Morgunblaðið - 09.11.1975, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÖVEMBER 1975
35
Þessi kápa gefur góða hug-
mynd um þá ,,línu", sem er
ríkjandi í París um þessar
mundir. Flíkurnar eru yfir
leitt efnismiklar, án þess að
vera mjög víðar og fyrir-
ferðarmiklar. Hettur eiga
miklum vinsældum að
fagna. Kápan er úr ryð-
rauðu ullarflanneli, saumar
stungnir, — sömuleiðis
berustykkið að aftan, eins
og sjá má á litlu myndinni.
Kjóllin er úr líku efni, sem
þó er þynnra, en liturinn er
sá sami.
Hér er ítalskur ullarmohair
kjóll. Ermahólkar og háls-
stykki eru úr mynztruðu al-
silki. Óneitanlega hefur
kjóllinn á sér austurlenzkt
yfirbragð og er gott dæmi
um Maó-tízkuna, sem virð-
ist ætla að verða næsta
tizkuæðið, sem gripur um
sig. Stúlkan ber að sjálf-
sögðu Maó-buddu um háls-
inn.
Mosagrænn ullarkjóll með
hringskornu, plíseruðu
pilsi, en plfseringar má nú
sjá á mörgum kjólum og
pilsum.
Finnskur ullar
frakki úr gráu,
ryðrauðu eða
Ijósbrúnu efni.
Hatturinn er
franskur,
trefillinn
sömuleiðis, en
stígvélin eru
úr villta
vestrinu.
Prjónafatnaour virðist nú verða æ vinsælli. Hér er
buxnapils sem nær niður fyrir hné með peysu og
húfu — allt i stfl. Efnið er að sjálfsögðu ull og litirnir
eru brúnt, grátt, beinhvitt og móbrúnt. Þetta eru
reyndar ofur venjulegir íslenzkir sauðalitir, en fötin
eru frá ítalfu.
Útidragt úr grófriffluðu flaueli,
daufgræn að lit. Jakkinn er með
vattfóðri. Húfan og trefillinn eru
samstæð, — uppruninn er fransk
ur,
Kúrekastígvél, pils úr grófu ullar
efni, peysa og baskahúfa. Litirnir
eru beinhvitur og mosagrænn.
t