Morgunblaðið - 09.11.1975, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975
2
Merk j asöludagur
blindra í dag
Merkjasölubörn Blindrafélags-
ins munu bjóða merki þess f dag,
en fjáröflunardagur félagsins
hefur frá stofnun þess fyrir tæp-
um 40 árum verið annar sunnu-
dagur í nóvember ár hvert.
í fréttatilkynningu félagsins
kemur fram, að í öll þessi skipti
hefur félagið notið skilnings og
hjálpsemi fjölda fólks um land
allt. Hefur þetta stuðlað að vexti
Blindrafélagsins og gert þvi
mögulegt að vinna æ betur að
grundvallarstarfi sínu — málefn-
um blindra hérlendis.
Hvar er
Laugardalur?
AF gefnu tilefni er rétt að taka
það fram, að Laugardalur
hefur ávallt verið í Grímsnesi,
en ekki í Biskupstungum. Eru
bæði Grímsnesingar og
Biskupstungnamenn beðnir
velvirðingar á þessu, sem kom
fram í blaðinu í gær.
Hjá Blindrafélaginu hefur, líkt
og hjá flestum öðrum öryrkja-
félögum, miklum tíma, fyrirhöfn
og fjármunum verið varið í bygg-
ingarframkvæmdir enda segir i
Framhald á bls. 47.
Ljóð og jass
í Norræna
húsinu
Ljóða og jassdagskrá verður i
Norræna húsinu í dag kl. 4. Þar
munu skáldin Nína Björk Árna-
dóttir, Steinunn Sigurðardóttir og
Jóhann Hjálmarsson lesa úr verk-
um sínum og Helga Hjörvar leik-
kona les úr verkum Þorsteins frá
Hamri.
Hljóðfæraleikarar á dagskránni
eru Carl Möller, sem hefur samið
og útsett flest lögin, en auk hans
leika þeir Árni Cheving, Guð-
mundur Steingrimsson og
Gunnar Ormslev.
Húsvíkingar hætta að reykja
ÞING Landssambands sjálfstæðiskvenna var sett f Glæsibæ f gærmorgun, en það sitja 110 konur
hvaðanæva að af landinu.Formaður sambandsins setti þingið f gær, en það er Auður Auðuns og skipaði
hún Olöfu Benediktsdóttur fundarstjóra. Geir Hallgrfmsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði
þingið f gær, en umræðuefni fundarins verður einkum hið alþjóðlega kvennaár. Þinginu lýkur f kvöld.
Myndin er tekin skömmu eftir setningu þess f gær og sýnir hluta fundarmanna. — Ljósm.: Öl. K. M.
Mánudagsmyndin:
Avaxtasalinn eftir Fassbinder
SVOKÖLLUÐ 5 daga áætlun,
námskeið í að hætta reykingum,
verður haldin á Húsavík dagana
‘9. til 13. nóvember og hefst á
sunnudagskvöld klukkan 21 í
Barnaskóla Húsavfkur. Leiðbein-
endur á námskeiðinu verða Gísli
Auðunsson, hérað?læknir á Húsa-
vík, og Jón Hj. Jónsson bindindis-
fulltrúi.
Á námskeiðinu verða sýndar
fræðslukvikmyndir um skaðsemi
reykinga, læknirinn ræðir málin
frá læknisfræðilegu sjónarmiði
og Jón fjallar um hina sálfræði-
legu hlið reykinga.
öllum er heimil þátttaka í nám-
skeiðinu og fer innritun fram í
síma 41356 frá klukkan 13 til 19.
HÁSKÓLABIÓ hefur næst-
komandi mánudag sýningar á
mynd eftir þýzka kvikmynda-
gerðarmanninn Rainer Werner
Fassbinder, einn helzta frum-
kvöðul endurreisnar hinnar
þýzku kvikmyndar.
Svo sem kunnugt er hefur þýzk
kvikmyndagerð verið í mikilli
lægð allt frá því að Þjóðverjar
hófu stríðsrekstur sinn í seinni
heimsstyrjöldinni og fram á átt-
unda áratuginn. Á allra síðustu
árum hefur þó eilitið verið að rofa
til, þar sem komið hafa fram á
sjónarsviðið kvikmyndagerðar-
menn á borð við Sinkel, Miehe,
Schlöndorff, Fassbinder og
Herzog, sem kannski er fremstur
þeirra allra. Vilja því margir álíta
að nýtt endurreisnartlmabil
hinnar þýzku kvikmyndar sé nú
að hefjast.
