Morgunblaðið - 13.07.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.07.1976, Blaðsíða 15
14 MORGUNBLAÐIÐ. ÞHIÐJUDAGUR 13. JULI 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, slmi 22480 hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands í lausasolu 50,00 kr. eintakið. Mörk lánsfjáráætlunar Atímum viðreisnar- stjórnar, sem hér sat að völdum í rúman áratug, áður en vinstri stjórnin síð- ari kom til sögunnar, voru skoðanir skiptar um ágæti hennar, eins og vera bar. Elftir á að hyggja ber þó flestum saman um að stjórnun hennar á ríkis- fjármálum og efnahags- málum þjóðarinnar, hafi verið hyggileg og farsæl. Hallalaus ríkisbúskapur var aðall hennar og árlegur meðal verðbólguvöxtur umræddan áratug fór ekki yfir 10—12%. Það var að vísu talið meira en nóg á þeim tíma en er þó hóflegt mjög í samanburði við það sem síðar varö. Verðfall útflutningsaf- urða okkar á árunum 1967 og 1968 og versnandi við- skipta- og gjaldeyrisstaða, sem i kjölfar kom, kallaói á gagnaðgerðir, sem mörg- um þótti harkalegar. Þær leiddu hins vegar til þess aó þjóðin náði töKum á efnahagsvanda sínum á furðu skömmum tíma. Við- reisnarstjórnin skilaði búi í blóma og í sókn til bættra lífskjara í hendur viðtak- andi vinstri stjórnar á ár- inu 1971. Vinstri stjórnin átti um það er lauk við sin utan- aðkomandi vandamál að stríða, sem rætur áttu í versnandi viðskiptakjörum og lækkandi rauntekjum þjóðarinnar. En hún brást ekki við með sama hætti og viðreisnarstjórnin. Verð- bólgan og viðskiptahallinn tóku á þungt skrið undir hennar stjórn, sem enn segir til sin i þjóðarbú- skapnum og í afkomu hverrar fjölskyldu í land- inu. Verðlag neyzluvöru hækkaöi þann veg um meir en 50% árið 1974 og heild- arskuldir þjóðarinnar út á við jukust hröðum skref- um. Greiðsluhalli ríkis- sjóös óx og hraðbyri og var kominn í nærri sex. mill- jarða á sl. ári. Núverandi ríkisstjórn greip til marg- háttaðra mótaðgerða, sem þegar eru farnar að bera jákvæðan árangur. Minnk- andi þensla í peningamál- um hefur dregið verulega úr viðskiptahallanum út á vió og spennunni innan- lands. Verðbólguvöxturinn var kominn niður í um 25% á síðustu mánuðum liðins árs. Ef fer sem horfir :ná gera ráð fyrir að jöfn- uður náist í ríkisbúskapn- um á ný á yfirstandandi ári. í sambandi við afgreiðslu fjárlaga í árslok 1975 (fyr- ir árið 1976) var gengið frá almennri lánsfjáráætlun í fyrsta skipti. Fjallar þessi áætlun um lánaviðskipti ríkissjóðs og ríkisstofnana, fjárfestingarlánasjóða og innlánsstofnana, og nær til erlendra lána jafnt sem innlendra. Er markmið áætlunarinnar að halda lánum innan þeirra vé- banda, er samræmist sett- um markmiðum ríkis- stjórnarinnar um minnkun viðskiptahalla og verð- bólgu. Þessi lánsfjáráætl- un, sem er nýjung í stjórn ríkisfjármála og efnahags- mála almennt ætti að auó- velda mjög heildarstjórn í þessum efnum, og lausn á aðsteðjandi efnahagsvanda þjóðarbúsins, ef hún verð- ur virt og í engu út af brugðið. Sú hætta er vissulega til staðar, þegar eftirspurn eftir fjármagni er mikil, eins og nú er, og fjárfest- ingar- eða stofnlánasjóðir