Morgunblaðið - 09.11.1975, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 9. NÓVEMBER 1975
3
Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra:
Aldrei má leggja meiri byrðar á þjóðir
en skilningur og stuðningur er fyrir
1 RÆÐU á fundi Verzlunarráðs
Islands f fyrradag, sagði Geir
Hallgrímsson, forsætisráð-
herra, að það hefði f upphafi
verið yfirlýst stefna rfkis-
stjðrnarinnar að leitast við að
ná hægfara aðlögun að
versnandi viðskiptakjörum og
skapa með þeim hætti skilning
fyrir frekari aðgerðir. For-
sætisráðherra sagði, að þessi
aðferð hefði verið nauðsynleg
vegna þess, að ekki mætti
hverju sinni leggja meiri byrð-
ar á þjóðina en nægilegur
skilningur væri fyrir. Á þann
veg einan fæst stuðningur við
nauðsynlegar ráðstafanir, sagði
Geir Hallgrfmsson.
Forsætisráðherra minnti á
fyrri erfiðleikatfmabil í efna-
hagsmálum landsmanna og
sagði, að við gleddumst yfir
þvf, að við hefðum þá náð okk-
ur upp úr alvarlegri efnahags-
kreppu, en gleymdum því hins
vegar, sem á undan og eftir fðr.
Þannig mundi fara nú. Þðtt
erfiðleikarnir væru miklir
mundum við standa upp frá
þessu tfmabili, minnugir hins
góða en það mundi gleymast,
sem miður hefði farið.
I upphafi-ræðu sinnar, sagði
Geir Hallgrfmsson, að ekki færi
milli mála, að árin 1971—1974
hefðu verið með hinum hag-
stæðustu, sem við hefðum feng-
ið, þótt viðskiptakjörin færu
versnandi á árinu 1974. Á þess-
um árum jukust þjóðartekjur
um 31% en hins vegar eyddum
við nærfellt helmingi meiru,
þar sem þjóðarútgjöld jukust
um 54%. 1 þessum tölum kem-
ur fram, að við höfum lifað um
efni fram, ekki notað þetta
timabil eins og vera bar til að
treysta efnahagslegan grund-
völl þjóðarbúsins.
VANDIOG
MARKMIÐ
Vandinn, sem núverandi
rlkisstjórn stóð frammi fyrir,
fyrir rúmu ári, var tvíþættur:
0 I fyrsta lagi að bregðast við
þeim vanda, sem leiddi af
þvi, að við höfðum lifað
langt um efni fram
0 1 öðru lagi að mæta
versnandi viðskiptakjörum.
Markmið ríkisstjórnarinnar í
upphafi var þriþætt:
0 Að tryggja fulla atvinnu á
timum er atvinnuvegirnir
voru að stöðvast vegna
verðhækkana innanlands
og versnandi útflutnings-
verðlags
0 Að treysta greiðslustöðuna
út á við og ná jöfnuði I
viðskiptum við útlönd
0 Að hafa hemil á verðbólg-
unni.
HVER ER
ÁRANGURINN?
Hver hefur árangurinn orð-
ið? Full atvinna hefur haldizt I
landinu og jafnvel verið of
mikil spenna á vinnumarkaðn-
um. Þetta er þeim mun mark-
verðari árangur, sem þjóðarút-
gjöldin hafa lækkað um 10% I
ár en jukust um 10% á árinu
1974. Sá árangur að halda fullri
atvinnu er líka eftirtektarverð-
ur vegna þess, að viðskiptakjör-
in hafa farið versnandi á sama
tíma.
Viðskiptakjörin hafa versnað
um 25% miðað við árið 1973 og
miðað við ársbyrjun 1974 hafa
þau versnað um 32%. Þetta
hlýtur að þýða versnandi
afkomu atvinnuveganna, en
samt hefur tekizt að halda
fullri atvinnu. Atvinnuvegirnir
þurfa að búa við viðunandi
afkomu, ef á að vera hægt að
tryggja fulla atvinnu. En annar
þáttur I þeirri viðleitni er, að
vinnufriður haldist. Þótt engin
stjórnvöld eigi að hrósa sér af
þvl að tryggja vinnufrið vegna
þess, að þar eiga fjölmargir
aðilar hlut að máli, er það samt
staðreynd, að vinnufriður
hefur rlkt þetta tímabil. Þetta
Geir Hallgrfmsson,
forsætisráðherra
er líka merkilegur árangur
vegna þess, að kaupmáttur
ráðstöfunartekna heimilanna
hefur minnkað um 16—17%.
Og þótt við höfum lifað um efni
fram, er þetta rýrnun kaup-
máttar á stuttum tíma, sem við
hljótum að staldra við og það er
til marks um þroska verkalýðs-
félaganna, að þau hafa mætt
þessari rýrnun kaupmáttar með
þolinmæði En þrátt fyrir þetta
eru erfiðleikar enn framundan,
staða atvinnuveganna er veik
og samningar eru lausir á
vinnumarkaðnum.
VIÐSKIPTA-
HALLINN
Hins vegar læt ég það koma
skýrt fram hér, að okkur hefur
tekizt miður en skyldi að koma
á jöfnuði I viðskiptum við út-
lönd og að hafa hemil á verð-
bólgunni. Okkur hefur ekki
tekizt að koma halla á
viðskiptajöfnuði meira niður
en úr 12% af þjóðarútgjöldum
1974 I 10% af þjóðarútgjöldum
I ár. Þetta er ekki nægilegur
árangur en, hvað veldur? Inn-
flutningsmagn hefur minnkað.
