Morgunblaðið - 09.09.1975, Síða 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975
Spassky
vill ganga
að eiga
franska
stúlku
Moskvu, Grenoble, 8. sept.
AP, Reuter.
Bosis Spassky fyrrum heims-
meistari í skák hefur tilkynnt
að hann hafi í hyggju að kvæn-
ast 30 ára gamalíi franskri
stúlku, Marinu Stcherbatcheff,
sem er ritari í franska sendi-
ráðinu ( Moskvu. Övissa ríkir
um giftinguna vegna þess að
sovézk yfirvöld hafa skipað
stúlkunni að fara úr landi fyrir
30. september. Spassky skildi
formlega við fyrrverandi eigin-
konu sfna, Larissu, fyrir tveim-
ur mánuðum, en hann og Mar-
ina hafa búið saman f fbúð
hennar f Moskvu frá þvf f janú-
ar.
Marina er frá borginni Alle-
mont í Frakklandi sem er
skammt frá Grenoble og em-
bættismenn þar hafa skýrt frá
því að giftingin sé fyrirhuguð
15. september nk. Áður höfðu
sovézk yfirvöld sagt að hún
færi fram 11. nóvember og
Spassky hefur sagt að hann
hafi ekki enn fengið svar við
því frá þeim hvort hægt verði á
flýta athöfninni.
Boris Spassky og Larissa fyrrverandi kona hans f Reykjavfk meðan
á heimsmeistarakeppninni 1972 stóð.
Marina Stcherbatcheff átti
skv. upphaflegum samningum
að vinna við sendiráð Frakka í
Moskvu fram á mitt ár 1977.
Yfirmenn sendiráðsins hafa nú
tilkynnt henni að hún verði nú
að hætta 30. september þar sem
hún eigi á hættu málssókn
vegna bflslyss sem bifreið
hennar lenti í á síðasta ári. Mar-
ina var ekki í bílnum þegar
slysið varð heldur hafði húrr
lánað rússneskum kunningja
sínum bflinn. Þegar málið var
tekið fyrir hafði hún ekkert af
því að segja, og sá sem ók bíln-
um mætti fyrir rétti en ekki
hún. Sovézka utanríkisráðu-
neytið hefur nú tjáð sendiráð-
inu að gangandi vegfarandi
sem fyrir bílnum varð hafi í
hyggju að höfða mál gegn Mar-
inu og leita skaðabóta vegna
meiðsla sem hann varð fyrir.
1 bréfi sinu til sovézkra yfir-
valda vitnar Spassky f lokayfir-
lýsingu öryggismálaráðstefnu
Evrópu þar sem þjóðarleiðtog-
ar Evrópu hétu því að reyna að
gera fólki af óiíku þjóðerni auð-
veldara fyrir með að ganga í
hjónaband.
Marina hefur sagzt mundu
halda kyrru fyrir í Rússlandi
þrátt fyrir uppsögn hennar.
Bæði hún og Spassky eru sögð
hafa áhyggjur af því að fari
hún úr landi verði henni ekki
heimilað að snúa aftur. Spassky
hefur sagzt vilja búa í Rúss-
Iandi með hinni nýju konu
sinni og stunda áfram tafl-
mennsku sem atvinnu, en hann
hefur sem kunnugt er ekki átt
upp á pallborðið hjá sovézkum
skákyfirvöldum frá því að hann
tapaði heimsmeistaratitlinum í
skák til Bobby Fischers í
Reykjavík 1972.
Manson neitar aðild
að tilræðinu við Ford
Sacramento, Kaliforníu, 8sept. AP.
CHARLES Manson, sem situr f
ævilöngu fangelsi fyrir morðið á
leikkonunni Sharon Tate, var um
helgina yfirheyrður af banda-
rfsku alrfkislögreglunni og spurð-
ur um Lynette Fromme, sem nú
situr f fangeisi sökuð um áform
um að ráða Ford forseta af dög-
um. Talsmaður lögreglunnar
sagði, að Manson hefði neitað þvf
að hafa átt nokkurn þátt f sam-
særi um að ráða forsetann af dög-
um og hefði neitað að svara öðr-
um spurningum um málið. Yfir-
heyrslan stóð yfir f l'A tfma og
leiddi ekki til neinna nýrra upp-
lýsinga að sögn talsmannsins.
Bremner í
ævilangt bann
Glasgow 8. september — Reuter
BILLY Bremmer, einn af fremstu
knattspyrnumönnum heims, var f
dag settur í ævilangt keppnis-
bann hjá skozka landsliðinu,
ásamt fjórum landsliðsmönnum
öðrum. Skozka landsliðsnefndin
komst að þessari niðurstöðu eftir
tveggja tíma langan fund f dag.
