Morgunblaðið - 09.11.1975, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
257. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Mikil spenna
í Sahara
Rabat, Madrid og Algeirsborg
8. nóvember AP — Reuter.
FULLTRÚAR Spánverja
og Marokkómanna héldu í
dag áfram tilraunum
sfnum til að leysa deiluna
um Spænsku-Sahara eftir
diplómatískum leiðum.
Antonio Carro Martinez,
ráðherra í spænsku stjórn-
inni og hægri hönd
Navarros forsætisráð-
herra, flaug til Agadir í
gærkvöldi eftir 4 klst. fund
spænsku stjórnarinnar og
hóf þegar viðræður við
ráðamenn Marokko, sem
héldu áfram í dag.
Talsmenn Marokkóstjórnar
sögðu f morgun, að verið væri að
flytja þúsundir göngumanna að
landamærunum til að hefja
annan áfanga göngunnar inn í
Spænsku-Sahara. Um 120 þúsund
manns höfðu i nótt næturstað 8
km innan við landamærin
skammt frá jarðsprengjusvæðura
Spánverja og vopnuðum sveitum
Framhald á bls. 47.
Frá Jogvan Arge,
Þórshöfn í Færeyjum
(JTFLUTNINGUR Færey-
inga á sfldarafurðum hef-
ur minnkað á þessu ári um
sem svarar 50 milljónum
danskra króna (um 1.5
milljörðum ísl. kr.) vegna
minnkandi sfldarafla í
Norðursjó og fyrir nokkr-
um dögum bannaði land-
stjórn Færeyja sfldveiði
færeyskra skipa í Norður-
sjó það sem eftir er ársins.
Landstjórnin vildi ekki sam-
þykkja síldarkvótann sem Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd
in (NEAFC) ákvað í sumar og í
staðinn samþykkti Lögþingið að
leyfa Færeyingum að veiða 8.000
lestir í Norðursjó og á Skagerak
út árið. Nú hefur þessu aflamagni
verið náð.
Áhrifa minnkandi sildarafla
gætir þegar f atvinnulífi
Færeyinga. Kunnur skipstjóri og
útgerðarmaður. Ejler Jacobsen,
eigandi Krunborgar og Solborgar,
sem stunduðu loðnuveiðar á
Barentshafi, hefur í haust selt
Solborg dönsku útgerðarfyrir-
tæki.
Landstjórnin er mótfallin fram-
komnum tillögum um algert síld-
veiðibann eftir áramót og hefur
staðið í viðræðum við danska
sjávarútvegsráðuneytið um til-
lögu sem verður lögð fram á fundi
NEAFC í vikunni.
Tillagan er á þá, leið að ekki
verði sett algert bann heldur
skuli veiði leyfð að vissu marki og
skiptast jafnt milli þeirra landa
sem veiða i Norðursjó. Veita skuli
slíkar undanþáguheimildir á
fyrra helmingi næsta árs en sfðan
skuli taka málið fyrir að nýju.
Austin Laing
Símamynd AP.
HÖRKUTÓLIÐ — Marion Coyle, hin harðsvíraða liðskona írska lýðveldishersins,
umkringd lögreglumönnum eftir uppgjöfina á föstudagskvöld. Herrema sagði, að
hún hefði ekki svo mikið sem eytt í sig einu orði meðan á umsátrinu stóð.
Leit á þau sem börn”
— sagði dr. Herrema
Dublin, Monasterevin, Haag
8. nóvember — Reuter.
• BYSSUKÚLA var minjagripur
hollenzka iðnjöfursins, dr. Tiede
Herrema, um 36 daga hildarleik f
höndum tveggja liðsmanna Irska
lýðveldishersins, IRA, Eddie
Gallagher og Marian Coyle, sem
lauk f gærkvöldi með uppgjöf
ræningjanna. Eftir endurfund
með eiginkonu sinni f Dublin, en
hún hafði flogið frá Haag til
fundar við mann sinn, lýsti Herr-
ema á fundi með fréttamönnum
sfðustu mfnútum umsátursins,
sem vakið hafði heimsathygli.
