Morgunblaðið - 13.02.1976, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1976
19
i núlifandi
irSar. GuS-
nediktsson
Stefðn A.
Úr einni af hinum fjölmennu sumarferSum VarSar. Hér er komiS viS I
Skálholti.
FJÓRIR FYRRVERANDI FORMENN VARÐAR — TaliS frá vinstri: Höskuldur Ólafsson, Bjarni Benediktsson,
Sveinn GuSmundsson og Þorvaldur GarSar Kristjánsson.
Austurvöll frá 1941 —1956. Valhöll frá
1956—1971, Galtafell frá
1971 —1975 og frá nóvember s.l. I
Sjálfstæðishúsinu við Bolholt
Það átak, sem gert var með stofnun
Varðarhússins og þeirri lausn á hús-
næðisvandræðum félagsins, sem því
fylgdi, verður seint metið til fulls, og ef til
vill aldrei að verðleikum
Engum mun dyljast, að þegar tekið var
til starfa I gamla Varðarhúsinu, hófst nýr
þáttur I félagslífi og félagsstarfi Varðar-
félagsins. Félagið hafði eignazt heimili.
Þýðingarmesta ytra vopn I baráttutækni
sinni Fyrir þetta eitt, útaf fyrir sig, þótt
ekki væri fleiru að fllka, stendur félagið i
ævarandi þökk við hinn látna formann
sinn, Guðmund heitinn Jóhannsson,
kaupmann, sem átti frumkvæðið að
þessu máli — I hinni framúrskarandi
ötulu forystu, sem hann veitti félaginu
hinn stutta tlma, sem hans naut við.
SKIPULAGSMÁL
Á fyrsta ári Varðarfélagsins, 18 des
1926, er rætt um stofnun ungmenna-
deildar innan Varðarfélagsins, og átti for-
maður félagsins. Magnús prófessor Jóns-
son, frumkvæði að þv! Eftir tilmælum
Jóns Þorlákssonar var svo málinu visað til
félagsstjórnarinnar og henni falin fram-
kvæmd I þessu máli.
Þessi ályktun Varðarfundar varð upp-
hafið að stofnun Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna, sem er stofnað ári
siðar en Vörður, og hefur jafnan starfað
við hlið Varðar og þessi tvö félög haldið
fjölda sameiginlegra funda, áður en
önnur félög Sjálfstæðisflokksins urðu
siðar stofnuð hér i Reykjavik — og báru
sameiginlega hita og þunga af starfsemi
Ragnar Júlíusson
og svo er enn eftir þessa breytingu.
Félagar Varðar eru nú um 5000."
Hvaða verkefni er helzt á döfinni
hjá Verði um þessar mundir?
„Verkefni tengd 50 ára afmæli
félagsins skipa nú mest rúm f starf
inu og ber þar hæst undirbúning
afmælishátfðar Varðar, sem haldin
verður að Hótel Sögu 9. aprfl n.k. og
útgáfu sérstaks afmælisrits. Laugar-
daginn 21. febrúar n.k. gengst Vörð-
ur fyrir ráðstefnu um verðbólguna og
fjalla þar ýmsir kunnir sérfræðingar
um þann vanda, sem við er að eiga.
Þá vinna nefndir að undirbúningi
Sjálfstæðisflokksins hér i borg um langt
skeið
Þetta var einn þáttur i starfsemi Varðar,
sem mótaðist á fyrstu árum félagsins, er
féll undir skipulagsmál þess stjórnmála-
flokks og stjórnmálastefnu, er félagið
studdi.