Ástæðan er framkoma knatt-
spyrnumannanna á diskóteki í
Kaupmannahöfn eftir landsleik-
inn við Dani í Evrópukeppninni á
miðvikudag, en þar sigruðu
Skotar 1—0. Sjá nánar um mál
þetta á íþróttasíðum blaðsins í
dag.
Lynette Fromme, 26 ára að aldri.
Hún situr nú f fangelsi fyrir til-
ræði við Ford Bandarfkjaforseta.
Vinstri
ráða á
Canberra, 8. september.
Reuter.
HIN vinstri sinnaða FRETILIN
hreyfing á eynni Tfmor, en hreyf-
ing þessi hefur barizt fyrir al-
gjöru sjálfstæði Austur-Tímor,
sagði f dag, að hreyfingin hefði
náð nýlendunni alveg á sitt vald
eftir bardaga við aðrar frelsis-
hreyfingar. Talsmaður hreyf-
ingarinnar sagði við sama tæki-
færi að hreyfingin hefði fallið frá
meginkröfu sinni um að nýlend-
an yrði sjálfstæð þegar f stað.
sinnar
Timor
Portúgalir hafa ráðið yfir eynni f
490 ár.
I tilkynningu FRETILIN sagði
að hreyfingin vildi nú beita sér
fyrir hægari breytingum í sjálf-
stæðisátt. 1 tilkynningunni sagði
að óþekktar sveitir hefðu komið
til Austur-Tímor frá vesturhluta
eyjarinnar, en honum ræður
Indónesfa. Sagði að litið yrði á
allar hersveitir sem inn í landið
kæmu sem innrásarlið og þeim
veitt mótspyrna í samræmi við
það.
Framleiðir Líbýa
brátt atómvopn?
Trípolí, Líbýu, 8. sept. AP.
LlKUR benda til að Lfbýustjórn
hafi lagt undir sig stórt landsvæði
sem tilheyrir grannrfki landsins,
lýðveldinu Chad, en á svæðinu er
talið að finna megi mikið af
úranfum.
Ekki er vitað hvort um friðsam-
legt afsal landsins var að ræða
eða hvort Líbýumenn lögðu það
undir sig með valdi svo lítið bar á,
en frá þessu var skýrt stuttlega i
frétt í málgagni stjórnarinnar í
síðasta mánuði. Ekki hefur verið
um þetta getið síðan í öðrum
fjölmiðlum í landinu. Talið er að
Líbýumenn hafi lagt áherzlu á að
eignast land, þar sem hugsanlega
væri að finna úraníum og stað-
festir það orðróm sem á kreiki
hefur verið þess efnis, að stjórn
landsins hyggist reyna að koma
sér upp kjarnorkuvopnum. Frétt
þessi var fyrst sögð á Vesturlönd-
um í brezka blaðinu Sunday
Times sl. sunnudag. Segir blaðið
að stjórnir Sovétríkjanna og
Argentínu hafi fallizt á að leið-
beina Libýumönnum við beizlun
kjarnorkunnar.
Tékknesk tennisstúlka
biðst hælis í USA
Lynette Fromme hefur ákveðið,
skv. upplýsingum vina hennar, að
verja sig sjálf fyrir rétti, verði
henni heimilað það. Manson bar
fram sömu ósk við réttarhöld sin,
en henni var hafnað. Ungfrú
Fromme er nú í haldi í fangelsi í
Sacramento og er hennar vand-
lega gætt. Vinkona hennar og her-
bergisfélagi, Sandra Good, hefur
sagzt mundu reyna að fá að hitta
hana í fangelsinu fljótlega og fá
að vita hvað olli þvf að hún beindi
hlaðinni skammbyssu að Ford for-
seta. Sandra Good sagðist halda
að orsökin hafi verið margþætt og
verið að gerjast lengi. Hún hefði
verið mjög vonsvikin og leið á
ástandinu í landinu. Sandra Good
sagði, að þær Lynette Fromme
hefðu verið mjög samrýndar og
„ekkert nema fangelsisveggirnir
hefðu getað skilið okkur að“.
Washington, 8. sept. Reuter, AP.
