Morgunblaðið - 13.02.1976, Side 21

Morgunblaðið - 13.02.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRUAR 1976 21 Amman (Björg Baldvinsdóttir), Mamman (Olöf Jónsdóttir), Rauð- hetta (Ingibjörg Aradóttir) og Skógarvörðurinn (Gestur E. Jónasson). Leikfélag Akureyrar sýnir „Rauðhettu” LAUGARDAGINN 14. febrúar Trumsýnir Leikfélag Akureyrar barnaleikinn „Rauðhettu" eftir Évgení Schwartz. Er leikritið byggt á hinu alkunna ævintýri um Rauðhettu og úlfinn. Leikstjóri er Þórir Steingríms- son, leikmyndina gerir Hallmund- ur Kristinsson og Gunnar Tryggvason sér um tónlistina. Stefán Baldursson þýddi leikritið, en Kristján frá Djúpalæk gerði söngtextana. Með helztu hlutverk fara: Ingi- björg Aradóttir (Rauðhetta), Marinó Þorsteinsson (Úlfurinn), Aðalsteinn Bergdal (Refurinn), Saga Jónsdóttir (Hérinn), Björg Baldvinsdóttir (Amman) ogGest- ur E. Jónasson (Skógarvörður- inn). Atómstöðin frum- sýnd 1 Varmahlíð Mælifelli 11. febrúar. 1 GÆRKVÖLDI frumsýndi hið unga Leikfélag Skagfirðinga sjöunda verkefni sitt, „Atómstöð- ina“ eftir Halldór Laxness, ( Mið- garði f Varmahlíð við góða aðsókn og frábærar undirtektir leikhús- gesta. Magnús Jónsson, sem kunnur er af leikstjórn og kvik- myndagerð, er leikstjóri og er óhætt að fullyrða, að starf hans með Leikfélagi Skagfirðinga undanfarnar vikur hefur borið mikinn og góðan árangur. Allir 6 þættir Atómstöðvarinn- ar, sem stundum er nefnd því hugþekka nafni „Norðan- stúlkan", skiptast í 4—6 atriði. Gekk frumsýningin þó mjög fljótt og gersamlega snurðulaust, enda auðfundið, að leikstjórnin var örugg og ákveðin. Leikendur kunnu hlutverk sín án undan- tekninga vel. Eru þeir þó sem að likum lætir fæstir sviðsvanir. Hér kemur og til létt og skemmtileg sviðsmynd Þráins Karlssonar og fálmlaus tök sviðsstjórnar, ljósa og hljóða. Var þetta eitt með öðru til þess, að gera sýninguna svo vel úr garði, sem frekast má vera. Leikur Hallveigar Thorlacius í titilhlutverki Norðanstúlkunnar var I senn festulegur og látlaus og má hún vera stolt af því, hve vel henni tókst að halda athygli sýningargesta óskertri frá uþp- hafi til enda. Hinum aðalhlut- verkunum gerðu þau Knútur Ölafsson (Búi Arland), Helga Kristjánsdóttir á Silfrastöðum (Frú Arland) og Pálmi Jónsson, (Organistinn) hin beztu skil um viðbragð, óróasálarinnar og kyrrð heimsflóttans. Mjög athyglis- verður var leikur Eyþórs Arna- sonar sem lék Guðinn Brilljantín og Öskars Magnússonar í gervi Útigangshrossa-Fals. Ritstjóri leikskrár, Hjörleifur Kristinsson, getur þess, að höfundur Atómstöðvarinnar sé eitt hið umdeildasta skáld. A það að minnsta kosti við til sveita. Viðfangsefni hans, ógnir kjaruorkuvopna og herseta á Islandi, eru jafnt i brennidepli nú og fyrir 30 árum þegar hann samdi Atómstöðina. En hið svo- nefnda Steinamál, þegar jarðneskar leifar listaskáldsins góða voru fluttar heim frá Dan- mörku, gefur verkinu nokkurn revíublæ. Þau ósköp og mistökin, þegar beinunum var bókstaflega talað rænt frá Bakka í öxnadal og flutt suður að Þingvöllum, eru flestum gleymd, nema okkur, sem þau atvik áhrærðu persónulega. Af því undanskildu eiga efni og boðskapur Atómstöðvarinnar enn brýnt erindi við Islendinga og má óhikað hvetja fólk til að fjöl- menna á sýningar Leikfélags Skagfirðinga. — Sfra Agúst. Ullarvörur fluttar út fyrir 1403 millj. 1975 Á árinu 1975 voru fluttar út ullar- vörur fyrir 1403 milljónir fsl. króna en árið 1974 voru fluttar út ullarvörur fyrir 838 milljónir króna. Séu þessar tölur færðar á meðalgengi hvers árs f dollurum nemur útflutningsverðmætið 7.6 millj. dollara 1974 og um 9 millj. dollara 1975, sem svarar til 20% aukningar. Þessar upplýsingar komu fram á fundi framleiðenda og útflytj- enda islenzkra ullarvara, sem haldinn var að tilstuðlan útflutn- ingsmiðstöðvar iðnaðarins sl. mánudag. Fundur þessi var haldinn til að kynna fyrirhugaðar aðgerðir í þágu þessa iðnaðar, svonefnt ull- ar- og skinnaverkefni. Með þessu verkefni er ætlunin að gera sam- Selja smokkfisk í beitu Siglufirði 10. feb. STALVlK var að landa hérna 60 tonnum eftir 6 daga úthald. Þá var Þormóður rammi að selja 25 tonn af smokkfiski í beitu til Patreksfjarðar en talsvert er til af smokkfiski hér. — m.j. