Morgunblaðið - 09.09.1975, Page 20
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUK 9. SEPTEMBER 1975
Rætt við Halldór
Framhald af bls. 25
afkomu bænda en kjörin ein, og á það
raunar einnig við um viðmiðunarstétt-
irnar. Á þessu ári t.d. verður afkoma
bænda á sunnan- og vestanverðu landinu
verri en verið hefur vegna óþurrkanna.
Engum þarf að
koma á óvart þótt
bændur snúist til
varnar
— Að undanförnu hafa farið fram all-
miklar umræður um landbúnaðarmál.
Formanni Stéttarsambands bænda
hefur bersýnilega ekki hugnast þcssar
umræður og hefur í hótunum um
stjórnarslit, verði þeim ekki hætt a.m.k.
f þeim tóntegundum, sem þær hafa farið
fram. Hver er skoðun þfn, landbúnaðar-
ráðherra, á svona viðleitni til þess að
hefta frjálsar umræður um Iand-
búnaðarmál. Er þetta bændastéttinni f
hag?
— Ég tel að því sé eins farið með
bændur og aðrar stéttir, að það er ekkert
nema gott um það að segja að málefni
þeirra séu rædd. Það er verst fyrir
stjórnmálamanninn, ef ekkert er talað
um hann. Hitt er svo annað mál, hvernig
umræður af þessu tagi fara fram. Það er
að sjálfsögðu mál þeirra, sem fyrir þeim
standa, eins og það er stjórnmálamann-
anna að ákveða hvernig þeir svara fyrir
sig. Ég tel það hins vegar ekki óeðlilegt,
að bændastéttin telji nærri sér höggvið,
þegar rætt er um að leggja stéttina niður
og ráðstafa henni í önnur störf. Slíkar
umræður eru leiðinlegar, en þær eru á
kostnað þeirra, sem að þeim standa. Eng-
um þarf að koma á óvart, þótt bændur
hafi snúizt til varnar og ekki óeðlilegt,
að það væri gert á aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda. Þar verða fyrirsvarsmenn
bænda að standa fyrir sínu máli. Það er
svo alltaf matsatriði hvernig á að svara
fyrir sig. Sumum bændum fannst rétt að
svara í sömu mynt. Hins vegar er það
mitt mat, að það sé síður en svo, að
þessar umræður hafi skaðað bændastétt-
ina, enda hafi þær verið alltof öfgafullar
til þess.
Ekki bankastjóri
— Og að lokum ein persónuleg
spurning, landbúnaðarráðherra. Al-
mannarómur segir að þú hyggist Iáta af
ráðherraembætti og gerast bankastjóri
við Búnaðarbankann. Hvað er hæft f
þessu?
— Það er ekkert hæft f þessum orð-
rómi. Ég hef hugsað mér að halda áfram
f ríkisstjórninni, ef ég hef fylgi til þess.
Ef það bregzt tekur annað við, en eitt er
víst, að ég ætla ekki að gera sjálfan mig
að bankastjóra. Meðan ég nýt trausts
þess fólks, sem hefur sýnt mér trúnað,
mun ég starfa í þess þágu eins og ég hef
getu til, enda á ég mörg verkefni óleyst,
sem ég ætla mér að koma i framkvæmd,
á meðan ég starfa að stjórnmálum. StG.
USIÐ
GRETTISGÖTU 46 • REYKJAVÍK • SÍMI 25560.
stórútsala
¥ J *
Komið
— Þá kom ...
Framhald af bls. 2
son, var á sama hóteli og gat ég
ekki náð sambandi við hann,
þar sem enginn svaraði er ég
hringdi. Þá hringdi til mín
Niels P. Sigurðsson, sendiherra
og virtist þá vera einhver síma-
varzla á hótelinu. Ég sagði hon-
um, að ég næði ekki í Helga og
hvers kyns væri. Rétt á eftir
hringdi svo Helgi — hann hafði
komizt út rétt áður en sprengju-
tilkynningin kom, en komst
ekki inn aftur. Hafði hann svo
komizt í síma og hringdi til mfn.
Þetta ástand varði talsvert
lengi og hafði ekki létt, þegar
ég fór. Ég sá að ég var að missa
af flugvélinni heim og þá kom
Islendingurinn upp í mér, svo
að ég tók töskurnar mínar og
skildi Portúgalana og Spánverj-
ana eftir á herberginu mínu.
Labbaði ég niður alla stiga og
þóttist ekkert skilja, þegar
öryggisverðirnir töluðu við
mig. Ég talaði bara íslenzku
æddi niður og út. Húsið var allt
mannlaust, þegar ég kom niður,
en þegar ég kom með töskurnar
út úr hótelinu tók á móti mér
mikill fjöldi blaðaljósmyndara,
sem tóku myndir af mér, þegar
ég birtist í dyrunum.
Allt hverfið þarna í kring var
mannlaust. Þegar við svo kom-
um út á flugvöll, hringdi ég til
baka til þess að fregna hvernig
þetta hefði gengið. Var mér þá
sagt að hættan væri liðin hjá og
sprengjutilkynningin myndi
hafa verið gabb. Fyrsta tilkynn-
ingin mun hafa verið um
sprengju í Park Lane-hótelinu
sjálfu, en sfðan um að hún væri
í nágrenninu. Því var
hættusvæðið stækkað."
— Stálvík
Framhald af bls. 5
ar til muna og vinnuaðstaða
bætist.
