Morgunblaðið - 09.11.1975, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1975
47
— Aldrei má
Framhald af bls. 3
gengið. Vinstri stjórnin féll í
árslok 1958 eftir að forsætisráð-
herra hennar hafði lýst yfir því,
að innan stjórnarinnar væri
engin samstaða um aðgerðir.
Minnihlutastjórn Alþýðu-
flokksins sat i rúmí ár og
reyndi að leysa ákveðinn bráða-
birgðavanda. Á árinu 1960 kom
svo Viðreisnin. Þeim aðgerðum
var ekki tekið gagnrýnislaust
og Viðreisnarstjörnin varð að
fella gengi krónunnar öðru
sinni á árinu 1961.
Þegar rætt er um ráðstafanir
á árinu 1968 gleyma menn þvi
gjarnan að haustið 1967 var
gengi krónunnar fellt um 24%.
Snemma árs 1968 þurfti samt
að grípa til nýrra aðgerða til
þess að styrkja sjóði sjávarút-
vegsins. Um haustið það sama
ár var sett á 20% innflutnings-
gjald og gengið síðan fellt aftur
í nóvember 1968 um 34%. Það
voru ráðstafanir sem dugðu. En
i ársbyrjun 1969 voru atvinnu-
lausir um 5500 manns, eða um
7% vinnuafls.
Þessar aðgerðir náðu tilgangi
sinum en allt þetta tímabil var
ákveðin spenna í þjóðfélaginu.
En við náðum okkur upp úr
alvarlegri efnahagskreppu.
Þegar árangur liggur fyrir
gleðjumst við yfir því, en
gleymum því sem á undan og
eftir fór. Þannig held ég að fari
nú. Þótt erfiðleikarnir séu
miklir munum við að lokum
standa upp frá þessu tímabili,
minnugir hins góða og höfum
gleymt þvi sem miður fór.
VERÐJÖFNUNAR-
SJÓÐUR
Þegar hér var komið ræðu
forsætisráðherra gerði hann
grein fyrir frumdrögum að
þjóðhagsspá fyrir árið 1976 en
frá þeim kafla ræðunnar var
skýrt í Morgunblaðinu i gær.
Siðan vék hann að erfiðri stöðu
verðjöfnunarsjóðs sjávarút-
vegsins og sagði að útstreymi
úr frystideild hans næmi um
1300—1400 milljónum króna á
ársgrundvelli. Fjármagn er
ekki til staðar til þess að standa
undir slíku útstreymi úr sjóðn-
um sagði ráðherrann. Hins
vegar er 1600 milljón króna
inneign í saltfiskdeild sjóðsins
en óheimilt er að flytja fé á
milli deilda sjóðsins. Afkoma
einstakra greina sjávarútvegs-
ins er mjög slök en væntanlega
fara viðskiptakjör útflutnings-
ins batnandi og þótt inn-
flutningsverðlag versni að
sama skapi getur hið fyrr-
nefnda að nokkru leyst þetta
vandamál.
í Morgunblaðinu á þriðjudag
verður skýrt frá þeim kafla i
ræðu forsætisráðherra sem
fjallaði sérstaklega um afkomu
verzlunar.
— Sahara
Framhald af bls. 1
spánskra úrvalshérmanna.
Sprengjuleitarsérfræðingar
Marokkóstjórnar, sem eru í för
með göngumönnum, unnu að því í
nótt að gera sprengjurnar óvirkar
til að opna leið fyrir göngumenn.
Ástandið á þessum slóðum er
mjög óljóst, en Spánverjar hafa
haldið fast við fyrri yfirlýsingar
um að þeir muni beita vopnavaldi
ef göngumenn reyni að ryðja sér
leið gegnum stöðvar spænska
hersins. Leon Herrera upplýs-
ingamálaráðherra Spánar sagði
að Spánverjar vildu frið, en þeir
vildu einnig halda uppi heiðri
landsins og virðingu hersins.
Hann gagnrýndi Sameinuðu þjóð-
irnar harðlega fyrir að hafa ekki
komið I veg fyrir að göngumenn
legðu af stað. Heimildir herma að
spánska stjórnin hafi skipað 15
þúsund manna herliði á Kanarí-
eyjum að vera við öllu búið vegna
málsins, en sú frétt hefur ekki
verið staðfest. Frá Algeirsborg
bárust þær fréttir að Folisario-
fylkingin, sem nýtur stuðnings
Alsírstjórnar í tilraunum til að að
tryggja sjálfstæði Spænsku-
Sahara, hefði tekið þorpið Guera í
systa hluta landsins eftir harða
bardaga við hermenn Marokkó,
en talsmenn Marokkóstjórnar
segja að fréttin sé uppspuni einn.
