Morgunblaðið - 13.02.1976, Side 2

Morgunblaðið - 13.02.1976, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRUAR 1976 Þokkalegur rækju- afli við Grímsey ÞOKKALEG rækjuveiði hefur verið hjá vb. Sæþór frá Dalvík á rækjumiðunum út af Grímsey, þegar gefið hefur, að því er Snorri Snorrason, útgerðarmaður á Daivik, t jáði Mbl. í gær. Hann kvað hins vegar veðurfar hafa verið ákaflega rysjótt og því lítið verið hægt að vera við veiðar. Sæþór hefur þó fengið upp undir tonn f hali, en Snorri tók fram, að rækjan væri þarna á miklu dvpi svo að einatt væri togað í 5—6 klst. Sagði Snorri að meðaltals- aflinn væri um 3 tonn á sólar- hring, en frá því að veiðarnar hófust f kringum 25. janúar hefur Sæþór fengið um 30 tonn. Aflinn hefur allur verið unninn á Dalvik, en Snorri kvað litið fást Afgreiðsla al- mennra námslána fyrir 1. marz MORGUNBLAÐINU barst i gær fréttatilkynning frá menntamála- ráðherra, þar sem segir, að vegna margra fyrirspurna um afgreiðslu námslána og fyrirhugaðrar breyt- ingar á lögum um Lánasjóð ísl. námsmanna vilji hann taka fram: 1. Afgreiðsla aimennra lána hefst eigi síðar en 1. mars n.k. 2. Svokölluð K-lán verða af- greidd samtímis og með líkum kjörum og önnur lán. 3. Lántökuheimiid f fjárlögum 1976 verður notuð að hálfu, vegna afgreiðslu vorlána. 4. Þá verður i næstu viku iagt fram á Alþingi frumvarp um breytta tílhögun námslána. Af- greiðslu málsins verður hraðað svo sem tök verða á. Vitað um 3 berklatil- felli í Skagafirði VEGNA fréttar um bcrklatilfelli í Eyjafirði vill F’riðrik J. Frið- riksson, héraðsla-knir á Sauðár- króki, koma þeirri athugasemd á framfæri, að á sfðasta ári og því sem af er þessu hafa þrjú slfk tilfelli verið skráð í Skagafirði. „Er nú verið að kanna hjá heil- brigðisstjórn landsins, eins og áður, hverjar leiðir séu færar til að koma heilsugæzlustarfscmi og þar með berklavarnarstarfsemi í anda heilbrigðisþjónustulaganna Framhald á bls. 22 fyrir rækjuna nú. Verðið erlendis hefur verið mjög lágt og komst niður i 14 kr. sænskar í sumar en hefur áðeins verið að stíga og er nú í um 17—18 kr. sænskum. Hins vegar minnti Snorri á að fengist hefðu um 25 kr. sænskar fyrir rækjuna þegar verðið var í hámarki fyrir hálfu öðru ári, og það væri fyrir neðan allar hellur þegar hráefnisverð rækjunnar væri undir almenna fiskverðnu. Kindakjötsnevslan minnkaði um 5% MEÐALNEYSLA Islendinga á kindakjöti varð á síðasta ári 44.7 kg. á hvert mannsbarn. Hefur kindakjötsneyslan minnkað nokk- uð frá árinu áður en þá var meðal- neyslan 47 kg. á mann og er þetta um 5% minnkun. Ástæður þess má eflaust rekja til útsölu á nautakjöti á síðastliðnu hausti og síðar niðurgreiðslna á nautakjöti, en þessar aðgerðir leiddu til auk- innar sölu nautakjöts á síðari hluta ársins 1975. Heildarsala kindakjöts hér innanlands varð á árinu 1975 9661 smálest og þar af nemur sala dilkakjöts 8214 smá- lestum. Á siðast liðnu ári voru fluttar út 2764 smálestir af dilka- kjöti