Morgunblaðið - 31.10.1975, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 31.10.1975, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 31 millibili missir konu sína og son sinn. Og systkini Bróa, Gumma, Lólu sem kemur í annað sinn á sama ári með flugvél frá Amerfku fyrst til að vera við útför móður sinnar og núna bróður sfns. Og Ragnhildi, sem hefur orðið að taka þungar byrðar á sínar ungu herðar allan þann hörmungar- tíma sem veikindi móður hennar stóðu yfir, hefur sfðan séð um heimili föður síns eftir lát hennar, og missir nú Bróa. En á milli þeirra var það einlægasta vináttusamband systkina sem ég hef vitað um. Ingólfur örn hét hann, sonur hjónanna Ásdísar Guðmunds- dóttur og Ásbjörns Stefánssonar læknis, en innan fjölskyldunnar var hann alltaf kallaður Brói. Hann var einn af þeim fáu sem ég hef kynnzt á lífsleiðinni sem hafði þá eiginleika að vera sann- ur, góður, saklaus og hjarta- hreinn, blfðlyndur og einlægur. Hann var stórvel gefinn og átti mörg áhugamál. Hafði yndi af klassískri hljómlist, teiknaði vel og hafði gaman af að taka ljós- myndir, sem hann framkallaði og stækkaði sjálfur. Einnig las hann mikið af fræðibókum um ýmis efni og samdi athyglisverða fyrir- lestra sem margir höfðu gagn af. Að stúdents- og kennaraprófi loknu hóf hann kennslu fyrst við barnaskóla en sfðar við gagn- fræðaskóla. Eftir að hann kvænt- ist Arnþrúði Sæmundsdóttur, sem á að baki langan námsferil f meðferð og kennslu vangefinna barna, tóku þau hjónin að sér forstöðu barnaheimilisins að Sól- heimum i Grfmsnesi og þar varð hann bráðkvaddur á heimili sínu aðfararnótt 23. októbers s.l. Um þennan frænda minn á ég eingöngu fagrar endurminningar. Um barn sem ég ók í vagni, seinna um lftinn hnokka sem var að læra að ganga og ég gætti oft ýmist heima fyrir eða á barna- leikvelli, og enn síðar um dreng sem sat hjá mér og hlustaði hugfanginn á sögurnar mínar, hann litla Bróa minn. Og svo um unglingspiltinn með smásjána sfna og hvað hann hló dátt að mér þegar hann sýndi mér flugu í henni og viðbrögð min voru á þann hátt, að augljóst var að ég hafði engan áhuga á undrum slíkra lífvera í stækkaðri mynd. Eftir það sýndi hann mér einungis blóm og laufblöð í smásjánni sinni, því þá gat ég tekið þátt f hrifningu hans. Sfðan var það ungi maðurinn sem kom í heimsóknir, drakk hjá okkur kaffi og ræddi af áhuga um yoga og margvíslega dulspeki. Og svona mætti lengi telja. Hvað ég er fegin að maður sér ekki hlutina fyrir. Ekki grunaði mig það þ. 13 marz s.l. að þegar Brói tók utan um mig í anddyri Dómkirkjunnar, við útför móður sinnar, og kyssti mig á kinninga um leið og hann sagði: „Þakka þér fyrir greinina, Ranný mín“, að það yrðu síðustu orðin sem hann sagði við mig f þessu lífi. En hann brosti lika til mín þá, fallega, hlýja brosinu sfnu og það er gott að eiga það sem síðustu endurminninguna um hann. Elsku Ragnhildur Ásbjörn frændi, Gummi, Lóla, og kæra Arnþrúður. Guð blessi ykkur öll og fjölskyldur ykkar og hjálpi ykkur að bera þessa þungbæru sorg. Rannveig Lúðvfksdóttir Sigurpála Jóhanns- dóttir - Minningarorð Fædd 9. des. 1912 Dáin 10. okt. 1975. Á rúmum mánuði hefur sorgin sótt fjölskyldu okkar þrisvar sinn- um heim. Fyrst við andlát móðurbróður míns, Indriða Jónssonar, sem ég sakna sárt eftir hálfrar aldar vin- áttu og tryggð. 