Morgunblaðið - 23.05.1976, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 23.05.1976, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1976 .Vetur og haf“ (31) Raunsœi Eiríks Smith EIRlKUR SMITH er varla ein hamur i myndsköpun sinni. Hann mundar pentskúfinn ótt og títt, knúinn af elju og lita- gleði. Það er líkast því sem flöktandi eirðarleysi knýi hann áfram i hamslausum darra- dansi við viðfangsefnin. Eiríkur er löngu hættur átökum á sviði huglægs abstrakt-expressjónisma og virðist algjörlega hafa horfið yfir i realisma, sem hann hefur þó ekki ennþá afmarkað né beisiað, en leitar víða fanga í átt að varanlegri haldfestu. Vinnubrögðin eruþóí flestum tilvikum hin sömu og fyrr, hröð og umbúðalaus. Listamaðurinn virðist ekki tvínóna við hiutina og er alls óhræddur við að takast á við nýjan tjáningar- máta, virkja ferskar hugmyndir augnabliksins. Það eru málverkin á sýningu listamannsins að Kjarvals- stöðum, sem hér eru til um- ræðu, stór og smá. í þeim eldri glímir listamaðurinn við hvella og skæra liti, ósjaldan með fjólubláu ívafi og teflir þá iðu- lega á tæpasta vað í litasam- böndum og ófriðlegum átökum forma. Hinn mikli þríleikur „Fólk við haf“ (I), sem er sennilega stærsta málverk, sem Eiríkur hefur málað, minnir á sósíalrealisma, eins og hann getur frjálslegastur verið fyrir austan tjald, bæði hvað viðfangsefnið snertir og lita- meðferð. Slíkan óbeislaðan hraða og flug i myndformum sér maður þó sjaldan þar fyrir austan. Myndin er hressilega máluð en virkar frekar á mig sem dekorasjón en trönu- málverk, einhvern veginn get ég betur hugsað mér slíka mynd utandyra eða í rúm- góðum forsal heldur en á mál- verkasýningu. Hér gæti Eiríkur ýmislegt lært af austur-þýskum starfsbræðrum svo sem Willi Sitte og Willi Neubert sem gleyma aldrei hinu ,,monumentala“ í málverkinu þrátt fyrir ærslfullan leik real- istískra myndforma á stórum fleti. Það eru fleiri málverk á sýningunni er minna á sósíal- realisma, en einnig myndir, er leiða hugann að vestrænum realisma og jafnvel amerískum súperrealisma, svo sem myndirnar „Vetur og haf“ (31) og „Andlit í þili“ (32). Sömu ættar er myndin „Skipsflak“ (30), en áhorfandinn verður að standa alllangt frá henní til þess að formið i skipsflakinu njóti sín. í þessum myndum bregður fyrir áhrifum frá Andrew Wyeth, og sé ég ekki betur en þau séu til góðs, því að liturinn er hér stórum hreinni og af- markaðri en í eldri myndum Eiríks á sýningunni. Myndin „Vetur í bæ“ (9) er ákafiega sterkt máluð og áhrifin óvenju- leg og vekjandi í sínum hreina surrealisma. En ég verð að segja fyrir mig, að ég ér ekki lengur með á nótunum, er kemur að myndum eins og „Fagur fiskur úr sjó“ (7) og „Um gamla lukt“ (35) en þær þykja mér báðar full yfirborðs- lega málaðar, einkum hin fyrri. Hinn surrealistíski boðskapur verður einnig hálf máttvana, sem setur myndirnar úr sam- ræmi á sýningunni. Ólíkt ferskari er myndin „Ársæll" (37), sem er hreint og hressi- lega máluð. — Andlit mannsins er mjög sérkennilegt og því bregður fyrir í fleiri myndum, a.m.k. einni ágætri vatnslita- mynd. Vatnslitamyndirnar þykja mér betri helmingur sýningar- innar, hér virðist Eiríkur á grænni braut. Hann leggur stórum meiri alúð við þessa gerð mynda og sleppir sjaldan fram af sér beislinu. Slikar myndir þykja mér uppruna- legri og í nánara sambandi við lífsins kviku og grómögn himins, hafs og jarðar. Hér gætir hvergi þess íbúðar í lita- vali, sem einkennir margar olíumyndirnar. Eiríkur vinnur í vatnslitamyndum sínum á af- markaðra sviði, og sá grunur læðist ekki að manni, að lista- maðurinn hafi hætt of fljótt til hags fyrir aðra hugmynd, svo sem í oliunni. Ljóst þykir mér, að Eiríkur vinnur umtalsverðan sigur sem vatnslitamyndamálari. Margar myndanna eru mjög tjáningar- ríkar og sannfærandi f út- færslu, svo sem myndirnar, er Listasafn Islands festi kaup á, „Skammdegi" (49) og „Kvöld- sólarstemmning „(68). Myndin „Lognalda" (68) er til muna markvissari í útfærslu en t.d. málverkið