Morgunblaðið - 12.06.1976, Side 7

Morgunblaðið - 12.06.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JUNÍ 1976 7 Áfall Alþýðuflokksins Bersýnilegt er, aS Al- þýðuflokkurinn hefur orS- ið fyrir umtalsverðu áfalli vegna þeirrar afstöSu, sem flokkurinn tók til Oslóarsamninganna um lausn landhelgisdeilunn- ar. Enn er þa8 svo, að almenningur gerir meiri kröfur um ábyrga afstöðu til Alþýðuflokksins en t.d. til Alþýðubandalagsins. í sjálfu sér kom engum á óvart, þótt Alþýðubanda- lagið legðist eindregið gegn samningunum I Osló, einfaldlega vegna þess, að mönnum hefur jafnan verið Ijóst, að sá flokkur mótar stefnu slna út frá pólitlskum tækifær- issjónarmiðum. Hins veg- ar eru þær kröfur gerðar til Alþýðuf lokksins, að hann taki ábyrga, mál- efnalega afstöðu til mála. enda hefur flokkurinn svo lengi átt aðild að rlkis- stjómum á íslandi. að ætl- ast verður til að flokkur- inn móti afstöðu slna út frá málefnalegum for sendum. En greinilegt er. að for- ingjar Alþýðuflokksins hafa ekki haft þrek til að taka sjálfstæða afstöðu I þessu máli heldur valið þann kostinn að fara I kapphlaup við kommún- ista um ábyrgðaleysi, en það kapphlaup getur Al- þýðuflokkurinn aldrei unnið. Það fer ekki á milli mála, að órói hefur verið i forystuliði Alþýðuflokks- ins vegna þessarar ákvörðunar. Til marks um það, er sú yfirlýsing Jóns Ármanns Héðinssonar, eins af þingmönnum Al- þýðuflokksins, að hann styðji Oslóarsamningana og ekki er fráleitt að ætla. að fleiri af þingmönnum Alþýðuflokksins séu sömu skoðunar. Alla vega er at- hyglisvert, að formaður þingf lokksins, Gylfi Þ. Gislason hefur hvergi fengizt til þess að tjá sig opinberlega um þessa samninga og er hann þó ekki manna hlédrægastur. þegar um það er að ræða að stjórnmálamenn tjái sig á opinberum vettvangi um slfk mál. Forysta Al- þýðusambands- ins hefur beðið hnekki Þá er og einnig Ijóst, að forysta Alþýðusambands íslands hefur beðið veru- legan hnekki vegna þeirr ar afstöðu. sem helztu for- ystumenn Alþýðusam bandsins tóku til Oslóar- samninganna. Bjöm Jóns- son, forseti ASÍ, hefur nú i tvigang gert tilraun til að beita afli þessara samtaka á pólitiskum vettvangi, fyrst gegn samningunum við Vestur-Þjóðverja og nú siðast gegn samning- unum við Breta. j báðum tilvikum stóð Alþýðusam- bandið að útifundum á Lækjartorgi. í báðum til- vikum gekk forseti Al- þýðusambandsins fram fyrir skjöldu. i báðum til- vikum var fjármunum verkalýðssamtakanna varið til þess að kaupa auglýsingar I rikisútvarpi til að hvetja fólk til þátt- töku I útifundum og í báð- um tilvikum daufheyrðist almenningur við þeim áskorunum. Útifundirnir báðir urðu aðstandendum þeirra og þá ekki sizt Al- þýðusambandinu og for- ystumönnum þess til háð- ungar. Fróðlegt verður nú að sjá, hvort þessar mis- heppnuðu tilraunir forseta Alþýðusambandsins til þess að beita verkalýðs samtökunum á þessum vettvangi verða til þess að hann sjái að sér og geri sér grein fyrir, að sú skoð- un er mjög rik hjá laun- þegum, að verkalýðssam- tökin eiga að hasla sér völl á hinu faglega sviði, baráttu fyrir bættum kjör- um en eigi ekki að blanda sér i pólitiskar deilur með þeim hætti sem Alþýðu- sambandið hefur itrekað gert tilraun til og dugar þá ekki fyrir forseta Alþýðu- sambandsins eða aðra talsmenn þess að halda þvl fram, að samningarnir við Breta og andstaða við þá hafi verið þáttur I kjarabaráttu Alþýðusam- bandsins. Lærdómsríkir tímar Umræðurnar um land- helgismálið hér á íslandi undanfamar vikur og mánuði hafa vissulega verið mjög lærdómsrikar og þá ekki sízt fyrir þá, sem hafa ítrekað reynt að hlaupa eftir því sem þeir töidu vera svokallað al- menningsálit. Niðurstað- an af þessum umræðum varð nefnilega sú. að al- menningur tók afstöðu á grundvelli þeirra raka, sem fyrir lágu og augljós- lega bentu til þess að gera ætti þá samninga sem að lokum voru undirritaðir í Osió. Það væri stjórn- málamönnum og öðrum hollt að gera sér grein fyr- ir því, að heilbrigðri dóm- greind almennings má treysta mun betur en þeir stundum telja sjálfum sér trú um. illtóður ú morgun Guðspjall dagsins: Jóh. 3, 1—15.: Kristur og Niko- demus. Litur Trinitatis — Þrenningarhátíðar: Litur gleðinnar, hvítur. DÓMKIRKJAN Sjómannadag- urinn. Messa kl. 11 árd. Séra Þórir Stephensen. Prestsvígsla kl. 5 síðd. Biskup íslands vígir cand. theol., Skírni Garðarsson til Hjarðarholtsprestakalls. Séra Jón Þorvarðsson settur dómprófastur lýsir vígslu. Séra Þórir Stephensen dómkirkju- prestur þjónar fyrir altari. Vígsluvottar auk þeirra: Séra Svavar Stefánsson, séra Þor- valdur K. Helgason. Vígsluþegi prédikar. LAUGARNESKIRKJA Messa kl. 2 síðd. Aðalsafnaðarfundur að messu lokinni. Séra Garðar Svavarsson. NESKIRKJA Guðþjónusta kl. 11 árd. Séra Frank M. Halldórs- son. HALLGRlMSPRESTAKALL Messa kl. 11 árd. Séra Karl Sig- urbjörnsson. Messa kl. 10 árd. á Landsþitalanum. