Morgunblaðið - 13.07.1976, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JULl 1976
21
„ALLT MÆLIR
MENN SIGRI
MED ÞVl AÐ SOVÉT-
I STIGAKEPPNI OL"
Lvudmila Turishcheva — fimleikadrottning leikanna í Miinchen,
ætlar sér að hljóta gullverðlaun I Montreal, en baráttan verður ekki
auðveld.
Nikilai Andrianov — helzta gullvon Sovétmanna í fimleikum karla.
sem einnig hefur hlaupið undir 4
mínútum og Lyudmila Bragina
sem sigraði i hessari grein i Mún-
chen og setti þá hvert heimsmet-
ið af öðru. Þá eru i Ólympíulið-
inu þær Faina Melnik, heimsmet-
hafi í kringlukasti kvenna, og
Nadezhda Chizkova sem sigraði i
kúluvarpinu 1972, en fær nú
væntanlega harða keppni við
búlgörsku stúlkuna sem nýlega
hefur bætt heimsmetið í þessari
grein mjög verulega.
Sovétrikin senda fjölmennt
lið til fimleikakeppninnar i
Montreal. Meðal keppenda í
kvennaflokki verða þær Lyud-
mila Turishcheva og Olga Korbut,
stúlkurnar er vöktu hvað mesta
aðdáun í Mtinchen, svo og Nelli
Kim, 19 ára stúlka sem sögð er
gefa hinum tveimur lítið eða ekk-
ert eftir og er fræg fyrir nýjan stíl
sem hún er að innleiða i fimleika-
keppnina.
I sundkeppninni gera Sovét-
menn ekki ráð fyrir að uppskera
mörg verðlaun. Þeir binda aðal-
lega vonir við Irinu Kalininu, 17
ára skólastelpu, sem hlaut gull-
verðlaun i dýfingum af háunt
palli í heimsmeistarakeppninni i
Columbiu i fyrra og Vladimir
Raskatov, sem nýlega hefur bætt
Evrópumetið i 400 metra skrið-
sundi.
Þá mun einnig athygli beinast
að lyftingakappanum Vasily
Alexeyev „sterkasta manni
heims", sem ætlar sér nú gull-
verðlaun í annað sinn á Ölympíu-
leikunum, svo og að sovézka
knattspyrnuiiðinu sem a'tlar sér
ekkert minna en gull á leikununt.
ára. Elzti keppandinn í frjálsum
íþróttum er Vladimir Golubnichy
en hann er tæplega 41 árs að
aldri. Keppir hann í 20 kólómetra
göngu, en í þeirri grein hefur
hann tvívegis hlotið gullverðlaun,
einu sinni silfurverðlaun og einu
sinni bronsverðlaun frá því að
hann byrjaði að keppa á Ólympíu-
leikum árið 1960.
Það vekur athygli að Sovét-
menn senda nú ekki keppendur í
allar greinar frjálsra íþrótta á
leikunum. Þannig mun t.d. eng-
inn keppa í 3000 metra hindrun-
arhlaupi og í 1500 metra hlaupi,
en ástæðan er sú að enginn náði
því lágmarki sem Alþjóða-
Ólympíunefndin setti fyrir þátt-
töku fleiri en eins manns frá
hverju landi í þessum greinum,
en það lágmark notuðu Sovét-
menn sem viðmiðun við val kepp-
enda sinna. Þá var heldur ekki
ætlunin að senda keppanda í 5000
metra hlaup, en á sfðustu stundu
náði hinn 21 árs Enn Sellik svo
frábærum árangri í þessari grein,
að sovézka Ólympiunefndin ákvað
að senda hann til leikanna. Hljóp
Sellik á næst bezta tíma sem náðst
hefur á þessari vegalengd í heim-
inum í ár, 13:17,2 mín., og er það
um niu sekúndum betri timi en
Finninn Lasse Viren náði á
Ólympíuleikunum 1972. Sellik
mun einnig keppa í 10.000 metra
hlaupi og vona Sovétmenn að
hann leiki eftir afrek Vladimir
Kuts 1956 en hann sigraði þá í
báðum þessum greinum með
nokkrum yfirburðum.