— Merkja-
söludagur
Framhald af bl's. 2
frétt félagsins að húsnæði sé for-
senda fyrir öflugu félagsstarfi og
bein nauðsyn þar sem svo háttar
til að starfrækt eru heimili og
vinnustofur fyrir félagsmenn.
Nýbygging félagsins er stórt og
mikið hús, er stendur á horni
Hamrahlfðar og Stakkahlíðar, og
eru bundnar miklar vonir við þá
byggingu.
— Mánudags-
myndin
Framhald af bls. 2
svo raunsæisleg sem framast er
kostur, og þess vegna eru myndir
Fassbinder oft á tíðum svo ofur-
hægar, að hasarmyndasinnuðum
kvikmyndahúsgestum er ráðlagt
að leiða þær hjá sér.
Sú mynd sem Háskólabíó hefur
nú fengið til sýninga næstu mánu-
daga nefnist Ávaxtasalinn og er
meðal þekktari mynda Fassbind-
ers, að mörgu leyti tímabært inn-
legg í umræðuna um jafnrétti
kynjanna á kvennaári, þvf að í
þetta skiptið er það gæflyndur
karlmaður sem er kúgaður
miskunnarlaust af öllum konum
sem hann kemst í kast við á lífs-
leiðinni.
1 aðalhiutverkunum eru þekkt-
ir þýzkir leikarar, svo sem Hans
Schygulla, Ingrid Caven, Katrin
Schaake, Karl Scheydt, Harry Bar
og Kurt Raab að ógleymdri
Margethe von Trotta sem nú er
sjálf komin í raðir kvikmynda-
gerðarmanna eftir að hún ásamt
eiginmanni sínum, Volker
Schlöndorff, gerði Die verlorene
Ehre der Katharine Blum eftir
samnefndri skáldsögu Heinrich
Böll. Þykir þessi mynd sérlega vel
heppnuð og er af sumum talin
fremsta mynd þýzkrár kvik-
myndagerðar frá því að strfðinu
lauk. Er full ástæða til að hvetja
aðstandendur mánudagsmynda
Háskólabfós til að gefa þýzkri
kvikmyndagerð meiri gaum, því
að þar er akur sem er að miklu
leyti óplægður hér um slóðir. - bv.
Tillaga um skipan lóðaút-
hlutana i borgarstjórn
A borgarstjórnarfundi s.l.
fimmtudag lagði Kristján
Benediktsson fram tillögu um að
framvegis færi lóðaúthlutun á
vegum borgarinnar fram í árs-
byrjun og yrði þá úthlutað þeim
lóðum, sem byggingarhæfar yrðu
á árinu. I tillögunni var gert ráð
fyrir því að áætlun um skipu-
lagningu nýrra byggingarsvæða,
enduruppbyggingu svæða í göml-
um borgarhverfum og um hol-
ræsa- og gatnagerð yrði að vera til
nokkurra ára í senn til að slík
tilhögun væri raunhæf, — enn-
fremur, að framkvæmdaáætlanir
rafmagns-, vatns- og hitaveitu
yrðu samræmdar slíkri áætlun og
að náið samstarf yrði haft við
nágrannasveitarfélög við slíka
áætlanagerð.
Nokkrar umræður urðu um til-
löguna. Kvað Birgir Isleifur
Gunnarsson mörg atriði hennar
þurfa nánari athugunar við og
lagði á það áherzlu, að hús-
byggjendur þyrftu að hafa rýmri
tíma til undirbúnings en gert
væri ráð fyrir f tillögunni a.m.k.
10 mánuði, auk þess sem
þjónustumiðstöðvar þyrftu að
rfsa um leið og íbúðarhverfi. Þá
taldi borgarstjóri atriðum um
samræmingu borgarfyrirtækja í
áætlunargerð ofaukið f tillögunni,
þar sem slík vinnubrögð væru
þegar við lýði.
Var samþykkt að vísa tillögunni
til borgarráðs og annarrar um-
ræðu f borgarstjórn.
Gúmbátur
Brynjólfs
SKÖMMU fyrir hádegi í fyrradag
fann vélbáturinn Draupnir VE
550 gúmbát á reki 2,5 sjómflur
vestur af Malarrifi. Báturinn var
fluttur til Reykjavfkur og við
rannsókn hjá SVFÍ og Gúmbáta-
þjónustunni kom í Ijós að um var
að ræða gúmbát af Brynjólfi ÁR
4, sem sökk skyndilega við Surts-
ey aðfararnótt 30. október sfðast-
liðins.
Er ekki mál til komid,
að þú eignist þinn einkaheim,
Marantz einkaheim!?
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavík. Simar: 19150—19192—27788