Morgunblaðið - 19.10.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1975
7
Sr. BOLLI
GÚSTAFSSON
í Laufási:
Fyrir mörgum árum reyndi
ungur maður að sýna löndum
sínum fram á, að ef betur væri
að gert f því að uppfræða þegn-
ana í náttúruvísindum og sálar-
fræði, þá væri minni hætta eða
engin á því, að kirkjurnar
hefðu andlega framtakslausar
mannkíndur að ginningarfífl-
um. Benti hann á, að hið
lengsta, sem hin forna trúvísi
hefði komist, væri að rekja ætt
mannsins til guðs — og á því
töfraorði hafi sá stóriðnaður í
flugeldagerð risið, sem kallast
„guðfræði". Þessar ábendingar
eru orðnar gamlar eða nær
hálfrar aldar og margt hefur
verið rætt og ritað um kristna
trú, kristna kirkju og kristna
guðfræði síðan. Fjöldi manna,
raunar mikill meirihluti
þjóðarinnar, hefur þverskallast
við að viðurkenna álit þessarar
ráddar, sem átti eftir að verða
fyrirferðarmikil á íslenzkum
ritvelli. Raunar má með sanni
segja, að tryggð almennings
hafi fyrst og fremst verið bund-
in kristinni trú og kirkju, en
guðfræðin hafi orðið utangátta
eða öllu heldur innlyksa f
kuldalegum steinkassa á
Melunum í Reykjavik og leiftur
frá þeirri stofnun sjáist sjald-
an. Þegar ungur prestur sækir
um brauð, þá spyr enginn,
hvort hann sé vel að sér í guð-
fræði, heldur er það framkom-
an, röddin og ræðustíllinn, sem
skipta kjósendur öllu máli. Það
eina, sem sérstakir áhugamenn
grennslast um, er, hvort
umsækjandinn sé frjálslyndur
guðfræðingur eða aðhyllist
rétttrúnað, þótt Ijóst sé, að sú
skilgreining heyri brátt til Iiðn-
um tíma. Þar með er ekki sagt,
að guðfræðideild Háskólans sé
áhrifalaus. Kennarar hennar
hljóta að hafa mótandi áhrif á
nemendur sína. En svo virðist,
sem þeir fylgist ekki vel með
því, í hvern jarðveg lærisvein-
arnir sá og hvort veganestið, er
þeir fengu þeim, er þannig til-
reitt, að það komi þeim að veru-
legu gagni. Og þessir menntuð-
ustu guðfræðingar þjóðarinnar
eru víðs fjarri, ef til opinberra
deilna kemur, er snerta fræði-
legar hliðar kristinnar trúar.
Það kom bezt i ljós í trúmála-
deilum á liðnu sumri. Þar
heyrðist engin rödd frá guð-
fræðideild Háskóla Islands. Því
er að þessu vikið hér, að í sið-
asta tölublaði málgagns guð-
fræðinema, „Orðinu“, gera
prófessorar grein fyrir skoðun-
um sinum á fyrrgreindum
umræðum um trúmál og ræða
m.a. um einangrun kirkjunnar
og dultrú almennings. Tíma-
ritið, sem hér um ræðir, er
vandað og veglegt, en það berst
í hendur fárra og telst varla
opinber vettvangur. Það væri
mikill ávinningur fyrir kirkju
og kristni, að þessar skoðanir
kæmu fyrir augu alþjóðar og þá
yrði það lýðum ljóst, að guð-
fræðideildin framleiðir ekki
flugelda, heldur kenna þar
menntaðir menn, sem standa
báðum fótum á jörðinni og geta
talað á ljósu máli, sem hver
sæmilega upplýstur maður fær
auðveldlega skilið sér til gagns.
Prófessor Þórir Kr. Þórðarson
bendir á það að „nú á tfmum
búist menn ekki við því af guð-
fræðideildinni, að hún gegni
umtalsverðu þjónustuhlutverki
í kirkjunni og þjóðfélaginu."
Þetta er óþörf hógværð. Á
meðan guðfræðideildin gegnir
því hlutverki fyrst og fremst,
Þjónustu-
hlutverk
guðfræði-
deildar
að búa menn undir prestsstörf í
íslenzku þjóðkirkjunni, þá
rækja prófessorar þetta þjón-
ustustarf. Þeir mega rækja það
í ríkari mæli utan veggja Há-
skólans og í meiri tengslum við
starfandi presta. Þvf til árétt-
ingar má vitna til orða prófess-
ors Jóns Sveinbjörnssonar, er
segir um ritskýringu: „Ritskýr-
ing er ekki fræðilegt fag, sem
hægt er að Ijúka af í guðfræði-
deild, heldur er hún í hæsta
máta hagnýtt fag, sem aldrei er
hægt að ljúka... Það hlýtur að
vera sameiginlegt hagsmuna-
mál presta og guðfræðinga að
vinna hér saman. Einangr-
un kirkjunnar f dag staf-
ar af skorti á ritskýringu.“
Prófessorarnir þurfa að starfa
um tima i söfnuðunum, kynnast
jarðveginum, sem þeir ætla
nemendum slnum að sá í. Þá
væri t.d. nær, að þeir sæju um
þennan hugvekjuþátt i víð-
lesnasta dagblaði landsins, í
stað þess að láta sveitaprest
norður í landi skrifa hann á
stopulum stundum frá embætt-
isstörfum, félagsvafstri og bú-
amstri. Sýnist mér ekki úr vegi
að víkja að þvi nú, þegar ég er
um það bil að kveðja þennan
vettvang. Vandaðrar upp-
fræðslu er þörf. Það hefur ekki
verið svikist um að uppfræða
þegnana í náttúruvísindum og
sálarfræði á síðustu áratugum,
án þess þó að það hafi fyllt
menn sálarró og lifshamingju.
Þeir hafa fremur sannfærst um
það með árunum, að þeirra
mæta sé fremur að vænta í
faðmi kirkjunnar. Um þetta ber
samfélag okkar órækt vitni. Þar
hafa og hvorki dugað tákn og
stórmerki nýrra trúarbragða,
en framþróun náttúru- og
tæknivísinda og sálkönnunar
hafa minnt öllu meir á flug-
eldagerð, en hógvær fræðastörf
I þágu sígildra sanninda krist-
innar trúar, er höfundur
Alþýðubókarinnar fáraðist út
af árið 1929. Það yrði kirkjunni
ömetanlegur styrkur ef fræði-
menn guðfræðideildar skiptu
með sér að veita starfi hennar
og boðun stuðning með trú-
fræðslu á opinberum vettvangi.
<
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
að Hverfisgötu 21: 3—4 herbergi, rúmlega
100 ferm. á fyrstu hæð með sérinngangi.
Innbyggður peningaskápur. Laust nú þegar.
Nánari upplýsingar í skrifstofu félagsins.
Hið íslenzka prentarafélag
Sími 16313.
Brúðkaupsveislur Samkvæmi
ÞINGHOLT
Bergstaóastræti
Hinn
margumtalaði
og vinsæli
Olsölumarkaður
vekur
athygli é ... .
Það koma ávallt nýjar
vörur í hverri viku á
markaðinn
Ótrúlegt
vöruúrval
á frábærlega
lágu
verði
Látið ekki
happ
úr hendi
sleppa
ATHUGIÐ!
Markaðurinn
stendur aðeins
stuttan tíma
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
ULn) KARNABÆR
Útsölumarkaðurinn,
Laugavegi 66, simi 28155