Morgunblaðið - 31.10.1975, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975
Gróska í lilakiiiii
12 tið leika í 2. deild í vetiir
A blaðamannafundi sem stjórn
(BLt) Blaksambands tslands hélt
í vikunni var skýrt frá vmsu sem
er á döfinni hjá sambandinu. t
vetur verður nú fyrst leikið f
tveimur deildum f karlaflokki. t
fyrstu deild leika sex lið en það
eru Reykjavfkurfélögin þrjú Vfk-
ingur, tS, og Þróttur, tvö lið frá
Laugarvatni Laugdælir og
Biskupstungur, og sfðan lið
Menntaskólans á Akureyri.
I annarri deild leika hvorki
meira né minna en 12 lið og er
þeim skipt f þrjá riðla, tvo hér á
Suðurlandi og einn fyrir norðan
og austan. Liðin sem leika f 2.
deild eru:
A-riðill
Stfgandi
Víkingur B
Skautafélag Rvík.
HK (Handknattleiksfél. Kópav.)
B-riðill
USK
UBK
IS-B
Þróttur-B
C-riðill
UlA
UMSE
Völsungur
Víkingur, IS, UBK og Stigandi.
Fyrir norðan verður tvöföld um-
ferð en einföld hér syðra. — Á
þessu sést að mikil aukning hefur
orðið frá því í fyrra og hefur
þátttakendafjöldinn aukist gífur-
lega. Auk þess er áformað, að
síðar í vetur verði keppni f öld-
ungaflokki og jafnvel í frúar-
fiokki og mun eitthvert aldurstak-
mark verða í hvorum flokki. —
Einnig verður stefnt að því að
gera meira fyrir unglinga en
verið hefur og verða haldin mót
fyrir a.m.k. 2. aldursflokk í vetur.
Eins og undanfarin tvö ár
verður gefinn út blakbæklingur,
BLAK ’76, þar sem er að finna
ýmsan fróðleik um blak og blak-
mót. Blaksambandið mun einnig
gefa út blakblað og er það alger
nýung. I því blaði mun verða fróð-
leikur um blakþjálfun og ýmis
tæknileg atriði er varða blak, og
mun það örugglega verða mikil
hjálp þeim, sem blak stunda sér
til ánægju og heilsubótar með tak-
markaðri tilsögn, og vilja bæta
sig. Ingvar Þóroddsson mun rit-
stýra blaðinu og er fyrsta tölublað
væntanlegt innan fárra daga.
Stefán Halldórsson naut sln vel efttr a» þeir Pétt og Viggð voru teknir úr umferð. Þegar myndin var tekin hefur
Stefán snúið á Guðmund Sveinsson FH-ing og skorar eitt af 7 mörkum sínum I leiknum.
Kraftmiklir Víkinaar áttu areiða
leið aeanum aalonna vörn FH-inaa
HSÞ
Leikið verður bæði heima og
heiman í 1. og 2. deild.
I kvennaflokki hefur einnig
fjölgað liðum. Átta iið taka þátt í
Islandsmótinu að þessu sinni og
er þeim skipt í 2 riðla, norðan-
lands og suðurlandsriðil. Liðin
sem taka þátt í mótinu eru þessi:
fyrir norðan: Völsungur, HSÞ og
ÍMA. Hér syðra eru það Þróttur,
VÍKINGAR þurftu ekki að hafa mikið
fyrir þeim tveimur stigum sem þeir
gengu með af hólmi I viðureign sinni
við FH I 1. deildar keppni íslands-
mótsins I handknattleik I fyrrakvöid.
Leikurinn sem flestir höfðu búizt við
fyrirfram að yrði hörð barátta og
skemmtilegur. þróaðist I að vera
nánast einstefna, og hefðu Vlking-
arnir tekið leiknum af meiri alvöru
og lagt áherztu á að vinna stærri
sigur þá hefði ekki verið ótrúlegt að
10 mörk hefðu skilið liðin að I leiks-
lok, en þau voru aðeins 5, þar sem
úrslitin urðu 24—19.
Það er ár og dagur slðan undirritað-
ur hefur séð svo slakan leik hjá FH-
liðinu og var I fyrrakvöld Lengst af
voru leikmenn liðsins nánast sem
áhorfendur að leiknum og beygðu sig
ekki einu sinni niður til þess að ná
knettinum þótt hann væri að rúlla við
fætur þeirra Stundum var það svo að
megin hluti Vlkingsliðsins var allt I
einu i hraðaupphlaupi meðan FH-ingar
stóðu hreyfingarlausir, horfandi ásak-
andi hver á annan.
