Morgunblaðið - 23.05.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1976
7
VIÐ heyrum þaðstundum,
að það sé til litils að biðja. En
þeir sem reynt hafa, þeir sem
hafa átt raunverulegt bæna-
líf, þeir vita aftur hið gagn-
stæða. Reynsla þeirra erað
visu oftast þess eðlis, að það
er erfitt að sanna hana.
En hún er þeim sú vissa, sem
kallar þá sífellt til bænar á
ný, af því að þeir finna, að í
bæninni tengjast þeir krafti,
sem er þeim til góðs.
Mig langar að rifja hér upp
gamla, sanna sögu. Hún er
frá Noregi. Þarlend bónda-
dóttir sá sýn. Hún leit fanga í
fangaklefa og um leið heyrði
hún raust, sem sagði við
hana: „Það fer illa fyrir þess-
um manni, ef enginn biður
fyrir honum. Bið þú fyrir hon-
um, og þá mun ég senda
hann til að kunngjöra nafn
mitt meðal heiðingja".
Stúlkan hlýðnaðist þessu,
og hún grátbað fyrir þessum
ókunna manni, sem hún vissi
engin deili á. Jafnframt beið
hún þess óþreyjufull að frétta
af einhverjum fanga, sem
tekið hefði sinnaskiptum og
gerst heiðingjatrúboði.
'Loks var það á ferð i Stav-
angri, að hún heyrði um slík-
an mann. Þar var tilkynnt, að
fyrrverandi fangi ætlaðí að
tala á kristilegri samkomu þá
um kvöldið. Stúlkan fór
þangað og þekkti undir eins,
að þar var kominn fanginn i
sýninni. Þetta var Lars Olsen
Skrefsrud. Hann hafði reynst
mikill hæfileikamaður i skóla,
en leiðst á glapstigu og lent i
fangelsi fyrir þjófnað. En í
fangelsinu varð hann fyrir
trúarlegri reynslu, háði harða
baráttu við sjálfan sig, og að
lokinni fangelsisdvöl kom
hann út í lífið sem nýr mað-
ur.
Hann stofnaði ásamt
dönskum manni til kristni-
boðs i Santal á Indlandi og
dvaldi þar í marga áratugi,
en lést heima i Noregi árið
1910, þá víðþekktur maður.
í minum huga er enginn
vafi á þvi, að Guð notaði
bænir norsku bóndadóttur-
innarhinum unga, óham-
ingjusama manni til hjálpar.
Þær hafa gefið honum auk-
inn styrk til að komast á
gæfubraut.
Þessi saga er merkileg, en
langt frá því að vera einstæð.
Við eigum ákaflega margar
slíkar frásagnir, sem eru
sterkur vitnisburður um mátt
einlægrar bænar.
Viðfinnum þörfina fyrir
hann að sjálfsögðu aldrei
betur en þegar á reynir i lífi
okkar, þegar erfiðleikar
steðja að eða raunir. Þá reyn-
ist bænin vel. Oft er hún það
eina, sem hjálpað getur. Það
hef ég margreynt i starfi
mínu.
Þjóð okkar á í erfiðleikum
um þessar mundir. Efna-
hagsörðugleikar eru miklir og
landhelgismálið hefur verið
Biðjum
í bæn á þessum degi. Ég bið
um, að þjóðin taki höndum
saman til bænar i guðsþjón-
ustum kirknanna, en einnig í
einrúmi hvers og eins.
Þótt við eigum góðan mál-
stað að verja, er það aldrei
svo, að við séum ekki i þörf
fyrirallan þann styrk, sem
við getum fengið Við leitum
hans á alþjóðavettvangi, og
hví þá ekki einnig frá þeirri
andlegu veröld, sem er upp-
spretta alls máttar á jörð?
Hátt settur erlendur ráðu-
neytisstarfsmaður kom eitt
sinn að ráðherra sínum, þar
sem hann hafði kropið á kné
til bænar. Hann stóð hissa og
beið þess þögull, að ráðherr-
ann risi á fætur. En ráðherr-
ann sagði, er hann leit upp:
„Það virðist undra ykkur að
sjá mig i þessum stellingum.