og þar af nam útflutningur- inn fjóra síðustu mánuði ársins 1507 smálestum. Á árinu voru einnig fluttar út 328 smálestir af ærkjöti. Um áramót voru til i landinu 10309 smálestir af kinda- kjöti og þar af nemur dilkakjöt 8950 smálestum. Jón L. Sigurðsson. Yfirlæknir á röngten- deild Landspítalans JÖN L Sigurðsson læknir hefur verið skipaður yfirlæknir f röntg- engreiningu á Röntgendeiíd Landspftalans. Jón er skipaður til starfans af Heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra frá og með 1. janúar. Olíufélögin herða útlánareglur vegna rekstrarfjárerfiðleika MORGUNBLAÐINU hefur borizl fréttatilkynning frá olíufélög- unum, þar sem greint er frá því, að olfufélögin sjái sig knúin til að herða allar útlánareglur sfnar vegna sfvaxandi erfiðleika við út- vegun rekstrarfjár til að fjár- magna stöðugt hækkandi verð á olfuvörum. Frá og með 16. fcbrúar nk. ganga því í gildi eftirfarandi greiðsluskilmálar varðandi láns- viðskipti: 1. Togarar og stærri fiskiskip skulu hafa heimild til að skulda aðeins eina úttekt hverju sinni. Áður en að frekari úttektum kem- ur skulu þeir hafa greitt fyrri úttektir sinar, ella verður afgreiðsla á olium til þeirra stöðvuð. Greiðslufrestur á hverri úttekt skal þó aldrei vera lengri en 15 dagar. 2. önnur fiskiskip skulu almennt hlíta sömu reglu. Hjá smærri bátum, þar sem þessari reglu verður ekki við komið, skal við það miðað að úttekt sé greidd um leið og veðsetning afurða hjá fiskvinnslustöð fer fram. 3. Þeir viðskiptamenn, sem hafa haft heimild til lánsvíðskipta í sambandi við olíur til húskynd- ingar, hafi greiðslufrest á einni úttekt hverju sinni. Þurfa þeir því að hafa gert upp fyrri úttekt sína áður en til nýrrar úttektar kemur. 4. Um önnur reikningsviðskipti gilda hliðstæðar reglur. Drekkhalðin loðnuskip bfða löndunar f Vestmannaeyjahöfn. Fyrsta loðnan til Grindavíkiir 42 skip með um 12.420 lestir í gær GÖÐ loðnuveiði var i gærdag, og loðnuskip tilkynnt um 13.420 frá miðnætti miðvikudags til kl. tonn. Loðnan var þá komin austur 9.30 I gærkvöldi höfðu alls 42 undir Ingólfshöfða, og fyrsta Stjórnunarfélag íslands hélt 25 námskeið í fyrra NYLEGA var haldinn aðalfundur St jórnunarfélags Islands að Hótel Sögu. Auk venjulegra aðalfundar- starfa flutti Matthlas Á. Mathfe- sen fjármálaráðherra erindi um hagræðingu f opinberri stjórnun. Formaður félagsins, Ragnar S. Halldórsson forstjóri, setti fund- inn, en fundarstjóri var kjörinn Eyjólfur Isfeld Eyjólfson for- stjóri. I skýrslu stjórnar kom m.a. fram, að hinn 24. janúar s.I. voru liðin 15 ár frá því að félagið var stofnað, en fyrsti formaður félagsins var Jakob Gislason, fyrr- verandi orkumálastjóri. A s.l. ári voru haldin 25 nám- skeið á vegum Stjórnunarfélags- ins um 18 mismunandi efni og þátttakendur voru um 470 talsins. Auk fræðslustarfsins gekkst félagið fyrir fundum og nám- skeiðum að venju. I stjórn félagsins sitja: Ragnar S. Halldórsson formaður, Hörður