Almennur innflutningur hefur
dregizt saman um 18%, en allur
innflutningur um 16—17%.
Þetta er umtalsverður árangur.
Hins vegar hefur okkur mis-
tekizt að auka útflutningstekj-
ur, bæði hefur útflutnings-
magn nær staðið i stað og út-
flutningsverðlag er 10% lægra
I ár en I fyrra. Þá hefur gætt
sölutregðu á erlendum mörk-
uðum, sem hefur orðið alvar-
legri vegna tollmúra og inn-
flutningsbanns erlendis vegna
þess, að við höfum ekki náð
tollaívilnunum hjá EBE. Við
höfum einnig mætt meiri sam-
keppni en áður þar sem aðrar
þjóðir hafa styrkt sjávarútveg
sinn.
HÆGARI
VERÐBÓLGU-
VÖXTUR
Verðbólgan hefur aukizt um
tæp 50%, sagði Geir Hallgríms-
son, sem er meira en
1973—1974, þegar hún jókst
um 43%. Sé talið frá ársbyrjun
til ársloka er hægari verðbólgu-
vöxtur hins vegar merki um
batnandi ástand. Síðustu tvo
ársfjórðunga er verðbólgan um
25—30% á ársgrundvelli. Enn
mun lægja á verðbólguþróun-
inni á næstu mánuðum. 1 þeim
kjarasamningum, sem fram-
undan eru, skapast þvl tæki-
færi til að spyrna við fótum og
ná stjórn á verðbólguþróun-
inni.
RÍKISFJÁRMÁL
OG FJÁR-
FESTINGARSJÓÐIR
Tvennt hefur ekki gengið
sem skyldi I efnahagsstjórn-
inni, þ.e. ríkisfjármálin og út-
lán fjárfestingarsjóðanna. 1
fyrra voru útlán viðskiptabank-
anna langt umfram getu þeirra,
en I ár hefur orðið breyting til
batnaðar I þeim efnum. Hins
vegar hafa útgjöld ríkissjóðs og
útlán fjárfestingarsjóða verið
meiri en skyldi. Til þess liggja
margar ástæður. Um var að
ræða eldri skuldbindingar,
sem ekki varð undan vikizt að
innleysa. Þá er um að ræða
lögbundin sjálfvirk útgjöld,
sem greiða verður þar til laga-
breytingar eru gerðar.
Fjárlagafrumvarpið, sem lagt
hefur verið fram, ber vitni um
breytta stefnu. Þá hefur verið
tekin upp I auknum mæli verð-
trygging á útlánum fjárfest-
ingarsjóða, gengistrygging og
hækkun vaxta. Hagsmunasam-
tök hafa mótmælt þessum ráð-
stöfunum, en smeykur er ég
um, að lengra verði að ganga I
þeim efnum. Utlánasvið þeirra
verður að takmarka, ef halda á
niðri verðbólgu og bæta
greiðslustöðu.
FYRRI ERFIÐ-
LEIKATÍMAR
Stundum er þvl haldið fram,
að aðgerðir rikisstjórnarinnar
hafi ekki verið nógu mark-
vissar. 1 upphafi var það yfir-
lýst stefna rfkisstjórnarinnar
að leitast við að ná hægfara
aðlögun að versnandi viðskipta-
kjörum og skapa með þeim
hætti skilning fyrir frekari
aðgerðum. Þessi aðferð var
nauðsynleg. Ekki má Ieggja
meiri byrðar á þjóðina en
hverju sinni er nægilegur skiln-
ingur fyrir. Á þann veg einan
næst stuðningur við nauðsyn-
legar ráðstafanir.
Talað er um fyrri erfiðleika-
timabil I efnahagsmálum og þá
fyrst og fremst 1960 og 1968, en
þau ár var gripið til víðtækra
efnahagsráðstafana. Við
gleðjumst nú yfir árangri
þeirra aðgerða. En við gleym-
um því, sem á undan hafði
Framhald á bls. 47.
Kanaríeyjar
1975—1976
GRAN CANARIA:
Nú eru aðeins laus sæti I
eftirtaldar ferðir:
Brottför:
20. nóv. 3 vikur
4. des. 2 vikur
25. marz 3 vikur
22. april 3 vikur
Verð frá kr. 38.900,-
TENERIFE:
4. jan 2 vikur
1 8 jan. 2 vikur
1 feb 1 9 dagar
1 9 feb 24 dagar
14 marz 3 vikur
4 apríl 1 8 daqar
Allir fara I ferð með
ÚTSÝN
Sýningar
í Kaupmannahöfn
Brottfor 23 nóv
Furniture mdustry
Brottfor 14 feb
Scand menswear fair
Brottfor 1 3 marz
Scand fashion week
Brottfor 23 apr
Scand yold &
silver fair
Verð frá kr. 38.300
Frankfurt
Hópferð á
teppasýningu
1 3. — 1 9. jan.
Verð
Bangkok
og
Pattaya
Ógleymanleg
ævintrýaferð
Brottför:
1 9. des
1 5. feb.
Kenya
Brottför: 13. marz
Safari og vikudvöl við
Costa
Del Sol
Páskaferð
Brottför 14. apríl
1 8 dagar.
Skíðaferðir
til Lech
í Austurríki
Brottför 1 5. jan og 7. febr.
Verð með gistingu og 'h fæði
í 1 5 daga frá kr. 72.800.
FERÐASKRIFSTOFAN UTSYN AUSTURSTRÆTI 1 7
SÍMAR 26611 OG 20100