Morgunblaðið - 31.10.1975, Side 30

Morgunblaðið - 31.10.1975, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 Ásta Sigurjónsdóttir frá VíkíLóni-Minning Fædd 28.5.1903 Dáin 18.10. 1975. ANDLÁT hennar mun ekki hafa komið þeim á óvart sem til henn- ar hafa þekkt síðustu árin, svo langvinn og þung voru veikindi hennar orðin er hún fékk hvlld á Landspítalanum sem að ofan er greint. Þangað hafði hún marg- sinnis þurft að leita læknishjálp- ar og hjúkrunar á undanförnum árum en hafði alltaf horfið heim til sín jafnskjótt og af henni bráði og læknar ekki mótmæltu. Hún vildi njóta heimilis síns svo lengi sem unnt var þótt hún væri þar ein síns liðs og hefði ekki eða naumast það þrek sem álitið var að nauðsyn bæri til að hafa til þess að bjargast eða komast af án annarra hjálpar. En hún átti jafnan þá hjálpendur sem réttu henni líknarhendur þegar mestar aðstoðar var þörf og var sú hjálp meðtekin af einlægum þakkar- huga. Ásta var austur-skaftfellingur að ætt; í Lónssveit höfðu foreldr- ar hennar búið og forfeður. Hún var fædd í Vík í Lóni 28. maí 1903 en þar bjuggu þá foreldrar henn- ar: Guðrún Gísladóttir og Sigur- jón Sigurðsson. Guðrún var dóttir Gísla Gíslasonar bónda I Svínhól- um og viðar I Lóni og konu hans Astríðar Sigurðardóttur. Systur Guðrúnar voru þær merku húsfreyjur: Ingibjörg á Fornustekkum I Nesjum, gift Sig jóni Péturssyni og Þorbjörg I Volaseli í Lóni, kona Jóns Eiríks- sonar hreppstjóra og bónda þar en hann var þjóðkunnur öðlings- maður. Fyrri maður hennar var Ólafur Sveinsson, Bjarnasonar, prests á Stafafelli. Þessar systur þrjár voru hver annarri betur gefnar og valkvendi enda báru heimili þeirra þess vott að þar voru að störfum hæfileikakonur sem kunnu vel til verka. Föðursystkini Astu voru þrjú, tvær systur og einn bróðir: Systurnar voru þær Ástrfður, er giftist Gunnari Jónssyni bónda f Þinganesi í Nesjum og Guðbjörg, kona Guðmundar bróður Gunn- ars. Bjuggu þessar fjölskyldur báðar I Þinganesi um skeið en Guðmundur drukknaði árið 1909 í Hornafjarðarfljótum. Hann var hafnsögumaður, smiður góður og verkmaður ágætur. Einn af börn- um hans er Asgeir á Höfn I Hornafirði sem er mikill hagleiks- maður, vandvirkur og ágætur smiður. Föðurbróðir Astu var Sigur- sveinn, lengi bóndi I Vík í Lóni. Dóttir hans, Laufey, er kona Jóns Guðmundssonar á Höfn, er áður var bóndi í Vík og á Höskuldsstöð- um f Breiðdal. Sigurjóns föður Ástu naut ekki lengi við, hann lést haustið 1917 aðeins 47 ára að aldri. Þau hjón höfðu eignast eina dóttur aðra en Ástu sem hér er minnst, Svövu, hún var nokkrum árum eldri. Skömmu eftir dauða Sigurjóns brugðu þær mæðgur búi í Vík og fiuttu vorið 1919 að Volaseli til Þorbjargar systur Guðrúnar og manns hennar, Jóns Eiríkssonar. Varð Guðrún upp frá því hægri hönd Þorbjargar við alla búsýslu og heimilisstörf, sem kom sér vel vegna þess að Þorbjörg var ekki heilsusterk en heimilið jafnan mannmargt og gestagangur mikill, einnig langferðamanna sem oft leituðu þar gistingar. Störf Jóns bónda Þorbjargar voru lfka oft utan heimilis. Guðrún var sfðan í Volaseli til æviloka og er hennar alltaf minnst sem sérstakrar heiðurs- konu er jafnan var í fremstu röð kvenna í sýslunni allri. Svava, systir Astu, giftist 21. maí 1921 Eirfki bónda Einarssyni á Þorgeirsstöðum f Lóni og bjuggu þau þar síðan meðan Eiríkur var Iffs en hann lést þremur árum sfðar eða vorið 1924, og var hann sjúklingur seinni hluta þess tfma. Dóttir þeirra er Sigrún húsfreyja á Höfn, kona Guðmundar Jónsson- ar byggingarmeistara þar. Hafa þau hjón látið sér annt um Ástu frænku Sigrúnar alla tíð og marg- t Elskuleg eiginkona min og móðir og tengdamóðir JÓNÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR frá Brekku Leifsgötu 21 lést 30 október á Heilsuverndarstöðinni Guðlaugur Guðmundsson Guðlaug Guðlaugsdóttir, Niels Gfslason. t Bróðir minn, LOFTUR ÁRNASON, járnsmfðameistari lést f Borgarspltalanum 29 þ.m. F h aðstandenda Ólafur Árnason. t Móðir okkar og tengdamóðir GÍSLÍNA SIGURVEIG GÍSLADÓTTIR, Hverfisgötu 25, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju laugardaginn 1 nóvember kl. 1 1 f.h. Fyrir hönd aðstandenda Dagbjört Sigurjónsdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu konu minnar og móður okkar, STEINVARAR ÁGÚSTU EGILSDÓTTUR MARBERG. Þórufelli 12, sem andaðist 1 2 okt. s I. Sérstakar þakkir til vinnufélaga I Landsbank- anum. Gunnsteinn Jóhannsson, Sigurður Rúnar Gunnsteinsson, Egill Marberg Gunnsteinsson, Sigrún Gunnsteinsdóttir Head. ar eru ferðir þeirra orðnar til Reykjavfkur mörg undanfarin ár vegna veikinda Ástu. Næstu árin eftir að þær mæðg- ur allar komu að Volaseli stund- aði Ásta nám annars staðar og atvinnu jafnframt. Sumarið 1926, hinn 18. dag júlímánaðar, giftist hún Einari Þorsteinssyni kennara frá Hvammi f Lóni og fór til bús með honum þangað en sambúð þeirra varð skammvinn því hann lést 27. maí 1931, aðeins 36 ára gamall. Einar var ágætum gáfum gæddur, vel menntur og mátti vænta mikilla starfa af hans hálfu. Bróðir Einars er Torfi bóndi f Haga í Nesjum, sem kunn- ur er meðal annars af vel sömdum erindum, er hann hefur flutt f útvarpi á seinustu árum, og marg- ir hafa veitt athygli. En „skjótt hafði sól brugðið surnri". Ásta var orðin ekkja, 28 ára að aldri, á hinum allra erfiðustu tímum um atvinnu og fjárhagsafkomu alla. Fyrst á eftir var hún með móður sinni og syst- ur f Volaseli en flutti þaðan fljót- lega, fyrst norður til Akureyrar og sfðan til Reykjavíkur. Frá því um 1934 mun hún lengst af hafa átt heimili sitt í Reykjavík og stundaði oft framan af heimilis- störf en einnig starfaði hún á saumastofum. Mörg árin mun hún hafa átt við erfiðleika að strfða vegna veikrar heilsu, en flest sumrin mun hún hafa farið heim á æskustöðvarnar til skyld- fólks og vina þar. Hún mun alltaf hafa saknað átthaganna, Lónsins og Hornafjarðar. Þaðan kom hún jafnan hressari og hugaðir heldur en fyrir ferðalagið. Fyrir um það bil tuttugu og fimm árum gerðist hún bústýra hjá rosknum manni, Pétri Ólafs- syni á Hverfisgötu 65 hér í höfuð- borginni, og hafði hún það starf á hendi meðan hann lifði og mun hafa unað þvf vel og hann metið störf hennar mikils. Að honum látnum hélt hún áfram að hafa heimili siTt á sama stað. Ásta var þeim góðu hæfileikum búin að hafa holl og heillarfk áhrif á þá sem með henni störfuðu eða kynntust henni. Hvar sem hún kom og gaf sér tfma til viðtals varð lundin léttari hjá þeim er til hennar heyrðu og vildu sinna umræðuefninu en áð- ur hafði verið. Þótt eitthvað hvíldi þyngra á hugum fólksins og skuggarnir virtust nokkrir þá hurfu þeir eða léttust mikið við komu hennar og orð. Ásta átti því láni að fagna að njóta vináttu og samúðar þeirra er hana þekktu. Þessir hæfileikar entust henni ævina alla, einnig eftir að veikindi hennar ágerðust. Minningar- og kveðjuathöfn fór fram f Fossvogskirkju 23. okt. að viðstöddu mörgu vina- og kunningjafólki hennar og þar flutti séra Arelíus eina af sfnum hjartnæmu kveðjuræðum. Fæddur 30. aprfl 1944 Dáinn 23. október 1975 Fyrir fjórum árum hóf ungur maður starf sitt við Armúlaskóla f Reykjavík. Ungi maðurinn Ingólfur Örn Ásbjörnsson, var fullur áhuga en bar einnig kvíða fyrir þvf, hvernig ganga myndi. Ingólfur lauk kennaraprófi 1970 og stúdentsprófi 1971 og var að hefja lífsstarf sitt, hann vildi reynast nýtur maður á þeim starfsvangi. Honum var einnig Ijóst hvaða erfiðleikum var þar að mæta, einkum voru það þrjár spurningar, sem voru ofar- lega í huga hans. Hvernig mundi takast að stjórna unglingunum? Var hann fær um að leggja náms- efnið þannig fyrir að það yrði auðveldlega skilið og lært? og f þriðja lagi, tækist honum að vekja starfsvilja og áhuga nemenda? Ingólfi var einnig ljóst, að ef ætti að vera von um jákvæð svör við þessum spurningum, þá þyrfti hann að leggja fram mikla vinnu og á þvf stóð ekki hjá Ingólfi, hann var sívinnandi. Þau voru æði mörg kvöldin, sem hann sat uppi i skóla við að vinna og undir- búa námsefnið, sem hann ætlaði að leggja fyrir nemendur sína næsta dag. Kennslugreinar hans voru náttúrufræði