Sigurgestsson, Sigurður R. Helga- son, Brynjólfur Bjarnason og Eggert Hauksson, I varastjórn eiga sæti: Guðmundur Einarsson, Sigurður Gils Björgvinsson. Ragn- ar Kjartansson og Jakob Gíslason. Ennfremur starfar á vegum félagsins 12 manna framkvæmda- ráð og 5 manna fræðsluráð. Fram- kvæmdastjóri SFl er Friðrik Sophusson lögfræðingur. SILDARVERKSMIÐJUR ríkisins höfðu farið fram á það með milli- göngu Alþýðusambands Islands (baknefndar), að Verkalýðsfélag- ið Fram á Seyðisfirði leyfði að unnin yrði I verksmiðjum SR þar sú loðna, sem væri I þróm, þegar verkfall skylli á. Þessari beiðni var synjað af félaginu og til- kynnt, að ekki yrði leyfð vinnsla á loðnu f verksmiðjunni eftir að verkfall væri hafið. Stjórn SR samþykkti þvl með 5 atkvæðum, en 2 sátu hjá, að stöðva móttöku loðnu um hádegi I gær til þess að forðast tjón vegna skemmda á hráefni f þróm verksmiðjunnar. Hið sama gilti um beiðni verk- smiðjunnar Hafsíldar h.f., sama efnis, og ákváðu þá forráðamenn hennar að stöðva móttöku af sömu ástæðum og SR. Verkalýðs- loðnan til bræðslu hafði þá borizt til fiskmjölsverksmiðjunnar f Þorlákshöfn. Annað skip var á leið til Grindavfkur með loðnu til bræðslu, þannig að farið er að styttast I það að verksmiðjurnar suðvestanlands hefji almennt bræðslu. Margir bátanna sem fengu afla I gær ætluðu til Vestmannaeyja, og fjölmargir voru á austurleið en óráðið hvar þeir lönduðu. Bræðsla f Norglobal gengur vel og voru bátar á leið til þess. Þar átti að losna rými í gærkvöldi og aftur I dag, en gert ráð fyrir að það fyllt- ist þó á samri stundu. Var jafnvel búizt við þvi að bátar færu allt til Vopnafjarðar með loðnu til lönd- unar, þar eð verksmiðjurnar á Seyðisfirði eru nú hættar að taka á móti eins og kemur fram I frétt hér annars staðar. Frá þvi á hádegi i gær höfðu eftirtalin skip tilkynnt um afla: Eldborg 500, Þórður Jónasson 380, Sæbjörg 330, Huginn 400, Helga II 300, Hákon 430, Ásgeir 400, Gullberg 400, Alfsey 150, Dagfari 270, Álftafell 240, Ölafur Magnússon 200, Þórkatla II. 240 Fifill 550, Jón Finnsson 360, Loft- ur Baldvinsson 500, Helga 270, Arni Sigurðsson 420 og Óskar Halldórsson 390. félagið Fram samþykkti að fresta boðaðri vinnustöðvun til 20. febrúar i stað 17., en þrátt fyrir það eru afköst verksmiðjanna á Seyðisfirði ekki meiri en svo, að á mörkum er að unnt verði að vinna upp loðnuna i þrónum áður en til boðaðs verkfalls kemur. Verkalýðsfélag Reyðarfjarðar- hrepps boðaði verkfall frá og með 20. febrúar í gærmorgun. Svaraði verkalýðsfélagið beiðni SR um að leyfa vinnslu á þeirri loðnu, sem væri í þróm, ef til verkfalls kæmi, á þá leið, að verkalýðsfélagið sam- þykkti að leyfa vinnslu á þvi hráefni sem verður i geymslu- tönkum verksmiðjunnar að lokinni losun úr m.s. Pétri Jóns- syni RE, 12. febrúar. Félagið Framhald á bls. 22 Verkalýðsfélagið á Seyðisfirði: Synjarheimild til loðnubræðslu frá og með 20. febrúar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.