Morgunblaðið - 09.11.1975, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.11.1975, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975 41 + Það var laugardaginn 1. nðvember að „sjónvarpsþulan" Gfsli Baldur Garðarsson gekk f það heilaga. Sú lukkulega heit- ir Helga Guðbjörg Baldursdótt- ir og það var séra Þorsteinn Björnsson Fríkirkjuprestur, sem gaf þau saman. Þrátt fyrir dumbunginn f veðrinu þennan dag þá var sólskin f hjörtunum og þegar þau mættu Ólafi ljós- myndara Magnússyni á leiðinni f veizluna létu þau sig ekki muna um að ganga nokkur gleðispor með honum f fjör- unni úti á Nesi og auðvitað notaði Ijósmyndarinn umsvifa- laust tækifærið og smellti nokkrum myndum af þeim hjónum. + Petula Clark á ótalda aðdáendur, en sá sem dáir Petulu hvað mest er sennilega Feisal prins af Saudi-Arabfu. Hann brá sér nýlega ásamt 12 vinum sfnum til New York til að heyra Petulu syngja á Waldorf Astoria hótelinu þar f borg. Kollegar „Fólks f fréttum" gátu ekki séð annan tilgang með ferð hans en að hann vildi hlusta á uppáhaldið sitt að minnsta kosti fór hann beint heim til sín til Saudi- Arabfu að skemmtun Petulu Clark lokinni. + Tommy Steele sýndi nýlega fram á enn eina nýja hlið hæfi- leika sinna. Ilann gerði styttu af sjálfum sér úr „fibergleri“ og var svo rausnarlegur að gefa fæðingarborg sinni, London, gripinn. Að sjálfsögðu var mikið tilstand þegar faðir söngvarans, skáldsins, laga- smiðsins og .. .listhöggvar- ans... Tommy Steele afhjúpaði styttuna. Lúðrasveit sjóhersins lék fjöruga marsa og fjöldi barna mætti með flöggin sfn. + Gregory Peck er sennilega sá leikari sem fengið hefur mestar tekjur fyrir að segja nokkur orð f auglýsingamynd f sjónvarpi. Hann fékk nefnilega 150 milljónir fyrir að segja nokkur gáfuleg orð f sjónvarps- auglýsingu tryggihgarfyrir- tækis. Liz af- þakkar demantana + Elizabeth Taylor hefur beðizt undan þvf að veita viðtöku demantshring þeim hinum væna, sem eiginmaður hennar Richard Burton ákvað að færa henni að gjöf f tilefni endur- giftingar þeirra. Sagðist hún vera innilega snortin af þeirri fögru hugsun sem að baki lægi, en hún óskaði eftir þvf að fjár- upphæðin yrði látin renna til sjúkrahúss f Botswana þar sem þau gengu f hjónaband f fyrra mánuði. Hringurinn var sagður hafa kostað eina milljón dollara. Þjófur stal Raquel Welch + Þjófur nokkur brauzt inn á vaxmyndasafn f Toronto eitt kvöldið og hafði á brott með sér vaxmynd af leikkonunni Raquel Welch, að þvf er for- stöðumaður safns þessa skýrði frá. PANTIÐ TÍMANLEGA FYRIR JÓL Önnumst allar myndatökur á Ijósmyndastofu okkar. Ljósmyndastofa Jóns Kaldal Laugavegi 11, sími 13811. Vegna malbikunarframkvæmda næstu daga á bílaplani og innkeyrslu er viðskiptavinum vor- um vinsamlegast bent á að aka inn frá Lág- múla. Ath. Við höfum opið á laugardögum, simi 81 588. Hinn margumtalaði og vinsæli ðlsðlumarkaður vekur athygli á . . . . Þaö koma ávallt nýjar vörur í hverri viku á markaðinn Ótrúlegt vöruúrval á frábærl lágu verði Látið ekki happ úr hendi sleppa ATHUGIÐ! Markaðurinn stendur aðeins stuttan tíma Ata- TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS ULjP KARNABÆR Útsölumarkaöurinn, Laugavegi 66, sími 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.