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL Messa kl. 11 árd. í Breiðholts- skóla. Séra Lárus Halldórsson. ELLI- OG Hjúkrunarheimilið Grund. Messa kl. 2 síðd. Séra Magnús Guðmundsson fyrrv. prófastur messar. Fél. fyrrv. sóknarpresta. HATEIGSKIRKJA Messa kl. 11 árd. Séra Arngrímur Jónsson. ARBÆJARPRESTAKALL Guðþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11 árd. Séra Guðmundur Þorsteinsson. FRlKIRKJAN I Reykjavík. Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björnsson. GRENSASKIRKJA Messa kl. 11 árd. Séra Halldór S. Gröndal. DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS Landakoti. Lág- messa kl. 8 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. LANGHOLTSPRESTAKALL Sjómannadagur. Guðþjónusta kl. 11 árd. Athugið breyttan messutíma. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. ASPRESTAKALL Messa fellur niður á Norðurbrún 1 vegna sjómannadagsmessunnar í Dómkirkjunni kl. 11 árd. Séra Grímur Grímsson. FlLADELFÍUKIRKJAN Safn- aðarguðþjónusta kl. 2 síðd. Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd. Einar J. Gíslason. BUSTAÐAKIRKJA Guðþjónusta kl. 11 árd. Vin- samlega athugið breyttan messutíma. Séra Ólafur Skúla- son. HJALPRÆÐISHERINN Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Kl. 4 síðd. Utisamkoma á Lækjartorgi. Hjálpræðissam- koma kl. 8.30 siðd. Lokasam- koma með Kaft. Grete og Knut Larsen. Kaft. Daniel Óskarsson. KÓPAVOGSKIRKJA Messa kl. 11 árd. (altarisganga). Séra Árni Pálsson. KEFLAVlKURKIRKJA _ Sjómannadagur: Guðþjónusta kl. 11 árd. Séra Ólafur Oddur Jónsson. GRINDAVlKURKIRKJA Sjömannamessa kl. 1 árd. Sóknarprestur. HVALSNESKIRKJA Sjómannamessa kl. 11 árd. Sóknarprestur. UTSKALAKIRKJA Sjómanna- messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA Sjómannadagur: Guðþjónusta kl. 2 siðd. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA Sjómannadagur: Guðþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA Messa kl. 10.30 árd — Messa í Laugar- dælakirkju kl. 2 siðd. Séra Sig- urður Sigurðarson. HALLGRlMSKIRKJA í Saur- bæ. Messa kl. 2 síðd. Séra Jónas Gíslason lektor prédikar. Altarisganga. Séra Jón Einars- son. AKRANESKIRKJA A laugar- dagskvöldið kl. 8.30 verður nýstárleg samkoma með fjöl- breyttri dagskrá hjá kristnu æskufólki. A sunnudaginn kl. U árd. verður sjómannaguðþjo’nusta. Minnzt verður látinna sjómanna og aldraðir sjómenn heiðraðir. Sóknarprestur. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK Þl' AIGLYSIR L.M ALLT LAND ÞEG.AR Þl ALG- LYSIR 1 MORGLNBLAÐINL Bifreiðaeigendur Eigum fyrirliggjandi frá DUALMATIC i Banda- ríkjunum: DRIFLOKUR STÝRISDEMPARA VARAHJÓLSHETTUR BENSÍNBRÚSAHETTUR TÖSKUR INNANÁ BLÆJUHURÐIR Væntanlegt er næstu daga: BLÆJUHÚS HJÓLBOGAHLÍFAR VARAHJÓLS- OG BENSÍNBRÚSAGRINDUR Tökum að okkur að sérpanta varahluti í vinnu- vélar og vörubifreiðar. VÉLVANGUR HF. Hamraborg 7 — norðurhlið Kópavogi — Sími 42233. Háigreiðsla aöeiginvild Meö hárgreiöslusetti frá Remington er leikur einn að haga hárgreiðslunni að vild sinni. Þú getur burstað, greitt, þurrkað, liðað og lagt hárið eins og hugurinn girnist. Tvenns konar sett fyrirliggjandi: HW 23, með hárliðun- arjárni, þrem tegundum bursta og greiðu og HW 22 með tveim burstum og greiðu. Þægilegt handfang með innbyggðum varmablásara og leiðslu sem snýst ekki upp á. Fullkomin varahluta og viðgerðarþjónusta. OOP&Sl Laugavegi 178 Sími 38000 Húsbyggjendur VÖRUKYNNING OPIÐ sunnud. 13. júní kl. 14—16. Hafið meðferðis teikningar. TILBOÐ — SAMNINGAR húsbyggjendum að kostnaðarlausu Sameiginlegur vöru- Sérhæfðir á sviði bygg- sýningarsalur og sölu- ingariðnaðar. Allt frá skrifstofa um 40 fyrir- steinsteypu — upp i tækja. teppi. Gjörið svo vel — Allt á einum stað IÐNVAL Byggingaþjónusta Bolholti 4 Reykjavík. V_________:_______ý

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.