Morgunblaðið - 19.10.1975, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19, OKTÖBER 1975
J^Wmnstín Waage tízkusýningar-
stúlka hefur dvalið langdvölum erlendis
í 4 ár þar sem hún hefur verið í fremstu
röð tízkusýningarstúlkna hjá mörgum
þekktustu tízkublöðum heims. Kristín
bjó í Parfs í 3 ár, en s.l. ár hefur hún
búið í New York þar sem hún á þessum
stutta tima komst einnig í röð eftirsótt-
ustu fyrirsæta.
Nú er Kristín komin heim, kvaðst
hafa verið orðin langeygð eftir fslandi
og þeim friði sem landið býður, hætt að
minnsta kosti um sinn þeysingi milli
borga, bæja og landa, en þó hyggur hún
á stuttar ferðir til ítaliu og Frakklands
næsta ár til þess aó halda sér aðeins við
efnið sem tízkufyrirsæta.
Við röbbuðum við Kristínu á
heimili hennar í Reykjavík.
„Það eru rúmlega fjögur ár síðan
ég byrjaði á þessum þeysingi," sagði
hún, „fór fyrst til Frakklands og í París
bjó ég í 3 ár. París var þannig heima-
höfnin í þessu starfi, en ferðir til Mílanó,
Hamborgar, London, Munchen, Stutt-
gart, Frankfurt og fleiri borga voru
tíðar. Þannig hefur þetta verið eilíft
flakk og óteljandi myndatökur í hinum
ýmsu löndum. Síðan i febrúar hef ég
verið hjá Eileen Ford í Bandaríkjunum,
en það er stærsta umboðsskrifstofa í
heimi. Vinnunni hjá Eileen Ford er
þannig háttað að þeir sjá algjörlega um
útvegun og skipulagningu vinnunnar.
Það er hringt i mann á kvöldin og til-
kynnt um bókun og verkefni næsta dag.“
„Er ekki hörð samkeppni á
þessum vinnumarkaði?"
„Jú, feikilega, en i New York er
samkeppnin langsamlega hörðust, hún
er grimmileg."
Raöbað við Kristínu
Waage tfzkumódel
ðbúai
ferðatösku eða koma
helm til islands
„Góð laun?“
„Aðalpeningarnir eru í myndatök-
um fyrir hina stóru verðlista, sem eru
ákaflega mikið myndskreyttir og gefnir
út í stórum upplögum. Auglýsingin fyrir
mann sjálfan er að sjálfsögðu bezt I
stóru og þekktustu tizkublöðunum. Til
dæmis komst ég í Seventeenth og
Glamor strax og ég kom til Bandarikj-
anna og það var fin auglýsing fyrir mig,
en þetta getur verið erfitt og vonlitið
starf þangað til maður er orðinn
þekktur. Þá er þetta allt auðveldara, nóg
að gera og maður getur fremur valið og
hafnað. Til dæmis ef ég er bókuð fyrir
Glamor og það kemur inn beiðni um
myndatöku í nýjum verðlista, þá vel ég
auðvitað verðlistann, því þar fæ ég mun
betur borgað og til þess fór ég í þetta
starf. Þegar maður er að byrja í þessu er
ánægjan ofsaleg ef möguleiki gefst á
myndatöku fyrir stór þekkt tizkublöð,
þótt þau borgi ekki vel, en þegar maður
er á annað borð búinn að vinna sig upp,
þá varir sú ánægja ekki til lengdar, því
maður vill fá sem mest fyrir sína vinnu.
Fyrst þegar ég kom til New York þurfti
ég að labba með myndabókina mína i 2
vikur og sýna og þá var kominn skriðurá
málið. Ég var heppin, sumar stúlkur
ganga með sínar bækur jafnvel i marga
mánuði án þess að nokkuð komi út úr
því.“
„Hefur þetta verið spennandi
starf?"
„Vissulega, maður er alltaf að
kynnast nýju fólki og nýjum stöðum, en
það getur auðvitað komið fyrir að þetta
sé bæði leiðinlegt og þreytandi. Fólk
heldur oft að maður þurfi bara að vera
fyrir framan ljósmyndavélina og brosa,
en þetta er ekki þannig. Þetta er allt
M,
ryndirnar með viðtalinu
við Kristfnu Waage tízkusýn-
ingarstúlku eru úr ýmsum
þekktustu tízkublöðum Evrópu
og Bandaríkjanna, en Krjstín
hefur náð mjög Iangt í sínu
starfi þau fjögur ár sem hún
hefur verið erlendis. Þar notaði
hún sem model nafnið Sigrún,
fékk það lánað hjá systur sinni,
eins og hún orðaði það, því það
væri sérstæðara í Evrópu og
Bandaríkjunum en nafnið
Kristfn. En nú er Kristín flutt
heim á ný og við hittum hana að
máli.