atvinnuveganna félitlir, að kröfur komi fram um er- lendar lántökur til að mæta fjármagnsþörf eða óskum. Þá þarf einurð og festu til að fylgja fram mótaðri stefnu í framkominni lánsfjáráætlun. Erlendar lántökur, innan ramma lánsfjáráætlunar, til að mæta umræddum þörfum, eru sjálfsagðar og til þess geróar að koma í veg fyrir atvinnuleysi, en þarf hik- laust að stöðva við þau mörk, sem lánsfjáráætlun setur. Gjaldeyrisstaða þjóóar- innar út á við hefur verið mjög óhagstæð lengi undanfarið. Skuldin um síðast liðin áramót nam 3.666 milljónum króna. í maílok sl. var gjaldeyris- skuld bankanna komin í hvorki meira né minna en 5.454 milljónir króna. Júní- mánuður reyndist hinsveg- ar einn hagstæðasti mán- uðurinn í viðskiptum þjóðarinnar um árabil, enda þá flutt út mikið magn saltfisks og annarra sjávarafurða. Rétti sá út- flutningur gjaldeyrisstöð- una um rúmlega 2.300 milljónir. Engu að síður er neikvæð staða okkar í dag um 3.100 milljónir. Erlend- ar skuldir þjóðarinnar í heild hafa aldrei verið meiri en í dag. Þetta er afleiðing þess efnahags- ástands, sem við höfum átt við að glíma en nú eru að- stæður að breytast og þó skiptir miklu að slaka hvergi á. A fjórðungsmóti Átta fyrstu hestarnir í flokki klárhesta með tölti fara hér eftir vellinum. Sic;urvegarinn Blakk- ur er lengst til vinstri á mynd- inni, þá Þokki, Flótti, Iðu- Jarpur, Blakkur, Hlynur, Þokki og Faxi. Myndirnar hér á síð- unni tóku þeir Sigurgeir Sigur- jónsson og Tryggvi Gunnars- son. Meðal dagskráratriða á kvöld- vöku á laugardagskvöld var sýning nokkurra unglinga á ýmsum æfingum undir stjórn Rósmarie Þorleifsdóttur. Hér sjáum við einn þátttakendanna grípa bolta með reiðhjálmi sín- um. VEÐURGUÐIRNIR létu sitt ekki eftir liggja til að gera mótsgestum fjórðungsmóts norðlenskra hestamanna um helgina eftirminnilegt. I steikjandi sólarhita og veðurblíðu söfnuðust um 4000 manns saman til að fylgjast með norðlenskum góðhrossum á einhverju skemmtilegasta mótssvæði, sem hestamenn I landinu hafa til afnota. Mótið var haldið á nýju félagssvæði hestamannafélaganna Funa og Léttis og víst er að þar á eftir að verða stórglæsileg aðstaða til mótahalds, en ennþá háir svæðinu einkum, að þörf er á að binda það betur með gróðri. Aðstaða er góð fyrir áhorfendur og munu mótsgestir þess geta í senn horft á hrossin á vellinum og baðað sig f sólinni. Að sögn löggæsluyfirvalda á staðnum fór mótið hið besta fram, engin óhöpp urðu utan það hvað ein kona féll af hcsthaki og slasaðist nokkuð. Nokkuð gerðust menn þó söngglaðir á tjaldstæðunum og áttu sumir erfitt með svefn af þeim sökum. RINGÓ FRA Asgeirsbrekku SIGRAÐI Svartur 777 frá Syðra- Laugalandi var eini stóðhestur- inn, sem sýndur var með afkvæm- *um á mótinu og hlaut hann 2. verðlaun fyrir afkvæmi en eink- unnina 7,69. Svartur er eign Bún- aðarfélags Öngulstaðahrepps í Eyjafirði en hann er undan Svip 385 frá Akureyri og Hrafntinnu frá Sauðarárkróki, sem er undan Síðu, því kunna verðlaunahrossi Sveins Guðmundssonar á Sauðár- króki. Með Svarti voru sýnd öll þau trippi, sem til eru tamin und- an honum en flest eru