Morgunblaðið - 09.11.1975, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975
Nýstárlegt happdrætti BLÍ
BLAKSAMBAND tslands hefur stofnað til happdrættis tii
fjáröflunar fyrir starfsemina f vetur, en sem kunnugt er munu
tslendingar senda iið til þátttöku f undankeppni Ólympfuleik-
anna, sem haldin verður á Italfu f janúar 1976. Happdrætti
þetta er nokkur nýjung þvf möguleikar eru á að vinna fjðrum
sinnum á sama miðann án þess að þurfa að endurnýja hann.
Vinningar eru 31 og eru bað alit ferðir á vegum Sunnu til
sólarlanda eða eitthvað annað. 27 vinningar eru að verðmæti 50
þúsund krónur hver og 4 vinningar eru að verðmæti 100 þúsund
krónur hver. Fyrstu 27 vinningarnir eru ferðir fyrir einn en 4
vinningar eru ferðir fyrir tvo, þannig að mögulegt er að vinna
fimm utanlandsferðir f einu og sama happdrættinu, og það sem
meira er að miðaverðið er aðeins 300.- kr. Aftan á miðunum er
dagatal, n.k. blakdagatal þar sem getið er um leikdaga lands-
leikja og fyrstu ieikja f Islandsmóti karla og kvenna. Þannig að
hinir óheppnu kaupa ckki alveg köttinn f sekknum.
Oppsal í forystn
OPPSAL, liðið sem FH leikur við f Evrópubikarkeppni bikar-
hafa f handknattleik hefur nú forystu í norsku 1. deildar
keppninni f handknattleik og er liðið taplaust eftir nfu fyrstu
umferðirnar og er með 18 stig. I öðru sæti er Refstad með 16
stig og Fredensborg er f þriðja sæti með 15 stig eftir 8 leiki.
Oppsal hefur unnið flesta leiki sfna með nokkrum yfirburðum,
svo sem sjá má af markatöflunni, en f leikjunum nfu hefur liðið
skorað 180 mörk, en fengið á sig 107.
Nfr formaður GLÍ
ÁRSÞING Glfmusambands Islands var haldið f Reykjavfk 26.
október s.l. Helzta verkefni Glfmusambandsins á s.l. starfsári
var undirbúningur að för úrvalsflokks glfmumanna til Kanada,
en sú ferð heppnaðist mjög vel.
1 athugun er nú hjá Olympíunefnd fslands að koma glfmu að
á Olympfuleikunum f Montreal f Kanada á næsta ári, sem
sýningarfþrótt meðal þjóðlegra fþrótta.
Kjartan Bergmann Guðjónsson sem var formaður Glfmu-
sambandsins á síðasta starfsári gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Formaður var kjörinn Ólafur Guðlaugsson og aðrir f
stjórn þeir Páll Aðalsteinsson, Sigtryggur Sigurðsson, Þorvald-
ur Þorsteinsson og Sigurður Jónsson.
Olympmlágmörk
FRAMKVÆMDANEFND Olympfunefndar Islands hefur f sam-
ráði við Sundsamband Islands ákveðið eftirfarandi lágmörk
fvrir þátttöku f sundkeppni Olympfuleikanna f Montreal 1976:
KARLAR:
100 m skriðsund
200 m skriðsund
400 m skriðsund
1500 m skriðsund
100 m baksund
200 m baksund
100 m bringusund
200 m bringusund
100 metra flugsund
200 metra flugsund
400 m fjórsund
KONUR:
100 m skriðsund
200 m skriðsund
400 m skriðsund
800 m skriðsund
100 m baksund
200 m baksund
100 m bringusund
200 m bringusund
100 m flugsund
200 m flugsund
400 m fjórsund
Tekið skal fram að lágmörkum þessum fylgir ekki skuldbind-
ing af hálfu Olympfunefndar um að allir þeir er ná settum
lágmörkum verði sendir á Oiympfuleikana. Þar ráða Ifka fjár-
hagslegir möguleikar.
(Frétt frá Olympfunefnd
Islands)
55,3 sek.
2:01,5 mfn.
4:17,0 mfn.
16:55,0 mfn.
1:02,5 mfn.
2:15,0 mfn.
1:10,0 mfn.
2:32,0 mfn.
1:00,0 mfn.
2:12,0 mfn.
4:54,0 mfn.
1:02,5 mfn.
2:15,0 mfn.
4:42,0 mfn.
9:41,0 mfn.
1:10,5 mfn.
2:33,0 mfn.
1:20,5 mfn.
2:52,0 mfn.
1:09,0 mfn.
2:29,0 mfn.
5:25,0 mfn.
