Morgunblaðið - 19.10.1975, Page 38

Morgunblaðið - 19.10.1975, Page 38
38 MORGUNbLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÖBER 1975 Áslaug Rögnvalds- dóttir—Minning Þegar ég fregnaði andlát vinkonu minnar Áslaugar Rögnvaldsdóttur setti mig hljóðan. Góður félagi var horfinn af sjónarsviðinu, en aðeins lifir eftir minningin ein í vitund þeirra, sem hana best þekktu. Það mun nú vera liðinn röskur aldarfjórðungur frá þvf að fund- um okkar Áslaugar bar fyrst saman. Hún var mikil vinkona konu minnar og vinnufélagi um nokkurn tíma og varð þar af leið- andi mikill aufúsugestur á heimili okkar hjónanna. Margoft var hún gestur okkar og allra þeirra samverustunda minnist ég nú með virðingu og þakklæti. Það var viss reisn og virðuleiki yfir Áslaugu. Hún var jafnan glöð og reif og ánægjulegt var að blanda geði við hana. Hún lagði ætið gott til þegar rætt var um menn og málefni og góðleiki og hjartahlýja var snar þáttur í fari hennar. Oft mun Áslaug ekki hafa gengið heil til skógar, en þvi flfk- aði hún lítt og æðraðist ekki þótt á móti blési. Hún hafði til að bera hugrekki og andlegan styrk, sem gaf henni þor í hverri raun. Þegar hún var barn að aldri þurfti hún að dvelja langdvölum á sjúkra- húsi og nú á siðustu árum varö hún að gangast undir miklar aðgerðir á sjúkrahúsum. Allt sitt mótlæti bar hún af mikilli still- ingu og stakri hugarró. Áslaug var fædd í Reykjavik þann 12. júní árið 1926 og var þvi á fimmtugasta aldursári þegar hún lést. Foreldrar hennar voru Aníia Sigurðardóttir og Rögnvald- ur Þorsteinsson, múrarameistari. Hún var eina barn þeirra hjóna. Foreldrar Áslaugu áttu heima á Hólavallagötu 3 hér í borg og eftir lát Rögnvaldar bjuggu þær mæðg- ur þar áfram. Mikil snyrti- mennska og myndarbragur ríkti á heimili þeirra mæðgna og gaman var á glöðum stundum að vera gestur þeirra. Mjög einlægt og náið samband var á milli þeirra Áslaugar og móður hennar og hef ég sjaldan kynnst jafn miklu ástriki milli móður og dóttur. Sár verður því harmur frú Önnu við andlát einkadóttur sinnar. Áslaug starfaði á skrifstofu allan sinn starfsaldur. Fyrsí hjá heildversluninni G. Þorsteinsson og Jónsson og siðar hjá Lands- smiðjunni allt til síðasta dags. Hún Var mjög vel látin, duglegur og samviskusamur starfsmaður og virt af öllum sinum vinnu- félögum. Áslaug andaðist á Landakots- spítalanum miðvikudaginn 8. október s.l. eftir stutta legu. Að leiðarlokum sendum við hjónin móður hinnar látnu, frú önnu, hugheilar samúðarkveðjur. Við minnumst Áslaugar með þakklæti og virðingu. Fari hún í friði. Blessuð sé minning hennar. Klemenz Jónsson Hún Aslaug er dáin! Við, sem erum búnar að vera með henni i saumaklúbb í nærri tuttugu og fimm ár, eigum svo bágt með að sætta okkur við að hún skuli vera horfin. Við eigum aldrei eftir að finna hlýja hand- takið hennar eða sjá bjarta bros- ið. En enginn er eilífur, og ein- hver okkar hlaut að hverfa fyrst. Áslaug fæddist í Reykjavfk 12. júní 1926, dóttir hjónanna frú Önnu Sigurðardóttur og Rögn- valds Þorsteinssonar múrara- meistara. Föður sinn missti Ás- laug árið 1948 og bjó ætið siðan með móður sinni að Hólavallagötu 3. Samrýndari mæðgum hef ég aldrei kynnzt. Því hlýtur sorgin að vera sár hjá frú Önnu að missa