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir. ræmt átak i markaðsmálum, hrá- efnismálum og aukinni fram- leiðni fyrirtækja til að auka arð- semi og úrflutning. Utflutnings- miðstöð iðnaðarins hefur nú ráðið til sín tvo starfsmenn til að sinna þessu verkefni. Útflutningur ull- arvara hefur aukizt ár frá ári og enn er fyrirsjáanleg aukning á næstu árum. Þess má geta að árið 1974 var útflutningur ullar- og skinnavöru um 54% af verðmæti útfluttra iðnaðarvara, sé ál ekki talið með. A síðastliðnu ári var velta 14 sauma- og prjónastofa, sem fram- leiða til útflutnings, milli 400—450 milljónir króna en það jafngildir verðmæti ársafla þriggja velbúinna skuttogara, að því er segir í fréttatilkynningu frá Útflutningsmiðstöð iðnaðar- ins. Við þessa framleiðslu starfa um 130 manns og nemur fjár- festing í þessum fyrirtækjum um 295 millj. króna. Af þessum tölum má vera ljóst, að smærri fyrirtæk- in í ullariðnaði leggja drjúgan skerf af mörkum til viðbótar út- flutningi stóru framleiðendanna, Álafoss og Iðnaðardeildar Sam- bandsins. Verð það sem fæst fyrir ullar- vörumar er nokkuð mismunandi eftir löndum. Á sl. ári voru fluttar út prjónavörur til Sovétrikjanna fyrir 487 milljónir króna og voru Jon Speight Ljóðatónleikar á Rauf- arhöfn og Húsavík HJONIN John Speight, bariton- söngvari, og Sveinbjörg Vil- hjálmsdóttir, pfanóleikari, halda tvenna tónleika á norðurlandi um næstu helgi. Fyrri tónleikarnir verða f félagsheimilinu á Raufar- höfn laugardaginn 14. febrúar klukkan 17 og þeir sfðari f félags- heimilinu á Húsavfk sunnudag- inn 15. febrúar klukkan 16. A efnisskrá eru lög eftir Eyþór Stefánsson, Arna Thorsteinsson, Emil Thoroddsen, Sigfús Einars- son, Schubert og fleiri. Þau hjón- in léku nýlega á Háskólatónleik- um og á tónleikum á vegum Tón- listarfélags Akureyrar. Þau eru bæði kennarar við Tónskóla Sig- ursveins D. Kristinssonar. það um 200 tonn. Til Bandaríkj- anna var flutt 21 tonn af prjóna- vörum fyrir 97 milljónir eða um helmingi hærra verð á hvert kíló en til Sovetríkjanna. Hins vegar benda nýlegar athuganir til þess að mun hagkvæmara sé fyrir fyr- irtækin að framleiða fyrir markað í Sovetrikjunum, þar sem Sovét- menn kaupa mikið í einu en inn- flutningur til Bandaríkjanna er í smærri stfl. Nægar kartöflur fram í júlí — ef staðið verð- ur við samninga KARTÖFLUSKORTÚR er nú vfða á meginlandi Evrópu og hafa rfkisstjórnir margra landa gripið til sérstakra ráðstafana til að hindra útflutning á kartöflum. Sem kunnugt er varð kartöflu- uppskera hér innanlands með minnsta móti s.l. sumar og er sú uppskera nú á þrotum hér sunn- anlands en gert er ráð fyrir að norðanlands endist uppskeran fram eftir aprflmánuði. Morgun- blaðið sneri sér til Jóhanns Jónas- sonar, forstjóra Grænmetis- verzlunar landbúnaðarins, og spurði hann, hvernig þessi kart- öfluskortur erlendis horfði við gagnvart Islendingum. Jóhann sagði að nú væru komnar á markað sunnanlands pólskar kartöflur, sem Grænmetisverzlun- in flutti inn í haust og hefur grip- ið til þegar islenzkar kartöflur hefur þrotið. Hjá Grænmetis- verzluninni í Reykjavík eru nú engar Isl. kartöflur til en áætlað er að um 50 tonn séu enn til fyrir austan Fjall. I Eyjafirði eru hins vegar til ísl. karöflur en þaðan er dreift kartöflum til Austur- og Framhald á bls. 27 Greinargerð LIU um sjómannadeiluna Morgunblaðinu barst f fyrradag eftirfarandi greinagerð frá Landssambandi fsl útvegsmanna um yfir standandi samningaum- leitanir. Greinargerð LlÚ. I tilefni yfirlýsingar formanns Sjómannasambands tslands i fjöl- miðlum um að ekki miði í sam- komulagsátt í kjaradeilu sjómanna við