Morgunblaðið - 13.02.1976, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRUAR 1976
17
LAHDSMALAFELABIÐ VOHÐUR
13. lebrúar 1926 - 50 ðPð - 13. febrúar 1976
Ólafur Thors,
Vörður 25 ára:
„VARÐARFÉLAGAR hafa
aldrei þurft að óttast að fram-
sögumenn á Varðarfundum
færu vísvitandi rangt með
staðreyndir eða reyndu að
villa mönnum sýn. En þeim er
Ijóst að öllum getur yfirsézt.
Þeim nægir því ekki að vita,
að forystumenn flokksins
þurfi, eða hafi þurft, að taka
ákvörðun t stóru máli. Þeir
krefjast jafnt fyllstu upplýs-
inga um öll málsatriði sem
tillagna I málinu. Stðan fella
þeir dóminn. Þeir fagna þvt
heilshuga ef þeir geta fallizt á
tillögur forystumannanna.
Ella segja þeir einarðlega en
þykkjulaust stnar skoðanir.
Séu málalokin þegar ráðin,
breiðir persónulegt traust og
velvild oftast yfir það, sem
mönnum kann að hafa þótt
misráðið af hendi forystufiðs-
ins."
Bjarni Sigurðsson,
Vörður 30 ára:
„ÞAÐ er sómi fyrir hvern
mann og hverja konu, að vera
félagi t Verði. Það er mikil
sæmd fólgin t þvl að skipta
sér í flokk til þess eingöngu
að vinna að hagsmunamálum
ættjarðarinnar fögru og
góðu. Mennirnir, sem
eitthvað er t spunnið, gera
það, um leið og þeir fyrirlíta
dansinn um „gullkálfinn".
Þeir ganga t félagið til þess að
vinna gegn hinum illu öflum,
sem hér á landi og úti um
heim ógna frelsi og farsæld
manna. Þeir gera það fýrir
sjálfa sig og um leið vinna
þeir að dýrmætri hugsjón
fyrir sig og aðra."
Bjarni Benediktsson,
Vörður 40 ára:
„Á VETTVANGI Varðarfélags-
ins verður náð til fleiri kjós-
enda en I nokkru öðru stjórn-
málafélagi. Þar fara fram þær
umræður um stjórnmál, sem
úrslitum geta ráðið um vel-
ferð tslenzku þjóðarinnar. En
áhrif féiagsins fara að sjálf-
sögðu eftir áhuga félags-
manna. Megi sá áhugi ætið
vera vakandi, svo að Vörður
haldi forystu sinni t sókn til
heilla og hamingju lands og
þjóðar."
Elzta og stærsta
stjórnmálafélag
landsins
ÞEGAR Landsmálafélagið Vörður var
stofnað 13. febrúar 1926 vissi
enginn fyrir um langllfi þess eða
farsæl störf. Þó benti allur
aðdragandi, vandaður málatilbúnað-
ur og traust forysta til þess, að ekki
væri tjaldað til einnar nætur, heldur
skyldi nú lagt upp I langferð. Sú
hefur og raunin orðið á, þar sem
félagið hefur nú að baki sér 50 ára
starfsskeið, og mun óhætt að telja
það langferð mælda á aldursstiku
Islenzkra stjðrnmálasamtaka.
I dag fagna sjálfstæðismenn I
Reykjavlk hálfrar aldar afmæli
Landsmálafélagsins Varðar.
Þetta stjórnmálafélag stendur
föstum fótum I félagsllfi höfuð-
staðarins og á að baki sér þróttmik-
inn og farsælan starfsferil, alla tlð
frá stofndegi þess.
Hér 1 Reykjavlk var Vörður I fyrstu
eina félag Sjálfstæðisflokksins. og
ávallt hefir hann, að öðrum félögum
flokksins ólöstuðum, verið nokkurs
konar miðstöð.
1) Að byggja upp þjóðlega og vlð-
sýna framfarastefnu.
2) Að styðja og efla atvinnulff
landsmanna á grundvelli einstakl-
ingsf ramtaks.