Fassbinder er sannkallaður
undramaður. Hann er á
þritugasta aldursárinu og hefur
komið ótrúlegustu hlutum i verk.
Hann var innan við tvítugt er
hann stofnaði eigin leikhóp í
heimaborg sinni MUnchen og
fljótlega eftir tvítugsafmælið tók
hann að spreyta sig á kvikmynda-
gerð, sem siðan hefur borið hróð-
ur hans viða um álfuna. Yfirleitt
gerir hann um tvær kvikmyndir á
ári, stundum þrjár þannig að
enda þótt hann hafi ekki náð
þrítugs aldri hefur hann þegar að
baki yfir 20 myndir. I kvikmynda-
verkum sinum er Fassbinder
dýrkandi hins gráa hversdags-
leika, efniviðurinn er iðulega
sóttur í daglegt líf þeirra sem
minnst mega sin í þjóðfélaginu
eða eru að einhverju leyti utan-
garðs við það. Framsetningin er
Framhald á bls. 47.
Ekið á kyrr-
stæðan bíl
AÐFARARNÖTT föstudagsins
var ekið á dökkbláa Fiat-bifreið,
R 44466, þar sem hún stóð við
Sólheima 25. Eigandi bifreiðar-
innar varð var skemmd á bil sin-
um um klukkan 18 á föstudag, en
þær voru talsverðar á vinstri hlið
bilsins aftantil og fram að hurð.
Það eru tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar, að þeir sem hafi
orðið varir við árekstur á þessa
kyrrstæðu bifreið gefi sig fram.
UNGUR maður missti fullbúið einbýlishús i eldsvoða. — Frá þessu var skýrt f Morgunblaðinu f gær.
Húsið, sem var f Vestmannaeyjum og byggt úr steinsteypueiningum, hvarf gjörsamlega og allt innbú
þess með eins og myndin sýnir. Eyðileggingin er algjör. — Ljósm.: Sigurgeir.
Hverjir verða hinir útvöldu?
Fjórtánda og næstsíðasta
umferð svæðismótsins var tefld
á föstudagskvöldið og var f jöldi
áhorfenda slíkur, að þeir, sem
ekki höfðu tryggt sér sæti eða
stæði f keppnissalnum fyrir kl.
20.30 þurftu vart að hugsa til
þess að komast þangað. Mótið
virðist vekja sífellt meiri
áhuga, og hið skemmtilegasta
er, að nú er f fyrsta skipti f
sögunni ailmikiil hópur
kvenna á meðal „fastagesta".
Skák Friðriks og Oster-
meyers vakti að vonum mesta
athygli. Friðrik hafði hvítt og
kom upp Benóníbyrjun. Friðrik
hafði rýmra tafl allan tímann,
nýtti möguleikana vel, og þegar
skákin fór í bið var ekki annað
sýnna en að hvítur ynni peð og
fengi unnið endatafl. Biðstaðan
birtist í blaðinu í gær.
Ribli hafði hvítt gegn Laine
og kom upp vængtafl. Óþarfi er
að hafa mörg orð um skákina.
Ribli yfirspilaði andstæðinginn
gjörsamlega, og gafst Laine
upp eftir 17 leiki.
Zwaig hafði hvítt gegn
Murray, sem tefldi byrjunina
heldur ónákvæmt og fékk
snemma lakara tafl. Það nýtti
Zwaig sér vel og vann örugg-
lega.
Margir fylgdust með skák
þeirra Liberzon og Timman,
enda var það síðasta skák ísra-
elska stórmeistarans hér á
landi að þessu sinni. Skákin fer
hér á eftir.
Hvftt: Timman
Svart: Liberzon
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
e6, 6. f4 — a6, 7. Be2 — Rbd7, 8.
Bf3 — Be7 9. g4
(Timman hefur engu að tapa
lengur og teflir þvi stíft til
vinnings).
