Morgunblaðið - 09.09.1975, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975
29
Þjóðverjar í
Tékkóslóvakíu
fá fararleyfi
EITT hundrað þúsund Súdeta-
Þjóðverjum, sem enn búa í
Tékkóslóvakíu, verður leyft að
flytjast til Vestur-Þýzkalands og
viðræður hefjast bráðlega f Prag
um skilyrði sem Tékkar setja
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum.
Bráðabirgðasamkomulag um
þetta tókst á fundum sem Helmut
Schmidt kanzlari átti á ráðstefn-
unni i Helsinki með Gustav
Husak, aðalleiðtoga tékkóslóvak-
Iska kommúnistaflokksins sam-
kvæmt þessum heimildum.
Þrjár milljónir Súdeta-
þjóðverja áttu heima I Tékkó-
slóvakíu eftir síðari heims-
styrjöldina en þorri þeirra var
rekinn úr landi fyrir samvinnu
við nasista. Eftir valdatöku
kommúnista 1948 var þessum
fólksflutningum hætt samkvæmt
skipun frá Moskvu þar sem verk-
kunnátta Súdeta-Þjóðverja var
talin ómetanleg.
134 fengu að fara úr landi á
fyrstu sex mánuðum þessa árs.
Stjórnin I Prag virðist ekki hafa
sett pólitísk skilyrði fyrir þvl sam-
komulagi sem nú virðist hafa
tekizt um Súdeta-Þjóðverja.
Aftur á móti tryggðu Pólverjar
sér 1300 milljón marka lán fyrir
að leyfa 125.000 Þjóðverjum að
fara úr landi.
Samningurinn við Pólverja
vakti mikla andúð I Vestur-
Þýzkalandi og Pólverjar voru
sakaðir um „fjárkúgunarað-
ferðir" og að taka við „blóð-
peningum". Þessi viðbrögð
virðast skýringin á þvl að yfirvöld
I Prag hafa enn ekki sett pólitísk
skilyrði.
Jafnframt herma fréttir að ráð-
stafanir verði gerðar til að draga
úr kúgun I Tékkóslóvakíu. —
Observer Foreign News Service.
Fallegu
bamafötin
fást hjá Sísí
© */*/'
Laugavegi 53 og 58
Samkvæmt samningi sem
Vestu-Þjóðverjar og Tékkóslövak-
ar gerðu 1969 til að færa sam-
skipti sín I eðlilegt horf var gert
ráð fyrir að Súdeta-Þjóðverjum
yrði leyft að flytjast til Vestur-
Þýzkalands af „mannúðarástæð-
um“. Árið 1970 var rúmlega
10.000 Súdeta-Þjóðverjum leyft
að fara frá Tékkóslóvakíu en
slðan hefur að mestu verið tekið
fyrir þessa fólksflutninga. Aðeins
AUfiI.VSINGASÍMINN ER:
22480
ÞOR HF
REYKJAVIK SKÓLAVÖRÐUSTÍG 25
Ci
w
TWCl V*
gufugleypir
'enwood
frá kr. 20.100.-
THORNi
Getið þér gert betri
kaup annars staðar.
mEKLA hf-
, 70-172 - Slmi 212A0-
Það leynir
sér ekki
skólaárið er að hefjast. Það
hefst á hverju hausti hjá okkur eins
og hjá ykkur.
Hjá ykkur: Nýjar námsgreinar, nýjar
bækur, ný áhöld.
Hjá okkur: Nýjar sendingar af
gömlu góðu skólavörunum
og nýjungum í meira úrvali en
nokkru sinni fyrr.
Ein ferð í einhverja af þrem
verzlunum Pennans nægir, — þar
fást allar skólavörurnar, sem þið
þurfið að taka með í skólann,
— og meira til!
Hafnarstræti 18
Laugavegi 84
Laugavegi 178