Við stofnun Varðar urðu þáttaskil i
vinnubrögðum við val frambjóðanda til
bæjarstjórnar og alþingiskosninga hér í
Reykjavik
Áður höfðu verið kvaddir saman fundir
borgaranna til að ákveða framboðin, oft
misjafnlega vel sóttir. Eftir stofnun félags-
ins voru á félagsfundum kjörnar kosn-
inganefndir. til að undirbúa framboð,
sem síðan voru borin undir félagsfundi,
— og þvi Varðarfélagið, sem raunveru-
lega gekk frá framboði og undirbjó kosn-
ingu þeirra manna úr þeim stjórnmála-
flokki, sem félagið fylgdi. —
Þetta var fyrsti þátturinn i þeim félags-
málum, er ætíð hafa verið fyrsta og aðal
verkefni Varðarfélagsins. Þetta skipulag
náði að visu skammt, en má þó teljast
visirinn að þvi, er siðar varð í miklu stærri
og voldugri stll, og átti rætur sinar að
rekja til hugkvæmni og skipulagskæfi-
leika Guðmundar heitins Jóhannssonar.
FORINGJARÁÐ
VARÐAR
Það var Guðmundur sem átti frum-
kvæðið að stofnun foringjaráðs Varðarfé-
lagsins 1929 siðar tulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavik, og hverfa-
skiptingu bæjarins við kosningar.
Með þessu fyrirkomulagi efldist félagið
og varð meir og meir að enn voldugrá
baráttutæki ! kosningum en það áður
hafði verið, og má minnast þess, að
þegar þessu fyrirkomulagi var fyrst beitt
við kosningar, töldu andstæðingar Varðar
sig hafa tapað kosningunum vegna þess,
hvað þetta skipulag hefði reynzt sigur-
sælt
Stofnun foringjaráðs Varðar og hverfa-
skiptingin árið 1929 var einn merkasti
þátturinn. í starfsemi félagsins, allt frá
stofnun þess.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
STOFNAÐUR
Árið 1929 gerist enn einn merkilegur
atburður í sögu Varðarfélagsins, en það
var, þegar Sjálfstæðisflokkurinn var
stofnaður og þeir, sem fylgt höfðu Frjáls-
lynda flokknum að málum gengu i
Varðarfélagið
Við þessa pólitisku breytingu i landinu,
efldist að sjálfsögðu Varðarfélagið að
mun að félagatölu og starfskröftum
SAMSTARF
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA
Eftir að sjálfstæðisfélögin I Reykjavík
voru orðin fjögur, myndaðist margþætt
og náið samstarf þeirra á milli innan
vébanda Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna i Reykjavik.
Á hálfrar aldar afmæli elzta félagsins,
Varðar, þykir hlýða að vikja nokkrum
orðum að þessu samstarfi og þeim merka
þætti, sem Vörður hefir átt í þvi Meðan
Vörður var enn eina sjálfstæðisfélagið,
var stofnað foringjaráð innan vébanda
þess, sem skýrt er frá, en að vissu leyti
má segja, að foringjaráðið hafi verið fyrir-
rennari Fulltrúaráðsins.
Þá er þess einnig að minnast, að for-
vigismenn í Verði áttu sinn þátt i þvi, að
stofnað var félag ungra sjálfstæðismanna
i Reykjavik, Heimdallur Það var þegar á
fyrsta starfsári Varðarfélagsins, 18. des.
Rætt við Ragnar Júlíusson,
formann VARÐAR
einstakra þátta s.s. spilakvölda og
VarSarferðar t vor. Auk þess starfs.
sem fram fer hjá Verði sjálfum, halda
hverf afélögin t hinum einstöku
hverfum uppi öflugri félags- og
fundastarfsemi."
Hér fyrr t viðtalinu sagðir þú að
hlutverk stjórnmálafélaga hefSi
breytzt mjög frá þvi. sem áður var.
Hvað er það einkum sem hefur
breytzt?