3) Að sllta sambandinu við Dani
svo fljótt sem auðið væri, að ísland
tæki öll sln mál I slnar hendur, að
ísland yrði lýðveldi þegar að sam-
bandsslitum fengnum, og að haft
væri vakandi auga á heiðri og hags-
munum landsins út á við.
jafnan starfað hlið við hlið iðnaðar-
maðurinn og verkamaðurinn,
verzlunarmaðurinn og sjómaðurinn,
bóndinn og útgerðarmaðurinn, kenn-
arinn og námsmaðurinn, af miklum
einhug og einlægni. I röðum hinna
ófélagsbundnu sjálfstæðismanna eru
sams konar borgarar. Fólk, sem ekki
lætur draga sig I dilk eftir stétt eða
stöðu, hin raunverulega alþýða
manna I þessu bæjarfélagi og land-
inu.
félagið haldið uppi margþættu
félagsllfi og starfi slðastliðin 50 ár.
Það leikur ekki á tveimur tungum,
að forysta Varðar I stjórnmálabarátt-
unni hér I höfuðstaðnum, og raunar
að verulegu leyti vlðar, með þvl að
marka og kynna stefnu flokksins,
hefur verið næsta giftudrjúg. Hefur
það stafað af þvl hvoru tveggja, að I
Verði hefur jafnan verið fyrir hendi
ekki einungis sú varðveizlukennd
Ihaldsseminnar, sem er nauðsynleg I
hverjum stjórnmálaflokki, sem ekki
vill rasa um ráð fram og láta
gamminn geysa inn á óþekktar tor
færur, ef það aðeins félli vel I eyrum
fólksins, heldur hefur þar jafnan búið
llka vlðsýni og skilningur á nauðsyn
breytinga og nýrra stefnumiða og sá
skilningur þrýst sér fram á yfirborðið
og komið oftlega fram I verki, að þvl
aðeins væru þeir eldri á réttri leið, að
æskan vildi rétta þeim örvandi hönd.
Þvl hefur það orðið, að Vörður hefur
jafnan I starfi slnu verið tilbúinn til
Forystumenn Sjálfstæðisflokksins á Varðarfundi: Talið frá vinstri: Jón Pálmason frá Akri, Gunnar E.
Benediktsson fimmti form. Varðar, Gunnar Thoroddsen, Vala Thoroddsen, Jóhann Hafstein, Eyjólfur
Jóhannsson, nlundi form Varðar, Bjarni Benediktsson, Sigríður Björnsdóttir, Ragnheiður Hafstein
og Ólafur Thors.
Fyrsta stjórn Varðar 1 926—27.
Standandi: Sigurgísli Guðnason og Haraldur Jóhannesson.
Sitjandi: Guðm. Ásbjörnsson Magnús Jónsson form , frú
Guðrún Jónasson Á myndina vantar þau Sigurbjörgu Þor-
láksdóttur og Björn Ólafsson ráðherra
Vörður er eins konar ættfaðir og
heimilisfaðir sjálfstæðisstefnunnar I
Reykjavik. Hin félögin eru beint og
óbeint komin út af honum, og margir
dugmestu starfskrafta I þeim félög-
um eru félagar I Verði eftir sem áður.
Á þessum merku tlmamótum er
þess að minnast, að þetta félag er og
hefur verið stærsta stjórnmálafélag
Reykjavlkur og allrar islenzku
þjóðarinnar, og þar hefur fána frelsis
og sjálfstæðis verið haldið hæst og
fræknast á loft inn á við og út á við.
Á fundum þessa félags slðustu 50
árin hafa fyrstu umræður oft farið
fram um ýms merkustu framfaramál
Islenzku þjóðarinnar.
Stefna Varðarfélagsins I þjóðmál-
um hefur frá byrjun verið I fullu
samræmi við stefnu flokksheildar-
innar, stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Strax I upphafi var þetta kjarninn I
stefnu Varðarfélagsins:
4) Að efla og styrkja höfuðat-
vinnuvegi vora, sjávarútveg, land-
búnað, iðnað og verzlun.
5) Að vinna að andlegum skilningi
og samúð milli verkamanna og at-
vinnurekenda og réttlátum sam-
skiptum þeirra.
