Morgunblaðið - 31.10.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975
15
Nýtt eldhús í
sjúkrahúsi Akraness
Akranesi 29. október
I GÆR var tekið f notkun nýtt og
fullkomið eldhús f Sjúkrahúsi
Akraness. Þessi nýja aðstaða mun
gjörbreyta allri vinnu við matar-
gerð til þess betra, og jafnvel
einnig matnum, þótt hann hafi
verið góður og óaðfinnanlegur við
erfiðar aðstæður á undanförnum
árum.
Eldhús þetta er í norðurálmu
sjúkrahússins á 1. hæð og hluta af
kjallara. Grófvinnsla og vörumót-
taka er í kjallara, ásamt
geymslum. Aðalsalurinn er á 1.
hæð þar fer fram matreiðsla,
bökun, uppþvottur og fram-
reiðsla. Meginstofn tækjabúnaðar
er frá sænska fyrirtækinu Kopal,
en hluti frá Finnlandi og
Englandi.
Meðfylgjandi mynd er af
Jóhannesi Ingibjartssyni þar sem
hann lýsir hinum fullkomnu
vélum.
Júlfus
Mótmæla niður-
skurði til
verkmenntunar
Neskaupstað 29. október
NEMENDUR ogkennararvið Iðn-
skóla Austurlands f Neskaupstað
héldu sameiginlegan fund f morg-
un vegna fyrirhugaðrar lækkunar
á fjárlögum til iðnfræðslu. Eftir-
farandi ályktun var einróma sam-
þykkt á fundinum:
„Nemendur og kennarar Iðn-
skóla Austurlands, Neskaupstað,
lýsa fullri samstöðu með Iðn-
nemasambandi íslands f mótmæl-
um þess gegn öllum niðurskurði á
fjárveitingum til iðnfræðslumála,
sem og til annarrar verkmenntun-
ar á sama tima og yfirvöld
menntamála tala um þjóðarnauð-
syn á eflingu verkmenntunar. Þá
viljum við benda á það óréttlæti
sem felst i fjármagnslegri upp-
byggingu bóklegs framhaldsnáms
annars vegar og verkmenntunar-
kerfisins hins vegar. Þar sem rík-
ið byggir sjálft og rekur skóla
fyrir þá sem fara í bóklegt fram-
haldsnám, en sveitarfélögunum
er ætlað að byggja og reka að
hálfu verknámsskóla eins og t.d.
iðnfræðsluskólana. Við tökum
heilshugar undir orð hæstvirts
menntamálaráðherra um að auka
þurfi virðingu fyrir öllu verklegu
námi, en leggjum áherzlu á, að til
þess að þjóðin sjálf meti verk-
menntun til jafns við þá bóklegu
þurfi löggjafinn og framkvæmda-
valdið að ganga á undan.
— Ásgeir.
Línu- og neta-
svæði friðað
Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
friðað sérstakt línu- og netasvæði
úti af Faxaflóa. Samkvæmt reglu-
gerðinni eru allar veiðar með
botn og flotvörpu óheimilar á
svæði innan lína, sem dregnar eru
20 sjómílur réttvisandi vestur af
Garðsskagavita, þaðan í norðurátt
í punkt 64°20' N og 23°36'V og
þaðan í réttvísandi austur. Bann
þetta gildir til 31.desember 1975.
Bílainn-
flutningur
27,8% af því
semhann
varífyrra
SAMTALS voru fluttar inn til
landsins 2.776 bifreiðar á
fyrstu 9 mánuðum ársins 1975
— að þvf er segir í frétt frá
Hagstofu íslands. Þessi bfla-
fjöldi er aðeins 27,8% af inn-
fluttum bflum fyrstu 9 mánuði
ársins 1974, en þá voru inn-
fluttar 9.987 bifreiðar.
Nýjar fólksbifreiðar á þessu
ári eru orðnar 2.302, en voru f
fyrra 8.521 bifreið. Notaðar
bifreiðar voru nú 212, en í
fyrra 677.
’ ’ Við hngsum aðeins iiin þá sem viljn vönduð
°g þægileg fot í samræmi vid tí§ku hvers tíma”
Jack Wahl, designer.
merki
margra