Morgunblaðið - 31.10.1975, Page 22

Morgunblaðið - 31.10.1975, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 Móðir kona meyja marglofuð og krýnd, mikið vildu skáidin oft létta þfna byrði. Af löggjafanum var þér jafnan lítil virðing sýnd lifandi og dauða hann mat þig einskis virði. Sjaldan var til margra fiska metið hljóðlátt starf, sem móðirin á degi hverjum vann með geði hlýju. Og meyjan unga að sjálfsögðu frá móður tók I arf mat á kvennastörfum og sagan hófst að nýju. En færi svo að konan unga gengi á guðs sfns fund gat það ekki talist á hagreikningum skaði. Heimilisins f járhagstjón, að glata móðurmund var minna en einskis virði á næsta skattablaði. Og ræðuskáldin tjáðu f rómi angurvær, þær rfkja eins og drottningar, mæður vorra sona. Það bar við fyrir öldum og gerðist lfka f gær, að gildismat til launa var: þetta er bara kona. Þig má ei lengur blekkja barkadigurt hrós, á borði lftils virði, orð f veisluglaumi. Þú mátt ekki sofa eins og saklaus Þyrnirós sefjuð inn f dásvefn f fölskum óskadraumi. Því verkefnin þfn bfða bæði mörg og stór, baráttu skal hef ja og nýja stefnu taka. Ef virðirðu þig sjálfa og veist hvar kreppir skór þá veistu að þú ert jafnvirði bróður þfns og maka. Ásthildur Á iTnun Ólafsdóttir: xXV dl p Góðir áheyrendur. Ég las einu sinni sögu þar sem eftirfarandi samtal átti sér stað milli músamömmu og ung- anna hennar: „Hugsa? Hvað er það?“ spurðu ungarnir. „Það veit ég ekki,“ sagði músamamma. „Þurfa allir að hugsa," spurðu ungarnir. „Nei, það held ég ekki,“ sagði músin. „Hugsar þú mamma?“ spurðu ungarnir. ..Mömmur þurfa aldrei að hugsa neitt," sagði músin. „En hugsum við?“ spurðu ungarnir. „Nei, það held ég ekki börnin mín, ekki enn.“ „Þú hugsar ekki og við hugsum ekki,“ sögðu ungarnir. „Er þá enginn hér sem hugsar nema pabbi?“ „Nei, hann hugsar einn fyrir okkur öll,“ sagði músamamma, „en hann hugsar Iíka mikið." En dettur ekki einhverjum í hug, þegar hann heyrir þetta samtal, að stundum sé kannski ótrúlega skammt á milli músar og manns. Hve lengi og oft höfum við konurnar ekki látið karlmönn- unum það eftir að hugsa fyrir okkur og segja okkur til um hvert hlutverk okkar sé og hvað okkur sé sæmandi án þess að kvenlegum yndisþokka og hús- móðurskyldum okkar sé mis- boðið? Hve lengi höfum við ekki látið okkur það vel lynda að lesa og segja börnunum okkar sögur af tápmiklum og áræðnum drengjum, sem ekkert vex i augum og sigra hverja þraut og hve oft höfum við ekki sagt frá telpum, sem eru svo duglegar að hjálpa mömmu sinni við innanhúss- verkin, litlu stúlkunni sem er svo þæg og góð og leikur sér svo fallega með brúðuna sína, strokin og snyrt með rauðan hárborðann, fyrirmyndarstúlk- an. Og námsefnið f skólunum. Skyldi það vera hlutlaust um að ætla telpum og drengjum, konum og körlum sömu störf- in? Fá bæði kynin sömu hvatn- ingu til náms? Foreldrar ættu að kynna sér bók um starfs- fræðslu, sem kennd er i fram- haldsskólum? I Noregi vinnur ríkisskipuð nefnd að því samkvæmt 5 ára áætlun, að endurskoða innihald allra skólabóka með það fyrir augum að finna og eyða hverju þvf sem stuðlað gæti að mis- munun kynjanna. SHkt hið sama þyrfti að gera hér. Og það er okkar að krefjast þess, að það sé gert. Lengi býr að fyrstu gerð, segir máltækið. Við verðum að byrja á byrjuninni, ef við ætlum að uppræta ósómann, misrétti kynjanna. Hugsumvið hvað við erum að gera, þegar við erum að móta viðhorf og skoðanir barna okkar með sögum, námsbókum og daglegu tali? Eða erurh við kannski eins og músamamma í sögunni og hugsum ekki neitt? Segjum við kannski eins og hún? Pabbi hugsar einn fyrir okkur öll, en hann hugsar lika mikið. Sú hefur kannski verið tfðin. En nú höfum við ástæðu til að ætla að það sé liðin tíð. Það sýnir og sannar meðal annars þessi fundur okkar f dag. Við erum farnar að hugsa. Við vitum hvað við viljum. Við viljum jfnrétti í raun. Við viljum að konur fái að velja sér störf rétt