6) Að þegnarnir njóti réttlætis og
sanngirni I öllum skiptum slnum við
rlkisvaldið og það opinbera. og að
sama regla gildi I samskiptum þeirra.
7) Að efla hag Reykjavlkur og
vinna að alhliða framförum hennar á
sviði atvinnumála, fjármála og
menningarllfs.
í sambandi við stofnun og störf
Varðarfélagsins er vert að rifja það
upp hvaða fólk það var I raun oo
sannleika. sem aðhylltist Sjálfstæð-
isflokkinn og gekk I félagið.
f Varðarfélaginu eru og hafa verið
frá upphafi konur og menn úr öllum
stéttum, fátækir og rikir. Þar hafa
Þeir islendingar, sem ekki hafa
)skað þess, að þjóð þeirra sé höfð
sem tilraunadýr fyrir framandi stefn-
ur hinna ýmsu „isma," sóslalisma,
nasisma, kommúnisma o.s.frv., eða
stefnur, sem þegar hafa kollsiglt sig
eða eru á leiðinni að gjöra það.
Heldur vilja byggja upp land sitt og
bæjarfélag I friði og fullu frelsi, á
lýðræðisgrundvelli, I anda sjálf-
stæðisstefnunnar á fslandi.
Menn, sem virða raunverulega
persónuleika einstaklingsins og
framtak það og skapandi mátt. er
hann býr yfir, og finna sárt til. ef
rlkisvaldið misbeitir eða misbýður I
einhverri mynd þvl frelsi, er reynsla
og þróun aldanna hefur fært þeim I
skaut.
Til þess að vinna að og koma I
framkvæmd einstökum áhugamálum
slnum og stefnumálum hefur Varðar-
þess að taka upp ný baráttumál og
verið opinn fyrir nýjum viðhorfum,
ekki slzt ef þau hafa haft fylgi hinnar
yngri kynslóðar.
Þannig hefur Vörður vlsað þá leið.
þar sem varðveizluhneigð og fram-
sækni fara saman. Það er sú braut.
sem liggur til farsældar hverri þjóð.
Það skiptir þvi miklu, hvert gengi
Vörður hefur.
Allt frá stofnun hefur Vörður verið
áhrifamikill I þjóðfélaginu. Hann
hefur verið ein meginstoð Sjaíl-
stæðisflokksins alla tlð. Ekkert
landsmálafélag hefur meiri áhrif á
Islenzk stjórnmál. Þess gætir á öllum
sviðum þjóðllfsins. Það hefur ekki
einungis verið gæfa Sjálfstæðís-
flokksins heldur þjóðarinnar I heild,
að Vörður hefur starfað af svo mikl-
um þrótti á mestu umbreytingatlm-
um, sem yfir landið hafa gengið.
Á ÞESSUM tímamótum Landsmálafélagsins Varðar
flyt ég félaginu heillaóskur og þakkir fyrir ötult og
árangursríkt starf f þágu sjálfstæðisstefnunnar og
Sjálfstæðisflokksins í 50 ár.
Varðar-félagið hefur löngum verið sá vettvangur
sjálfstæðismanna, þar sem upplýsingar, fræðsla,
skoðanaskipti og stefnumótun hefur farið fram.
Forystumenn í þjóð- og borgarmálum hafa þar
kynnt viðfangsefnin og afstöðu sína til þeirra, og
um leið kynnzt og tekið mið af skoðunum Varðar-
félaga.
Þá hefur Vörður ekki síður verið vettvangur, þar
sem sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa tengzt
vináttuböndum og eflt þannig samtakamátt sinn.
Landsmálafélagið Vörður hefur lagað skipulag
sitt að breyttum lffsháttum, fjölgun borgarbúa og
stækkun borgarinnar og tengt félög í hverfum
borgarinnar til starfs innan sinna vébanda. Hefur
sú nýskipan þegar fest rætur og sannað gildi sitt.
Vörður hefur með þessum hætti tryggt sér lífvæn-
legan starfsvettvang enn um langa framtíð og mun
vonandi reynast áfram sú lyftistöng hugsjónum
Sjálfstæðisflokksins, sem verið hefur um hálfrar
aldar skeið.