafn
Hjaltalín og dæmdi yfirleitt með
ágætum. Línuverður hans, Ragn-
ar Magnússon og Guðmundur
Haraldsson, voru hins vegar
stundum of fljótir á sér. —stjl.
þvf að Blikarnir hefðu verið betri
og því verðskuldað sigur, en sigur
þeirra var kannski of stór, því við
fengum á okkur ódýr mörk, sagði
hann.
— Ég hef leikið knattspyrnu
frá þvf ég var 7 ára og alltaf sem
tengiliður.
Einar sagðist æfa knattspyrnu
og handknattleik og hafa gaman
af báðum þeim greinum og kvaðst
vera staðráðinn f að halda því
áfram og vonast til að fá tækifæri
til að leika fleiri úrsiitaleiki og
vonandi gengi þá betur.
Þorsteinn Hilmarsson
Einar Eyland
Jón Þorbjörnsson grfpur inn f leikinn og stöðvar sóknarlotu Eyja-
manna eins og svo oft f leiknum. Friðfinnur Finnbogason er fyrir
aftan hann, en Sverrir Brynjóifsson og Þorvaldur Þorvaldsson fyrir
framan.
ÞETTA er 3. árið f röð sem þú átt
viðtal við mig, sagði Þorsteinn
Hilmarsson fyrirliði Blikanna að
leik loknum þvf að f fyrra var ég
fyrirliði 4. fiokks, sem vann
mótið og árið þar áður var ég
fyririiði 5. flokks, sem einnig
vann mótið.
— Við unum alla okkar leiki f
riðlakeppninni, en gerðum svo
jafntefli við KA f úrslitaleik, en
unnum þá núna.
— Þetta er sfðasta árið mitt f 4.
flokki og hver veit nema ég taki á
móti 3. flokks bikarnum næsta ár,
sagði Þorsteinn og bætti þvf við,
að hann væri staðráðinn í að
haida áfram að æfa og leika
knattspyrnu.
Einar Eyland fyrirliði KA á leik-
velli sagðist ekkert vera
óánægður að hafa tapað leiknum.