Morgunblaðið - 31.10.1975, Síða 20

Morgunblaðið - 31.10.1975, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKT0BER 1975 Hvers vegna kvennafrí? Kvennakór Guðrún Á. Sfmonar stjórnar f jöldasöng Björg Einarsdóttir: ÁVARP TEXTI: VALBORG BENTSDÓTTIR LAG: FRJALST ER I FJALLASAL Hvers vegna Kvennafrí? Konurnar fagna því, takast mun allsherjar eining. Vanmetin voru störf, vinnan þó reyndist þörf. Aðeins f kaupi kyngreining. Nú á að brjóta í blað bráðlega sannast það, við sigrum, ef saman við stöndum. Konan á vilja og vit, vilji hún sýna lit. Tengjumst þvf baráttuböndum. Metin skal maðurinn, manngildi er hugsjónin. Enginn um ölmusu biður. Hljómar um fjöll og fjörð: Frelsi skal rfkja á jörð, jafnrétti, framþróun, friður. SVONA MARGAR Svona margar, nær meirihlutinn af mannfólki þessa lands. Það skýrslur segja til sanns. Svona margar, meirihlutinn, já meirihluti mannkynsins er við, kvenfólkið. Ef kúrum við hér ein og ein á okkar básum heima. Það verður okkar versta mein þvf víst ei skulum gleyma: Að meirihlutans sterka stoð þá styður okkur ekki. Þá setjum við hvorki bönn né boð Við bundnar erum f hlekki. Svona margar... Þvf skulum við reyna að skrfða út úr skelinni þarna heima og rétta úr okkar kvennakút ei krafti okkar gleyma. Þvf ef við stöndum hlið við hlið við hljótum að vera margar. Ef stelpa konu leggur lið það leiðin er til bjargar. Svona margar... LOKASÖNGUR Hversvegna þegjum við þunnu hljóði og þótt við tölum, er sem það heyrist vart? Hvað gera stelpur, sem langar í Ijóði að leggja til svo fjarskalega margt? Og allir garga: r Hvað er hún að þvarga? Það heyrist ekkert f henni. Hvað ætli sé að röddinni? Eiga þá stelpur alltaf að þegja og aðeins vona að strákar túlki þeirra mál. Eða upp að rísa og rétta úr kútnum og reka upp öskur: Ef þið bara hélduð kjafti, þá munduð þið heyra f okkar hljóðu sál. 0, ó, ó. stelpur... Við brýnum okkar raust svo berist húri um heiminn. KONUR! Hvers vegna stöndum við hér — svona margar? Eina dagstund höfum við allar, sem hér erum, brugðið vana okkar. Við höfum stigið út fyrir umgjörð daglegs lífs og freistum þess nú að skoða hana utan frá, næstum eins og ókunnugur myndi sjá okkur. Við spyrjum okkur sjálfar: Hver er okkar daglegi þáttur innan umgjarðarinnar — nýt- um við réttindi og uppfyllum skyldur til jafns við þá, sem við eigum samleið með? Af nýjum sjónarhóli skynjum við okkur sjálfar og lif okkar eitt andartak. Athyglin skerpist og í einni sjónhending sést samspil or- saka og afleiðinga í lífi okkar og nú getum við skoðað atriði, sem vaninn slævir í önn dags- ins. Hér og nú getum við — hver og ein — skyggnst í eigin barm og skoðað umhverfi okkar og síðan rakið eftir eigin hugar- fylgsnum hvers vegna líf okkar og starf — mitt og þitt — er í þeim farvegi, sem raun ber vitni. Hvort við hvetjum dætur okkar til jafns við syni til að velja sér námsbraut og lífsstarf eftir upplagi þeirra og hæfi- leikum. Aðgerðin í dag — kvennafrí- ið á degi Sameinuðu þjóðanna — er f eðli sínu jákvæð fyrir þær sakir, að hér ganga þeir fram fyrir skjöldu — fslenskar konur allar —, sem ekki beina spjótum sínum að öðrum aðila og krefjast, krefjast, krefjast EINHVERS . . . Aðgerðinni er beint inn á við að okkur sjálfum og skal orka á eigin vitund og lífsviðhorf. Á morgun, þegar við stígum til baka inn í venjulega daglega umgjörð til fjölskyldu okkar og á starfsvettvanginn, hvort sem það er inni á heimilinu eða utan þess, erum við ekki sömu konurnar og áður. I morgun tók sérhver okkar, ein og óstudd, ákvörðun um hvort hún ætti að yera með hinum konunum á torginu eða ekki. Fyrir mörgum okkar var það átak að losa sig frá öryggi, er tengslin við fjölskylduna og dagleg reglubundin störf með sömu vinnufélögunum veita og finna sig skyndilega standa ber- skjaldaða sem sérstakan ein- stakling, sem við ætlum nú að vega og meta í nýju ljösi. Á hvorn veginn sem ákvörð- un okkar féll, ef við höfum staðið við hana, er það eitt út af fyrir sig sérstök reynsla, sem við munum búa að og okkur ber að virkja. Skilningur okkar eykst á því að við séum fullgildir þegnar með ábyrgð til jafns við aðra, en ekki bara KONUR. I þessu er m.a. fólgið lang- tfmamarkmiðið með kvennafrí- inu — að vaknandi vitund nú- timakvenna skili uppvaxandi kynslóð þeirra ávinningi, er leiði til jafnrar stöðu við karla á grundvelli fengins lagalegs jafnréttis. — Að hjúskapur einn sér ráði ekki starfsvali kvenna í fram- tfðinni heldur mat á kringum- stæðum og löngun til að takast á við verkefni af hvaða toga, sem þau eru spunnin. Ef við náum að skynja þessi einföldu atriði verður okkur ljóst að ekki þarf að bíða þjóð- félagsbreytingar utan frá — með eigin vitundarvakningu og að okkur ber að vera raunveru- legir þátttakendur á öllum sviðum samfélagsins, þróast það sjálfkrafa f jafnréttisátt. Að lokum minni ég á orð Helve Sipilá formanns Alþjóð- Iegu kvennaársnefndar Sam- einuðu þjóðanna, er hún gisti Island f sumar: Bætt aðstaða konunp'.r leiðir til bættrar stöð fjölskyldu b'- ! .ar og það leió’i- aí sér betri leild. Björg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.