Morgunblaðið - 19.10.1975, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1975 11
Ásgrímur og
Kjarvalsstaðir
Á næsta ári verða 100 ár liðin
frá fæðingu Ásgríms Jóns-
sonar, sem var elztur hinna
þriggja brautryðjenda nútíma-
listar á Islandi, en hinir voru
Jón Stefánsson (f. 1881) og
Jóhannes Kjarval (f. 1885). Is-
lenzka þjóðin stendur i mikilli
þakkarskuld við Ásgrím Jóns-
son vegna stórbrotinnar listar
hans og þeirrar gjafar er hann
ánafnaði þjóðinni að sér látn-
um, — bústað sinn og mikið
safn málverka.
Fyrirhugað hefur verið að
setja upp veglega yfirlitssýn-
ingu á æviverki þessa merka
listamanns á aldarafmæli hans,
og að sú sýning yrði á Kjarvals-
stöðum. Hér vekur heiti staðar-
ins óþjála kennd hjá málurum
gagnvart yfirlitssýningu til
minningar hins eldri brautryðj-
anda. Kæmi ekki til álita í
þessu tilviki að nota nafnið
„Myndlistarhúsið á Miklatúni",
eða einfaldlega Klamra-nafnið.
Og mætti myndlistarmönnum
ekki leyfast að nota hvort
nafnið sem þeir æskja í fram-
tíðinni, þó svo að Kjarvalsstaða-
nafnið yrði hið opinbera heiti?
Ég vil víkja að þessu hér þótt
tilgangur þessara lina sé fyrst
og fremst að vekja athygli á
þeim orðrómi, að útlit sé fyrir
að þessi fyrirhugaða sýning
falli niður vegna deilna um
húsið, þ.e. ef þær ekki leysast i
tæka tíð. Þessi orðrómur er
ógeðfelldari en orð fá lýst og tel
ég öllum aðilum skylt að kveða
hann niður með einhuga
samstöðu um framkvæmd sýn-
ingarinnar. Að sjálfsögðu
verður deilan um Kjarvalsstaði
að leysast, og hún mun leysast
og verða deiluaðilum holl lexia
og þeim til sóma er sátta leita.
Máski er lausnin sú, að F.Í.M.
Mynflllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
marki sér þá stefnu að móta
félagsheild með líku sniði og
slík fagfélög annars staðar á
Norðurlöndum, þannig, að
félagssamtökin verði lýðræðis-
Ásgrfmur Jónsson
legri, og að eitt félag mynd-
listarmanna ráði ekki öllu um
sýningaraðstöðu á Kjarvalsstöð-
um, heldur heildarsamtök
myndlistarmanna og af þeim
kjörið sýningarráð.
Kjarvalsstaðir eiga að vera
„háskóli" íslenzkrar myndlistar
þar til byggt hefur verið yfir
Listasafn Islands. Eins og öll-
um má vera ljóst þurfa allir að
ná vissum lágmarksárangri til
að komast inn i háskóla, og slíkt
getur ekki talizt útilokunar-
stefna, en stefnumörk þess að
veita sem beztri menntun út í
þjóðfélagið og styrkja burðar-
stoðir menningar. Þurfa því
allir að leggjast á eina sveif,
sveitarstjórnarmenn, borgarar
og myndlistarmenn til lausnar
þessu deilumáli svo að sýning
hins merka brautryðjanda,
Ásgrims Jónssonar, megi fram
fara í sátt og samlyndi.
Við höfum opnað nýja veitingabúð
í Hótel Esju~Esjuberg. Esjuberg er
opið alla daga frá átta á
morgnana til tíu á kvöldin. Þar geta
á þriðja hundrað manns í einu notið
okkar fjölbreyttu rétta
- allt frá ódýrum smáréttum upp
í glæsilegar stórsteikur.
Veriö velkomin.