útvegsmenn vegna kröfu útvegsmanna um að sjó- menn taki þátt f olíukostnaði fiskiskipanna, vill samninga- nefnd útvegsmanna taka fram eftirfarandi: 1. I skýrslu tillögunefndar um sjóði sjávarútvegs og hluta- skipti er samkomulag milli nefndarmanna um verulega lækkun útflutningsgjalda til sjóða sjávarútvegsins, er munl valda verulegri hækkun fisk- verðs. Jafnframt er samkomu- lag um að endurskoða hluta- skipti til þess að gera út- gerðinni mögulegt að standa undir þeim kostnaði, sem Oliu- sjóður og Vátryggingasjóður áður stóðu undir. I þv; sam- bandi voru tvær leiðir taldar koma til greina, að draga olíu- kostnað af óskiptu aflaverð- mæti eða draga tiltekinn hundraðshluta frá aflaverð- mæti. misháan eftir stærð skipa en þessi leið jafngildir lækkun hlutaskipta. 2. A sáttafundi sunnudaginn 8. febrúar undirrituðu öll samtök sjómanna þ.e. Sjómannasam- band Islands, Farmanna- og fiskimannasamband Islands, Alþýðusamband Austfjarða og Alþýðusamband Vestfjarða og samtök útvegsmanna, þ.e. Landssamband ísl. útvegs- manna og Fél. ísl. botnvörpu- skipaeigenda, samkomulag um að breyta lausum og bundnum kjarasamningum í samræmi við tillögur sjóðanefndarinnar. 3. A átta sáttafundum sem staðið hafa i 31 klst., hafa samtök sjómanna ekki getað komið sér saman um hvora fyrr- nefnda leið skuli fara í gerð nýrra kjarasamninga og hefur samninganefnd útvegsmanna beðið án þess að nokkrar við- ræður hafi farið fram við hana um lausn málsins. Samninga- nefnd útvegsmanna hefur hins vegar lýst því yfir að hún telji báðar leiðirnar koma til greina, en sjómenn verði að koma sér saman um hvora leiðina skuli velja, þvi sömu skiptakjör verði að gilda innan sömu skipshafnar. 4. Samninganefnd útvegsmanna lýsir furðu sinni á þvi að nán- ast engar samningaviðræður hafi farið fram vegna inn- byrðis deilu sjómanna sjálfra, en þrátt fyrir það boða þeir til verkfalls er koma á til fram- kvæmda eftir 2 daga. Einnig fylgir eftirfarandi sam- komulag milli aðila og er það undirritað af Jóni Sigurðssyni f.h. Sjómannasambandsins, Ingólfi Stefánssyni f.h. Farmanna- og fiskimannasambandsins, Sigfinni Karlssyni f.h. Alþýðusambands Austurlands, Pétri Sigurðssyni f.h. Alþýðusambands Vestfjarða, Kristjáni Ragnarssyni f.h. Lands- sambands ísl. útvegsmanna og Ingimar Einarssyni f.h. Félagsísl. botnvörpuskipaeigenda: Sjómannasamband tslands, Alþýðusamband Vestfjarða, Alþýðusamband Austurlands og Farmanna- og fiskimannasam- band Islands fyrir hönd sjómanna og Landssamband islenzkra út- vegsmanna og Félag islenzkra botnvörpuskipaeigenda fyrir hönd útvegsmanna gera með sér samkomulag um eftirgreind atriði: 1. Þar sem rikisstjórnin hefur lýst þvi yfir að hún muni beita sér fyrir setningu laga og reglugerða í samræmi við til- lögur og ábendingar tillögu- nefndar um sjóði sjávarútvegs og hlutaskipti lýsa aðilar því yfir að þeir muni gera þá samninga sín á milli, sem nú eru lausir, um kjör sjómanna á grundvelli tillagna og ábendinga sem fram koma i skýrslu nefndarinnar dags. 19. janúar 1976. 2. Aðilar lýsa þvi enn fremur yfir að þeir muni beita sér fyrir þvi að heimildir verði veittar til þess að taka þegar upp samninga á þessum grundvelli um breytingar á þeim kjara- samningum aðila sem ekki hefur verið sagt upp með sama hætti og væru þeir lausir. 3. Aðilar þessa samkomulags gera ráð fyrir að rikisstjórnin láti fara fram sérstaka athug- un á kjörum áhafna og afkomu útgerðar á stærri togurum (þ.e. 500 brl. og yfir) við þessar breytingar. Athugun þessi verði gerð f samráði við samtök sjómanna og útvegs- manna og fulltrúa þeirra byggðarlaga sem sérstakra hagsmuna eiga að gæta, með það fyrir augum að tryggja at- vinnu sjómanna og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja á þess- um stöðum sbr. og bréf sjávar- útvegsráðuneytisins til Félags islenzkra botnvörpuskipaeig- enda dags. 3. júlí 1975.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.