eins og karlmenn- irnir. Við viljum fá að njóta gáfna okkar og hæfileika rétt eins og þeir. Við viljum að það þyki eðlilegt að karlmennirnir gegni húsmóðurstörfum engu sfður en konur. Við viljum útmá hugtökin karla- og kvennastörf. Við viljum að i hvert starf sé valið með tilliti til kunnáttu og hæfileika en ekki kynferðis. Og við viljum að starf sé metið að verð- leikum, en ekki með tilliti til þess, hvort það sé unnið af karli eða konu. Við þetta á að miða hugs- unarháttinn. Við þetta á að miða uppeldið. Og ef aðrir eru ekki tilbúnir að gera þetta, þá skulum við bara gera það sjálfar. Konur! Hvers vegna höfum við ekki meiri áhrif f þjóðfé- laginu en raun ber vitni? Það er vegna þess, að til þessa höfum við ekki hugsað nægi- lega mikið um stöðu okkar, lffs- hlutverk og rétt konunnar til þess að vera maður, ekkert síður en karlmaðurinn. Við höfum of lengi látið aðra hugsa fyrir okkur. Á þessu er og skal verða breyting. Það er ekkert nátt- úrulögmál að konur séu betur fallnar til heimilisverka en karlar. En þrátt fyrir lögmálið að æfingin skapar meistarann, fer það ekkert á milli mála að konur eru misvel fallnar til barnauppeldis alveg eins og karlmenn. Við skulum lika hugsa um það, að starfsævi kon- unnar er i mörgum tilvikum yfir 50 ár, og af þeim eru aðeins 10—20 bundin uppeldinu. Þetta er minnihlutinn af starfs- ævi konunnar. Hvers vegna ætti hún þá ekki að huga að öðrum störfum? Hvers vegna ætti hún ekki að hafa aðra at- vinnu sem aðalstarf? Hvers vegna ætti hún að stuðla að vinnuþrælkun karlmannsins og að eigin iðjuleysi? Hvers vegna ætti hún ekki að sjá fyrir sér sjálf? Já, hvers vegna? Það er fyrst og fremst okkar, húsmæðra og mæðra, að leiða þessi réttlætismál með skyn- semi og ákveðni til sigurs. Við höfum mikil áhrif, ef við beitum okkur. Við getum breytt uppeldinu. Við getum knúið yfirvöld til þess að breyta námsbókunum og fræðslukerf- inu í heild svo að þar skipi jafnrétti kynjanna öndvegið. Við getum kennt sonum okkar að meta heimilisstörfin að verðleikum og sinna þeim kinnroðalaust. Og við getum hvatt dætur okkar til að mennta sig og þjálfa til hinna ýmsu atvinnugreina alveg á sama hátt og syni okkar. Það er þetta, sem við erum að sýna og sanna bæði sjálfum okkur og öðrum í dag. Þessi fundur okkar er skýlaus yfir- lýsing um vilja okkar og mátt. Og þessi vilji og máttur verður ekki aðeins rfkjandi f dag, heldur vöknum við lfka á morgun og hinn daginn marg- efldar til baráttu og starfa fyrir jafnrétti kynjanna. Hver dagur sem rfs eftir þennan dag mun bera okkur hraðbyri til fram- tíðarþjóðfélagsins, þar sem jafnrétti, framþróun og friður marka stefnuna. Asthildur Ólafsd. Ásthildur Ólafsdóttir Brot úr kvæðinu r „Afram stelpur Höfundar eru hjónin Dagný Kristjánsdóttir og Kristján Jónsson. Áfram stelpur standa á fætur slftum allar gamlar rætur þúsund ára kvennakúgunar. Ef einstaklingurinn er virkur verður f jöldinn okkar styrkur og við gerum ótal breytingar. Atkvæði eigum við í hrönnum komum pólitfkinni f lag sköpum jafnrétti og bræðralag. Áfram stelpur hér er höndin hnýtum saman vinaböndin verum ekki deigar dansinn f. Byggjum nýjan heim með höndum hraustra kvenna í öllum löndum látum enga linku vera f þvf. Börnin eignast alla okkar reynslu sýnum með eigin einingu aflið f fjöldasamstöðu. Stelpur horfið ögn til baka á allt sem hefur konur þjakað stelpur horfið bálreiðar um öxl. Ef baráttu að baki áttu berðu höfuð hátt og láttu efann hverfa unnist hefur margt. Þó er mörgu ekki svarað enn: þvf ekki er jafnréttið mikið í raun hvenær verða allir menn taidir menn með sömu störf og Ifka sömu laun. Til fósturlandsins freyju 24. okt. 1975 eftir Valborgu Bentsdóttur Móðir kona meyja, er ei mál að linni nú, að metin séu störf þfn sem annar gæðaflokkur. Maddama, kerling, fröken eða frú við fylkjum djörfu liði og sigur hlotnast okkur. Rauðsokkar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.