einkadótturina, aleiguna. Áslaug var mjög vel gefin og fær í sínu starfi en hún vann sem vélritunarstúlka hjá Landssmiðj- unni í 29 ár. Þar elskuðu hana allir og virtu. Áslaug hafði verið heilsuveil undanfarið, en skyndi- lega ágerðust veikindin og var hún flutt á Landakotsspítala þar sem hún andaðist eftir fárra daga legu. Anna mín, þú ert alltaf sterk þegar eitthvað bjátar á. Nú reynir meir á kjark þinn en nokkru sinni fýrr. Ég bið góðan Guð að senda þér styrk í sorg þinni. Þó að leiðin virðist vönd vertu aldrei hryggur. Það er eins og hulin hönd hjálpi er mest á liggur. (J.B.) G.G. Enginn veit hvað morgúndagur- inn ber í skauti sínu og er það sjálfsagt fyrir beztu. Gleðitíðind- in eru alltaf velkomin og ánægju- leg en þegar þau slæmu koma, virðist maður aldrei tilbúinn að taka þeim eða sætta sig við þau. Ég geri ráð fyrir að svo hafi verið um fleiri en mig er mér bárust fréttir um, að vinkona mín Áslaug Rögnvaldsdóttir væri látin. Enda þótt ég vissi að hún hafði ekki gengið heil til skógar undanfarin ár, gerði ég mér enga grein fyrir að svo skammt væri til endalok- anna. Áslaug Rögnvaldsdóttir var fædd 12. júní 1926 og andaðist í Landakotsspítala 8. okt. s.l. eftir stutta legu. Hún var einkabarn foreldra sinna, þeirra Önnu Sig- urðardóttur og Rögnvaldar Þorsteinssonar, múrara. Rögn- valdur er látinn fyrir mörgum árum en Anna lifir dóttur sina, komin hátt á nfræðisaldur. Er missir hennar óumræðilega mikill. Þær mæðgur héldu heimili saman alla tið og var óvenju náið samband milli þeirra. Áslaug var móóur sinni til mikillar styrktar þegar aldurinn færðist yfir hana og sá um heimilið svo að til fyrirmyndar var. Það var alltaf jafn ánægjulegt að heimsækja þær mæðgur, hvort heldur var saumaklúbbur eða annað tilefni, gestrisnin og hlýjan sem mætti manni var einstök. Eftir að Áslaug lauk námi í Verzlunarskóla íslands starfaði hún lengstum hjá Landssmiðj- unni eða á þriðja áratug. Hún var framúrskarandi flink skrifstofu- stúlka, snyrtimennskan henni í blóð borin og vandvirk eftir því. Allt, sem hún tók sér fyrir hendur, var unnið á þennan hljóð- láta, þægilega hátt, sem henni var svo tamur. Nú að leiðarlokum bið ég guð að styrkja önnu, móður Áslaugar, og blessa henni ævikvöldið. Hennar er missirinn mestur. Áslaugu þakka ég allar samverustund- irnar, ferðina okkar til Englands forðum, þegar við vorum báðar ungar, og alla hugulsemina fyrr og síðar. Við hjónin þökkum heimsóknirnar i Selvík undan- farin sumur, það voru sannar ánægjustundir. Saumaklúbbur- inn kveður hana með söknuði og hjartans þakklæti fyrir allt. Fyrirbænir okkar allra fylgja henni á nýjum vegum guðs um geim. Guð blessi hanp ætíð. Halla. Á morgun verður til moldar borin frænka mín Áslaug Rögn- valdsdóttir, sem lést í Landakots- spítala þ. 8. þ.m., 49 ára að aldri. t Hugheilar þakkir sendum við öll- um þeim er auðsýndu okkur samúð, vinarhug og virðingu við útför föður okkar KARLS WIUM VILHJÁLMSSONAR Brynjólf ur Wium Helga Wíum t Af alhug þökkum við alla auð- sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför ÞURÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Ljósheimum 10. Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki á deild ' 3B Land- spitalanum fyrir frábæra umönnun Sæmundur Sigurtryggvason. börn. tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður, INGUNNAR JÓHANNSDÓTTUR, frá Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Elliheimilisins Grundar. Jóhanna Lárusdóttir, Baldur Halldórsson, Unnur Lárusdóttir, Hreinn Þorvaldsson, Sigurður Lárusson, Auður Þorkelsdóttir. t Jarðarför dóttur minnar, ÁSLAUGAR RÖGNVALDSDÓTTUR. fer fram frá Dómkirkjunni, kl 1 30 e.f- mánudaginn 20 október Anna Sigurðardóttir, Hólavallagötu 3. t Útför, GUÐMUNDUR J. BREIÐFJÖRÐ blikksmíðameistara. verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 20 október kl 3 Þeir, sem vildu minnast hans, vinsamlegast láti liknarstofnanir njóta þess Dóróthea og Þorsteinn Ö. Stephensen, Ólafia og Agnar G. Breiðfjörð. Útför t MATTHÍASAR SVEINBJÖRNSSONAR, fyrrverandi aðalvarðstjóra, Bergþörugötu 31 Fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 21 október kl 1 3.30. Bjarni Matthiasson Svala Pálsdóttir Margrét Matthíasdóttir Hjálmtýr Hjálmtýsson Sveinbjörn Matthiasson Jónina Guðmundsdóttir Þórunn Matthíasdóttir Vilhjálmur Tómasson Matthildur Matthíasdóttir Davið Hemstock t Útför föðurs, tengdaföður og afa JÓNS BJARNASONAR, vélstjóra, verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21 okt kl 13.30 Þeir sem vilja minnast hins látna er bent á líknarstofnanir Hrefna Jónsdóttir, Kristján Þorsteinsson, Pétur Jónsson, Guðrún Konráðsdóttir, Sigurður og Gisele Jónsson, Bjarni Jónsson og barnaborn t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINVÖR ÁGÚSTA EGILSDÓTTIR MARBERG, Þórufelli 1 2, verður jarðsett frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 2 1 október kl 3 e.h Blóm afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hennar, láti líknarstofnanir njóta þess Gunnsteinn Jóhannsson, Sigurður Rúnar Gunnsteinsson, Egill Marberg Gunnsteinsson, Svanhildur Baldursdóttir, Sigrún Gunnsteinsdóttir, Stephen Head. og barnabörn. t Útför STEINGRÍMS ÞORLEIFSSONAR, 1 heildsala Grenimel 12. Fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 20. október kl. 1 0.30. Blóm og ktfmsar afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hans látið Hjartavernd njóta þess. Anna Barbara Þorleifsson, börn og systkini hins látna. t Útför móður okkar AÐALHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá ísafirði sem lést 10 þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20 þ.m kl. 1 'h e.h. Börn, tengdabörn, barnabörn. t Kveðjuathöfn um móður okkar, RUTH JÓNSDÓTTUR, frá Patreksfirði, fer fram í Dómkirkjunni, þriðjudaginn 21. október kl 10.30. Jarðarförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju, fimmtudaginn 23. október kl. 14 Álfheiður Jónasdóttir, Sigurður Jónasson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og einlægan vinarhug við andlát og útför eiginmanns mlns, sonar okkar og bróður JÚLÍUSAR GUNNARS SVEINBJÖRNSSONAR Höfn Hornafirði Guðrfður Ásgrlmsdóttir, Vilborg Valgeirsdóttir, Óli Sveinbjörn Júliusson og systkini hins látna. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐMUNDAR F.E. BREIÐDAL húsgagnasmiðameistara Barmahlið 40 Maria Þórðardóttir, Ásta Breiðdal, Birgir Breiðdal, Ragnhildur Smith. Guðmundur, Laufey Ásta og Birgir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.