og heilsufræði. Ingólfur var iðinn og óspar á tfma við að leita sér gagna og hjálpartækja, hann notaði mikið kvikmyndir, glærur og skyggnur. Vinna hans með þessi hjálpar- gögn var skemmtileg, þvi hann efnistók námsbækurnar og hverja kvikmynd og myndaseríu og bar svo saman hvað af námsefni kennslubókanna hann náði með hverri sýningu. Víðar var að finna kennslugögn en á söfnum, skólavörufyrir- tækjum og fræðslustofnunum. Kennsluefni náttúrufræðinnar blasti allsstaðar við, fjaran var lffrænt viðfangsefni og oft á sumrin var Ingólfur á ferð með myndavélina um gróðurlendi, haga og heiðarlönd til að taka myndir af jurtum og blómum, en Ingólfur var snjall myndatöku- maður. Þetta mikla og markvissa starf Ingólfs hlaut að bera árangur, enda sýndi það sig glögglega með frábærum árangri við landspróf, öll ár hans við skólann. Dugnaður og áhugi hins unga kennara færði honum það er hann sóttis eftir, að það varð ríku- legur árangur af starfi hans. En kvíðinn sem hann bar f brjósti sér er hann hóf starf sitt var heldur Laugardaginn 25. okt. var hún jarðsungin frá Stafafellskirkju og jarðsett f þann grafreit sem mað- ur hennar, systir, foreldrar, for- feður og aðrir vandamenn hafa fengið sfðasta hvfldarstað. Ég þakka Ástu ágæt kynni og votta vandafólki hennar einlæga samúð. Jón Ivarsson ekki ástæðulaus, hann mætti einnig sfnum erfiðleikum. Ingólfur var alla tfð mjög höfuðveikur, hafði migreni, hann hafði einnig fengið höfuðáfall sem drengur og varð aldrei jafn góður eftir það slys. Ingólfur var þvf oft frá kennslu, að jafnaði stutt í einu, einn eða tvo daga, en höfuðveikiköstin voru tfð og marga kennslustundina mun hann hafa kennt illa haldinn. Það má ljóst vera að slík forföll og veikindi hljóta að valda erfiðleik- um. Ingólfur var samvizkusamur í starfi og tók hann nærri sér, ef honum virtist einhver álfta að for- föll hans væru tilefnislítil. Ef til vill hefur enginn okkar gert sér grein fyrir, hve Ingólfur var stundum illa haldinn, en höfuðveikin varð honum að fjör- tjóni. Ingólfur kom ekki til kennslu við skólann í haust, því að á liðnu sumri tóku þau hjónin að sér að sjá um barnaheimilið Sólheima í Grímsnesi. Kona hans.'A'rnþrúður Sæmundsdóttir, hafði lokió sór- námi til að kenna börnum m'óð/ sérþarfir. Þegar Ingólfur kvaddi við-Ár- múlaskóla í vor vegna síns nýja starfs, var auðfundinn sami áhuginn eins og þegar hann kom hér til starfa fyrir fjórum árum. Við starfsfélagar hans óskuðum honum góðs gengis í hinu nýja starfi en sú starfsævi varð of stutt. I dag kveðjum við góðan dreng og þökkum samstarfið og sam- veruna. Eiginkonu hans, föður og öðrum ættingjum vottum við dýpstu samúð. Magnús Jónsson Það er ólíkt hvernig maður bregzt við andlátsfregnum. Ef um gamalt fólk er að ræða sem var farið að þrá hvíldina, þá finnst mér ástæða til að gleðjast þegar ég frétti lát þess. Og einnig þeirra sem hafa átt við langvarandi og kvalafulla sjúkdóma að stríða og vitað var að þar var engin batavon. En þegar mér var sagt að Brói væri dáinn urðu viðbrögð mín á annan veg. Fyrst vantrú, svo hryggð blönduð magnvana reiði. Því Brói var ungur, hafði búið í hamingjusömu hjónabandi á annað ár og vann að mannúðar- starfi. Og mér finnst líka að svo mikið sé lagt á fjölskyldu hans. Konuna hans, Arnþrúði Sæmundsdóttur, sem missir mann sinn eftir stutta sambúð og hafði á því tímabili séð á eftir bæði möður sinni og lika, tengda- móðurinni f gröfina. Ásbjörn, föður hans, sem með 6 mánaða t Innílegt þakklæti færum við öllum þeim fjölmörgu, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug víð andlát og útför, HALLDÓRS ERLENDSSONAR kennara, Mávahlið 41. Fyrir hönd aðstandenda. Arndfs Ásgeirsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför JÓNS H. HALLDÓRSSONAR, bifreiðastjóra, Kleppsveg 1 20. Ásta Stefánsdóttir, Guðný Hafbjörg Jónsdóttir, Dagný Jónsdóttir, Pétur Hafsteinsson, Stefán Jónsson, Guðný Helgadóttir og barnabörn. Minning: Ingólfur Örn Ásbjörnsson kennari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.