Morgunblaðið - 13.02.1976, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1976
33
VELVAKAIMDI
Velvakándi svarar í síma 10-100
kl. 14—15, frá mánudegi til föstu-.
dags
0 Snjórinn á
gangstéttunum
G. Á. skrifar og gerir aö
umræðuefni snjóinn á gangstétt-
unum i Reykjavíkurborg, segir að
meira sé hugsað um bilana en
gangandi vegfarendur. Þó kveðst
hann ekki vilja ganga svo langt að
segja að gangstéttir eigi að ganga
fyrir akbrautum, því þá mundi
fólk ekki komast til vinnu og i
skólana og auðvitað verði fyrst og
fremst að hugsa um að halda
strætisvögnum gangandi þegar
veður versnar, þó svo það kosti
það að moka verði snjónum upþ á
gangstéttarnar.
Kveðst G. Á hafa búið á Norður-
löndum, þar sem mun betur sé
mokað af gangstéttum þegar
snjóar.
0 Lóðahafar moka
gangstéttir
Það mun rétt vera að í borg-
um á Norðurlöndum er yfirleitt
mokað betur af gangstéttum en
hér. Þar er lóðahöfum viða gert
að skyldu að leggja opinberum
aðilum lið við moksturinn. Fyrir
tveimur árum gerði Páll Lindal
borgarlögmaður athugun á því
hvaða reglur giltu um þetta á
Norðurlöndum og komst að þeirri
niðurstöðu að tvær meginreglur
giltu um slika þátttöku, önnur
fæli i sér skyldu til þátttöku i
almennum snjómokstri og væri sú
á undanhaldi, og hin felur í sér
skyldu til að annast hreinsun á
gangstétt við hús aðila og jafnvel
götu að vissu marki. Gildir þetta
t.d. i Danmörku. í lögreglusam-
þykkt Kaupmannahafnar er eig-
anda fasteignar meira að segja
gert skylt að halda gangstéttinni
hreinni, svo og götu allt að miðju.
í Noregi gildir þetta lika um eign-
ir, sem liggja að götu, og í lög-
reglusamþykkt Óslóar er eiganda
skylt að ljúka mokstri á gangstétt
fyrir hádegi ef snjóað hefur að
nóttu og einnig á hann að bera
sand á ef hálft er. Svipaðar reglur
gilda í Finnlandi og i lögreglu-
samþykkt fyrir Vesteraas i Svi-
þjóð, að því er borgarlögmaður
segir.
Ekki lagði hann þó til að þessar
reglur yrðu teknar upp hér, sem
betur fer. Enda aðstæður ólíkt
verri og erfiðari, hver sem i hlut
á, en á Norðurlöndum, og fram-
kvæmd yrði vafalaust erfið. i
Norðurlandalögunum er gert ráð
fyrir því að heimilt sé að vinna
verkið, t.d. annast snjómokstur á
kostnað þeirra, sem vanrækt hafa
skyldur sinar að þessu leyti. Yrðu
borgaryfirvöld þá að vera tilbúin
til að framkvæmda verkið og
hreinsa gangstéttirnar og rukka
þér stóðuð þarna með eldspýtuna
unz hún var næstunt farin að
brenna gómana og loks kallaöi
frú Missal á yður og þér snéruð
víð að bílnum.
— Svo ókuð þér heim. Þér höfðuð
gert það sem þér höfðuð ætlað
yður og þér vonuðuð að með smá-
vegis heppni myndi engínn setja
yður í samband við frú Parsons.
En seinna þegar ég nefndi nafnið
Doon f yðar viðurvist fóruð þér
að hugsa um hækurnar. Kannski
voru einhver bréf lfka. En það var
langt um liðið. Þér komust að þvf
að Parsons myndi ekki vera
heima og þar af leiðandi notfærð-
uð þér yður að lykill hinnar látnu
var f yðar fórum. til að komast
inn f húsið til að athuga hvað
Doon gæti hugsanlega hafa skilið
eftir sig.
— Þetta hljómar allt Ijómandi
skemmtilega, sagði Quadrant.
llann strauk blfðlega um hár
konu sinnar og herti takið utan
um hana. — Það eru að sjálf-
sögðu engir möguleikar á að þetta
verði tekið gott og gilt sem sönn-
un, en ég hef ekkert á móti þvf að
leyfa vkkur að reyna.
Hann var svo kæruleysislegur f
röddinni að það var eins og hann
svo borgarana eða sekta, ef ekki
væri greitt. Og húseigendur sjálf-
ir að að gangast undir að taka á
sig slíka kvöð.
Borgarlögmaður bendir m.a. á,
að skipan lóðamála sé hér tölu-
vert frábrugðin því sem gerist í
nágrannalöndunum. Þar er yfir-
leitt einn eigandi hverrar fast-
eignar, en hjá okkur margir og
jafnvel margir tugir, og sums
staðar eru mörg hús á einni lóð,
auk þess sem erfitt sé að afmarka
moksturssvæði hvers og eins.