„Þau gáfu mér minjagrip," sagði
um ræningja sína sem gáfust upp í fyrrakvöld
„Vilium ekki borskastríð
• 1 1 * 1 # 1 #99
og eigum ekki von a pvi
- sagði Austin Lang í samtali við Mbl.
grein fyrir að þeir verða að draga úr
„Það er hreinn misskilningur
hjá brezku blöðunum að hjá
okkur sé starfandi þorskastríðs-
nefnd og að hún hafi komið
saman til fundar á þriðjudag. Það
kom engin nefnd saman til fund-
ar á þriðjudag og það er engin
þorskastríðsnefnd til, við viljum
ekki þorskastrfð og eigum ekki
von á þorskastrfði," sagði Austin
Laing, framkvæmdastjóri sam-
taka brezkra togaraeigenda f sam-
tali við Mbl. f gær.
Laing sagði að starfandi væri
innan brezka
sem hefði því
samstarfsnefnd
fiskiðnaðarins,
hlutverki að gegna að upplýsa
menn um framvindu mála. Laing
sagði að brezkir togaramenn
vonuðust mjög eindregið eftir að
hægt yrði að ganga frá nýjum
samningi. „Ef brezkir og islenzkir
fiskifræðingar eru sammála í
meginatriðum um skýrslu
íslenzku hafrannsóknastofnar-
innar hlýtur að vera hægt að ná
pólitísku samkomulagi. Bretar
gera sér grein fyrir að þeir verða
— Bretar gera sér
r
veiðum við Island
I að draga úr veiðum sinum á ís-
| landsmiðum til þess að vernda
fiskstofnana. Við vonum aðeins
að íslenzka ríkisstjórnin taki boði
Roys Hattersleys um að'flýta för
sinni frá Bandaríkjunum og koma
til íslands til viðræðna. Það verð-
ur að leysa þetta mál og það fljótt,
það hefur enginn áhuga á
árekstrum og leiðindum áður en
samið verður eins og alltaf hefur
verið, ég held að allir séu búnir að
fá nóg af leiðindum."
hann og sýndi 38 kalfbera byssu-
kúlu. „Þetta var f byssunni sem
beint var að höfði mfnu og sem
hefði drepið mig ef eitthvað
hefði farið úrskeiðis.“
<9 Herrema sagðist hafa haldið að
Ihann myndi verða skotinn á
fyrstu tveimur sólarhringunum
sem hann var f höndum Gallagher
og Coyle, en þau rændu honum
nálægt heimili hans f Limerick.
En hann kvaðst ekki bera kala til
ræningja sinna. „Eg hata þau
ekki. Eg á börn á sama aldri og
Gallagher og ég leit á þau sem
börn sem eiga við mörg vandamál
að strfða.“ Gallagher er 28 ára að
aldri, en Coyle er 19 ára. Dr.
Herrema, sem er 53 ára, var
sagður við góða heilsu, þrátt fyrir
18 daga dvöl með bundna fætur f
litlu svefnherbergi án salernis og
án rúms. „Sfðustu dagana voru
aðstæðurnar hræðilegar,“ sagði
hann.
Herrema sagði að hann hefði
haft eitt þunnt teppi til að verjast
Símamynd AP
HERREMA FRJALS — Dr. Tiede
Herrema ásamt eiginkonu sinni,
Elizabeth, f Dublin f gærkvöldi.
kuldanum, en ræningjarnir
breiddu gólfteppi yfir sig. Hann
kvaðst hafa reynt að byggja upp
persónulegt samband við ræn-
ingjana og reynt að beina árásar-
hvötum þeirra frá sér en að
lögreglusveitunum umhverfis
húsið. En Gallagher barði hann
Framhald á bls. 26
Og hundurinn
varð að ketti
Oxford 8. nóvember — Reuter
REKTOR Worcester-
menntaskólans f Oxford hefur
nú fundið dálftið óvenjulega
leið til að smjúga f gegnum
ævafornar reglur skólans sem
banna hundahald á skólasvæð-
inu. Hann lét skólastjórnina
við atkvæðagreiðslu sam-
þykkja að hundur hans, Flint
að nafni, væri ekki hundur,
heldur köttur.
Presturinn
var í heróíni
Mulhouse. Frakkiandi,
7. nóvember. Reuter.
Prestur og forstöðumaður
hjálparstöðvar fyrrverandi eitur-
lyfjaneytenda var f dag ákærður
fyrir eiturlyfasmygl. Hann hefur
játað að hann sé heróinneytandi.
Prestur þessi, séra Girardin,
var handtekinn þegar hann kom
frá Amsterdam þar sem hann
keypti eiturlyf. Peningana fékk
hann frá góðgerðarstofnunum
sem vildu styrkja starf hans.
Færeyingar tapa
rúmlega milljarði