„Þýðing stjórnmálafélaganna sem
stuðningsliðs I kosningabaráttu
hefur ávallt verið mikilvægt og er
það enn. En hitt er Ijóst að með
auknum áhrifamætti fjölmiðla og
meira upplýsingastreymi milli stjórn-
málamanna og fjölmiðla hefur þýð-
ing stjórnmálafélaganna sem
umræðu- og upplýsingamiðils
minnkað. Það er vart við öðru að
búast en að þegar búið er að ræða
ákveðið mál fyrst t rikisstjórn, síðan
á Alþingi og þvi næst i fjölmiðlum að
flest markvert, þvl máli tengt, hafi
komið fram. Almennur stjórnmála-
fundur haldinn i framhaldi af þeim
stigum, sem ég taldi upp, vekur þvi
minni áhuga og athygli i dag, en fyrr
á árum."
Nú heyrist oft haft á orði að litil
tengsl séu á milli hins almenna kjós-
anda og kjörinna fulltrúa. Hver er
þin skoðun á þessu?
„Ég er sammála þvi að almennt er
samband stjórnmálamanna og
almennings ekki nógu mikið. Sjálf-
stæðisflokkurinn tók upp þá
nýbreytni fyrir nokkrum árum að
hafa viðtalstima þar sem alþingis-
menn og borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins eru til viðtals og eru þessir
viðtalstimar opnir öllum."
Hálf öld er nú liðin stðan Lands-
málafélagið Vörður var stofnað og
þvi spurðum við Ragnar Júliusson,
formann Varðar, hvað honum væri
efst i huga á þessum timamótum?
„Ég á þá ósk eina til handa Verði á
þessu hálfrar aldar afmæli félagsins
að starfi þess megi áfram fylgja gifta
og heill á ókomnum árum. Félagar
Varðar hafa á þessum 50 árum
myndað skjaldborg um sjálfstæðis-
stefnuna og i krafti hennar hefur
Vörður leitt fjölmörg hagsmunamál
þjóðarinnar fram til sigurs. Til þessa
dags hefur saga Varðar verið saga
glæstra sigra. Megi svo enn verða
um alla framtið."
1 926, rætt um stofnun ungmennadeildar
innan Varðarfélagsins, og mun þessi hug-
mynd hafa orðið fyrirrennari að stofnun
Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis-
manna, þann 16. febr. 1 927.
Milli Varðar og Heimdallar hófst brátt
náið samstarf.
Það var svo löngu seinna, þegar þriðja
félagið, Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt,
var komið til sögunnar, og skömmu eftir
að stofnað var Málfundafélagið sjálf-
stæðisverkamanna, Óðinn, að stofnað er
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Reykja-
vik, með reglugjörð, sem samþykkt var á
foringjaráðsfundi 19 des 1938
Samstarf sjálfstæðisfélaganna innan
vébanda Fulltrúaráðsins hefur frá önd-
verðu verið með miklum ágætum, en að
sjálfsögðu hlaut það ekki hvað sizt að
byggjast á elzta félaginu, sem á sinn hátt
mátti teljast einskonar forustufélag hinna.
Um flest meirihátta stórræði hafa sjálf-
stæðisfélögin ætið haft fullkomna sam-
vinnu Þannig hafa þau, þegar meiriháttar
stjórnmál hafa verið á döfinni, sjálf-
stæðismál, utanrikismál, stjórnarmyndan-
ir o fl Alltaf jöfnum höndum haldið
sameiginlega fundi til þess að efla bar-
áttusveitina sem mest. Fyrir allar
kosningar, bæði iil alþingis- og bæjar-
stjórnarkosningar, hafa alltaf verið
haldnir sameiginlegir fundir, jafnframt
þeim félagsfundum, sem félögin hafa
haldið hvert út af fyrir sig Hafa slikir
sameiginlegir kosningafundir verið gifur-
lega sterkur þáttur i því að efla samtök
sjálfstæðismanna i baráttunni og fylkja
liði til úrslitaorrustu
Naumast verður rakin saga eins sjálf-
stæðisfélaganna i Reykjavik, án þess að
hinna sé um leið minnzt Þess vegna er
ekki hægt að minnast Varðar, á hálfr-
araldar afmælinu, án þess að menn geri
sér grein fyrir hinu mikilvæga samstarfi
allra félaganna innan vébanda Fulltrúa-
ráðsins.