þau aðeins 4 vetra. Afkvæmi Svarts eru ekki stór en frlð og geðþekk hross, allvel reist þó nokkuð lýti það afkvæmin hversu hálsdjúp þau eru. Þau eru viljug og brokk og tölt e,ru fyrir hendi í þeim öllum en fótlyfing mætti vera meiri. Skeið býr í nokkrum afkvæm- anna, þó ekki sé það að ráði i Svarti en Svartur virðist svara vel ganglægum hryssum. Af stóðhestum 6 vetra og eldri stóð efstur Ringó frá Asgeirs- brekku, eign Vatnsleysubúsins i Skagafirði og hlaut hann eink- unnina 8,09. Ringó er undan Lýs- ingi 409 frá Vóðmúlastöðum og Irpu frá Kyljuholti en hún er út af Skugga 201 frá Bjarnanesi. Irpa hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á landsmótinu 1974. Annar i þessum flokki varð Gló- blesi 836 frá Kirkjubæ, eign Arn- grims Geirssonar, Skútustaða- skóla, Mývatnssveit með einkunn- ina 8,03. Glóblesi er undan Hyl 721 frá Kirkjubæ og Hrönn frá Kirkjubæ. Þriðji var Tvífari 819 frá Hesti, eign Einars E. Gíslason- ar Syðra-Skörðugili, Skagafirði, með einkunnina 8,02 en Tvífari er undan Þokka 664 frá Bóndhóli og Von frá Hesti, sem var undan Nökkva 260. Alls voru sjö hestar sýndir í þessum flokki og hlutu ekki aðrir en þeir þrír, sem hér hafa verið nefndir fyrstu verð- laun þ.e. einkunnina átta eða hærra. Sigurvegarinn i flokki stóð- hesta 5 vetra og eldri varð Öðinn 883 frá Sauðárkróki, eign Hrossa- ræktarsambands Skagfirðinga og hlaut hann einkunnina 8,02. Óð- inn er undan Sörla 653 frá Sauð- árkróki og Ljósku á Sauðárkróki. Annar i þessum flokki varð Sleipnir frá Ásgeirsbrekku, eign Ásdisar Björnsdóttur, Vatnsleysu með einkunnina 8,00 en Sleipnir er hálfbróðir Ringós, sem varð fyrstur í flokki stóðhesta 6 vetra og eldri. Þeir eru báðir undan Irpu frá Kyljuholti, en faðir Sleipnis er Amor 793 frá Ásgeirs- brekku. Högni 884 frá Sauðárkróki, eign Magnúsar Sigurðssonar, Sauðár- króki, stóð efstur i flokki 4 vetra stóðhesta og hlaut hann einkunn- ina 7,77. Hogni er undan Sörla frá Sauðárkróki og Brúnku frá Sauð- árkróki. FJÓRAR HRYSSUR FENGUR FYRSTU VERÐLAUN FYR- IR AFKVÆMI Hin 21 vetra gamla hryssa Snörp frá Hvassafelli, eign Aðal- MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JULI 1976 23 já norðlenskum hestamönnum Nös, sigurvegarinn í 350 metra stökki kemur hér að marki. Knapi er eigandinn Jón Ólafsson á Urriðavatni. Magni Kjartansson heldur hér á verðlaunabikar Svarts frá Syðra-Laugalandi, en Svartur var eini stóðhesturinn, sem sýndur var með afkvæmum á mótinu. Hart barist í 250 unghrossahlaupi, sigurvegarinn Sleipnir fyrir miðju en Fengurfrá Keldudal t.v. og Hreinn t.h. Mótsgestir nutu veðurblíðunnar og gengu um léttklæddír. Helst var að menn kvörtuðu undan of miklurn hita en hitastigið var í kringum 30 gráður, þegar heitast var. Sigurður Ingimarsson heldur hér í Kolskegg, sig- urvegarann i A-flokki gæð- inga, og virðir fyrir sér verðlaunagripina. steins Magnússonar, Akureyri, stóð efst af kynbótahryssum með afkvæmum og hlaut einkunnina 8,04 og fyrstu verðlaun fyrir af- kvæmi. Snörp er undan Svip 385 frá Akureyri og Blesu frá Hvassa- felli. Til dóms voru sýndar með henni tvær