2. október sl. andaðist elskuleg mágkona mín, Gabríella Jóhannesdóttir, i Hnífs- dal, og er hennar sárt saknað af okkur öllum. Og nú 10. október andaðist sú mágkona min, Sigur- pála Jóhannesdóttir, sem ég vil nú minnast með nokkrum fátæk- legum orðum. Minningarnir þyrp- ast fram, hver af annarri. Ég man vel þann dag, er Jón bróðir minn kom heim f dalinn okkar, fyrir rúmum 40 árum, með yndislega stúlku, sem hann kynnti fyrir okkur sem unnustu sína. Strax við fyrstu kynni vann hún ást og virðingu okkar allra og hélst sú vinátta ósvikin til hinstu stundar. Pála, eins og við kölluðum hana öll, var svo mikil persóna, að allir, sem kynntust henni, báru virð- ingu fyrir henni og dáðu hana. Hún var hæglát í framgöngu, en svo glöð f sinni, að allir komust í gott skap, er nálægt henni voru. Hún giftist bróður mfnum 27. september 1934. Hún reyndist honum yndislegur förunautur og börnin þeirra fimm, sem öll eru gift hér, bera þess ljósastan vott- inn, hve góða móður þau áttu. Hún vildi öllum gott gjöra, sem á vegi hennar urðu. Þau hjónin settust að í Siglufirði og áttu þar heima f tæp 30 ár og þar fæddust börn þeirra. Vann Pála mikið við sfldar- vinnu með heimili sínu. Árið 1948 fluttum við hjónin til Siglufjarðar, og faðir minn með okkur, þá 74 ára gamall. Hann hafði þá átt heima í Hnffsdal rúm 40 ár. Þá urðu mikil þáttaskil f lffi hans, er hann settist að hjá Pálu og bróður mínum, sem áttu stórt og yndislegt heimili. Þar fékk faðir minn, í fyrsta skipti, sérher- bergi, og þar átti hann miklu ást- rfki að fagna og átti Pála sinn mikla þátt þar að. Engin dóttir gat verið honum betri en hún var og alltaf hafði hún lag á að létta honum skapið, er hún sá, að leið- indi sóttu að honum, fyrstu árin. Börn þeirra voru honum miklir sólargeislar. Tveir bræður mínir voru giftir og áttu heima í sama húsi og var mikil eining á milli á báðum hæðum! Árió 1955 andaðist faðir okkar á heimili þeirra, eftir nokkurra daga legu, og get ég aldrei þakkað mágkonu minni eins og hún átti skilið hve ástrík og góð hún var honum síðustu dagana hans. Nú er hún sjálf horfin sömu leið og hann, og búin að fá Iaun sín greidd fyrir allt það góða, sem hún gjörði fyrir okkur öli. Ég vil því með þessum fátæk- legu orðum þakka henni af hjarta fyrir hönd okkar systkinanna allt það, sem hún var okkur og föður okkar. Sfðustu 12—13 árin áttu þau Pála og bróðir minn heima hér í Reykjavík og sfðustu árin átti hún við mikla vanheilsu að stríða sem hún bar með mikilli þolinmæði og æðruleysi. Alltaf reyndi hún að sýnast glöð, er við heimsóttum hana. Nú er hún búin að fá hvíldina, og sárt er hennar saknað af öllum, sem þekktu hana, en mest af ást- ríkum eiginmanni, börnum og systkinum og bið ég Guð að gefa þeim öllum styrk, en minningin lifir. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Olga Sigurðardóttir. — Ábyrg ríkis- fjármál Framhald af bls. 18 ráðstafanir eru tvlmælalaust mögu- legar. BREYTINGAR Á SKATTKERFI Þótt tími minn sé stuttur skal ég nefna nokkur mál, þar sem það er á valdi Alþingis og rlkisstjórnar að gera breytingar, sem verða mundu launþegum til hagsbóta og jafnframt auka þjóðartekjur, þegar yfir lengri tlma yrði litið. í fyrsta lagi nefni ég nauðsyn þess að gera gagngerar breytingar á skattakerfinu Núver- andi tekjuskattsheimta er orðin að ranglátri skattgreiðslu launafólks. Ég er þeirrar skoðunar, að stefna eigi að algjöru afnámi tekjuskatts til rlkisins og að sveitarfélög eigi að hluta að taka upp aðra tekju- stofna I stað útsvara. Fyrsta skrefið I þessa átt ætti að stlga, þegar ákvæðin um söluskattsstigin vegna náttúruhamfaranna I Vestmannaeyj- um og I Norðfirði falla niður Þá ætti að nota tekjurnar af þeim til lækk- unar tekjuskatts af almennum launa- tekjum ( öðru lagi nefni ég þann vanda, sem mikill fjöldi fólks, einkum ungt fólk, á við að etja vegna þeirra lausaskulda. sem hefur verið efnt til I sambandi við húsbyggingar. Þeim þarf að vera hægt að breyta I föst lán í þriðja lagi nefni ég vandamál llfeyrissjóðanna og það gifurlega misrétti, sem þar er á ferðinni vegna mismunandi reglna um verðtrygg- ingu. 30% MINNKUN FJÁRMUNAM YNDUNAR ( fjórða lagi er nauðsynlegt að vekja athygli á þeirri stefnu, sem enn er fylgt I fjárfestingarmálum þjóðarinnar. Þar er enn þá ætt áfram I blindni án nokkurrar heildarstefnu, án athugunar og hagkvæmni þeirra verkefna, sem lagt