Skipið sem nú er verið að
smíða fyrir Súgfirðinga verður
fyrsta skipið sem smíðað verður
með nýja kerfinu og fæst við
þá smíði góð reynsla og með
næstu skipum ætti kerfið að
njóta sín til fullnustu.
Afgreiðslutími hins nýja skips
er 15 mánuðir. Kom fram hjá
Jóni Sveinssyni að góðar horfur
eru á viðunandi verkefnum á
næstunni fyrir Stálvík hf.
— Offramleiðsla
Framhald af bls. 15
leysi húsbyggjanda af hólmi með
eftirlit með verkinu, er það algjör
misskilningur. Húsbyggjendum
er meira en svo annt um hús sitt
að þeir fylgist ekki með því sem
þar er að gerast fyrir utan það að
húsbyggjandi vinnur yfirleitt svo
og svo mikið sjálfur við sitt hús og
sparar sér þar oft stórfé og á það
jafnt við um byggingarfélög ein-
staklinga. I umræddri grein er
réttilega bent á þær miklu
sveiflur s'em tiðkast í byggingar-
iðnaði og skaðsemi þeirra og ætla
ég ekki að fjölyrða um það mál,
svo augljóst sem það er. Um
ákvæðistaxta er það að segja að
nærri stöðugt er unnið að endur-
bótum og samræmingu vegna
þróunar I byggingariðnaði og er
næsta furðulegt að menn skuli
undra þó að vissir dugnaðarmenn
og hamhleypur fagmanna skuli
ná háu tímakaupi og þá venjulega
á kostnað heilsu sinnar og líkam-
legrar endingar. Væri skatta-
greiðslum landsmanna vafalaust
betur komið ef embættismenn
ynnu eftir bónuskerfi þar sem því
verður við komið, en það er býsna
víða. Bent er á í skýrslunni að
þörf sé á að flytja allt nám
iðnaðarmanna inn f iðnskóla. Ég
sem meistari myndi nú ekki fela
slíkum iðnskólalærðum iðnsveini
vandasamt verk að vinna, eða
hvað halda þessir menn að yrði
upp á teningnum ef fólk yrði sett
inn á skólabekk og þvf kennt þar
að aka bifreify taka þar próf og
sfðan sagt að nú megi það stfga
upp í sinn bíl og aka af stað án
þess að hafa fengið nokkurn tima
í akstri á götum og vegum. Bezta
námið sem iðnnemi getur fengið
er undir handleiðslu meistara og
sveina, með fjölhæfa og langa
starfsreynslu að baki.
Sturla Einarsson,
húsgagna- og byggingameistari.
— Vörusýningin
Framhald af bls. 3
einhver nærstaddur hefði orðið
fyrir því að verða kennt um
verkið jafnvel þótt saklaus
væri.
Því er við að bæta, að hlutirn-
ir fundust f rúminu um miðbik
sýningarinnar en sýningar-
stjórn þorði ekki að skýra frá
þessu fyrr en nú, af ótta við að
fleiri freistuðust til að gera
slíkt hið sama.
— Kúfiskur
Framhald af bls. 3
um sjávarútvegi á komandi árum.
Leiðangursstjóri í þessum
leiðangri er Ingvar Hallgrimsson
fiskifræðingur."
Morgunblaðið hafði siðan
samband við annan leiðangurs-
stjóra fararinnar, Hrafnkel
Eiríksson. Hann sagði, að við
gætum auðsjáanlega veitt mikið
af kúfiski á næstu árum. Vanda-
málið yrði fyrst og fremst hve
mikið við gætum selt. Kúfiskinn
væri að finna víðsvegar kringum
landið i miklu magni og þeir á
Dröfn hefðu aðeins borið niður á
einstaka stað. Aðeins væri búið að
þrautkanna eitt svæði f Faxaflóa
og þar mætti veiða mörg þúsund
tonn.
Að sögn Hrafnkels neyta
Bandaríkjamenn mikils kúfisks,
en þar til á síðustu árum hafa þeir
veitt aðrar tegundir en fást hér
við land. Nú hafa þeir hins vegar
hafið veiðar á sams konar kúfiski
og er við íslandsstrendur, en ekki
væri vitað hvað hátt verð væri
hægt að fá fyrir fiskinn vestra.
Þá var Hrafnkeil spurður að
því, hvort einhver niðurstaða
væri komin á kalkþörunga-
rannsóknirnar í Arnarfirði. Hann
sagði, að þær rannsóknir hefðu
átt sér stað í sl. viku, en áður en
ákvörðun um nýtingu þörung-
anna yrði tekin, þyrftu að koma
til setlagamælingar. Athuga
þyrfti hvort nýting á þörungun-
um gerði einhvern usla f lífríki
sjávar eins og t.d. hjá hörpudiski.
Kalkþörunga mætti finna nokkuð
víða eins og t.d. í innanverðu Isa-
fjarðardjúpi og í Húnaflóa.
Ölafur Jónsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeild-
ar S.I.S., sagði, að fyrir tveimur
árum hefði verið gerð tilraun til
að selja kúfisk á mismunandi
vinnslustigi til Bandarfkjanna, en
verðið, sem hefði fengizt, hefði
verið alltof Iágt til að standa und-
ir veiðum og vinnslu.
jWorgtmþloþih
nucivsmcnR
íg,</-*22480
ANTIQUE
Sófasett í sérflokki, 1. sófi og 4 stólar ca
1 840— 1 860 til sölu. Tilboð óskast.
Uppl. í Listaskemmunni,
Bankastræti 7A