Morgunblaðið - 09.09.1975, Side 18
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Unglingspiltur
óskast
i vetur til léttra sendistarfa. Sá sem getur
verið allan daginn, situr fyrir starfinu.
Davíð S. Jónsson og co. h. f.
heilc/vers/un,
Þingho/tsstræti 18.
Skrifstofustarf
Þekkt fyrirtæki í miðborginni óskar eftir
ritara með verslunar- eða stúdentspróf.
Góð ensku- og vélritunarkunnátta nauð-
synleg. Umsóknir, er tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf sendist Mbl.
merkt: „Nákvæmni — 2310".
Lagerstjóri
Lagerstjóri óskast á matvörulager. Þarf að
vera vanur verkstjórn. Uppl. gefur
verzlunarstjóri miðvikudag kl. 10—12,
ekki í síma.
NOKKRA GOÐA
VERKAMENN
vantar strax
Skipasmíðastöð
Daníe/s Þorsteinssonar
og co h. f.,
Bakkastíg 9,
sími 12879.
Telpa óskast
til sendiferða 12 —13 ára á skrifstofu
blaðsins.
Skrifstofustúlka
Stórt innflutningsfyrirtæki í miðborginni
óskar eftir að ráða skrifstofustúlku til
almennra skrifstofustarfa nú þegar. Um-
sókn sendist til afgr. Morgunblaðsins
merkt: 0-2431 fyrir 1 2. september n.k.
Sendisveinar
óskast hálfan eða allan daginn. Upplýs-
ingar á skrifstofunni.
Verz/un 0. Ellingsen hf.,
Ánanaustum, Grandagarði.
Atvinna
Viljum ráða nú þegar járnsmið eða lag-
hentan mann til starfa í málmgluggadeild
vorri. Góð vinnuaðstaða. Mötuneyti á
staðnum.
H/ F Raftækjaverksmiðjan
Hafnarfirði, sími 50022.
Trésmiði vantar
Trésmiði vana innréttingasmíði vantar nú
þegar.
Trésmiðja Austurbæjar,
Höfðabakka 9, sími 83755
Forstöðukona
Barnavinafélagið Sumargjöf óskar að ráða
forstöðukonu að dagheimilinu Laufásborg
við Laufásveg. Fóstrumenntun er áskilin.
Laun samkvæmt kjarasamningi Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar. Um-
sóknir sendist stjórn Sumargjafar Forn-
haga 8, fyrir 22. september.
Barnavinafé/agið Sumargjöf
Hjúkrunarkonur
Viljum ráða yfirhjúkrunarkonu og
almenna hjúkrunarkonu nú þegar eða frá
1 . október. Frítt fæði og húsnæði. Uppl. í
síma 95-1 329.
Sjúkrahús Hvammstanga.
Okkur vantar kven-
fólk
til frystihúsavinnu strax. Unnið eftir
bónuskerfi. Upplýsingar hjá verkstjóra í
síma 98—1 101
ísfélag Vestmannaeyja h.f.
Vestmannaeyjum.
Tæknir
Ungur maður með 2ja ára tæknimenntun
í byggingum og anlegg óskar eftir
atvinnu. Allt kemur til greina. Þeir sem
áhuga hafa, leggi nöfn sín og símanúmer
inn á afgr. Mbl. merkt: Tæknir 2521.
Rafvirki
óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina
annað en rafvirkjun. Tilboð sendist Mbl.
merkt: Rafvirki — 2432".
Verkstjóra vantar
Verkstjóra vantar við nýbyggingu að Arn-
arholti, Kjalarnesi. Þarf að vera bygginga-
meistari eða trésmiður. Mikil vinna fram-
undan.
Byggingafélag Austurbæjar,
Höfðabakka 9, sími 83755.
Viljum ráða stúlkur
í frystihúsvinnu strax. Húsnæði og mötu-
neyti á staðnum.
Upplýsingar í síma 94-2530.
Hraðfrystihús Tálknafjarðar h.f.
Rafvirki
Rafvirki óskast út á land fram að jólum
eða lengur. Frítt fæði og húsnæði. Upp-
lýsingar á Hótel Borg herbergi 102 milli
kl. 6 og 8 á kvöldin eða í síma 1 1 440.
Starfsstúlkur
vantar í eldhús
Hérðasskólans Reykjanesi við ísafjarðar-
djúp. Uppl. gefur skólastjóri á staðnum,
símstöð Skálavík.
Kópavogur —
atvinna
Óskum að ráða röskan og áreiðanlegan
kvenmann eða karlmann. Starfið fólgið í
nótuútskrift. Afgreiðslu varahluta. Sím-
vörzlu ofl. Upplýsingar veittar milli kl. 6
og 7 e.h. ekki í síma.
Bifreiðaverkstæðið Kambur,
Hafnarbraut 10, Kópavogi.
Framtíðarstarf
Tveir karlmenn óskast til vinnu í vélasal.
Plastprent,
Höfðabakka 9.
Óskum eftir
að ráða
forritara / kerfis fræð ing
til starfa í Skýrsluvéladeild vorri. Þarf að
geta hafið störf sem fyrst.
— Æskileg þekking á: Assembler/Cob-
ol/RPG tölvumáli/málum.
— Information Display System væntan-
legt.
Nánari upplýsingar gefnar hjá Starfs-
mannahaldi. Uppl. ekki gefnar í síma.
SA M VINNU TR YGGINGA R g. t.
Ármúla 3, Reykjavík.
VANTAR ÞIG VINNU (nj
VANTAR ÞIG FÓLK í
Þl AIGI.VSIR l'M ALLT
LAND ÞEG.AR ÞL' ALG- *
LVSIR 1 MORGLNBLAÐINl