Það er því ekki hér rakin saga hinna
mörgu sameiginlegu mála sjálfstæðis-
félaganna, enda er margt af þvi leyndar-
dómur þeirra, sem ekki verður sagður út
fyrir þeirra vébönd. En Landsmála-
félaginu Verði ber að þakka forustuhlut-
verkið og þann mikla þroska, sem það
félag lagði til grundvallar hinu heillarlka
samstarfi sjálfstæðisfélaganna innan
vébanda Fulltrúaráðsins.
STIKLAÐ Á STÓRU
I FÉLAGSSTARFI
VARÐARFÉLAGSINS
Nefna má hinn vinsæla sumarskemmti-
stað á Eiði i Mosfellssveit, en þar voru
haldnar mjög fjölmennar útisamkomur á
árunum fyrir heimsstyrjöldina. sem Reyk-
vikingar, Hafnfirðingar og fólk úr
nágrannabyggðunum sótti Segja má, að
fyrstu sextán árin hafi starfið eingöngu
varið fólgið i fundahaldi og kosninga-
undirbúningi. Eftir það verður félagsstarf-
semin fjölþættari. Hlutaveltur, sem félag-
ið hélt voru mjög vinsælar meðal bæjar-
búa, en þær lögðust niður á
skömmtunarárunúm, þegar ekki var
unnt að vanda nægilega vel til þeirra.
Félagið tók að halda jólatrésskemmtanir
fyrir börn félagsmanna Þær náðu mikl-
um vinsældum, féllu síðar niður en voru
endurvaktar á siðasta ári Þá hefur félagið
gengizt fyrir skemmtikvöldum og spila-
kvöldum, eitt sér eða sameiginlega með
hinum sjálfstæðisfélögunum i Reykjavik
Um málefni Varðar hefur áður verið
fjallað, en fundir hafa einnig verið haldnir
með hinum félögunum og fulltrúaráðinu
Framhald á bls. 14
50 ára afmælishátíð
VARÐAR 9. apríl n.k.
HÁLFRAR aldar afmælis Landsmálafélagsins Varðar verður sérstaklega
minnzt síðar f vetur. Vi8 snerum okkur til Guttorms Einarssonar, formanns
hátfðarnefndar Varðar, og báðum hann aS segja okkur með hvaða hætti
afmælisins yrði minnzt.
Föstudaginn 9. aprfl n.k. verSur efnt til afmælishátfðar I Súlnasal Hótel
Sögu og sagði Guttormur að meðal dagskrárliða á hátiðinni yrði ávarp
formannSjálfstæðisflokksins, Hallgrfmssonar, flutt yrði smá ágrip af sögu
Varðar, sem Ragnar Júlfusson, formaður Varðar.flytti, nokkrir Varðarfélagar
yrðu heiðraðir og þeim veitt heiðursmerki Varðar, þá yrðu skemmtiatriði og
dans.
Unnið er nú að samantekt afmælisrits f tilefni af 50 ára afmæli Varðar og
er gert ráð fyrir að það komi út fyrir afmælishátfðina, 9. aprfl n.k. Rit þetta
verður vandað bæði að efni og útliti. Einnig verður f tilefni af afmælinu
sleginn sérstakur minnispeningur úr silfri. Alls verða gefnir út milli 400 og
600 eintök af þessum peningi. Á framhlið peningsins verður mynd af fálka og
nafn félagsins en á bakhliðinni heiðursmerki Varðar og kjörorð Varðar: „Gjör
rétt — þol ei órétt." Peningur þessi verður m.a. til sölu á afmælishátfðinni.
Að lokum kvaðst Guttormur vilja hvetja allt sjálfstæðisfólk til að mæta á
afmælishátfðina og minnast með þvf margra mikilsverðra sigra fyrri ára.