er út I samtlmis þvl, sem I ár er gert ráð fyrir 3C% minnkun fjármunamyndunar I fisk- veiðum og vinnslú sjávarafla miðað við sama verðlag Er gert ráð fyrir næstum 80% aukningu á sviði raf- virkjana og rafveitna og mun þó ekki öll sagan um Kröfluvirkjunarævin- týrið sögð I þvl sambandi vegna furðulegs feluleiks, sem þar er leik- inn. En það er spá mln og margra annarra, að þar muni verða um að ræða mikið fjármálahneyksli. Stefnan I fjárfestingarmálum má ekki miðast við það að þjóna stjórn- málahagsmunum manna, sem vilja verða smákóngar I kjördæmi slnu, heldur verða heildarhagsmunir og heildarsjónarmið að ráða. ( fimmta og slðasta lagi nefni ég nauðsyn þess að gera breytingar á stefnunni I landbúnaðarmálum, til þess að gera landbúnaðarframleiðsl- una ódýrari og fjölbreyttari. Það yrði neytendum til hagsbóta strax og bændum þegar til lengdar léti. Við verðum smám saman að hætta að framleiða t.d. kjöt og osta fyrir út- lendinga og greiða þeim einn millj- arð á ári fyrir að borða afurðirnar Og við eigum að stefna að þvl, að sú hagsbót, sem rlkissjóður veitir neyt- endum I formi niðurgreiðslna, verði smám saman að frjálsu ráðstöfunar- fé neytendanna Þá vex verðgildi þeirra fyrir þá. Ég hef hér nefnt 5 svið, þar sem ég tel rlkisstjórnina verða að sýna jákvæðan vilja til þess að bæta hag launþega, ef von á að vera til þess. að launþegasamtökin taki fyrir sitt leyti þátt I lausn vand- ans. Eins og nú standa sakir geta launþegasamtökin ekki treyst rlkis- stjórninni. Það er ekki von Enn sem komið er hafa ráðstafanir hennar ekki verið með þeim hætti, að hún eigi traust skilið. Það eru ekki aðeins launþegarnir I Alþýðusambandi ís- lands, sem treysta ekki rlkisstjórn- inni. Ekki á það slður við um opin- bera starfsmenn, sem eiga nú þegar I beinni styrjöfd við rlkisstjórnina Það er I raun og veru ekki einleikið, hversu illa rlkisstjórninni gengur að afla sér trausts. Nær aflur fiskiskipa- floti landsmanna er hættur vmíim vegna deilna við rlkisstjórnine Og hún á ekki aðeins I útistöðum við launþega, heldur einnig við at- vinnurekendur Útgerðarmenn hafa gagnrýnt hana harðlega, iðnrekend- ur hafa kvartað undan sinnuleysi um sln mál En út yfir tók þó, þegar verzlunarráð fslands sendi öllum al- þingismönnum I þingbyrjun bréf. með neyðarlegu skensi um rtkis- stjórnina og þá þingmenn. sem styðja hana. Þingmenn fengu sendan rauðan blýant með áskorun um að nota hann til þess að strika út ónauðsyn- leg rlkisútgjöld. Þótt hér hafi eflaust að hluta verið um gamansemi að ræða, duldist þó engum, að broddur var I gamninu, þegar höfð var hlið- sjón af þvi, hvaðan skeytið kom En þess vegna nefni ég þetta, að hér er einmitt dæmi um það, sem nú er eitt alvarlegasta tákn timanna hér á ís- landi Traust almennings á rlkisvald- inu hefur beðið alvarlegan hnekki og ekki aðeins almennings, heldur euin ig forustumanna atvinnullfsins Póli- tiskir spákaupmenn fara allra sinna ferða. Hróplegt ranglæti I skatt- greiðslum viðgengst, fámennir hóp- ar manna taka sér þau laun, sem þeim sýnist Menn virðast meira að segja ekki vera lengur jafnir fyrir lögum Hvernig á sllkt þjóðfélag að standast til frambúðar. Hvernig á þjóðin að varðveita sjálfstæði sitt á sviði efnahagsmála og stjórnmála nema hér verði á gagnger breyting Hér þarf að verða hugarfarsbreyting fyrst og fremst hjá ráðandi mönn- um Það þarf að hætta að láta reka á reiðanum. Það þarf að fara að stjórna landinu. Þá fyrst er von til þess að aftur komist á eðlilegt ástand I landinu, þá fyrst getur vaknað réttmæt von um, að Islenzkt þjóðfélag verði heilbrigt og réttlátt ja hérna! Nú hefur Innréttingabúðin enn einu sinni endurnýjað teppalagerinn sinn. Þeir eiga nú hvorki meira né minna en 60 nýja liti og mynstur, og bjóða góða greiðsluskilmála Okkar aðall er:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.