Morgunblaðið - 13.02.1976, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRUAR 1976
Kiwanismenn afhenda geð-
deild FSA verðmæt tæki
Akureyri, 10. febrúar.
KIWANISKLUBBARNIR á Is-
landi efndu til almennrar fjár-
söfnunar á starfssvæðum sfnum
26. október 1974, sem þeir nefndu
K-dag og var helgaður málefnum
geðsjúkra og stuðningi við þá.
Þennan dag söfnuðust 3,2 miilj-
ónir króna að frádregnum kostn-
aði. Auk þess varð þessi dagur til
þess, að margir gáfu gerðverndar-
málum meiri gaum en annars
hefði orðið, og hann stuðlaði að
meiri skilningi almennings á
þörfum og málefnum geðsjúkra.
M.a. var Geðverndarfélag Akur-
eyrar stofnað í beinu framhaldi
af K-deginum.
Forvígismenn Kiwanisklúbb-
anna eru nú um þessar mundir að
koma söfnunarfénu i gagnið og
afhenda jafngildi þess. Fyrirhug-
að er að 2,6 milljónir króna renni
til Kleppsspitala til þess að koma
upp vinnuaðstöðu fyrir sjúlkinga.
Þar verða framleiddir steinar til
húsagerðar og sú starfsemi stuðl-
ar að því, að sjúklingar finni bet-
ur en eila, að þeir geta verið og
eru nýtir þjóðfélagsþegnar.
Til geðdeildar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri runnu
600 þús. krónur, sem varið var til
kaupa á kvikmyndatökuvél og
myndsegulbandi, sem eru i senn
mjög þarfleg kennslu- og lækn-
ingatæki við meðferð geðsjúkra
og til þjálfunar i mannlegum sam-
skiptum.
Menn úr stjórn Kiwanisum-
dæmisins á Islandi og fulltniar
frá Kiwanisklúbbunum á svæðinu
frá Siglufirði til Neskaupstaðar
(Óðinssvæðinu) afhentu Geð-
deild FSA þessi tæki í hádegis-
verðarboði að hótel KEA í dag og
bættu meira að segja sjónvarps-
viðtæki við sem gjöf frá sér. Eyj-
ólfur Sigurðsson, fyrrverandi um-
dæmisstjóri, skýrði frá söfnun-
inni á K-deginum, tilgangi hennar
og árangri, en núverandi umdæm-
isstjóri, Ásgeir Guðlaugsson, af-
henti tækin. Brynjólfur Ingvars-
son læknir veitti þeim viðtöku
fyrir hönd Geðdeildarinnar og
þakkaði þau og annan veittan
stuðning.
Hér á landi eru nú starfandi
Kiwanisklúbbar með nær 1000 fé-
lagsmönnum. Sv. P.
FYRIR VIÐRAÐANLEGT
Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki
ó öllum aldri. Novis er skemmtilega
einföld og hagkvæm lausn fyrir þó, sem
leita að litríkum hillu- og skópasamstæðum,
sem byggja má upp í einingum, eftir hendinni.
Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ.
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf.
J L Húsið
Híbýlaprýði
Dúna
Akranes: Verzl. Bjarg
Borgarnes: Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Verzl. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
Siglufjörður: Bólsturgerðin
Akureyri: Augsýn hf.
Húsavík: Hlynur sf.
Selfoss: Kjörhúsgögn
Keflavík: Garðarshólmi hf.
FRAMLEIÐANDI:
KRiSTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HUSGAGNAVERKSMIÐJA
Hér fara á eftir samtöl,
sem Jón Kristján
Sigurðsson nemandi í 4.
bekk Gagnfræðaskólans
við Laugalæk, sem var í
starfsfræðslu hjá
Morgunblaðinu, átti við
nokkra verkamenn við
höfnina.