með sama nafni og af sömu fyrirmynd. Myndirnar „Táningar í fjöru“ (72) „Tvær verur við haf“ (73) og „Verur við haf" (75) eru allar ferskt og fjörlega málaðar og hér koma vinnubrögð Eiríks vel til skila, — dularfullt yfirborð ein- kennir þessar myndir og verurnar eru á mjög sann- færandi hátt sem af öðrum heimi. Hér nær Eiríkur Morgunþoka(78) Myndllst BRAGA ÁSGEIRSSON sterkum og persónulegum tökum á myndefninu og slær á djúpa strengi innri lifæða myndflatarins. Myndin „Um gamalt fiskhús" (76) er mjög tært og vel máluð mynd og leiðir aftur hugann að Wyeth. Hins vegar ber myndin „Morgunþoka" (78) ótviræðan svip af listamanninum sjálfum og mér er næst að halda, að þessi einfalda og sérkennilega mynd sé einn hápunkturinn á þessari sýningu. í heild er þetta mjög lifandi og fjörleg sýning hjá Eiríki Smith, en þó virðast málverkin yfirgnæfa vatnslitamyndirnar, um of og hefði sýningin vafa- lítið orðið enn sterkari við grisjim hinr.a liísterkari mynda auk þeirra er virðast rjúfa eðli- legt samræmi. Að lokum vil ég hvetja sem flesta til að leggja leið sína að Kjarvalsstöðum til að skoða þessa fjörmiklu sýningu, en I dag (sunnudag) mun síðasti sýningardagur. J Helgafells- ætt heldur ættarmót Stykkishólmi 20. maf HELGAFELLSÆTT, þ.e. afkom- endur Jónasar Sigurðssonar og Astríðar Þorsteinsdóttur, sem bjuggu lengst af á Helgafelli í Helgafellssveit, hafa ákveðið að gangast fyrir ættarmóti að Helga- felli og Stykkishólmi. sem af- komendum nefndra hjóna verður boðið að taka þátt í. Tilhögun mótsins verður aðöðru leytisú að laugardaginn 26. júní n.k. verður guðsþjónusta í Helgafellskirkju, Að guðþjónustu lokinni verður staðurinn skoðaður, en síðan safnast hópurinn saman í nýja félagsheimilinu í Stykkishólmi þar verður sameiginlegt borð- hald Þar verður svo ýms fróðleikur á boðstólum og er hugmyndin að minnast þarna liðinna daga og að lokum verður stiginn dans. Fréttaritari . FIRMAKEPPNI í Stykkíshólmi Stykkishólmi, 19. maf. SUNNUDAGINN 16. maf s.l. var haldin f Stykkishólmi firma- keppni á vegum hesteigendafé- lags Stykkishólms. Tóku f keppni þessari þátt 33 góðhestar og kepptu fyrir jafnmörg fyrirtæki. Dómarar voru úr Borgarnesi og Ólafsvfk. Keppnin fór fram f bezta veðri á gamla flugvellinum sem er fyrir ofan Stykkishólm, en hann er nú aflagður sem flugvöll- ur og notaður sem skeiðvöllur á vegum hestaeigendafélagsins. Áhorfendur voru fjölmargir sem fylgdust með af áhuga. Keppt var um farandgrip sem Trésmiðj- an ösp í Stykkishólmi hafði gefið og hlaut hann Snæfaxi, eign Leifs Jóhannessonar, ráðunauts, sem keppti fyrir Búnaðarbankann. Hlaut hann 44 stig. Næstur með 42 stig var Reykur, eign Njáls Þorgeirssonar bifreiðaeftirlits- manns, sem keppti fyrir Bifreiða- stöð Stykkishólms og þriðji með 41 stig var Hrollur, eigandi Bent Sigurðsson, sem keppti fyrir Kaupfélag Stykkishólms. Áhorfendur fengu að greiða at- kvæði um fallegasta hestinn og fékk Gustur, eigandi Högni Bæringsson, langflest atkvæði. Hestum fjölgar nú f Stykkis- hólmi og fleiri og fleiri sem taka þar þátt í hestamennsku og fá sér hest. 61 nemandi í Tónlistarskóla Vopnafjarðar Tónlistarskóla Vopnafjarðar var slitið sunnudaginn 9. maí s.l. með nemendatónleikum í félags- heimilinu Miklagarði. í vetur stundaði 61. nemandi nám í skólanum einhvern hluta vetrar, en þeir sem luku tilskildum próf- um voru 39. Alls var kennt á 9 hljóðfæri, auk hliðargreina, og stofnuð var 6 manna skólahljóm- sveit sem lék á hljómleikunum við góðar undirtektir. Þetta er 2. starfsvetur tónlistarskólans. Skólastjóri og eini kennari í vetur var Einar Logi Einarsson. Halldór H. Jóns- son Stjórnarfor- maður Eimskips Á FUí\di stjornar H.f. Eimskipa- félags Island föstudaginn 21. mai 1976 skipti stjórn félagsins með sér verkum. Formaður er Halldór H. Jónsson, varaformaður Ingvar Vilhjálmsson, ritari Thor R. Thors og gjaldkeri Axel Einars- son. Meðstjórnendur eru Birgir Kjaran, Pétur Sigurðsson og Hallgrímur Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.