Morgunblaðið - 23.05.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1976
13
Kirkjudagur Langholtssafnaðar
Nú eru orðin mörg ár síðan
Langholtssöfnuður hélt sinn
fyrsta kirkjudag undir heiðum
ágústhimni og tjalddúkum í nánd
við Elliðaár.
Kirkjudagurinn var fyrsta átak-
ið til samstarfs opinberlega,
fyrsta sameiginlega hátíðin,
fyrsta fjársöfnun til að eignast
hús yfir starf sitt, helgidóm fyrir
guðsþjónustur sínar, kirkju i
borginni.
Óskir rættust. Unnið var af
áhuga, dáðum og fórnarlund.
Sýning
Magnúsar
Safnaðarheimilið við Sólheima
reis af grunni, sérstætt, fallegt,
hagkvæmt.
En þá var söfnuðinum skipt.
Atakið truflað, framtakið skert.
Kirkjan sem kirkjudagsræð-
urnar höfðu sýnt í hillingum var
enn þá aðeins draumur. Hún átti
að fullnægja þörfum 20 þúsund
manna safnaðar. Nú voru aðeins 7
þúsund manns eftir. Áfram skyldi
haldið. Fólkið, safnaðarfélögin,
safnaði milljónum króna og lagði
í hendur bygginganefndar og
safnaðarstjórnar.
Hálogalandskirkja við Sól-
heima skyldi samt rísa til heiðurs
þessari kynslóð við sund og voga,
til heilla við menningarbrautir
ókominna kynslóða f höfuðborg
Islands.
Og .enn voru lagðar fram
milljónir og borgin lyfti undir
baggann, sem óðum þyngdist í
landi verðbólgu og kröfu.
Og nú eru komnir veggir á
grunn guðshússins en þakið vant-
ar.
Þakið er næsti áfanginn og
stærsti. A þessa kórónu kirkjunn-
ar í Langholtssöfnuði skal minnt
tvo næstu sunnudaga fyrir hvfta-
sunnu á þessu ári.
Á sunnudaginn sem kemur, 23.
maí, verður Kirkjudagurinn með
barnasamkomu kl. 10.30. Hátíða-
messa kl. 2 og samkomu kl. 4.
Kirkjukórinn ásamt fyrrverandi
prófasti, sr. Jóni Auðuns, mun
annast þá samkomu ásamt
prestum safnaðarins og fleiri.
Kvenfélagið annast veitingar af
venjulegri rausn. Komið sem
flest.
Tekið 'verður á móti gjöfum til
starfsins og kirkjubyggingarinn-
ar.
En 30. maí og næsta laugardag á
undan, þann 29. maí, verður vor-
dagurinn. Þá er þess vænzt, að
sem flestir sjálfboðaliðar leggi
leið sína í væntanlega kirkju með
verkfæri f hönd og vinni þar að
hreinsun viðar og gólfa. Það
verður guðsþjónusta f starfi, hin
hljóða bæn vinnunnar með
vorinu til vaxtar og gróandi þeirr-
ar kirkju sem vex inn í himininn.
Komið sem flest. Kirkjan bíður.
Olafur Örn.
Jóhannessonar
MÁLVERKASÝNINGU Magnús-
ar Jóhannessonar, sem haldin er í
sýningarsalnum á Laugavegi 178,
lýkur á mánudagskvöld. Þetta er
fyrsta sýning Magnúsar, sem
hefur um nokkurt árabil málað
myndir í frfstundum, einkanlega
vatnslitamyndir. Á þessari
sýningu eru 30 myndir, aðallega
landslagsmyndir og hafa nokkrar
þeirra selzt.
Brunamála-
ráðstefna
í Reykjavík
NU stendur yfir ráðstefna á veg-
um Brunamálastofnunar rfkisins
um nýjungar í slökkvitækni og
brunavörnum. Ráðstefnan hófst á
föstudagsmorgun og mun standa
fram á sunnudagskvöld. Hún er
haldinn á Hótel Sögu og hana
sækja á annað hundrað slökkvi-
liðsmenn víðs vegar að af land-
inu. Fjölmörg erindi verða flutt
og sýndar verða fræðslukvik-
myndir um nýjungar f slökkvi-
tækni.
Slökkviliðin f Reykjavík og á
Keflavíkurflugvelli verða heim-
sótt og einnig slökkviliðið í Sand-
gerði, en þar hefir verið byggð
slökkvistöð og komið upp tækja-
búnaði, sem verið gæti til fyrir-
myndar fyrir byggðarlög af svip-
aðri stærð.
Þetta er önnur landsráðstefna
Brunamálastofnunar ríkisins.
Jlin fyrri var haldin á Akureyri
árið 1973 og voru þátttakendur þá
um 70. Auk ráðstefna þessarra
hefir brunamálastofnunin haldið
átta námskeið fyrir slökkviliðs-
menn utan af landi á undan-
förnum árum, og hefir hvert
þeirra staðið f 6 — 10 daga. Nær
tvöhundruð manns hafa sótt nám-
skeiðin.
Erlendur sér-
fræðingur sel-
veiðibændum til
leiðbeiningar
1 SAMBANDI við vorkópavertfð-
ina, sem framundan er, kemur til
landsins f lok mánaðarins þýzkur
maður, Wilfried Miiller, til að
leiðbeina selveiðibændum um
meðferð vorkópaskinna. Kemur
hann hingað á vegum Sambands
fslenzkra samvinnufélaga og
verður hér f hálfan mánuð og
heimsækir aðalveiðisvæðin sunn-
anlands og vestan.
I ár er gert ráð fyrir, að samtals
komi til sölu 6 — 7000 selskinn,
en f fyrra var verðið á hverju
vorkópaskinni i fyrsta flokki
10.224 krónur. Verðið i öðrum
flokki var aðeins 7.668 krónur.
Markaðshorfur fyrir selskinn eru
góðar, og er útlit fyrir áframhald-
andi góðar sölur, segir í nýút-
komnum Sambandsfréttum.
Tilátta
stórborga
vetursem sumar
Sumariö er sá tími ársins, sem islendingar nota
mest til feröalaga, þá koma einnig flestir erlendir
feröamenn til landsins. Þess vegna er sumar-
áætlun okkar víötækari, við fljúgum til fleiri staöa
og fjöldi áætlunarferöa okkar er meiri en
venjulega.
En ferðalög landsmanna og samskipti viö umheim-
inn eru ekki bundin viö sumariö eingöngu- þau
eiga sér stað allan ársins hring.
Þess vegna gerir vetraráætlun okkar ráö fyrir
tíöum áætlunarferöum til átta stórborga í Evrópu
og Bandaríkjunum.
Þjóöin þarf aö geta reitt sig á fastar öruggar
áætlunarferöir til útlanda jafnt vetur sem sumar,
þaö er henni lífsnauðsyn.
Þaö er okkar hlutverk aö sjá um að svo megi
veröa áfram - sem hingað til.
FLUCFÉLAG LOFTLEIDIR
ISLANDS
Félög sem sjá um föst tengsl við umheiminn