I
Skóla-
fólk
hjá
Morgun
blaðinu
„Það verður ör-
ugglega verkfall”
Eins og fram hefur komið í
fréttum hafa verkalýðsfélögin
boðað verkfall frá og með
þriðjudeginum 17. febrúar,
hafi samningar ekki náðst. Af
því tilefni langaði mig að
skreppa og heyra hljóðið í
hafnarverkamönnum. Fara við-
tölin við þá hér á eftir. Fyrst
gekk ég að verkamönnum hjá
Ríkisskip, sem voru að vinna
við uppskipun við strandferða-
skipið Heklu. Þar voru menn
mjög tregir við að svara spurn-
ingum og bentu hver á annan.
Hins vegar var hljóðið mun
betra hjá verkamönnum Eim-
skipafélagsins. Þeir voru mjög
fúsir til að svara spurningum
mínum. Fyrst tók ég viðtal við
Steindór Finnbogason sem var
að spúla bakkann við Faxa-
skála.
— Steindór, spáir þú að til
verkfalla komi 17. febrúar n.k ?
— Það hlýtur að vera, eins og
máiin standa í dag.
— Ef til verkfalls kemur,
heldur þú að það standi lengi?
Eftir stutta umhugsun, sagði
hann: Ég spái því að verkfallið
standi í einn mánuð
— Hvaó eru laun verka-
manna miðað við 40 stunda
vinnuviku?
Hann svaraði þvi til að laun
verkamanns í dag væru 13.050
kr. á viku með 40 stunda vinnu
viku.
— Hvað telur þú að sæmileg
laun verkamanns eigi að vera i
dag?
Hann taldi að sæmileg laun
verkamanns i dag ættu að vera
150 þúsund á mánuði, svo mað-
ur gæti eitthvað veitt sér.
Síðan lá leiðin upp á kaffi-
stofuna. Þar sátu menn við
kaffisopann, og voru að ræða
um daginn og veginn. Ég tók
Pálma Guðmundsson tali og
spurói hann nokkurra spurn-
inga.
— Telur þú að til verkfalls
komi 17. febrúar?
Hann sagði að til verkfalls
kæmi alveg örugglega af því að
illa hefði verið haldið á málun-
um. Pálmi sagðist hafa unnið
við höfnina í 45 ár, og ætti þá að
vera vanur ýmsu.
Guðbrandur Elíasson var
þarna nærstaddur og sagði að
ef til verkfalls kæmi, stæði það
ekki lengur en I tvo sólar-
hringa. Þá spurði ég Guðbrand,
hvað hann teldi, að laun verka-
manna ættu að vera i dag?
Hann sagði að launin ættu ekki
að vera undir 100 þúsund á
mánuði.
— Var betra að lifa af laun-
um verkamanns fyrir um 20
árum?
— Mikil ósköp, maður gat
veitt sér miklu meira í þá daga.
Hann bætti því við, að hann
hefur unnið sem verkamaður í
tæplega 40 ár, og sagði einnig
að kaupið um 1931 hefði verið
um ein króna og tuttugu aurar
á tímann.
Á leiðinni eftir hafnarbakk-
anum mætti ég Guðmanni Heið-
Guðbrandur Ellasson
Pálmi Guðmundsson
Guðmann Heiðmarsson
Steindór Finnbogason
marssyni. Hann sagði að af-
koma verkamanns í dag væri
hlægileg í einu orði sagt. Árs-
laun verkamanns með yfir-
vinnu og næturvinnu hjá Eim-
skip væru um ein milljón, og
þegar maður er búinn að borga
lífsnauðsynjar er ekkert eftir.
Maður hefur unnið fyrir þjóð-
félag, sem gefur verkamönnum
engan arð, sagði Guðmann að
lokum.
Af þessu spjalli má sjá, að
verkamaðurinn er ekki of sæll
af launum sinum, en vió skul-
um vona að á þessu verði breyt-
ing í framtíðinni.
Jón Kristján Sigurðsson.