Morgunblaðið - 06.01.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1976
5
FRA AFHENDINGUNNI — Sigurður Llndal, forseti lagadeildar, Jón
Benediktsson, mvndlistarmaður, og Friðrik Sophusson, formaður
stjórnar Minningarsjóðs um Armann Sveinsson, við mvndina „Innan
vébanda“. r
Lagadeild HI afhent
gjöf til minningar um
Ármann Sveinsson
I DESEMBER s.l. var lagadeild
Háskóla lslands afhent gjöf til
minningar um Armann Sveinsson
stud. juris. Gjöfin er stand-
mvnd úr járni og eir eftir Jón
Benediktsson og nefnist hún
„Innan vébanda" og er af tvlftar-
dómi að störfum. Fyrirmvndin er
sótt í réttarsögulegar heimildir
um slfka dóma. Friðrik Sophus-
son lögfræðingur, formaður
stjórnar Minningarsjóðs um Ar-
mann Sveinsson, afhenti lista-
verkið f Lögbergi fvrir hönd
sjóðsins, og Sigurður Lfndal
deildarforseti lagadeildar veitti
þvf viðtöku, en viðstaddir voru
kennarar lagadeildar. fulltrúar
nemenda og nánustu ættingjar
Armanns auk listamannsins.
I ræðu formanns stjórnar
minningarsjóðsins kom fram, að
sjóðurinn hefur starfað í rúm sex
ár. I samræmi við skipulagsreglur
hans var tvivegis veittur styrkur
úr sjóðnum til skrifa á ritgerðum.
Fyrri styrkinn hlaut Ingvi Þor-
steinsson magister fyrir ritgerð-
ina „Gróðurvernd“, sem Land-
vernd gaf út árið 1972, en seinni
styrkinn fékk Ingólfur Hjartar-
son fyrir að skrifa um atvinnulýð-
ræði, og var sú ritgerð gefin út af
Stjórnunarfélagi tslands á þessu
ári. Þá gaf sjóðurinn út safn ræða
og ritgerð Ármanns í bókinni
Manngildi.
Afhending listaverksins til
lagadeildarinnar er annað af loka-
verkefnum sjóðsins, en starfi
hans lýkur með innréttingu bóka-
safns- og rannsóknarherbergis í
nýja Sjálfstæðishúsinu í sam-
vinnu við Samband ungra sjálf-
stæðismanna, en Ármann Sveins-
son var framkvæmdastjóri þess
um skeið.
Kapphlaup um smíöi
„ dauðageislavopna ”
LONDON — Kapphlaup um
smfði „dauðageislavopna“ er
sennilega hafið milli Banda-
rfkjamanna og Rússa sam-
kvæmt sfðustu útgáfu herfræði-
ritsins Jame’s Weapons Svst-
ems.
Slfk vopn gætu eytt gervi-
hnöttum og kjarnaoddum utan
gufuhvolfsins með orku leysi-
geisla að þvf er ritstjóri hand-
bókarinnar, Ronald Pretty, seg-
ir f formála.
Hann segir að i ritum banda-
ríska landvarnaráðuneytisins
hafi verið tæpt á því að leysi-
geislarannsóknir væru stundað-
ar, en Rússar hafi nánast ekk-
ert sagt um málið.
Vitnað er i dr. Malcolm Curr-
ie, forstöðumann bandarískra
hernaðarrannsókna, og sagt að
hann hafi staðfest að Rússar
hafi varið miklum fjármunum
til leysigeislarannsókna.
Dr. Currie segir að frá vís-
indalegu sjónarmiði sé lítill
múnur á Bandaríkjamönnum
og Rússum á þessu sviði en
tæknilega séð séu Bandarikja-
menn nokkuð á undan Rússum
í dauðageislakapphlaupinu.
Pretty gefur i skyn að leysi-
geislar muni koma að mestum
notum i geimnum ef takast
megi að yfirstíga mestu vand-
kvæðin á smíði nýja vopnsins,
en þau segir hann vera stærð og
þyngd.
Hann segir að í fyrsta lagi
megi nota vopnið til að evða
njósnahnöttum og öðrum gervi-
hnöttum óvinarins og í öðru
lagi sem lið í gagnflaugakerfi
til að eyða kjarnaoddum á leið
þeirra að skotmarki og meðan
þeir eru utan gufuhvolfsins.
I handbókinni er því bætt við
að ef ieysigeislavopn reynist
óhentug í geimnum mundu her-
skipaflotar sennilega taka þeim
fegins hendi, þar sem þau gætu
reynst góð til varnar gegn eld-
flaugum sem beitt er gegn her-
skipum.
Þó er tekið fram að forsend-
an sé sú að vopnin geti sent frá
sér nógu mikla orku við þau
skilyrði, sem eru til staðar i
sjóhernaði, hvort þau þoli raka
og seltu.
Heinz Bariiske sæmdur
heiðursprófessorstitli
Klaus Schutz borgarstjóri Vestur-Berlínar flvtur ávarp við athöfnina
þar sem Heinz Bariiske var sæmdur titlinum „Professor e.h.“ Til
hægri er eiginkona Bariiskes.
HEINZ Baruske prófessor i Ber-
lin var nýlega sæmdur heiðurs-
prófessorstitli vegna framlags
sins til útgáfu norrænna bók-
mennta. Athöfnin fór fram í ráð-
húsinu í Schöneberg i Berlin að
viðstöddum allmörgum gestum,
meðal annars ýmsum ráðherrum
Vestur-Berlínar, þingmönnum og
háskólaprófessorum og fleiri gest-
um. Borgarstjórinn Kalus Schutz
hélt ræðu og minntist lofsamlega
þess mikla verks sem Barúske
hefur innt af hendi með norræn-
um útgáfum sínum.
Þá er nýlega komið út nýjasta
verk Barúskes sem heitir March-
en der Eskimo og eru þar ævin-
týri frá Siberiu, Alaska Kanada
ogGrænlandi.
Leyfðu óskunum að
rætast
Þær veröa aö fá tækifæri - mörg og góö tækifæri.
SÍBS- happdrættið býöur þau. Þar hækka vinning-
arnir um 50 milljónir og veröa 201 milljón og
600 þúsund. Og aukavinningurinn er sannkallað-
ur óskabíll: Citroén CX 2000. Bifreið, sem kom
fyrst á markað 1974, hönnuö til aö mæta kröf-
Happdrætti
um nútímans um öryggi, þægindi og sparneytni.
Vinningarnir veröa 17500 talsins, frá 10 þúsund
kr. upp í milljón. En kannski koma vinningar á
50 - 200 þúsund þægilegast á óvart. Hvaö
finnst þér?
<
i