Mundi slikt vafalaust ekki bæta
sambýlið ef eigendur þyrftu að
skipta á sig snjómokstrinum og
jafnvel ákveða hvenær hver og
einn eigi að moka á morgnana.
Slíkar skyldur yrðu okkur æði
þungbærar i vetri eins og nú, með
öllum þeim umhleypingum sem
hér eru að vetrinum. Iðulega
snjóar jafnóðum og búið er að
moka, og þá væri ekki annað en
að byrja aftur. Sennilega ættum
við ekkert að vera að bera okkui
saman við Norðurlönd að þessu
leyti. Aðstæður okkar eru allt aðr-
ar.
0 Margfaldaður
fasteignaskattur
Herdis Hermóðsdóttir skrif-
ar frá Eskifirði og er bréfið dag-
sett 9. des. 1975:
Enn heilsa ég þér, Velvakandi.
Ástæðan er sú, að ég er að velta
því f.vrir mér, hvort það þ.vki nú
bezta ráðið gegn verðbólgunni að
margfalda fasteignaskattinn.
Mun það þykja skarpasta ráðið,
til hagsbóta fyrir láglaunafólk-
ið, að ræna það nú líka, ofan á
allt annað, hinu eina verðmæti,
sem það hugði á nokkurn máta
verðtryggt. Það er ibúðarhús-
næðið, sem það hafði, oft með
ofurmannlegu erfiði, komið sér
upp. Eða ætli hinir kjörnu full-
trúar þess þykist i vizku sinni sjá,
að þ«.u sé eina fólkið sem ekki
hefur orðið fyrir svipu verðbólg-
unnar. Fólkið, sem þó er látið
sæta ríkisverndaðri einokun og
okri á aðal neyzluvörum sínum,
og virðist þar engan forsvars-
mann eiga i þvi máli.
0 Hálaunamenn búa
nær leigufrítt
Á sama tima og þetta svi-
virðilega ranglæti er borið fram á
Alþingi til að öðlast lögfestu, búa
hálaunamenn ríkis og bæja, svo
til leigufrítt, i húsnæði þvi, sem
komið hefur verið upp með skatt-
peningi almennings, til slíkra
þarfa. Og aiþingismenn ákveða
sjálfum sér í húsaleigustyrk
hærri upphæð á mánuði hverjum
en hinum almenna skattgreið-
anda er eftir skilið á hvern fjöl-
skyldumeðlim, til lífsframfæris.
Það má sannarlega sjá að
sveitarstjórnarmenn hafa nýlega
komið saman til skrafs og ráða-
gerðar. Mennirnir, sem ætla að
launa á þennan hátt fylgi kjós-
endanna.
Mennirnir sem fólkið kaus til
þess að sjá hag sínum borgið og
ætla að gera það á þann hátt, að
ræna það þeim eina arði, sem það
hafði af elju sinni og erfiði á
liðnum árum.
Mennirnir, sem virðast gera sér
það að skyldu, að rýra hlut heimil-
anna á allan hátt, til þess eins að
þurfa ekki sjálfir að draga saman
seglin og hafa hagkvæmni i
rekstri sveitarfélaganna. En hús-
móðirin má og skal þurfa að velta
hverri krónu og neita sér um
flest, til að heimilisfólkið geti
haft i sig og á.
Hvar er svo réttlætið? Senni-
lega hefur það brunnið í verð-
bólgubálinu.
En af þvi að gera verður ráð
fyrir að sveitarstjórnarmenn séu
þó vitsmunaverur, verður mér á
að spyrja:
Hvort sitja þeir á vitinu?
HÖGNI HREKKVÍSI
C) 1976
McNaughl
Svndirate, Inr.
„Ég fékk einkunnirnar mfnar i dag.
yfirfara þær.“
Högni er að
53? SIG6A V/öGA £
WEmúb.tltöA
ÁWAVlM'bOftdA
H1 SNÚOA Á S)AG
w
Odýr stereosett
og plötuspilarar með magnara og hátölurum.
Úrval ferðaviðtækja og kasettusegulbanda.
Margar gerðir bílasegulbanda fyrir kasettur og
áttarása spólur. Plötustatíf, töskur, hylki og
hreinsikasettur fyrir kasettur og áttarásasegul-
bönd. B.A.S.F. kasettur einnig cromdioxid
ódýrar segulbandspólur. Músikkasettur og átta-
rásaspólur gott úrval.
Póstsendum.
F. Björnsson. RadiRadíóverslun
Bergþórugötu 2, sími 23889.
OOÉL 214
§é ■
KOKKA
FÖTIN
komin aftur
íúrvali
V E R Z LU N I N
G Efsil
Við afgreiðum
litmyndir
yðar á 3 dögum
Þér notið Kodak filmu, við
gerum myndir yðar á Kodak
Ektaco/or-pappir og myndgæðin
verða frábær
Umboðsmenn um land allt
— áva/lt feti framar
HANS PETERSEN HF
Bankastræti 3 - S: 20313 Glæsibæ - S: 82590
7