hryssur, Dama og Brana, báðar eru þessar hryssur snarpviljugar og tjá í fasi sínu myndarskap og kjark. Brana varð önnur í flokki hryssa 6 vetra og eldri. Önnur af afkvæma- hryssunum varð Bára frá Akur- eyri, eign Unu Sörensdóttur, Akureyri, og hlaut hún 1. verð- laun fyrir afkvæmi, einkunnina 8,01. Bára er einnig undan Svip 385. Tvær aðrar hryssur hlutu einnig 1. verðlaun fyrir afkvæmi en það voru Blökk frá Kyljuholti, eign Önnu Þóru Jónsdóttur, Vatnsleysu, Skagafirði, og Metta frá Grund, eign Sigurðar Snæbjörnssonar, Höskuldsstöð- um, Eyjafirði. Um þæi- hryssur, sem sýndar voru á mótinu sem einstaklingar, er i heild hægt að segja að þarna var á ferð fjölskrúðugur hópur, hvað snertir gæði. Yfirleitt komu hryssurnar vel fyrir og þá ekki siður þær yngri. En helst skorti að þær eldri hefðu mátt sýna meiri tilþrif og snerpu og ekki hefði það skemmt að sjá fleiri skeiðspretti, en þeir voru því mið- ur of fáir i öllum flokkum kyn- bótahrossanna. Óneitanlega verð- ur að telja þetta afturför frá sið- ustu mótum á Norðurlandi en frá þeim eiga menn enn Ijúfar minn- ingar um snjalla skeiðspretti. Af hryssum 6 vetra og eldri stóð efst Laufa frá Akureyri, eign Agnars Pálssonar, Akureyri, með einkunnina 8,19. Laufa er undan Báru frá Akureyri, sem varð í öðru sæti afkvæmahryssanna á mótinu en faðirinn er Eyfirðing- ur 654. 1 öðru sæti varð Brana frá Akureyri, eign Aðalsteins Magnússonar, Akureyri, með ein- kunnina 8,18. Brana er undan Snörp frá Hvassafelli og Gusti 782 frá Dvergasteini en hann er und- an Eyfirðingi 654. Þriðja varð Stjarna frá Arnesi, eign Hilmars Hermóðssonar, Arnesi, Aðaldal, og hlaut hún einkunnina 8,12 en alls fengu 10 hryssur i þessum flokki hærri einkunn en átta eða fyrstu verðlaun. Stjarna er undan Faxa frá Eiríksstöðum og Toppu frá Arnesi. Dýna frá Svertingsstöðum, eign Haralds Tryggvasonar, Svertings- stöðum í Eyjafirði, stóð efst af 5 vetra hryssunum og hlaut ein- kunnina 8. Faðir Dýnu er Glæsir 656 frá Sauðárkróki og móðirin er Perla frá Svertingsstöðum, undan Svip 385. Af fjögra vetra hryssunum stóð efst Freydis frá Hesti, eign Ein- ars E. Gislasonar, Syðra- Skör’ðugili i Skagafirði, með ein- kunnina 8,08. Freydís er undan Kolbak 730 frá Gufunesi og Kviku frá Hesti en hún var dóttir Nökkva 260 frá Hölmi. HVAÐA HESTA EIGUM VIÐ AÐ VELJA TIL UNDANELDIS? Gæðingar, sem til dóms mættu á mótinu voru 56 frá 13 hesta- mannafélögum á Norðurlandi og voru hestarnir dæmdir með spjaldadómum. Efstur i A-flokki alhliða gæðinga varð Kolskeggur, eig. og knapi Sigurður Ingimars- son, Flugumýri, Skagafirði, með einkunnina 8,34. Annar varð Tí’g- ull, eigandi og knapi Þorvaldur Pétursson, Akureyri, með ein- kunnina 8,16 og þriðji varð Þór, Andrésar Kristinssonar, Kvía- bekk i Ólafsfirði, en hann fékk einkunnina 8,10. Af hestum í B-flokki, klárhesta með tölti, stóð efstur Blakkur, eign Péturs Sigfússonar, Álfta- gerði, Skagafirði, en knapi var sonur Péturs, Gísli. Hann hlaut einkunnina 8,84. 