Maður þessa leiks var tvlmælalaust
Rósmundur Jónsson markvörður Vík-
ingsliðsins. sem varði vel allt frá þvl að
hann tók vitakast frá Geir Hallsteins-
syni á 4 mínútu leiksins og til leiks-
loka Og það var meira sem Rósmund-
ur gerði I þessum leik en að verja skot
FH-inga. Hann hélt I langflestum tilfell-
um knettinum hjá sér, og eigi sjaldnar
en sex sinnum I leiknum átti hann
góðar og nákvæmar sendingar tram á
völlinn til félaga sinna sem brunuðu
upp og þessi hraðaupphlaup gáfu jafn-
mörg mörk Vitanlega auðveldaði það
Rósmundi markvörzluna I leik þessum
að Vikingsvörnin var allbærileg, jafn-
hliða þvl sem sókn FH-liðsins var
næsta máttlaus og óákveðin og stund-
um reynd slik skot að Rósmundur átti
auðvelt með að grlpa knöttinn. En allt
um það Hans frammistaða I markinu I
leik þessum var framúrskarandi, og var
lykillinn að hinum góða sigri Vikinga I
leiknum
Vlkingar reyndu allt frá upphafi
leiksins að halda uppi miklum hraða I
leiknum, og fengu oftast að gera það
sem þeir vildu ótruflaðir af FH vörn-
inni Og þegar leikmenn Víkinga fá svo
góðan tlma til athafna eins og FH-ingar
gáfu þeim, þarf varla að sökum að
spyrja Þeim tekst að opna sér leið að
markinu og skora Var það oft þannig I
leik þessum að Vlkingarnir voru svo
óvaldaðir, að þeir gátu stokkið lang-
leiðina upp I FH-markið, og þeir Birgir
og Hjalti, FH-markverðir, voru sannar-
lega ekki öfundsverðir af hlutskipti
slnu I leiknum, enda gerðu þeir ekki
mikið
Nokkurt los komst á Vikingsliðið I
seinni hálfleiknum, er FH-ingarnir tóku
þá Pál Björgvinsson og Viggó Sigurðs-
son úr umferð. en brátt kom að þvl að
Stefán Halldórsson, sem er bæði fljót-
ur og snöggur leikmaður tók að njóta
sín og notaði vel það aukna svigrúm
sem gafst með þessari varnaraðferð
FH-inga
Það vakti furðu að FH-ingarnir
skyldu ekki fremur reyna að svara
hraða Vikinga með þvl að draga úr
hraðanum og leika af öryggi, en að
jafnvel auka hraðann enn meira Eftir
að Vikingar höfðu náð góðri forystu I
leiknum hefði maður haldið að það
hefði verið eina von FH-liðsins að
freista þess að leika af öryggi og gefa
sér tlma til þess að blða eftir færum.
En þess I stað var skotið og skotið,
lengi vel án mikils árangurs.
Undirritaður spáði þvl eftir leik Vik-
ings og Hauka á dögunum að Vlking-
arnir myndu hafa gott af þvl að fá þann
skell sem þeir fengu þá, og virtist það
koma fram I leiknum I fyrrakvöld Liðið
lék á köflum ágætlega og nýtti vel
þann kraft sem I þvi býr Það þarf
enginn að búast við öðru en að Viking-
arnir verði á eða við toppinn I 1
deildinni I vetur og vafalaust á það eftir
að bæta enn verulega við sig Staða
FH-liðsins er hins vegar veikari, ekki
bara vegna þess að það hefur tapað 4
stigum, heldur fremur af þvi hvernig
leikur þess er, og þá sérstaklega varn-
arleikurinn Hann verða FH-ingar að
bæta svo um munar, ef ekki á illa að
fara hjá þeim.
í STUTTU MÁLI:
Íslandsmótið 1. deild
Laugardalshöll 29. október
Úrslit VÍKINGUR — FH 24—19
(13—7)
Gangur leiksins.
Mín Víkingur FH
2. 0:1 Guðmundur S.
5. Viggó 1:1
6. Magnús 2:1
9. Viggó 3:1
9. Páll 4:1
10. 4:2 Viðar
11. Viggó 5:2
12. Erlendur 6:2
13. 6:3 Guðmundur St.
14. Viggó 7:3
14. 7:4 Viðar
17. ólafur 8:4
19. 8:5 Þórarinn
20. Stefán (v) 9:5
23. 9:6 Þórarinn (v)
23. Viggó 10:6
25. Skarphéðinn 11:6
26. Stefán 12:6
28. Páll (v) 13:6
20. 13:7 Þórainn (v)
hAlfleikur
31. Stefán 14:7
32. 14:8 Geir
33. Stefán 15:8
35. Viggó 16:8
37. 16:9 Þórarinn (v)
39. 16:10 Þórarinn (v)
40. 16:11 Geir
43. Páll 17:11
45. Erlendur 18:11
45. 18:12 Gils
48. 18:13 Guðmundur St.
50. 18:14 Þórarinn (v)
50. Stefán 19:14
52. 19:15 Geir
52. Skarphéðinn 20:15
53. 20:16 Gils
55. Stefán 21:16
56. Páll (v) 22:16
57. 22:17 GuðmundurSt.
58. Stefán 23:17
ss
Til
samanburðar
og minnis
Vöruheiti SS verð Verzl. H. Verzl. V.
Kremkex Fourre Royal ... 99,—
Paxo Rasp 50,—
Blönduð Saft Dönsk 128,—
Snap Corn Flakes 198,—
Tómatsósa Del Mont 165,—
Eldhúsrl. Scot Towels ... 190,—
Coop Búðingar 65,—
Havrefras 264,—
24 rl. WC Pappír Mjúkur 500. Bómull 1.499,—
390,—
Fun Appelsínu Juice 238,—
0.941 Tropicana 130,—
Verzlið í skemmtilegu umhverfi
Búðir fyrir fólk sem gerir kröfur
AUSTURVERI,
Framhald á bls. 39