Morgunblaðið - 23.05.1976, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 23.05.1976, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1976 • • Kór Oldutúnsskóla: Frumflytur fímm kórverk Innan skamms heldur kór — Mörg þessara kórverka eru Öldutúnsskóla f söngför til Noregs þar sem kórinn tekur þátt f norrænu barnakóra- keppninni sem fram fer í Bergen. A efnisskrá kórsins verrta m.a. frumflutt fimm kór- verk eftir dr. Hallgrím Helga- son, Pál P. Pálsson og norska tónskáldið Egii Hovland. í dag. efnir kórinn til tónleika f Háteigskirkju þar sem þessi lög verða flutt. Morgunhlartið ræddi stuttlega við Egil Frirt- leifsson, stjórnanda kórsins, um utanförina. Fimmta utanförin. — Þetta er fimmta utanför Kórs Öldutúnsskóla á ellefu ára starfsferli, sagði Egill. Tilgang- ur fararinnar er að taka þátt i söngkeppni Norrænna barna- kóra sem haldin er á vegum Norra'nna útvarpsstöðva. — Undirbúningur ferðarinn- ar hófst á síðast liðnu ári, sagði Egill, og það hefur verið æft af miklu kappi undanfarið. Til dæmis má geta þess að frá aprílbyrjun hafa æfingar verið 6 sinnum í viku auk þess sem. kórinn hefur komið fram u.þ.b. einu sínni í viku. ný og krefjast mikilla æfinga og gera mjög strangar kröfur til kórfélaganna, ekki sist þegar tillit er tekið til þess að yngsti meðlimur kórsins er aðeins 9 ára. Útvarpað um Skandinavíu. Þá gat Egill þess að i keDnn- Á æflngu I Öldutúnsskóla. Kór- félagarnir eru ekki háir I loft- inu enda er aldurinn aðeins 9—14 ár. A æfingu hjá körnum. Elns og sjá má elnbelta börnin sér mjög að söngnum. inni tækju þátt kórarfrá hverju Norðurlandanna, fimm talsins. Færeyjar og Alandseyjar eiga ekki kór í keppninni þó svo að t.d. Færeyingar eigi mjög góð- an barnakór að sögn Egils. Ferðin tekur aðeins fimm daga og mun kórinn syngja tvisvar opinberlega í Bergen. Laugardaginn 29. maí syngur hann i hinni fornu dómkirkju i Bergen en sunnudaginn 30. mai fer svo sjálf keppnin frami Frá keppninni verður útvarpað Hér er Egill Friðleifsson að æfa sérhljóðana og virðist einna helst sem verið sé að æfa U að þessu sinni. beint í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Á aldrinum 9 — 14 ára. — I ferðinni til Noregs verð- ur 31 nemandi, sagði Egill, og eru kórfélagarnir allir á aldrin- um 9 til 14 ára. Börnin hafa lagt hart að sér við undirbúning ferðarinnar og hafa sýnt mik- inn áhuga og dugnað við æfing- ar, sagði Egill Friðleifsson að lokum. Karlakór Reykjavfkur Muntra Musikanter. Norwegian Singing Society. Karlakór Reykjavíkur heldur upp á hálfr- ar aldar afmæli í FRÉTT frá kórnum segir að árið 1976 sé hátíðarár hjá Karlakór Reykjavíkur. Hinn 3. janúar var haldinn hátíðar- fundur í tilefni þess að þann dag var kórinn stofnaður fyrir 50 árum. Aðalhvatamaður að stofnun kórsins var Sigurður Þórðarson tónskáld, en Sigurður var jafnframt stjórnandi kórsins í nær 36 ár. Þá eru hátíðahöld kórsins í lok maí er haldið verður upp á afmælið og boðið til landsins erlendum karlakórum. Karlakór Reykjavíkur kemurfram á Norrænum músikdögum í júní og flytur þar m.a. verk eftir norska tónskáldið John Persen, sem hann samdi sérstaklega fyrir Karlakór Reykjavíkur og fékk til þess styrk úr Norræna menningarsjóðnum. Kórinn flytur þá einnig nútímatónverk eftir sænskt tónskáld í haust mun kórinn flytja ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands Hátíðarmessu Sigurðar heitins Þórðarsonar sem Atli Heimir Sveinsson er nú að setja út fyrir hljómsveit. Á þessu ári er Karlakór Reykjavíkur 50 ára. Dagana 27. — 29. maí heldur kórinn upp á þetta hálfrar aldar afmæli sitt og hefur af því tilefni boðið hingað til lands þremur erlendum karlakórum. Allir munu þessir kórar halda hér hljómleika fyrir styrktarfélaga Karlaskórs Reykjavíkur, en einn kórinn mun halda sérstaka hljómleika i Reykjavík sem aðgang- ur verður seldur að. Erlendu kórarnir eru Muntra Musikanter frá Helsingfors, Gulberg Akademiske Kor frá Osló og Norwegian Singing Society frá New York. Það er Muntra Musikanter sem heldur sérstaka hljómleika í Reykjavíkur. Verða hljómleikar Gulberg Akademiske Kor í Mosfellssveit en Norwegian Singing Society heldur hljómleika á Keflavíkurflugvelli. HÁTÍOARÁR HJÁ KARLAKÓR REYKJAVÍKUR Kórinn vinnur einnig að útgáfu á 14 lögum eftir Sigurð Þórðarson sem gefin verða út á hljómplötu. Stjórn Karlakórs Reykjavikur skipa nú Ragnar Ingólfsson formaður, Margeir Jóhannsson varaformaður, Jón Hallsson gjaldkeri, Ástvaldur Magnússon ritari og Helgi Bachmann meðstjórnandi. Stjórnandi kórsins er Pall Pampichler Pálsson og hefur verið þaðsíðan 1 964

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.