Vel borgaðnr sigur
LEIKMENN vestur-þýzka knattspyrnuliðsins Borussia
Mönchengladbach fengu greidda upphæð sem svarar til 500
þús. fsl. króna hver fyrir sigur sinn yfir ftalska liðinu Juventus f
Evrópubikarkeppni meistaraliða á dögunum. Dágóð launaupp-
bót það. Fyrir leikinn hafði þeim verið heitið upphæð sem
svarar til uní 300 þús. króna, en forráðamenn félagsins ákváðu á
sfðustu stundu að hækka bónusgreiðsluna til leikmanna, enda
uppselt á Rheinleikvanginn í Diisseldorf þar sem leikur þessi
fór fram, en sá leikvangur tekur um 70.000 manns. Sögðu
forráðamenn félagsins, að það væri fjárhagslega um Iff eða
dauða að tefla fyrir það að komast áfram f keppni þessari.
Páll Björgvinsson, Vfkingi skorar f leik liðs hans við FH. Páll er nú markhæstur f 1. deildar keppninni og
stighæstur f einkunnagjöf Morgunblaðsins.
FVRftl HFERfi ISLAMISMOTSIIVS
m LIIKA í ÐESEMRBRRYRJl
í KVÖLD fara fram tveir leikir I 1.
deildar keppni íslandsmótsins f
handknattleik, og aS þeim leikjum
loknum hafa öll liðin f deildinni leikið
5 leiki, aS Þrótti (4 leikir) og Fram (6
leikir) undanskildum. VerSur ekki
sagt annað en að fyrstu umferðir
mótsins hafi boðið upp i mikla
spennu og óvænt úrslit. Einkum og
sir f lagi er það Hafnarfjarðarliðið
Haukar sem komið hefur ð óvart, en
það hefur aðeins tapað einu stigi til
þessa, og þó leikið við þau fjögur lið,
sem fyrirfram voru álitin sterkust f
mótinu: Víking, FH, Val og Fram.
Hvort þessi góða byrjun Haukanna
nægir þeim til þess að verða á toppn-
um ! deildinni f vetur er erfitt um að
segja, en alla vega standa þeir nú
mjög vel að vfgi. Hafa úrslit annarra
leikja orðið til þess að styrkja einnig
stöðu þeirra, þar sem beztu liðin
hafa reytt stig hvert af öðru.
Sem kunnugt er þá er það áformað
að Ijúka fyrri hluta mótsins f þessum
mánuði, og er það gert til þess að
gefa landsliðinu betri undirbúnings-
tfma fyrir stórverkefni þau sem það á
framundan f desember. Verður
leikurinn I forkeppni Olympfuleik-
anna við Júgóslavi þar hápunktur-
inn, en sá leikur fer fram f Laugar-
dalshöllinni 18. desember. Mun
Eslenzka landsliðið fara til Danmerk-
ur f desemberbyrjun og leika þar
landsleiki við Dani. auk þess sem
leikið verður við sterk fálagslið frá
Austur-Evrópurfkjum.
Leikdagar þeir sem eftir eru f fyrri
umferðinni eru sem hér segir:
12. nóvember: Þróttur — FH
12. nóvember: Vikingur — Valur
16. nóvember: Grótta — Þróttur
16. nóvember: Haukar — Ármann
26. nóvember: Þróttur — Haukar
26. nóvember: Ármann — FH
30. nóvember: Vfkingur — Grótta
30. nóvember: Fram — Valur
1. deild
Staðan í 1. deildar keppni íslands
mótsins f handknattleik er nú þessi:
Valur 5 3 1 1 94:73 7
Haukar 4 3 1 0 73:61 7
Vfkingur 5 3 0 2 106:95 6
Fram 5 2 2 1 78:75 6
FH 4 2 0 2 81:76 4
Ármann 5 1 1 3 69:97 3
Grótta 4 1 0 3 71:78 2
Þróttur 4 0 1 3 56:73 1
Markhæstir
Markhæstu leikmennirnir i 1.