1 öðru sæti varð Sokki, eig. og kappi Jón Garðarx- son, Ingveldarstöðum, Skagafirði, með einkunnina 8,58 og þriðji Flótti eig. og knapi FJnnur K. Björnsson, Akureyri, einkunn 8,40. Urslitin i ga'ðingakeppninni eru vissulega ábending um hversu erfitt er oft á tiðum að ákveða hvaða hesta skuli hafa óvanaða og nota til undaneldis. Kolskeggur sigurvegarinn I A- flokki gæðinga var t.d. faðir að tveimur hryssum í fimm vetra flokknum og hafnaði önnur þeirra Öfelia frá Flugumýri í öðru sæti. En það verður senni- lega seint, sem hægt verður að koma í veg fyrir að slik slys eigi sér stað. NÖS SIGRAÐI í 350 M STÖKKI — LOKA VARÐ ÖNNUR Kappreiðar mótsins voru um margt fjörlegar og spennandi. Ar- angur i hlaupunum hvað tíma snertir varð þó ekkert sérstakur og kemur þar til að hlaupabrautin var mjög laus I sér og gljúp. Ur þessu ætti þó að vera auðvelt að bæta og græða völlinn upp, því þeir eru fáir vellirnir á landinu, sem bjóða upp á eins ákjósanleg skilyrði fyrir áhorfendur tii að fylgjast með hlaupunum eins og völlurinn á Melgerðismelum. 1 250 metra skeiði sigraði Óð- inn, Þorgeirs Jónssonar I Gufu- nesi, knapi Aðalsteinn Aðalsteins- son á 24,3 sek. og annar var Vafi, Erlings Sigurðssonar á 25,8 sek. en í þriðja og fjórða sæti urðu þeir Ljúfur, Harðar G. Alberts- sonar og Hrimnir, Eyjólfs tsólfs- sonar, báðir á 27,1 sek. Fannar Harðar G. Albertssonar lá i hvor- ugum sprettinum og segir þar sjálfsagt til sin að hann hefur ekki enn jafnað sig fyllilega eftir meiðsl, sem hann hlaut fyrir nokkru. 1 úrslitaspretti í 250 metra ung- hrossahlaupinu var hart barist en Sleipnir Harðar G. Albertssonar sigraði á 20,2 sek. en annar varð Fengur frá Keldudal, eign Stefáns Hrólfssonar, á sama tima, 20,2 sek. Skörungur Ragnars Sig- urðssonar, Akureyri, og Hreinn Harðar G. Albertssonar, eru i þriðja og fjórða sæti á tímanum 20.4 sek. Hápunktur kappreiðanna var úrslitahlaupið i 350 metra stökki og var mikið vafamál, hvort það yrði Loka Þórdísar H. Albertsson eða Nös, Jóns Ölafssonar á Urðabala sem kæmi fyrst að marki en eftir undanrásir hafði Nös til muna betri tíma. I úrslita- hlaupinu náði Nös strax foryst- unni og lengi framan af var Glóa Harðar G. Albertssona'r i öðru sæti en Loka náði að komast fram fyrir Glóu, þegar hlaupið var rúmlega hálfnað. Strax og Nös fann að Loka nálgaðist var eins og hún tæki kipp og hún sigraði á snörpum endaspretti en timi hennar var 25,8 sek. Loka varð önnur á 26,7 sek., en Glóa þriðja á 26,9 sek. Geysir Helga og Harðar Harðar- sona, var i sérflokki i 800 métra stökkinu og sigraði örugglega á 64,6 sek en annar varð Skuggi Gunnar Þórarinssonar á Dalvík á 67,8 sek. og þriðji varð Stormur Sigurbjarnar Eiríkssonar og Harðar G. Albertssonar á 68.5 sek. Keppnin i 1500 metra brokkinu á mótjnu er einhver skemmtileg- asta brokkkeppni, sem undirritað- ur hefur lengi horft á. Þeir Gust- ur Gunnars Egilssonar og Faxi Eyjólfs Isólfssonar skiptust á um að hafa forystu i keppninni en þegar þeir komu seinni hringinn náði Gustur forystunni og sigraði á 3 mín. 26,7 sek, en Faxi v'arð annar á 3 min. 28,8 sek, og þriðji varð Náttfari Björns Jónssonar. Vatnsleysu á 3 min. 36,3 sek.._(,g

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.