9. — h6, 10. De2 — g6, 11. Rb3
— Hb8, 12. Be3 — b5, 13. a3 —
Dc7, 14. h4
(Með þessu móti nær sókn
hvíts ekki fram að ganga.
Skemmtilegur möguleiki var
hér 14. e5, ásamt f5).
14. — Rb6, 15. Bd4 — e5I,
(Nú verður sókn hvíts að
engu og eftir standa veik-
leikarnir á kóngsvæng).
16. Bxb6 — Dxb6, 17. g5
(Hvítur gat reynt 17. f5).
17. — hxg5,18. fxg5 — Rh5,
(Svartur hefur nú yfirburða-
tafl. Hvítur á engin sóknarfæri,
kóngsvængur hans er illa
veiktur, og svörtu mennirnir
ráða öllum mikilvægustu reit-
um á borðinu).
19. Rd5 — Dd8, 20. Df2 — Bd6,
21. 0-0-0 — Bxd5, 22. exd5 —
Db6, 23. Del
(Hér var vafalítið skást að
fara i drottningarkaup).
23. — b4I, 24. Bxh5 — Hxh5, 25.
a4 — Hc8, 26. Kbl — Hc4, 27.
Rd2 — Hf4, 28. Re4 — a5, 29.
Hd3 — Dc7!
(Drottningin skal til g4).
30. b3 — Dd7, 31. Hdh3 — Dg4,
32. Rg3 — Hh7, 33. h5
(Tapar tevimur peðum en
staðan var vonlaus).
33. — Bxg5, 34. hxg6 — Hxh3,
35. g7 — Bf6, 36. Hxh3 — Bxg7,
37. Hhl — e4, 38. Re2 — Hf3,
39. Hh4 — Df5, 40. Rcl — Hf4,
41. Hxf4 — Dxf4, 42. Rd3 og
gafst upp um leið.
Parma teflir yfirleitt manna
gætilegast, en í þetta sinn valdi
hann tvieggjað afbrigði Sikil-
eyjarvarnar (8. — Db6). Þetta
byrjunarval er þó harla furðu-
legt, þar sem svartur hefur litla
möguleika í þessu afbrigði, ef
hvítur þekkir það á annað borð.
Hartston gjörþekkir Sikileyjar-
vörn, enda fór svo, að jafntefli
var samið eftir 20 leiki og stóð
hvitur þá sízt lakar.
Hvitt: Hartston
Svart : Parma
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 —
g6, 6. Be3 — Bg7, 7. f3 — Rc6,
8. Bc4 — Db6, 9. Rf5 — Dxb2,
10. Rxg7 — Kf8, 11. Rd5 —
Rxd5, 12. Bxd5 — Kxg7, 13.
Hbl — Dc3, 14. Kf2 — Da5. 15.
g4 — h6, 16. Hb3 — Dc7, 17.
Dal — f6, 18. Db2 — b6, — 19.
Ilc3 — Bd7, 20. h4 jafntefli.
Þeir Hamann og Jansa háðu
harða baráttu og hafði Daninn
lengst af undirtökin. Þegar
skákin fór í bið hafði hann
mann yfir, en vinningurinn er
þó varla auðsóttur, þar sem svo
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
fáir menn eru á borðinu.
Biðstaðan birtist annars í
blaðinu I gær.
Skák þeirra Poutiainen og
Björns var frestað vegna veik-
inda Björns og van den Broeck
sat hjá.
Staðan fyrir síðustu umferð
er þessi: 1. Ribli 10,5 2. Liber-
zon 10,5 v., 3. Parma 9,5, 4.
Friðrik 9 og bið, 5.—6. Jansa og
Ostermeyer 7 v. og bið., 7.—8.
Zwaig og Timman 7 v. 9. Pout-
ainen 6,5 v. g bið, 10. Hamann
5,5 v. og bið, 11. Hartston 5,5 v.,
12.—13. Murray og van den
Broeck 3 v., 14. Björn 2 v. og
bið, 15. Laine 2 v.
Fimmtánda og siðasta um-
ferðin verður tefld í dag og
hefst kl. 17. Þá tefla saman:
Jansa og Friðrik, Hartston og
Björn, Ribli og van den Broeck,
Poutiainen og Laine, Hamann
og Parma, Zwaig og
Ostermeyer, Timman og
Murray.