deildar keppninni eru eftirtaldir:
Páll Björgvinsson, Vfkingi 33
Hörður Sigmarsson, Haukum 30
Pálmi Pálmason, Fram 25
Stefán Hafldórsson, Vikingi 21
Friðrik Friðriksson, Þrótti 20
Björn Pétursson, Gróttu 19
Geir Hallsteinsson, FH 18
Jón Pétur Jónsson, Val 18
Viðar Sfmonarson, FH 1 7
Viggó Sigurðsson, Vikingi 1 7
Þórarinn Ragnarsson, FH 17
Jón Karlsson, Val 16
Bjarni Jónsson, Þrótti 14
Elfas Jónasson, Haukum 14
Kjartan Gfslason, Fram 14
Stefán Gunnarsson, Val 14
Stigahæstir:
Eftirtaldir leikmenn eru stiga-
hæstir f einkunnagjöf Morgunblaðs-
ins:
Páll Björgvinsson, Vfkingi 15 (5)
Elfas Jónasson, Haukum 14(4)
Pálmi Pálmason, Fram 14 (4)
Hörður Sigmarsson, Haukum 13 (4)
Jón Pétur Jónsson, Val 13(5)
Stefán Halldórsson, Vfkingi 13 (5)
Viggó Sigurðsson, Vikingi 12(5)
Stefán Gunnarsson, Val 12 (5)
Gunnar Einarsson, Haukum 11 (4)
Jóhannes Stefánsson, Val 11 (5)
Pétur Ingólfsson, Ármanni 11 (5)
Ragnar dunnarsson, Ármanni 11(5)
Brottvísanir af velli
Brottvfsanir af velli hafa verið sem
hér segir:
Vfkingur 33 min.
Fram 30 mín.
Ármann 24 mfn.
FH 23 min.
Haukar 21 min.
Grótta 19 mín.
Þróttur 12 mfn.
Valur 2 mfn.
Þeir einstaklingar sem lengst hafa
verið af velli eru þessir:
Andrés Bridde, Fram 9 mín.
Geir Hallsteinsson, FH 9 mfn.
Hörður Kristinsson, Ármanni 9 mfn.
Ingimar Haraldsson, Haukum 9 mfn.
Pétur Jóhannesson, Fram 9 mín.
Varin vítaköst:
Eftirtaldir markverðir hafa varið
flest vftaköst:
Gunnar Einarsson, Haukum 3
Ragnar Gunnarsson, Ármanni 3
Rósmundur Jónsson, Vfkingi 3
Sigurgeir Sigurðsson, Víkingi 3
Misheppnuð vítaköst
Fjöldi misheppnaðra vftakasta hjá
liðunum er sem hér segir:
Ármann 7
Þróttur 6
Vfkingur 5
FH 5
Valur 4
Fram 3
Þorleifur Ananíasson, KA —
markhæstur í 2. deildar
keppninni.
Grótta 3
Haukar 0
2. deild
Staðan f 2. deild íslandsmótsins er
nú þessi: KA 4 3 0 1 85:71 6
ÍR 2 2 0 0 43:34 4
KR 1 1 0 0 29:15 2
Þór 2 1 0 1 43:37 2
Fylkir 1 1 0 0 17:15 2
Keflavfk 2 0 0 2 30:34 0
Leiknir 2 0 0 2 38:53 0
Breiðablik 2 0 0 2 27:53 0
Markhæstir Markhæstu leikmennirnir i 2.
deild eru þessir:
Þorleifur Ananfasson, KA 19
Ármann Sverrisson, KA 16
Halldór Rafnsson. KA 15
Hörður Hilmarsson, KA 1 5
Sigtryggur Guðlaugsson, Þór 13
Hafliði Pétursson, Leikni 12
Benedikt Gunnarsson, Þór 11
Brynjólfur Markússon, ÍR 11
Vilhjálmur Sigurgeirsson, |R 10
Þorbjörn Jensson, Þór 10
AUl tilbúið tyrir 17. júlí
ROGER Rousseau, formaður fram-
kvæmdanefndar Olympfuleikanna f
Montreal 1976. lýsti þvf yfir á fundi
með fréttamönnum s.l. föstudag, að
þrátt fyrir þá miklu erfiðleika sem
verið hafa við undirbúning mann-
virkja á Olympfusvæðinu, yrði það
tilbúið er leikarnir skulu hefjast 17.
júlf n.k. Hins vegar kom fram hjá
formanninum, að svo kynni að fara
að ýmsir æfingavellir yrðu ekki
tilbúnir fyrir leikana, og sagði hann,
að nú væri verið að endurskoða
áætlanir um alla æfingaaðstöðu
keppenda f leikunum.
Allt frá þvf að undirbúningur
Olympfusvæðisins f Kanada hófst
hafa verið erfiðleikar vegna stöðugra
verkfalla starfsmanna, og er raunar
ekki séð fyrir endann á þeim enn. Nú
starfa um 3.200 manns að undirbún-
ingi Olympfusvæðisins og er unnið á
vöktum alla daga vikunnar.
Framkvæmdum miðar tiltölulega
bezt við gerð Olympfuleikvangsins,
sem jafnframt verður stærsta mann-
virkið sem reist er vegna leikanna.
Þó mun leikvangur þessi ekki taka
nema um 70.000 manns, — færri
en Olympiuleikvangurinn f
Miinchen.