Morgunblaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1976 Meiri samstaða en á öðru þingi BSRB — sagði Kristján Thorlacius, sem endurkjörinn var sem formaður — Það kom I ljós á þessu þingi, að samtökin eru sterk og að þing- inu loknu eru þau enn sterkari en áður, sagði Kristján Thorlacius, formaður Bandalags starfsmanna rfkis og bæja, 1 samtali við Morgunbaðið 1 gær en 30. árs- þingi Bandalagsins lauk á Hótel Sögu f gær. — Ég auglýsti eftir þvf við upphaf þings hvort þær lausafregnir sem lesa hafði mátt f blöðum um að samtökin væru að gliðna hefðu við rök að styðjast. Þetta þing sannaði mér að slfkar Kristján Thorlacius fréttir voru úr lausu lofti gripnar og ég minnist þess ekki að sam- staða hafi verið meiri á öðru þingi BSRB sagði Kristján. Margar ályktanir voru sam- þykktar á þinginu og fjölluðu þær m.a. um kjaramál, efnahagsmál, skattamál, orlofsheimili og fræðslu— og útbreiðslumál sam- takanna. Síðasta dag þingsans var eftirfarandi tillaga samþykkt: „Þar sem viðskiptakjör þjóðar- innar hafa á undanförnum mán- uðum stórbatnað og allt útlit er fyrir framhald þeirra þróunar skorar 30. þing BSRB á rikis- stjórn og Alþingi að gera ráðstaf- anir til þess að kaupmáttur launa verði þegar á þessu hausti veru- lega bættur annað hvort með efnahagsráðstöfunum eða með beinni almennri launahækkun." Kristján Thorlacíus var endur- kjörinn formaður BSRB og sömu- leiðis varaformennirnir Hersir Oddsson og Haraldur Steinþórs- son. Meðstjórnendur voru kjörnir Ágúst Geirsson, Einar Ólafsson, Jónas Jónasson (voru fyrir í stjórn), Albert Kristinsson, Guð- rún Helgadóttir, Kristfn Tryggva- dóttir, Sigurveig Sigurðardóttir og örlygur Geirsson. Spasskí boðið á næsta alþjóðamót hér á landi „ÞAÐ VAR mjög ánægjulegt að lesa um það að Spasskf vildi koma hingað og tefla. Við mun- um skrifa honum á næstunni og bjóða honum á næsta al- þjóðamót, sem haldið verður hér,“ sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands Islands, f samtali við Mbl. f gær, en f samtali við Mbl. f gær lýsti Bor- is Spasskí, fyrrverandi heims- meistari, yfir áhuga á þvf að tefla á tslandi. Framhald á bls. 46 Ljósm. Mbl.:OI.K.M. EINS ARS AFMÆLI — Þessi mynd var tekin f stjórnstöð Landhelgisgæzlunnar f gær. A myndinni eru talið frá vinstri: Benóný Ásgrfmsson stýrimaður, Pétur Sigurðsson forstjóri og Þórður Þórðarson loftskeytamaður. Á veggnum bak við þá þremenninga má sjá kort af tslandi og 200 mflunum. Inn á það er skráð hvar togararnir halda sig að veiðum, og eins hvar varðskipin eru á hverjum tfma. 40 erlendir togarar ad veidum við landið í gær — Snöggtum færri en sama dag í fyrra — 1 dag er liðið eitt ár frá þvf að fiskveiðilögsagan var færð úr 50 sjómfium f 200. Ástandið á miðunum kringum landið er allt annað nú en var á sama tfma f fyrra og erlendir togarar að veiðum snöggtum færri en þá, auk þess sem þeir mega aðeins veiða á tilteknum svæð- um. Kom þetta fram er Mbl. hafði samband við Pétur Sigurðsson, forstjóra Land- helgisgæzlunnar f gær. Að sögn Péturs voru alls 40 erlend fiskiskip á veiðum við landið í gær. Brezkir togarar voru alls 23. Voru 16 að veiðum úti fyrir Austfjörðum þ.e. á svæðinu frá Gullkistu, sem er i kantinum úti af Glettinganesi, suður undir Eystra— og Vestra-Horn. Þá voru nokkrir togarar að veiðum í hinum víð- fræga Rósagarði, sem er djúpt úti af Suð-Austurlandi. Flestir þessara togara voru að veiðum djúpt undan landi, i kantinum eða a.m.k. 40—50 sjómílur frá landi. Þá sagði Pétur, að 7 brezkir togarar hefðu verið að veiðum úti fyrir Norðurlandi á svæðinu SV af Kolbeinsey. Tveir brezkrir togarar voru á heimleið í gær. Ellefu v-þýzkir togarar voru að veiðum við landið í gær og voru allir að veiðum úti af Reykjanesa, nema einn sem hélt sig úti fyrir Vesturlandi. Þá voru 4 belgfskir togarar að veið- um úti af Reykjanesi og 2 fær- eyskir togarar voru að veiðum undan norðnaverðum Aust- fjörðum. Helztu verkefni varðskip- anna að undanförnu hafa verið að fylgjast með veiðum er- lendra og íslenzkra skipa. Með- al annars hefur oftsinnis verið farið um borð í erlendu togar- ana, veiðarfæri þeirra mæld og kannað hvort aflasamsetning sé rétt. ilistif ' - *«.7V > f V 'M ■ . i "ZVA 4<V< ** m . ' *■>-* * < <• * V, . , . •* * VITIÐÞIÐ...? ... HVAÐHÆGT ERAÐ GERA SVAKALEGA gódkaupá ÚTSÖLUMARKAÐNUM ★ Föt m/vesti Fermingarföt ★ St. terylenebuxur herra — Öll nr. St. terylenebuxur dömu — Nr. 26—30 Kjólar — Pils — Buxnapils ★ Dragtir (m/buxnapilsi) Dömupeysur og herrapeysur 600 — St. jakkar herra og dömu 6000/— ★ Skór mjög ódýrir Allt mjög góðar og nýlegar vörur Látið ekki happ úr hendi sleppa áf^m TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS I t)P KARNABÆR Útsölumarkaðurinn, Laugavegi 66, sími 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.