En sú byrði, sem ég verð að
bera, er þyngri en svo, að ég
fái borið hana einn, að ég fái
valdið henni án hjálpar."
Það þarf kjark til að viður-
kenna vanmátt sinn, viður-
kenna hjálparþörf. En þaðer
auðveldara, ef maður gerir
okkurerfitt. I dag, á hinum
almenna bænadegi íslensku
þjóðkirkjunnar, þá hefur
biskup landsins, eins og ég
minnti á hér s.l. sunnudag,
óskað eftir, að landsmenn
allir sameinuðust til bænar
fyrir „giftu og góðum lykt-
um í landhelgismálinu." —
Við skulum ekki efast um
gildi fyrirbænar i þessu
mesta lífshagsmunamáli
þjóðar okkar í dag. Látum
söguna um bæn norsku
bóndadótturinnar vera okkur
vitnisburð um það, að einlæg
bæn verður alltaf til góðs. Á
bak við bænina er afl eða
máttur og þess vegna er það,
að því fleiri sem leggjast á
eitt, því áhrifameiri á bæn
okkar að verða.
Þess vegna hef ég beðið
og bið enn um þjóðareiningu
sér Ijóst, að þannig eru allir
menn staddir. Og staðreynd-
in er sú, að þeir, sem reynast
andlega sterkastir, það eru
þeir, sem viðurkenna mann-
legan vanmátt sinn og leita
þess vegna styrks frá æðra
mætti á vegum bænar og
trúar.
Þjóðarforystan okkar á
meðal þarf aðskilja þetta.
Við þurfum þess hvert og
eitt.
Við stöndum frammi fyrir
erfiðleikum, sem við ráðum
ekki við hjálparlaust. En
hjálpin er okkur boðin. Hún
biðurokkar. Lykillinn að
henni er í okkar höndum, og
hann heitir bæn.
Sameinumst öil í dag i
bæn um hjálp, og hjálpin
mun verða að raunveru-
leika.
DODGE
MONACO 71
Glæsileg Dodge Monaco bifreið 4ra dyra árg.
1971, ekin 38 þúsund km, er til sölu.
Bi' reiðin er sérlega vel meðfarin.
L: ur dökkblár með vinyl topp, 8 cyl, 383 cup
sjú.ískiptur, power stýri og bremsur Raf-
magnsknúin sæti og rúður. Bifreiðin verður til
sýnis í dag og næstu daga að Lindarflöt 1 8.
Uppl gefnar í síma 42954
rw
HJÓLHÚSA TJOLD
★ NOTIÐ FORTJÖLD Á HJÓLHÚSIN
★ TVÖFALDIÐ FLATARMÁLIÐ
★ PANTIÐ TÍMANLEGA FYRIR SUMARIÐ
E. TH. MATHIESEN H.F,
STRANDGOTU 1 —3, HAFNARFIRÐI — S1MI 51919
Meðferð og endurhæfing
áfengissjúklinga.
Prófessor
Joseph P. Pirro yfirmaður
meðferðardeildar Freeport Hospital
fyrir áfengissjúklinga í New York
heldur eftirfarandi fundi og ræðir þar
þær aðferðir
sem eru efstar
á baugi í meðferð
áfengissjúklinga
í Bandaríkjunum
Þriðjudag 25. maí:
Kl. 20.CX) l.angholtskirkju
AA fundur opinn fyrir almennmg*
Werzalit þarf ekkert viðhald er auðvelt að þrífa
og er sérstaklega áferðarfallegt.
WERZALIT SÓLBEKKIR
fást í marmara, palisander og eikarlitum.
WERZALIT HANDRIÐSLISTAR
fást í moseeg lit.
Afgreiðsla í Skeifunni 19
Werzalit er góð fjárfesting.
TIMBURVERZLUNIN VÖLUNDURhf
Klapparstíg 1. Skeifan 19.
Simar 18430 — 85244