TÉKKNESK tenniskona, Martina
Navratilova, hefur beðizt hælis
sem pólitískur flóttamaður í
Bandaríkjunum og herma heim-
ildir í Washington, að fallizt verði
á ósk hennar. Stúlkan, sem er 18
ára, hefur að undanförnu dvalizt í
Bandarikjunum og tekið þátt í
tennismótum. Sagt var að hún
hefði ekki í hyggju að fara i felur,
heldur héldi hún áfram að leika
tennis á meðan verið væri að
fjalla um umsókn hennar í
bandaríska dómsmálaráðuneyt-
inu. Hún sagði fréttamönnum að
ástæðan fyrir umsókn hennar
væri ekki pólitísks eðlis heldur
byggðist hún á þvf að hún hefði
betri tækifæri til að stunda iþrótt
sína i Bandaríkjunum en í heima-
landi sinu. Hún sagðist ekki eiga
von á því að fjölskylda hennar,
sem býr skammt frá Prag, yrði
fyrir neinum óþægindum vegna
ákvörðunar hennar. Stjúpfaðir
stúlkunnar sagði við fréttamann f
dag að ákvörðun hennar hefði
komið fjölskyldunni mjög á óvart
og ylli sér miklum vonbrigðum
Yfirvöld í Tékkóslóvakíu hafa
ekkert látið frá sér fara um málið.
Finnland:
Sprenging þar sem
kommúnistar funduðu
He'sinki, 8. sept. AP.
SPRENGJA sprakk á laugardags-
kvöld skammt frá húsakynnum,
þar sem kommúnistaflokkur
Finnlands var að halda undirbún-
ingsfund fyrir þingkosningarnar
sem fram eiga að fara í landinu
eftir tvær vikur. Engin meiðsli
urðu á fólki, en um 100 manns
Daily Mail:
Rússar vilja stórfjölga
starfsmönnum í Englandi
voru á fundinum, sem haldinn
var f Petajavesi um 280 kflómetra
fyrir norðan Helsinki. Sprengjan
hafði verið vafin í pappfr og
gátu lögreglumenn lesið úr
leifum hans viðvörun þess efnis,
að þessi sprengja væri aðeins
byrjunin á frekari sprengingum.
Lögreglan er sögð líta á atvik
þetta mjög alvarlegum augum
vegna þessarar viðvörunar og
leynilögreglan hefur tekið málið
að sér. Ekki er vitað hver olli
sprengingunni en formaður
kommúnistaflokksins, Aarne
Saaninen, sagði að þar hlytu
ofstækisfullir hægri menn að
hafa verið að verki.
London, 8. september. AP, Reuter.
SKRIFSTOFA Harold Wilsons
forsætisráðherra Breta bar f dag
eindregið tii baka frétt sem birt-
ist f blaðinu Daily Mail þess efnis
að ráðherrann hefði heimilað
sovézka sendiráðinu f London að
fjölga starfsliði sfnu um 25
manns og þar með gengið í ber-
högg við öryggisráðgjafa sfna.
Blaðið sagði einnig að Wilson
hefði lofað Brezhnev flokksleið-
toga þvf, þegar fundum þeirra
bar sfðast saman, að taka til vin-
samlegrar athugunar tilmæli
R'ússa um að fá að opna skrifstofu
f Aberdeen, sem er skammt frá
þvf svæði sem á næstu árum verð-
ur helzta olfuvinnslusvæði í Skot-
landi.
Árið 1971 var 105 sovézkum
sendiráðsstarfsmönnum vísað úr
landi í Bretlandi fyrir njósnir og
hefur það verið stefna yfirvalda
þár síðan að taka hart á meintum
njósnum Sovétmanna. Daily Mail
segir að Brezhnev hafi sagt
Wilson að ekki verði hægt að upp-
fylla viðskiptasamning ríkjanna,
sem kveður á um viðskipti fyrir
milljarð sterlingspunda, nema
leyfi fáist til að fjölga sovézkum
starfsmönnum í Bretlandi.
Wilson hefur látið bera alla frétt
blaðsins til baka og segir í yfir-
lýsingu hans að engar óskir hafi
borizt frá Sovétmönnum um auk-
inn starfsmannafjölda í sendiráð-
inu f London eða nýja skrifstofu í
Aberdeen eða annars staðar í
Bretlandi.
N-írland:
Vilja fulla hörku
gegn öfgamönnum
Belfast, 8. sept. Feuter.
Stjórnmálaleiðtogar í röðum
mötmælenda hafa lagt fastar að
brezku stjórninni að afturkalla
vopnahléið sem ríkjandi er að
nafni til í landinu og héfja nýja
herferð gegn leynisamtökum ka-
þólskra, frska lýðveldishernum.