Meðal sovézku Ólympiufaranna
eru m.a. þrír gullmenn frá leikun-
um í Múnchen, Valery Borzov,
Viktor Saneyev og Nikolai Avilov.
Borzov sigraði bæði í 100 og 200
metra hlaupi á leikunum í
Múnchen, en á árinu 1975 dró
hann sig að mestu í hlé og æfði
lítið. Hann byrjaði síðan aftur æf-
ingar af miklum krafti í vetur og
var fljótur að ná af sér nokkrum
aukakílóum og komast í gott
form. Borzov er nú 26 ára og er
sjálfur ekki i vafa um að hann
leiki sama leikinn og í Múnchen,
— sigri i báðum spretthlaupun-
um.
Viktor Saneyev hyggur líka á
sigur i þrístökkinu, og nái hann
þvi takmarki verður hann fyrstur
manna til þess að sigra i þeirri
íþróttagrein á þrernur leikjum i
röð. Er Saneyev sagður hafa búið
sig betur undir keppnina nú en
nokkru sinni áður og má mikið
vera ef honum tekst ekki að verja
titil sinn.
Að venju er sovézka kvennalið-
ið sem tekur þátt í leikunum,
mjög sigurstranglegt. Meðal
keppenda verða þar t.d. Valentina
Gerasimova, sem bætti heimsmet-
ið i 800 metra hlaupi um eina og
hálfa sekúndu á sovézka meistara-
mótinu, og Tatyana Kazankina,
sem varð fyrst kvenna til þess að
hlaupa 1500 metra hlaup á betri
tíma en fjórum mínútum. Auk
hennar taka þátt í 1500 metra
hlaupinu þær Raissa Katyukova
Viktor Saneyev — hlýtur hann þriðja þrfstökksgullið I Montreal?
Nadezhda Chizhova — sigurstrangleg í kúluvarpi kvenna
— ÞAÐ mælir alit með því að
sovézka fþróttafólkið sigri f hinni
óopinberu stigakeppni Olvmpíu-
leikanna f Montreal, sagði
Anatoly Kolesov, varaformaður
sovézka íþróttaráðsins, í viðtali
við AP fréttastofuna nýlega, þar
sem rætt var um þátttöku Sovét-
manna í Ólympfuleikunum í Mon-
treal, en þangað munu þeir senda
mjög fjölmennt lið. Benti
Kolesov á það f viðtalinu að Sovét-
menn hefðu hlotið alls 50 gull-
verðlaun á leikunum f Miinchen
1972, og hefði engin þjóð hlotið
svo mörg gullverðlaun á einum
Olympfuleikum fyrr.
Kolesov sagði það skoðun sina
að aðalbarátta Sovétmanna yrði
við Bandarikin og Austur-
Þýzkaland, en þessar þjóðir
myndu þó standa höllum fæti í
greinum eins og glímu, fimleik-
um, lyftingum, skotfimi, skylm-
ingum, húðkeyparóðri og nútíma-
fimmtarþraut, en í öllum þessum
greinum ættu Sovétmenn mjög
góðu fþróttafólki á að skipa, sem
myndi örugglega hljóta fleiri en
færri verðlaun á leikunum.
Alls munu um 500 sovézkir
íþróttamenn fara til leikanna í
Kanada, og er það öllu hærri tala
en verið hefur á öðrum Ólympíu-
leikum. Til Montreal mun einnig
fara gífurlega fjölmennt lið farar-
stjóra og tæknimanna frá Sovét-
ríkjunum, sem ætla að fylgjast
vel með framkvæmd leikanna og
reyna að læra af bæði því sem vel
tekst til og miður fer, og nýta
siðan reynsluna þegar leikarnir i
Moskvu verða undirbúnir, en þar
eiga leikarnir að verða næst, árið
1980.
Keppendur Sovétríkjanna á
leikunum eru á mjög misjöfnum
aldri og einnig misþekktir. Elztu
keppendurnir eru Ivan Kizimov
og Ivan Kalita sem keppa í hesta-
mennsku, en þeir eru 48 og 49
- sagði talsmaður sovézka íþróttasambandsins